Morgunblaðið - 14.06.1995, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Meirihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar klofnaði á bæjarstjórnarfundi
Alþýðuflokkurinn
réð ráðningu
bæjarverkfræðings
Alþýðuflokkurinn
gat ráðið ráðningu bæj-
arverkfræðings, eða for-
stöðumanns fram-
kvæmda- og tæknisviðs, í Hafnar-
fírði á bæjarstjómarfundi í gær,
er meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Alþýðubandalags klofnaði. Bæjar-
verkfræðingur var kjörinn með
fímm atkvæðum Kristinn Ó. Magn-
ússon, fyrrverandi formaður Al-
þýðuflokksfélagsins í Kópavogi og
núverandi aðstoðarbæjarverkfræð-
ingur í Hafnarfirði. Bjöm I. Sveins-
son fékk fjögur atkvæði og Jóhann
G. Bergþórsson tvö.
Jóhann G. Bergþórsson, sem er
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
hefur gert tilkall til þess að verða
ráðinn í stöðu bæjarverkfræðings,
og vísar til þess að við myndun
meirihlutans fyrir ári hafí aðrir í
meirihlutanum heitið sér embætt-
inu. Magnús Gunnarsson, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn
og formaður bæjarráðs, hefur hins
vegar sagt að það fari ekki saman
að vera bæjarfulltrúi og bæjar-
verkfræðingur.
Á bæjarráðsfundi í Hafnarfirði
á mánudag lagði Magnús Gunnars-
son fram tillögu um að Björn I.
Sveinsson, sem ráðningarþjónusta
Hagvangs hf. hafði metið hæ-
fastan í stöðuna, yrði ráðinn bæjar-
verkfræðingur. Ellert Borgar Þor-
valdsson, forseti bæjarstjómar,
bókaði þar að hann myndi taka
afstöðu til tillögunnar á bæjar-
stjómarfundi. Að tillögu Alþýðu-
flokksmanna var málinu vísað til
bæjarstjómar.
Jóhann fékk tvö atkvæði
Á bæjarstjómarfundi í gær var
dreift atkvæðaseðli með nöfnum
allra ellefu umsækjenda um bæjar-
verkfræðingsstöðuna. Jóhann G.
Bergþórsson vék af fundi er málið
var tekið fyrir og tók sæti hans
Magnús Kjartansson varabæjar-
fulltrúi. Átkvæðagreiðslan var
leynileg, en samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins greiddu þeir
Magnús Kjartansson og Ellert
Borgar Þorvaldsson Jóhanni at-
kvæði, tveir fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins og báðir bæjarfulltrúar
Alþýðubandalagsins kusu Bjöm I.
Sveinsson og alþýðuflokksmenn
greiddu Kristni Magnússyni at-
kvæði.
„Meirihlutinn er fallinn," sagði
Magnús Gunnarsson, oddviti Sjálf-
' stæðisflokksins, í samtali við
Morgunblaðið eftir bæjarstjómar-
fundinn. Hann sagði að í kvöld,
miðvikudagskvöld, yrði boðað til
fundar í fulltrúaráði sjálfstæðisfé-
laganna í bænum og staðan kynnt.
Ellert Borgar nýtur ekki
trausts
Magnús sagði bæjarmálaflokk
sjálfstæðismanna hafa samþykkt
að oddviti flokksins færi með um-
boð flokksins til að mæla með
manni í stöðu bæjarverkfræðings.
Tveir fulltrúar hefðu ekki sam-
þykkt þann, sem hann hefði lagt
til. „Þar með skilja leiðir,“ sagði
Magnús.
Aðspurður hvort Ellert Borgar
Þorvaldsson, forseti bæjarstjómar,
nyti trausts bæjarmálaflokksins
eftir þessa niðurstöðu, svaraði
Magnús neitandi og sagðist líta svo
á að forsetinn styddi ekki meiri-
hlutann lengur.
Magnús Jón Árnason, bæjar-
stjóri og oddviti Alþýðubandalags-
ins, sagði að meirihlutaflokkamir
hefðu ákveðið að styðja hæfasta
umsækjandann, að mati Hag-
vangs. Fyrst Sjálfstæðisflokkurinn
hefði ekki getað skilað þeim fjóram
atkvæðum, sem þurft hefði til að
ráða bæjarverkfræðing, liti hann
svo á að hann væri ekki í meiri-
hluta með Alþýðubandalaginu.
Hins vegar hefði hann ekki fengið
tilkynningu um slit meirihlutasam-
starfsins og málið væri hið dapur-
legasta, þar sem hann hefði átt
gott samstarf við Magnús Gunn-
arsson og flesta aðra fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins.
Magnus Jón sagði að á því eina
ári, sem meirihlutinn hefði starfað,
hefði persónuleg afstaða Jóhanns
G. Bergþórssonar ráðið of miklu
og skaðað samstarfið. „Það má
kannski lýsa þessum vandræðum
bezt með því að vitna í heiti á bók
Morgunblaðið/Sverrir
JÓHANN G. Bergþórsson á bæjarstjórnarfundinum í Hafnar-
firði í gær. Því er nú lýst yfir að meirihluti bæjarstjórnar sé
fallinn vegna áherzlu hans á að fá bæjarverkfræðingsembættið.
eftir Pétur Gunnarsson; Ég um
mig frá mér til mín,“ sagði bæjar-
stjórinn.
Tryggvi Harðarson, bæjarfull-
trúi Alþýðuflokksins, sagðist líta
svo á að meirihlutinn væri fallinn,
fyrst hann næði ekki saman um
jafnstórt mál og ráðning bæjar-
verkfræðings væri. Tryggvi sagði
of snemmt að spá um framvinduna
næstu daga.
„Fari svo að meirihlutinn springi
er nokkuð ljóst að nýr meirihluti
verður ekki myndaður nema með
fulltingi Alþýðuflokksins og undir
hans forystu,“ sagði Tryggvi.
Hann sagði Alþýðuflokksmenn
ekki hafa útilokað neinn kost og
tæki heldur engan fram yfir aðra.
„Við eram tilbúnir að ræða við
alla um málefnalega samstöðu,“
sagði hann.
Tryggvi sagði afstöðu Alþýðu-
flokksins til ráðningar bæjarverk-
fræðings byggjast á faglegu mati.
„Ef Jóhann hefði verið valinn,
hefðum við verið að færa þær deil-
ur, sem hafa einkennt störf meiri-
hlutans, inn í embættismannakerf-
ið,“ sagði hann. Tryggvi sagði van-
traust á Jóhanni sem bæjarfulltrúa
ekki felast í þessu.
Samkomulag brotið
Jóhann G. Bergþórsson sagði
eftir fundinn að með afgreiðslu
þeirra fulltrúa meirihlutans, sem
greiddu Birni I. Sveinssyni at-
kvæði, hefði samkomulag um
meirihlutann verið brotið. „Ég tel
mig ekki vera hluta af þessum
meirihluta lengur,“ sagði hann.
Jóhann sagði þreifingar um nýj-
an meirihluta ekki hafnar að sínu
framkvæði. Hann sagðist búast við
að starfa áfram innan Sjálfstæðis-
flokksins. Aðspurður hvort líklegt
væri að greri um heilt með honum
og öðram sjálfstæðismönnum í
bæjarstjórn, sagði hann að tveir
fulltrúar flokksins af fjóram hefðu
viljað virða samkomulag um bæjar-
verkfræðingsembættið.
„Það era fleiri sjálfstæðismenn
í bænum en þeir, sem sitja í bæjar-
stjórn,“ sagði Jóhann og sagði
marga óánægða með lítinn árang-
ur núverandi meirihluta.
Ellert B. Þorvaldsson vildi ekki
tjá sig við Morgunblaðið.
Ofanflóðasjóður
fær 1.400 millj-
ónir á fimm árum
ALLS er gert ráð fyrir að ofanflóða-
sjóður hafi til ráðstöfunar 1.400
milljónir króna á næstu fimm árum,
samkvæmt frumvarpi til breytinga
á lögum um Viðlagatryggingu Is-
lands og vamir gegn snjóflóðum og
skriðuföllum sem var til fyrstu um-
ræðu á Alþingi í gær.
Samkvæmt frumvarpinu hækkar
álag á iðgjöld viðlagatryggingar úr
10% í 20% næstu fímm árin, auk
þess sem hlutur Viðlagatryggingar
Islands í ofanflóðasjóði er aukinn
úr 5% af heildariðgjaldatekjum í
35%.
Meiri kostnaður
í greinargerð kemur fram að ljóst
sé að hörmungunum á Súðavik fylgi
meiri kostnaður en ráð hafí verið
fyrir gert er 10% álag á viðlaga-
tryggingu var ákveðið fyrr á árinu,
auk þess sem víðar hafi orðið tjón
í vetur. Er gert ráð fyrir að hækkun
álagsins skili 500 milljóna króna
auknum tekjum á næstu fimm
árum.
Til viðbótar er gert ráð fyrir að
hlutur ofanflóðasjóðs í heildarið-
gjaldatekjum Viðlagatryggingar ís-
lands nemi um 177 milljónum króna
á ári eða sem nemur 885 milljónum
króna samanlagt á næstu fímm
árum og að ofanflóðasjóður hafí til
ráðstöfunar 1.400 milljónir króna á
þessu árabili samanlagt miðað við
að framlög ríkissjóðs haldist óbreytt.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
mælti fyrir frumvarpinu. Hann fór
yfír áætlanir um uppbyggingu á
Súðavík, kostnað samfara því og
hvernig áætlað væri að mæta hon-
um. Hann rakti síðan efni frumvarp-
anna og þá tekjuöflun sem þar er
kveðið á um.
„Með breytingu á lögum um snjó-
flóðavarnir á síðastliðnum vetri,
reglugerðum sem settar verða á
grundvelli þeirra laga og þeirri tekju-
öflun sem gert er ráð fyrir í þessu
frumvarpi er tryggt að unnt verður
að bregðast við afleiðingum náttúru-
hamfaranna á síðastliðnum vetri.
Jafnframt hefur þar með verið lagð-
ur grundvöllur að framtíðarskipulagi
þessara mála.
Eins og áður sagði Iiggja ekki nú
fyrir nákvæmar áætlanir um kostn-
að vegna uppbyggingar í Súðavík
og aðgerða á öðram stöðum. Með
þeirri fjáröflun sem hér er lögð til á
hins vegar að vera unnt að sinna
því sem þarf til uppbyggingar í
Súðavík og það geti verið áfram eins
og óskir heimamanna standi til,“
sagði forsætisráðherra.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
fögnuðu þvi að frumvarpið væri
fram komið og var það samþykkt
samhljóða og vísað til annarrar
umræðu og efnahags- og viðskipta-
nefndar.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Þrír vinir
BERGLIND Bergsdóttir var sæl á svip með vini sína, Milli
Mollý Mandý og Sólon íslandus á sitt hvora hönd. Hún var í
heimsókn á bænum Árvöllum á Kjalarnesi, þar sem rekin er
ferðaþjónusta. Sjálf á Berglind kött á sínum heimaslóðum á
Grundarfirði, en kvaðst oft heimsækja vini sína tvo á Kjalarnesi.
Samtök iðnaðarins
Arangri
stefnt
í voða
SAMTÖK iðnaðarins hafa sent frá
sér harðorða ályktun vegna þeirra
átaka sem staðið hafa um kjara-
mál að undanfömu.
Minnt er á að verkalýðshreyf-
ingin hafi í ársbyrjun axlað ábyrgð
með gerð hófsamra kjarasamn-
inga og skora samtökin á þá sem
betur mega sín og enn eiga eftir
að semja að láta af kröfugerð sem
ekki samræmist því sem samið var
um í almennum kjarasamningum.
„Nú láta ýmsir sérhópar eins
og þá varði ekki um þjóðhagsleg
markmið og það sem aðrir hafa
borið úr býtum við samningaborð-
ið. Óbilgirni í samningum og kröf-
ur um kauphækkanir, langt um-
fram þær sem samdist um á al-
menna vinnumarkaðinum, stefnir
í voða þeim árangri sem náðst
hefur á síðustu árum í að styrkja
samkeppnisstöðuna.
Vinnustöðvanir hafa þegar
valdið verulegum skaða fyrir
þjóðarbúið, til dæmist með trufl-
unum á samgöngum, og nú er svo
komið að teflt er í tvísýnu fyrir-
. hugaðri stækkun álversins,“ segir
í ályktun félagsfundar samtak-
anna.