Morgunblaðið - 15.06.1995, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Umhverfisráðuneytið ógildir leyfi til
að byggja stafhús í Hafnarfirði
Húsið
nú þegar
risið
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hefur
fellt úr gildi ákvörðun byggingar-
nefndar Hafnarfjarðar og samþykki
bæjarstjórnar á þeirri ákvörðun að
leyfa byggingu stafhúss úr timbri á
baklóð Fjörukrárinnar við Strand-
götu í Hafnarfirði.
Byggingin sem um ræðir er þegar
risin í tengslum við víkingahátíð sem
hefst í Hafnarfirði síðar í þessum
mánuði.
Bygging stafhússins kom til kasta
ráðuneytisins vegna kæru lögmanns
húseiganda á Suðurgötu 23 í Hafn-
arfirði, sem gerðu kröfu um að
ákvörðun byggingamefndar yrði
ógilt. Kærandi taldi bygginguna
„ijúfa sjóndeildarhringinn", eyði-
leggja fyrir íbúum á Suðurgötu 23
„sjónræn tengsl við höfnina" og
spilla „stórkostlega gæðum þess að
búa í húsinu".
„Bæjaryfirvöld verða að standa
fyrir sínum gjörðum ef þær eru rang-
ar og hafi þau veitt mér byggingar-
leyfi í óleyfi þarf lögfróðari menn
en mig til að útkljá hvað á að gera,“
segir Jóhannes Viðar Bjamason eig-
andi Fjörukrárinnar sem stóð að
byggingu stafhússins. Hann kveðst
vera þess fullviss að byggingin verði
aldrei rifin, enda telji hann hana
hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferða-
menn.
Ellert Borgar Þorvaldsson, for-
maður byggingarnefndar Hafnar-
ijarðar, segir að umhverfísráðuneyt-
ið vísi nú framhaldi málsins á hend-
ur bæjaryfirvalda, en formlegt erindi
hafi enn ekki borist. „Glögglega
kemur fram að byggingarleyfið sé
afturkallað, en áður en málið berst
formlega í hendur bæjaryfirvalda er
engin ástæða til að taka afstöðu til
þess opinberlega," segir Ellert.
Langnr og heitur fundur
sjálfstæðismanna í Hafnarfirði
Lýst yfir stuðn-
ingi við Magnús
FULLTRÚARÁÐSFUNDUR
Sjálfstæðisfélaganna í Hafnar-
firði, sem lauk um klukkan eitt í
nótt eftir langar og heitar umræð-
ur, samþykkti stuðningsyfirlýs-
ingu við Magnús Gunnarsson, odd-
vita flokksins. Tillaga, sem lögð
var fram í upphafi fundarins, var
samþykkt óbreytt með 55 atkvæð-
um gegn 29, en fímm skiluðu
auðu.
Ályktun fundarins hljóðar svo:
„í framhaldi af þeim atburðum
sem áttu sér stað á fundi bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar í gær, þeg-
ar tveir fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins greiddu atkvæði gegn
tillögu Magnúsar Gunnarssonar,
sem hann flutti fyrir hönd meiri-
hluta Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðubandalags, um ráðningu í
stöðu forstöðumanns fram-
kvæmda- og tæknisviðs (bæj-
arverkfræðings) Hafnarfjarðar-
bæjar, lýsir fulltrúaráð Sjálfstæð-
isfélaganna í Hafnarfirði yfir
fyllsta stuðningi við oddvita Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði,
Magnús Gunnarsson, og fram-
göngu hans í umræddu máli.
Á þessum tímamótum er brýn
nauðsyn á að sjálfstæðismenn í
Hafnarfirði standi fast saman og
skapi traustan grundvöll fyrir
öflugu starfi sjálfstæðismanna í
Hafnarfirði."
Samstarfi formlega lokið
Meirihlutasamstarfi Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðubanda-
lagsins í bæjarstjóminni lauk með
formlegum hætti í gær með bréfa-
skiptum þeirra tveggja bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, sem
studdu tillögu Magnúsar Gunnars-
sonar um ráðningu bæjarverk-
fræðings, og bæjarfulltrúa Al-
þýðubandalagsins.
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
hélt félagsfund í gær, þar sem
ályktað var meðal annars að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði ekki gengið
heill til meirihlutasamstarfsins og
hefðu þar ráðið mestu „kröfugerð-
ir og eiginhagsmunir eins af
bæjarfulltrúum flokksins.“ Lýst
var fyllsta stuðningi við bæjarfull-
trúa Alþýðubandalagsins.
■ Meirihlutasamstarfi/4
Atvinnuleysi veg-na
sjómannaverkfalls
VMS greið-
ir ekki laun
VINNUMÁLASAMBANDIÐ
(VMS), sem fískvinnsluhús víða
um land eiga aðild að, hyggst
ekki una þeirri ákvörðun Atvinnu-
leysistryggingasjóðs að greiða
ekki atvinnuleysisbætur til starfs-
fólks, sem tekið er út af launaskrá
vegna sjómannaverkfallsins án
þess að kauptryggingu þess hafí
verið sagt upp með fjögurra vikna
fyrirvara.
VMS telur otvíræða lagaheimild
fyrir að fella starfsfólk af launa-
skrá þannig að það fari á bætur.
Margrét Tómasdóttir, fram-
kvæmdastjóri Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs, sagði í gærkvöldi að hún
hefði ekki séð bréf lögmanns VMS.
Morgunblaðið/Júlíus
Slasaðist í hlíðum Esju
MAÐUR slasaðist efst í hlíðum Esju í miðjar hlíðar fjallsins, þaðan sem börum og flytja hann af slysstað.
kl. 20 í gær, þegar hann féll fram hún gekk á slysstað, en vegna þoku Þyrlan lenti við Borgarspítala um
fyrir sig. Neyðarsveit slökkviliðsins komst þyrlan ekki alla leið. Þyrlan klukkan 22.30. Samkvæmt upplýs-
fór á vettvang með þyrlu Landhelgis- beið síðan á Mógilsá eftir að lokið ingum frá spítalanum var maðurinn
gæslunnar. Þyrlan flutti sveitina upp væri við að búa um hinn slasaða á ekki í lífshættu en talsvert meiddur.
Frumvarp um stjórn fiskveiða var samþykkt á Alþingi í nótt
Stjómarandstaða taldi
róðrardagakerfi skárri kost
FRUMVARP um stjóm fískveiða var samþykkt
á Alþingi laust eftir miðnætti í gærkvöldi með
33 atkvæðum, en 20 þingmenn greiddu ekki at-
kvæði, þar á meðal Guðjón Guðmundsson þing-
maður Sjálfstæðisflokksins. Stjómarandstaðan
taldi ekki ástæðu til að vera á móti tillögunni þar
sem róðrardagakerfið væri skárri kostur en
banndagakerfið, en taldi þó ekki ástæðu til ad
veita henni stuðning sinn þar sem hún gengi
ekki nægjanlega langt til móts við kröfur smá-
bátasjómanna.
Fulltrúar stjómarandstöðunnar deildu harka-
lega á stjórnarmeirihlutann við þriðju umræðu
um frumvarpið gærkvöldi. Sighvatur Björgvins-
son, Alþýðuflokki, lýsti yfír því að þingmeirihluti
ætti ekki að geta verið fyrir tillögum stjórn-
armeirihlutans um breytingar á þeim ákvæðum
frumvarps um stjórn fiskveiða er varða veiðar
krókabáta, ef miða ætti við yfirlýsingar fjöl-
margra stjórnarþingmanna fyrir kosningar.
Fleiri stjórnarandstæðingar rifjuðu upp um-
mæli nokkurra stjómarþingmanna um gagngera
endurskoðun kvótakerfisins og brigsluðu þeim um
vanefndir á loforðum. Nokkrir þeirra töldu nauð-
synlegt að taka upp að nýju endurskoðun laga
um stjórn fiskveiða í haust.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra sagði
að róðrardagakerfið fæli ótvírætt í sér framfarir.
Sú gagnrýni væri aftur á móti rétt að ákvæði
um veiðar krókabáta væru flókin. Þess vegna
væri það keppikefli að reyna að finna einfaldari
lausnir á útfærslu leikreglna í smábátaútgerð.
Samráðs hagsmunaaðila vænst
Breytingartillögur stjórnarandstöðunnar við
frumvarpið voru felldar. Meirihluti sjávarútvegs-
nefndar lagði fram breytingartillögur sínar á þeim
ákvæðum frumvarpsins er varða róðrardagakerf-
ið. í þeim er gert ráð fyrir 86 sóknardögum sem
skiptist á fjögur tímabil og 21.500 tonna heildar-
afla. Lagt er til að samþykkt verði ákvæði til
bráðabirgða er skyldi ráðherra til að láta tafar-
laust fara fram könnun á þeim kostum sem fyrir
hendi eru til fjareftirlits.
Árni R. Ámason, Sjálfstæðisflokki, sagði það
ásetning ríkisstjórnarinnar að ef heildarþorskafli
verði aukinn muni aflaviðmiðun krókabáta verða
hækkuð og sóknardögum fjölgað.
Sjónarmið smábátamanna virt
Hjálmar Árnason og Einar Oddur Kristjánsson
vísuðu á bug gagnrýni stjórnarandstæðinga. Þeir
sögðu að meginbaráttumál smábátamanna, róðr-
ardagakerfið, hefði verið lögfest og með því verið
gengið til móts við smábátasjómenn.
Sighvatur Björgvinsson lagði fram breytingar-
tillögur við frumvarpið í félagi við Össur Skarp-
héðinsson, Alþýðuflokki, og Guðnýju Guðbjörns-
dóttur, Kvennalista. í tillögunum er gert ráð fyr-
ir að sóknardagar verði bundnir við töluna 96 á
næsta fiskveiðiári. Þá verði tímabilaskipting felld
niður þannig að smábátaeigendum verði frjálst
að ákveða hvaða daga á fiskveiðiárinu þeir róa.
Þá er lagt til að sameiginle'gur hámarksafli króka-
báta verði 31.500 tonn. Guðjón Guðmundsson
studdi einn tölulið þessarar breytingartillögu.
Betra útlit
á Húsa-
bakka
„ÞETTA lítur miklu betur út,“
sagði Aðalbjörg Hallgrímsdóttir
á Húsabakka í Aðaldal í gær,
en í fyrradag flaut vatn allt í
kringum bæina.
„Það er dálítil fylla hér á
hlaðinu og ekki hægt að laga
veginn heim að bænum ennþá.
Engu að síður hefur vatnsborð-
ið lækkað um hálfan metra frá
því í gæi-morgun. Ég er því
bjartsýn eins og er.“
Óbreytt ástand við
Skeiðsfossvirkjun
Við Skeiðsfossvirkjun í Fljót-
um var allt óbreytt í gær, frá
því í fyrradag, að sögn Indriða
Haukssonar. Unnið er að því
jafnt nótt sem dag að treysta
bakka Skeiðsár aftur, eftir að
áin flæddi yfir bakka sína á
mánudagskvöld og fór aftur í
sinn gamla farveg.
„Flóðin eru í rénun hjá okk-
ur,“ sagði Rósa Pálmadóttir á
Hraunum, þar sem talið er að
farið hafi um tvö hundruð hreið-
ur. Ástandið er svipað í Haga-
nesi og Ysta-Mó.
Lækkandi
í ámá
Austurlandi
„ÞAÐ er sennilegast að nú fari
lækkandi í ánum, en það gerist
hægt,“ sagði Heimir Sveinsson,
tæknistjóri hjá Rafmagnsveit-
um ríkisins á Egilsstöðum, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Heimir sagði að vatnshæð
Lagarfljóts hefði siðdegis i gær
mælst 22,29 metrar, en hæst
fór hún í 22,30 metra. „Það eru
þrettán sentimetrar frá metinu
árið 1968, þegar vatnsborðið
fór í 22,43 metra,“ sagði hann.
Heimir sagði að vatnsborðið
gæti haldist hátt í nokkra daga.
„Það tekur töluverðan tíma fyr-
ir þetta að sjatna. Rennslið
minnkar þó jafnt og þétt ef
ekki fer að rigna þeim mun
meira. Það er ekki spáð áfram-
haldandi hlýindum á næstu
dögurn."
Dagsbrún
með samúð-
arverkfall
VERKAMANNAFÉLAGIÐ
Dagsbún hefur boðað samúð-
arverkfall með sjómönnum frá
og með 22. júní. Verði verkfall
sjómanna ekki leyst fyrir þann
tíma verður engum fiski landað
í Reykjavík. Samúðarverkfallið
nær eingöngu til landana á
fiski, en hefur ekki áhrif á land-
anir á vörum.
Samúðarverkfalli sjómanna á
Vestfjörðum, sem koma átti til
framkvæmda í þessari viku, var
aflýst um síðustu helgi, áður
en atkvæði höfðu verið talin um
miðlunartillögu ríkissáttasemj-
ara.
Banaslys í
Skagafirði
RÚMLEGA fímmtug kona úr
Reykjavík lést þegar bíll hennar
fór út af veginum á móts við
Vindheima í Lýtingsstaða-
hreppi í fyrrakvöld.
Svo virðist sem konan hafí
misst bílinn út af malarvegi á
móts við Vindheima, kastast
út úr honum og látist samstund-
is. Konan var ein í bílnum.
I
)
I
I
I
I
I
I
|
I
)
'