Morgunblaðið - 14.06.1995, Page 20

Morgunblaðið - 14.06.1995, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1995 ERLEIMT MORGUNBLAÐIÐ Frakkar sprengja áfram JACQUES Chirac, Frakk- landsforseti tilkynnti í gær að Frakkar myndu halda áfram kjarnorkutilraunum sínum í september og sprengja átta tilraunasprengingar í Suður- Kyrrahafí. Sagði hann að þeim myndi verða lokið í maí en þá hyggjast Frakkar undirrita sáttmála um bann við tilrauna- sprengingum. Hrefnuveiði að ljúka TUTTUGU og einn af 33 hval- veiðibátum Norðmanna hafa fyllt kvóta sinn í ár. í gær var búið að veiða 185 af 232 hrefn- um sem leyft er að veiða. Þeir sem enn eiga óveitt hafa frest til 23. júní til að klára kvóta sinn. Sala á hvalkjöti hefur verið dræmari nú en undanfar- in ár. Kjötið telst fyrsta flokks, en hátt verð hefur gert sam- keppni við annað Iq'öt erfíða. Fnykur í Japan FARÞEGI og járnbrautastarfs- maður voru fluttir á sjúkrahús sárir í kverkum eftir að til- kynnt var um „undarlegan fnyk“ í úthverfalest í Tókýó. Glær vökvi í lítill flösku fannst í lestarvagni við útibrautarpall um 20 km utan við borgina. Að sögn lögreglu var ekki vitað í gær um hvers konar vökva var að ræða, né heldur hvort atvikið tengdist taugagasárás- um sem gerðar voru í neðan- jarðarlestum borgarinnar fyrir skemmstu. Bréfsprengja í Þýskalandi LÖGREGLUMAÐUR í þýska bænum Liibeck slasaðist á hendi þegar bréfsprengja sprakk í höndunum á honum. Sendingin kom frá Austurríki og leikur grunur á að hún hafí átt upptök sín hjá hægrisinnuð- um öfgamönnum sem hafa staðið fyrir bréfsprengjuher- ferð að undanfömu. Sendingin í gær var stíluð á aðstoðarbæj- arstjórann í Lubeck, Dietrich Szameit, sem hefur gagnrýnt mjög það sem hann kailaði væga dóma yfir fjórum mönn- um sem voru fundnir sekir um aðild að sprengjutilræði í sam- komuhúsi gyðinga í Lubeck í fyrra. Hugleiddi risasprengju JAMES Nichols, bróðir Terrys Nichols sem hefur verið ákærð- ur fyrir aðild að sprengingunni í stjórnsýslubyggingunni í Oklahóma 19. apríl, sagði fyrir sjö árum að jafna mætti bygg- inguna við jörðu með „risa- sprengju." Þetta kemur fram í skjölum bandarísku alríkislög- reglunnar (FBI), sem fengust birt eftir að bandarískar frétta- stofur fóru í mál við FBI. Ja- mes hefur ekki verið ákærður fyrir aðild að sprengingunni, sem kostaði 167 manns lífíð, en er undir eftirliti lögreglunn- ar. Terry og TimotKy McVeigh eru þeir einu sem hafa verið ákærðir vegna málsins. Mótspyrna Tsjetsjena brotin á bak aftur Sumir telja að sigurinn muni fyrst og fremst birtast í auknum styrk aftur- haldsaflanna í Rússlandi Moskvu. The Daily Telegraph. FLEST bendir til, að rússneski her- inn sé að ná því takmarki sínu að bijóta sveitir aðskilnaðarsinna í Tsjetsjníju á bak aftur. Einhveijar skærur munu þó halda áfram í marga mánuði en Borís Jeltsín, for- seti Rússlands, sagði í viðtali við dagblaðið Ízvestía, að skammt væri í að rússneskir hermenn næðu á sitt vald síðasta fjallavígi Dzokhars Dúdajevs, leiðtoga Tsjetsjena, og liðsmanna hans. Rússneski herinn stefndi raunar að því að ná á sitt vald aðalstöðvum Dúdajevs í fjallaþorpinu Shatoi fyrir síðasta mánudag, þjóðhátíðardag Rússa, og beitti þá fyrir sig fallhlíf- arhermönnum eins og gafst svo vel við töku bæjarins Vedeno. Voru þeir látnir svífa til jarðar handan Shatoi sl. laugardag en slæmt veður kom þó í veg fyrir, að unnt væri að fylgja því eftir með árásum úr lofti. Rússar segja, að Dúdajev hafí nú á að skipa um 3.000 mönnum undir vopnum, sem skipt sé upp í fímm eða sex hálfsjálfstæða hópa. Þeir eigi hins vegar æ erfíðara með að samræma aðgerðir sínar eftir því sem Rússar sæki lengra inn í fjalla- héruðin. Síðan höfuðborg Tsjetsjníju, Grosní, féll í hendur Rússum hefur Dúdajev orðið að flýja frá einum bænum til annars, fyrst til Shali, síðan til Vedeno og nú eru aðalstöðvar hans í Shatoi uppi í fjöll- unum. Helst af öllu vildu Rússar, að hann flýði úr landi en Dúdajev hefur heitið því að beijast þar til yfír lýkur. Sigur hernaðarvélarinnar Rússneski herinn segist hafa misst 1.375 menn í átökunum í Tsjetsjníju, 3.872 hafí særst og 245 sé saknað. Áætlað er, að 5.000 liðs- manna Dúdajevs liggi í valnum og 3.000 sé saknað en mannfallið með- al óbreyttra borgara er hins vegar mælt í tugum þúsunda. Rússneski fréttaskýrandinn Otto Latsís, sem hefur verið gagnrýninn á hernaðinn í Tsjetsjníju, skrifaði nýlega: „Dúdajev verður kveðinn í kútinn en þó er ekki hægt að segja, að Rússar séu að vinna hemaðarsig- ur.“ Segir Latsís, að eini sigurveg- arinn sé hernaðarvélin — herinn, hergagnaiðnaðurinn og þjóðemis- sinnar. „Hún getur hrósað sigri en ekki yfír Tsjetsjniju, heldur Rúss- landi.“ Herinn hefur sótt mikið í sig veðr- ið síðan hann olli hneykslun fyrir getuleysi og mikið mannfall í átök- unum um Grosní og nú em það úrvalssveitir hans, sem bera hitann o g þungann af hemaðinum i Tsjetsjníju. Pavel Gratsjov varnar- málaráðherra var fyrir nokkru tal- inn spilltur og eins og hver annar myllusteinn um háls Jeltsín en nú er orðrómur um, að hann verði hækkaður í tign og gerður að mar- skálki, þeim fyrsta í hinu nýja Rúss- landi. Hersýningar, sem höfðu ekki verið haldnar í Moskvu frá hmni Sovétríkjanna, verða nú árlegur við- burður til heiðurs hemum. Umbótasinnar út í kuldann Vinsældir lýðræðissinnaðra stjórnmálamanna, sem hafa gagn- rýnt hemaðinn í Tsjetsjniju, hafa minnkað og eins líklegt er, að þeir verði þurrkaðir út af þingi í kosning- unum í desember. í þeirra stað er Jeltsín farinn að leita sér banda- manna meðal afla, sem em ekki jafn umbótasinnuð, héraðsstjór- anna, oft fyrrverandi frammámanna í kommúnistaflokknum, og bænda á samyrkjubúunum. Þetta aftur- hvarf mun líklega verða það, sem upp úr stendur að loknu stríðinu í Tsjetsjníju. Olga í breska Ihaldsflokknum Líkur á mótfram- boði gegn Major London. The Daily Telegraph. JOHN Major, leiðtogi breska íhaldsflokksins og forsætisráð- herra, er nú sagður búa sig undir að reynt verði að hrekja hann úr embætti eftir þing flokksins í haust. Er helsta ástæða þess hin harða gagnrýni lafði Thatcher und- anfarna daga á flest atriði stefnu hans. Háttsettir ráðherrar í bresku stjórninni telja mjög miklar líkur á mótframboði gegn Major ef íhaldsflokkurinn bætir ekki veru- lega við sig fylgi í sumar. Leggja Major og helstu stuðningsmenn hans nú á ráðin um hvemig koma megi í veg fyrir mótframboð. Með- al þeirra hugmynda, sem eru til umræðu er hækkun vaxtabóta en Thatcher gagnrýndi það einmitt harðlega að dregið hefði verið úr stuðningi við þá er keyptu sér húsnæði. Ekki eru þó allir ráðherrar ríkis- stjómarinnar, þar á meðal Kenneth Clarke íjármálaráðherra, sann- færðir um að grípa verði til sér- stakra aðgerða í húsnæðismálum. Stuðningsmenn Majors telja mestar líkur á að það verði Nor- man Lamont, fyrrum íjármálaráð- herra, sem ógna muni forsætisráð- herranum. „Draumaliðið" Major hefur verið tilkynnt að á milli 100 og 150 þingmenn íhalds- flokksins muni hugsanlega snúa baki við honum bjóði einhver sig fram gegn. honum. Eru margir háttsettir menn innan flokksins fárnir að ræða opinskátt um „draumaliðið“ er samanstæði af Michael Heseltine sem forsætisráð- herra og Michael Portillo sem utan- ríkisráðherra. Telja þeir að þannig mætti sameina hinar andstæðu fylkingar flokksins í Evrópumál- um. Sumir forystumenn Evrópuand- stæðinga í flokknum hafa þó gefið í skyn að þeir væru reiðubúnir að styðja Major áfram útiloki hann að Bretar tæki þátt í hinni sam- eiginlegu mynt ESB allt næsta kjörtímabil. Major er þó ekki reiðu- búin að ganga svo langt en gæti líklega fallist á að slík þátttaka yrði háð því að fyrst yrði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um málið. Karsten Voigt um stækkun NATO Fyrstu nýju ríkin 1998 Reichstags- innpökkun undirbúin VERKAMAÐUR sígur niður , veggi þýska þinghússins, Reichs- tag, í Berlín í gær til að tryggja öryggisfestingar utan á húsinu. Búlgarski listamaðurinn Christo hyggst pakka þinghúsinu inn i silfurlitan dúk og er það viða- mesta verk hans til þessa. Áætl- aður kostnaður við innpökkun- ina, sem hefst á laugardag, er 7,1 milljónir dala, um 450 milljón- ir ísl. kr. Um sextíu klettaklifrar- ar munu koma dúknum fyrir utan á húsinu. Sofia. Rcuter. KARSTEN Voigt forseti þing- mannasamkundu Atlantshafs- bandalagsins (NATO) sagði í gær, að af stækkun bandalagsins ætti að geta orðið þegar á árinu 1998. Voigt sagði, að fyrir lok þessa árs ættu forsendur stækkunar NATO að liggja fyrir og samn- ingaviðræður því að geta hafíst við einhver ríki Austur- og Mið- Evrópu á næsta ári. Hann sagði að um tvö ár tæki að fara yfir og meta aðildarum- sóknir einstakra ríkja og því ættu þau fyrstu að geta fengið aðild 1998. Hann sagði Atlantshafs- bandalagið ólíkt Varsjárbandalag- inu að því leyti, að erfítt væri að komast inn í bandalagið en auð- velt að fara úr því. Ummælin lét Voigt falla á mál- þingi um öryggismál sem nú er haldinn í Sófíu, höfuðborg Búlg- aríu. Voigt er talsmaður þýska Jafn- aðarmdnnaflokksins, stærsta flokks þýsku stjórnarandstöðunn- ar, í varnarmálum. Hann sagði að stækkun NATO ætti að leiða til aukins stöðugleika í Mið- og Aust- ur-Evrópu og vísaði því á bug, að fjölgun aðildarríkja væri ógnun við öryggi Rússlands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.