Morgunblaðið - 15.06.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ1995 23
LISTIR
Morgunblaðið/Þorkell
OFT hefur verið glatt á Hjalla í Sellátrum því Guðrún á átta
börn og þijú stjúpbörn auk þess sem fjölmörg börn hafa verið
í sveit á bænum á sumrin. Nú er hún ein eftir með Iistaverkun-
um sinum og kvartar þó ekki undan einverunni.
Listakonan í Sellátrum
Nýr söng-leikur
eftir Ágúst Guð-
mundsson
Astir og
sálnaflakk
SJOUNDA október næstkomandi
verður frumsýndur nýr söngleikur
eftir Agúst Guðmundsson í Borgar-
leikhúsinu. JJann er í þremur þáttum
og samdi Ágúst allan texta og tón-
list í verkinu auk þess sem hann sér
sjálfur um leikstjórn. Ríkarður Örn
Pálsson útsetti tónlistina
Söngleikurinn fjallar um unga
Reykvíkinga sem gera tilraunir með
sálnaflakk og veldur það miklum
flækjum í sambandi þeirra og ásta-
lífi þegar á líður.
„Upphaflega ætlaði ég mér ekki
að semja tónlistina sjálfur en þegar
megnið af söngtextunum var tilbúið
fór ég að prófa að semja tónlist við
þá og það endaði meðjjví að ég samdi
hana alla sjálfur." Ágúst sagði að
söngleikurinn væri í stíl hefðbund-
inna söngleikja og sagðist sjálfur
vera hrifinn af söngleikjahöfundum
eins og George Gershwin og Jóni
Múla Árnasyni
Eins og kunnugt er gerði Ágúst
dans og söngvamyndina vinsælu Með
allt á hreinu ásamt Stuðmönnum og
segist hann sjálfsagt hafa lært eitt-
hvað af þeim í lagagerð þó tónlist
hans sé ólík þeirra.„Eg er að gera
tilraun til að vera skemmtilegur,"
segir Ágúst og hlær.
Æfíngar eru þegar hafnar. Sjö
aðalhlutverk eru í sýningunni. Meðal
aðalleikara eru Margrét Vilhjálms-
dóttir, Felix Bergsson, Magnús Jóns-
son og Eggert Þorleifsson. Sjö
manna hljómsveit sér um tónlistar-
flutning, þar af eru fjórir blásarar.
EKKI þarf að fara í mörg hús
á Tálknafirði til að komast af
því hvaða listamaður stendur
bæjarbúum næst. Nær undan-
tekningarlaust er gesturinn
sþurður að því hvort hann
hafi komið til Guðrúnar í Sel-
látrum og ef svarið er nei er
viðkomandi umsvifalaust
hvattur til að fara í heimsókn.
Guðrún tekur vel á móti gest-
um og á heimili hennar má sjá
að henni er margt til lista lagt.
Á veggjum hanga útsaums-
myndir og málverk eftir hús-
móðirina og uppvið stofu-
glugga standa nokkrir skraut-
legir blómaplattar úr svoköll-
uðu plexiglasi.
Listakonan Guðrún, eða
Guðrún Guðbjörg Einarsdótt-
ir, er einmitt þekktust fyrir
blómaplattana. Hún á heiður-
inn af allri hönnun og þróun
í gerð þeirra. „Hugmyndin
kveiknaði fyrir mörgum ára-
tugum þegar ég sá kúlu með
skeljum í húsi á Patreksfirði.
Eg varð alveg veik, mig lang-
aði svo til að prófa sjálf, og
fór að leita að nothæfu plasti.
Fyrsta plastið, frá handa-
vinnukennara að sunnan,
sprakk allt saman og næsta
plast frá Hveragerði var ekki
hreint og þurfti að slípa. Mér
var svo sagt frá því að þeir í
Akron gætu átt plast fyrir
mig. Þeir selja mér núna plast
í gegnum vörulista,“ segir
Guðrún þegar Morgunblaðs-
fólk heimsótti hana á dögun-
um.
Nákvæmnis vinna
Guðrún segir mikla vinnu
liggja að baki verkanna.
„Margir halda að auðvelt sé
að gera verkin af því að þau
Blóm
eru úr plasti. Þvert á móti er
mjög tímafrekt og erfitt að
gera plattana svo hvergi
myndist loftbólur. Ég hef
þreifað mig smám saman
áfram. Fyrst gerði ég platta í
í plasti
litlum skálum og núna geri
bæði litla og stóra,“ segir Guð-
rún og útskýrir hvernig hún
fer'að við gerð stóru plattana.
„Ég lét smíða fyrir mig stál-
hring og eftir að ég er búin
LÍTIÐ sýnishorn af fjöl-
mörgum blómaplöttum í
Sellátrum.
að þurrka blómin, sem ég ætla
að nota, i sandi til að þau verði
eðlileg kem ég þeim fyrir í
hringnum og helli einni blöndu
með plexiglasi og herði var-
lega í hann og hef gerplötu
undir. Síðan þarf að láta
blönduna standa og kólna áður
en næstu er hellt út í og svo
koll af kolli þar til plattinn er
orðinn passlega þykkur.“
Verðlagt eftir vigt
Guðrún notar sumarið til að
tína og þurrka blómin. Hún
hefur lengi notað mosa og
villtar jurtir og eftir að farið
var að rækta rósir innanhúss
hefur hún notað rósir í platt-
ana. Sumir, sérstaklega þeir
stærri, hafa alþjóðlegt yfir-
bragð. En Guðrún segir að
plattarnir séu vinsælir minja-
gripir og oft komi heilu rút-
urnar með ferðamönnum heim
í Sellátra. Ekki er lieldur hægt
að nálgast plattana annars
staðar en hjá Guðrún. Hún
verðleggur plattana eftir vigt
enda gerir hún þá fyrst og
fremst ánægjunnar vegna og
þykist góð ef hún hefur fyrir
efninu.
HEKIA
iugavegi 170-J7.4, slmi 569 5500