Morgunblaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hj úkrunarf or stj ór i Landspítala um óánægju hjúkrunarfræðinga Breytingar á vinnutilhögun jafngilda ekki uppsögn Hús Al- þingis gerð upp UNNIÐ er við að gera upp húsin að Kirkjustræti 8b og 10 og gert er ráð fyrir að viðgerðirnar og endurnýjun innanhúss kosti á annað hundrað milljónir króna. Húsið nr. 8b er svokallað Blön- dalshús, reist af Magnúsi Th. S. Blöndahl skömmu eftir aldamót, en Kirkjustræti 10 var reist af Kristjáni Ó. Þorgrímssyni árið 1879. Að sögn Friðriks Ólafsson- ar, skrifstofustjóra Alþingis, er ætlunin sú að húsin verði notuð undir starfsemi skrifstofu Alþing- is og skrifstofur þingmanna. Friðrik segir að húsin hafi ver- ið í skárra ásigkomulagi en vænta mátti. Til stóð að rífa þau 1987 og byggja nýtt hús á lóðinni, en hætt var við framkvæmdimar og friðunarsjónarmið urðu ofan á. Hér sjást Jóhann Guðmundsson og Styrmir Steingrímsson gera við þak annars hússins. ANNA Stefánsdóttir, hjúkrunar- forstjóri Landspítalans, kveðst vera ósammmála hjúkrunarfræð- ingum á skurðdeild um að breyt- ingar á vinnufyrirkomulagi jafn- gildi uppsögn á ráðningarsamn- ingum þeirra. Formlegt erindi hafi ekki borist vegna óánægju hjúkr- unarfræðinga og aðeins heyrst af henni í fjölmiðlum. Anna segist ætla að kalla trúnaðarmann hjúkr- unarfræðinga á sinn fund í dag til viðræðna. Málið sé viðkvæmt en hún líti ekki svo á að um deilu sé að ræða. Seinustu daga hefur blöðum, með samhljóða texta þess efnis að viðkomandi líti á breytingar á vinnufyrirkomulagi sem uppsögn á ráðningarsamningi og muni hætta störfum 1. október af þeim sökum náist ekki samkomulag fyr- ir þann tíma, verið dreift meðal hjúkrunarfræðinga á skurðdeild- um Landspítala og Borgarspítala. Kristín Ingólfsdóttir, svæfinga- hjúkrunarfræðingur á Borgarspít- ala, segir heimtur hafa verið afar góðar á undirskriftum og ljóst sé að mikill einhugur nki meðal hjúkninarfræðinga. „Öfugt við túlkun forsvarsmanna Landspítala og Borgarspítala, líta lögfræðing- ar okkar hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga svo á að ekki megi segja upp ráðningarsamningi að hluta þannig að með þessum aðgerðum sjúkrahúsanna sé verið sé að segja upp ráðningarsamningi í heild.“ Nýta fjárfestingar betur í seinustu viku var hjúkrunar- fræðingum tilkynnt bréflega um breytingar á vinnufyrirkomulagi sem taka eiga gildi.l. október. „Við höfum ekki heyrt formlega að starfsfólk líti á þessar breyting- ar sem uppsögn á ráðningarsamn- ingi og yfirmenn hjúkrunar á sjúkrahúsinu líta ekki á að svo sé, enda teljum við aðeins um smá- vægilegar breytingar að ræða, fyrst og fremst til að nýta betur fjárfestingar og minnka vinnuálag á skurð- og svæfingadeildum,“ segir Anna.„Með því vinnufyrir- komulagi sem nú tíðkast getur sú staða komið upp að fólk vinni næstum í sólarhring án hvíldar, sem er hvorki vinsamlegt starfs- fólkinu né sjúklingum bjóðandi að þeir sem um þá annast hafi staðið vakt í 15-20 klukkustundir. Þetta vinnufyrirkomulag er annað en á mörgum sjúkradeildum þar sem vaktir standa í átta tíma og þykja nægilega langar." „Auk þess liggja miklar fjár- festingar í skurðstofum, t.d. var tekin í notkun skurðstofa sem kostaði um 40 milljónir í vor, og að loka henni um klukkan 16 eða hafa opið og greiða fólki þá vinnu í yfirvinnu gengur ekki upp,“ seg- ir Anna. Iðnnemasambandið undirbýr málssókn á hendur ríkinu Morgunblaðið/Golli Menntamálaráðherra seg- ir Svía brjóta samninga BJÖRN Bjarnason menntamálaráð- herra segir að Svíar bijóti gegn norrænum samningi um framhalds- skólamenntun þegar þeir krefjast endurgreiðslu fyrir nám íslendinga í flugvirkjun í Vásterás í Svíþjóð. Iðnnemasamband íslands undir- býr málssókn á hendur íslenska rík- inu og gefur því að sök að hafa ekki greitt gjöld sem sænsk stjórn- völd hafa sett upp og þar með heft framgang náms hjá flugvirkjanem- um. Iðnnemasambandið hyggst fara fram á skaðabætur fyrir hönd nemenda sem verða að hverfa frá námi. Samkomulag hefur verið í gildi milli íslenskra stjórnvalda og skóla í Vásterás í Svíþjóð um að íslenskir flugvirkjanemar ljúki menntun sinni í Svíþjóð en fyrstu tvö árin eru tek- in í Iðnskólanum í Reykjavík. Fyrir nokkru kröfðust Svíar greiðslu frá íslenska ríkinu fyrir að taka við flugvirkjanemum. Ólafur G. Einars- son, þáverandi menntamálaráð- herra, mótmælti kröfu Svíanna og vísaði til umrædds samnings. Ófullnægjandi svar Svía Björn segir að bréf frá sænska menntamálaráðherranum um þetta mál, sem barst honum í gær, sé ófullnægjandi sem svar við þeim kröfum sem íslendingar gera um að norræna samningnum sé fram- fylgt. Björn segir að skilningur ís- lenskra stjórnvalda á því hvernig eigi að framfylgja samningnum hafi hlotið stuðning fulltrúa annarra norrænna ríkja en þess sænska. í bréfi sænska menntamálaráðherr- ans kemur fram að nemendur frá Noregi og Finnlandi sem sæki nám í Vásterás verði ekki krafðir um skólagjöld. „Við teljum að framganga Sví- anna í þessu máli bijóti í bága við norræna samninginn og eigi sér enga stoð í þeim samningum sem gerðir hafa verið. Það eru engar réttmætar forsendur fyrir fjárkröf- um á hendur íslenska ríkinu. Eg hef ekki viljað sem menntamálaráð- herra gera neitt af hálfu íslenska ríkisins sem kann að verða túlkað sem svo að við viðurkennum fjár- kröfur Svíanna," sagði Björn. Hann sagði að verið væri að skoða hvort unnt væri að útvega flugvirkjanem- um námsaðstöðu annars staðar. Einnig hefur ráðuneytið átt viðræð- ur við Flugleiðir um það hvort unnt sé að flytja námið alfarið inn til landsins, en þeim viðræðum er ekki lokið. Maður hné niður og missti meðvitund í Mývatnsmaraþoni Hlaupandi heilbrigðis- starfsmenn til bjargar TVEIR heilbrigðisstarfsmenn, sem tóku þátt í 10 kílómetra hlaupi í Mývatnsmaraþoni síðast- liðinn sunnudag, komu til bjargar er þriðji þátttakandinn hné niður er hann átti skammt ófarið í markið. Hjúkrunarfræðingur og sjúkraþjálfari gátu komið púls mannsins á stað að nýju, en hann lá meðvitundarlaus á hlaupa- brautinni og var byijaður að blána. Talið er að maðurinn hafi ekki búið sig nægilega fyrir hlaupið, ekki borðað kvöldið áður og þrek verið þrotið, en hann þráast of lengi við að komast í mark. Júlía Linda Ómarsdóttir hjúkr- unarfræðingur á Akureyri tók þátt í 10 kílómetra hlaupinu og kom að þeim sem hné niður. Hún sagðist hafa verið þarna á hlaup- um með vinkonu sinni, Sigrúnu Jónsdóttur sjúkraþjálfara. Þegar þær áttu um kílómetra ófarinn sagðist hún hafa séð hvar einn hlauparanna var orðinn mjög reikull, rásaði milli vegkanta og féll við. Greinilega hefði verið mikið að honum. Þegar þær nálg- uðust hann kvaðst hún hafa hróp- að til hans að liggja kyrr. Gaf högg í hjartastað og fann púls Þegar þær komu að honum hefði hann sagt að það væri allt í lagi með sig og síðan liðið út af. Blámi hefði strax komið á varir hans og neglur, þær hefðu leitað að púlsi en ekki fundið svo Júlía sagðist hafa gefið honum högg við hjartastað og Sigrún hefði getað lyft fótum hans og fljótlega hefði mátt finna púls. Hins vegar hefði maðurinn ekki svarað hvernig sem á hann var yrt. Júlía sagði að Hjálmar Frey- steinsson læknir hefði verið við rásmarkið og hann hefði komið innan nokkurra mínútna. Auk þess hefðu þýskir ferðamenn, sem voru þarna á ferð, komið að og lánað yfirhafnir til að breiða á manninn, en hann hefði verið kaldsveittur og auk þess dálítil gjóla. „Bláminn á vörum og nögl- um mannsins hvarf strax og greindist púls hjá honum,“ sagði Júlia. „Mér sýndist að þarna væri greinilega um sykurfall að ræða, hann hefði farið of hratt miðað við getu. Þó var sagt að þetta væri vanur hlaupari." Læknar á lokasprettinum? Maðurinn jafnaði sig eftir nokkra stund eftir að hafa neytt vatns og sykurs að ráði læknisins. Júlía sagðist nýlega byrjuð að hlaupa og þetta væri annað 10 kílómetra hlaupið sem hún hefði tekið þátt í. í bæði skiptin hefði komið fyrir að maður hefði hnig- ið niður. Sér þætti ráð að lækn- ar, sem störfuðu við hlaup, væru ekki endilega staðsettir við enda- markið heldur væri þeirra frekast þörf á þeim kafla hlaups sem mest reyndi á þrek hlauparanna, á síðustu tveimur kílómetrunum eða svo. Sala Faroe Sea- food vekur reiði Þórshöfn. Morgnnblaðið. MIKIL reiði ríkir hér í Færeyjum vegna sölu Chaldurs, dótturfyrir- tækis Faroe Seafood í Grimsby. Það er einkum tvennt, sem vekur reiði Færeyinga. Þar vegur þungt að dótturfyrirtækið, sem yfirleitt hefur verið rekið með hagnaði, var selt útlendingum. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna keypti helming, Uhrenholt Holding í Danmörku fjórðung og P/F JPJ í Færeyjum festi kaup á síðasta íjórðungnum. Hin ástæðan fyrir því að Færey- ingar eru lítt hrifnir og eiga erfitt með að botna í þessum viðskiptum er það hveijir stóðu að þeim. Það voru Frank Uhrenholt og Jóhan Páll Joensen. Lögmaður fyrirskipar rannsókn Uhrenholt var stjórnarformaður P/F Faroe Seafood og hefði því að mati margra hér í Færeyjum átt að hafa hug á að bjarga fyrirtækinu í heild. En hann og Jóhan Páll Jo- ensen, einnig stjórnarmeðlimur Faroe Seafood og stjórnarformaður Færeyjabanka, yfirtóku dótturfyrir- tækið í Grimsby og seldu síðan aft- ur. Lögmaðurinn Edmund Joensen telur að bijóta eigi þetta mál til mergjar. Hann hefur falið Richard Mikkelsen, formanni Fjármögnun- arsjóðsins frá 1992, sem einnig á meirihluta í Færeyjabanka, að rannsaka málið. Þá krefjast stöðugt fleiri þing- menn, þar á meðal Heini O. Heines- en, formaður Þjóðveldisflokksins, þess að málið verði kannað í þaula. Það bendir því allt til þess að hér sé komið upp nýtt „bankamál" - nýtt reginhneyksli. -------» ♦ ♦------- Bát tók niðri Raufarhöfn. Morgunblaðið. LOÐNUSKIPIÐ Gullberg VE tók niðri á grynningum við innsiglingu hafnarinnar í Raufarhöfn um hálfsexleytið í gærkvöldi. Þoka var talsverð en blíðskaparveður að öðru leyti, en ekki sást vel til merkja. Skipið tók niðri á horni svokall- aðrar Böku sem er heiti á grynning- um sem ganga út úr Hólmanum í innsiglingunni. Háfjara var þegar atburðurin'n átti sér stað og beið áhöfnin róleg eftir flóði. Eftir um tvo og hálfan tíma losnaði skipið af sjálfu sér eft.ir að flæða tók að.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.