Morgunblaðið - 14.06.1995, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1995 2
LISTIR
Morgunblaðið/Sverrir
EDDA Björk Armannsdóttir tekur við verðlaununum úr hendi
Klaus Otto Kappel, sendiherra Danmerkur.
V erðlaunaritgerð
DANMÖRK og dönsk tunga hafa
verið töluvert í sviðsljósinu undan-
farið og skemmst er að minnast
átaka á Alþingi um það hvort enska
ætti að koma í stað dönsku sem
fyrsta tungumál í skólum hér á
landi. Eins og kunnugt er var sú
tillaga felld og danskan hefur í kjöl-
farið verið í sókn og hefur danska
sendiráðið á íslandi haft mikinn við-
búnað til eflingar hennar.
Danskir haustdagar var yfirskrift
dagskrár í október í fyrra þar sem
dönsk mennning var í aðalhlut-
verki. í kjölfar haustdaganna var
efnt til ritgerðasamkeppni í fram-
haldsskólum um allt land þar sem
fjalla átti um tengsl Danmerkur og
Islands á einn eða annan hátt.
Fyrstu verðlaun í samkeppninni
féllu í hlut Eddu Bjarkar Ármanns-
dóttur nemanda í Menntaskólanum
á Akureyri en ritgerð hennar bar
titilinn; Samband Islands og Dan-
merkur fyrr og nú og í framtíðinni.
Klaus Otto Kappel sendiherra
Danmerkur á Islandi segir dönsk-
una lykil íslendinga að farsælu
norrænu samstarfi. I ræðu við verð-
launaafhendinguna lýsti sendiherr-
ann hrifningu sinni með sigurrit-
gerðina og sagði hana fallega skrif-
aða og gefa jákvæða sýn af sam-
skiptum landanna. Hann lýsti því
jafnframt yfir að ritgerðin yrði birt
að hluta og í heild i dönskum dag-
blöðum á næstunni og hér eftir
yrði samkeppni þessi árlegur við-
burður
Til Danmerkur
Edda Björk hefur kynnst Dan-
mörku vel af eigin raun því hún
bjó þar um tíma á yngri árum og
dvaldi þar sumarlangt fyrir þremur
áru.„ Eg skrifaði ritgerðina út frá
því hvernig mér finnst viðhorf
krakka á íslandi vera til Danmerk-
ur og samskipta landanna og
hvernig mig langar til að þau verði
í framtíðinni, ætli það hlæi ekki
bara allir að þessu,“ sagði Edda
og brosti. Fyrstu verðlaun í sam-
keppninni voru ferð til Danmerkur
fyrir tvo sem hún ætlar að nýta
sér í sumar en hugur hennar stefnir
til Danmerkur í framhaldsnám í
framtíðinni enda finnst henni þar
gott að vera. Eddu langaði að
þakka kennara sínum Ragnheiði
Gestsdóttir fyrir að hafa hvatt sig
til þátttöku.
Félag íslenskra bókaútgefenda
Áskorun til ríkis-
sljórnarinnar
„STJÓRN Félags íslenskra bókaút-
gefenda lýsir þungum áhyggjum
sínum af þeim mikla samdrætti sem
orðið hefur í bóksölu á Islandi á
síðustu tveimur árum og því alvar-
lega ástandi sem nú ríkir hjá þorra
fyrirtækja í bókaútgáfu og prent-
iðnaði af þessum sökum“, segir í
áskorun Félags íslenskra bókaút-
gefenda til ríkisstjórnarinnar.
Bókaútgefendur segja að fjöldi
fyrirtækja í bókaútgáfu hafi þurft
að draga mjög saman seglin í kjöl-
far þess að virðisaukaskattur var
lagður á bækur árið 1993 og skora
því á nýja ríkisstjórn að beita sér
fyrir því að létta skattinum af ís-
lenskum bókmenntum. „Með því að
stjórnvöld hættu að skattleggja ís-
lenskar bækur væri landsmönnum
auðveldað til muna að eignast bæk-
ur. Bóklestur myndi þar af leiðandi
aukast og þannig yrði hlúð að eðli-
legri endurnýjun og varðveislu ís-
lenskrar tungu og eflingu þjóðlegr-
ar menningar."
Bókaútgefendur segja ennfremur
í áskorun sinni að tekjur ríkissjóðs
af starfsemi sem tengist bókaút-
gáfu hafi í raun minnkað stórlega
eftir að skatturinn var lagður á en
ekki aukist eins og stefnt var að.
Viðamikil íslensk menningarhátíð sett í Þýskalandi
Einlægur áhugi á
íslenskri menningu
Bo.nn. Morgunbladið.
BJORN Bjarnason menntamála-
ráðherra setti í gærkveldi hátíð
sem er viðamesta menningar- og
listkynning sem íslendingar hafa
staðið að í Þýskalandi. Hátíðin er
í samvinnu við yfirvöld í sam-
bandslandinu Nordrhein-Westfal-
en og fer fram í borgunum Köln,
Bielefeld, Krefeld, Treusdorf,
Dusseldorf og Bonn. „Það hefur
tvímælalaust mikla þýðingu fyrir
íslenska menningu að jafnvíðtæk
menningarhátíð skuli vera haldin
í Þýskalandi. Nordrhein-Westfalen
er eitt af öflugustu sambandslönd-
unum og hér er mikill og einlægur
áhugi á íslenskri menningu,“ sagði
Björn í samtali við Morgunblaðið
í gærkveldi.
Ráðherra sagði að rekja mætti
þennan áhuga langt aftur í aldir,
en jafnframt hefði Jón Sveinsson,
Nonni, lagt gjörva hönd á plóginn.
„Fyrir rúmum 50 árum andaðist
Nonni í Köln, en hann var mikill
landkynnir hér í Þýskalandi. Mað-
ur hittir víða fólk sem kynnst hef-
ur Islandi í gegnum bækur hans.“
Björn nefndi fleiri menn til sög-
unnar. Meðal annars Wolfgang
Schiffer, sem íslendingar hafa
heiðrað sérstaklega fyrir framlag
hans til kynningar á íslenskri
menningu, einkum bókmenntum,
í Þýskalandi. Þá sagði hann að
menningarhátíðin Reykjavíkur-
■ dagar sem efnt var til í Bonn fyr-
ir tvéimur árum, hefði verið gulls
ígildi. „Þeir sem standa að hátíð-
inni nú segja að reynslan frá Bonn
hafi ýtt undir áhuga þeirra á að
standa að þessu, þar sem sú hátíð
var svo vel heppnuð," sagði
menntamálaráðherra.
Björn sagði ennfremur að
menningarlegt- framlag af þessu
tagi væri einkar vel til þess Jallið
að kynna land og þjóð, sem síðan
gæti stuðlað að bættum viðskipta-
legum og pólitískum tengslum.
Að mati menntamálaráðherra á
íslensk menning jafnvel meira er-
indi við aðrar þjóðir nú en áður.
Bæði til þess að einangrun leiði
ekki til stöðnunar og til þess að
halda því merki á loft, sem sýni
best að við gegnum hlutverki í
samfélagi þjóðanna.
Menning heimsins
eins og orgel
„Menningu heimsins má líkja
við orgel. Þar skipar hver pípa,
stór eða lítil, sinn sess. Sé hann
auður, er allt spilverkið óstarf-
hæft. Ef ein nóta heyrist ekki, er
ekki unnt að flytja hinar miklu
fúgur eða óratoríur. Hið sama má
segja um menningarlegt samfélag
þjóðanna," sagði menntamálaráð-
herra, „það yrði fátæklegra ef all-
ar raddirnar fengju ekki að njóta
sín. Við erum lítil en óhjákvæmileg
pípa í hinu stóra orgeli er myndar
hljóm þjóðanna."
Björn leggur áherslu á að þessi
menningarsamskipti séu ekki ein-
hliða. „Af minni hálfu vil ég gera
það sem unnt er til að efla hlut
þýskra.r menningar og lista á ís-
landi. í þessari ferð minni hingað
til Þýskalands hef ég fengið tæki-
færi til að ræða þau mál við ráða-
menn í Nordrhein-Westfalen. Þá
hefur verið ákveðið að efna til
viðræðna milli fulltrúa íslenskra
og þýskra stjórnvalda um menn-
ingarleg samskipti. Viðræður af
þessu tagi hafa ekki farið fram
áður og eru þær ekki aðeins til
marks um að við viljum náin og
góð menningarleg samskipti við
Þýskaland, heldur einnig hitt að
við lítum á tengsl við Þýskaland
sem skynsamlega og góða leið til
að treysta stjórnmálalega stöðu
íslands við nýjar aðstæður,“ sagði
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra.
Hvar er
Clara?
Tónleikar með
verkum Brahms
og Schumanns
GUÐNI Franzson klarinettuleikari
og Gerrit Schuil píanóleikari halda
tónleika í Keflavíkurkirkju í kvöld
kl. 20.30. Á efnisskrá tónleikanna
eru verk eftir Johannes Brahms og
Robert Schumann.
Schumann var kvæntur Clöru
Wieck sem var mikill píanóleíkari
og tónskáld. Brahms var einhleyp-
ur, en kynni hans af Schumann
hjónunum höfðu djúpstæð áhrif á
líf hans alla tíð. Hver voru áhrif
Clöru á verk þessara miklu snill-
inga? Það er spurning sem gaman
er að velta fyrir sér og því hefur
efnisskráin fengið vinnuheitið
„Hvar er Clara?“
Eftir Brahms verða fluttar Só-
nöturnar tvær op. 120 (nr. 1 og
2) en eftir Schumann Fantasistykki
op. 73 og Rómönsur op. 94.
Guðni Franzson lauk námi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík og
Gerrit Schuil Guðni Franzson
stundaði síðar framhaldsnám í Hol-
landi. Guðni kemur reglulega fram
sem einleikari víðsvegar í Evrópu,
vinnur að upptökum jafnhliða því
að yrkja tónlist fyrir leikhús og
stjórna.
Gerrit Schuil er píanóleikari og
hljómsveitarstjóri, fæddur í Hollandi
og er nú búsettur á Islandi. Hann
hóf tónlistarnám fimm ára gamall
og hélt sína fyrstu tónleika níu ára.
Gerrit hefur haldið tónleika í flestum
löndum Evrópu. Hann hefur meðal
annars stjórnað Hollensku útvarps-
hljómsveitinni, Sinfóníuhljómsveit
íslands, auk fjölda annarra hljóm-
sveita í Evrópu og Ameríku.
Nýjar bækur
• HVORUSKYNe r eftir færeyska
ljóðskáldið Carl Jóhan Hensen. Ljóð-
in eru í þýðingu Martins Tausen
Götuskeggja, landa Carls Jóhans og
skáldbróður. Ljóðin birtast líka á
frummáli.
Carl Jóhan Jensen er fæddur árið
1957. Hann hefur gefið út eftirtaldar
Ijóðabækur; Skríggj 1982, Messa á
kvöldi og framundir morgun 1984,
Lygnir 1987 og Hvörkiskyn 1990.
Fyrir síðastnefndu bókina fékk
skáldið bókmenntaverðlaun MA
Jacobsens, auk þess sem Færeyingar
tilnefndu hana á sínum tímatil Bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Að tveimur síðustu ljóðum þess-
arar bókar undanskildum, eru öll
ljóðin í bókinni Hvöruskyn. Nokkrum
ljóðum úr þeirri bók, hefur að ósk
skáldsins verið sleppt hér.
Kápugerð annaðist Ásgeir Krist-
inn Lárusson myndiistarmaður. Bók-
in er 41 bls. aðstærð. Verðhennar
er 1.478 kr. íbókaverslunum, en
1000 kr. til félagsmanna Bók-
menntafélagsins Hringskugga sem
gefur bókina út.
Blab allra landsmanna!
-kjarni málsins!
AlVEG tjfNSTÖK (*ÆÐI
Lavamat 9200 Þvottavél
• Vinduhraði 700/1000 + ófangavinding, tekur 5 kg.
• Sér hitavalrofi, sérstök ullarforskrift, orkusparnaðar forskrift.
• UKS kerfi -jafnar tau í tromlu fyrir vindingu.
• Sér hnappur fyrir viSbótarskolun.
• Orkunotkun 2,0 kwst ó lengsta kerfi.
Afborgunar verð kr. 85.914,-
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga,
c Borgarnesi. Vesttirðir: Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfirði.
<u Rafverk Bolungarvlk.Straumurjsafiröi.
E Norðurland: Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö,
Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvlk.
Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Sveinn Guðmundsson,
Egilsstööum. Stál, Seyöisfiröi. Verslunin Vík, Neskaupsstað.
KASK, Höfn Suöurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn.
Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavlk.
Rafborg, Grindavík.
BRÆÐURNIR
p] OEMSSON HF
Lágmúla 8, Sími 553 8820
' Mi&að við afborgun í 24 mánu&i.