Morgunblaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JLILÍ1995 37 Ur dagbók lögreglunnar Tilkynnt um 67 rúðubrot 7. til 10. júlí EFTIR helgina eru 428 bókanir í dagbókinni. Af þeim eru 58 bein- línis vegna ölvunar eða ölvunar- háttsemi fólks. Sem dæmi um slíkt má nefna tvítuga stúlku sem gerði sér að leik að slá einkennishúfu af lögreglumanni í miðborginni aðfaranótt sunnudags, fullorðinn ölvaðan mann er sprændi þar sem hann stóð á miðju Austurstræti, ölvaðan mann sem féll á gang- stétt við Laugaveg og hruflaðist á enni o.s.frv. Nítján í fangageymslum Tilkynnt umferðaróhöpp eru 38 talsins. í sex tilvikum urðu slys á fólki og í fjórum tilvikum eru öku- menn grunaðir um ölvunarakstur. Auk þeirra eru 13 ökumenn aðrir sem stöðvaðir voru í akstri grun- aðir um að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Tilkynnt innbrot eru 16, átta þjófnaðir, tvær líkamsmeið- ingar, sjö skemmdarverk og 67 rúðubrot. Tuttugu og fjórir öku- menn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og 15 fyrir önnur umferð- arlagabrot. Þá voru 22 ökumenn áminntir fyrir væg brot á umferð- arlögunum. Nítján einstaklingar gistu fangageymslurnar. Aðfaranótt laugardags var til- kynnt um harðan árekstur á Bar- ónsstíg við Hverfisgötu og að öku- maður annars ökutækisins hefði ekið brott af vettvangi. Skömmu síðar var tilkynnt um að árekstur hefði orðið millli bifhjóls og bif- reiðar á gatnamótum Sóleyjargötu og Bragagötu og að bifreiðinni hefði verið ekið hiklaust á brott. Bifhjólamaðurinn lá slasaður eftir í götunni. Bifreiðin fannst skömmu síðar mannlaus á Njarð- argötu. Um var að ræða bifreið þá er komið hafði við sögu í báðum óhöppunum. Um nóttina tilkynnti ungur ölvaður maður um stuld á bifreiðinni. Hann var færður til yfirheyrslu á lögreglustöðinni þar sem hann játaði að hafa ekið bif- reið sinni umrætt sinn. Hann reyndist vera próflaus. Ölvaðir og/eða réttindalausir tjónvaldar Snemma á laugardagsmorgun varð árekstur í þrengingu á gang- braut á Austurbergi. Annar öku- mannanna ók á brott en fannst skömmu síðar á gangi þar skammt frá. Hann viðurkenndi aksturinn og að hafa verið undir áhrifum áfengis. Áður hafði verið tilkynnt um að kona hefði dottið út úr bifreið á ferð á Kringlumýrarbraut í Foss- vogi. Hún var flutt á slysadeild. Aðfaranótt sunnudags valt bif- reið á Heiðarvegi við Rauðhóla. í bifreiðinni voru fjórir ungir menn og meiddist einn þeirra á hendi, en bifreiðin er mikið skemmd. Þá var tilkynnt um mjög harðan árekstur í Leirutanga í Mos- fellsbæ. Þar ók 16 ára stúlka á tvær mannlausar bifreiðar. Öku- maðurinn virtist vera undir áhrif- um áfengis. Færa þurfti öll öku- tækin á brott með kranabifreið. Snemma á sunnudagsmorgun var bifreið ekið á rafstöð við vega- framkvæmdirnar á Vesturlands- vegi við Hestháls. Eftir árekstur- inn hélt bifreiðin áfram og hafn- aði inni í vinnuskúr sem þar var. Ökumaðurinn var færður á slysa- deild en hann reyndist réttindalaus og er hann jafnframt grunaður um ölvunarakstur. Átta sendibílstjórar grunaðir um fólksflutninga Lögreglumenn höfðu afskipti af átta sendibifreiðastjórum er grunaðir voru um að flytja fólk gegn gjaldi aðfaranætur laugar- dags og sunnudags. Mál þeirra munu fá venjubundna afgreiðslu. Minna má á að maður var nýlega dæmdur í Héraðsdómi Reykjavík- ur til að greiða 50 þúsund króna sekt auk saksóknar- og málsvarn- arlauna fyrir að aka farþegum gegn gjaldi í sendibifreið. Aðrir en þeir, sem til þess hafa sérstakt leyfi og uppfylla skilyrði reglugerðar um fólksflutninga, mega ekki flytja fólk gegn gjaldi á höfuðborgarsvæðinu þar sem sérstök takmörkun er í gildi. Svo virðist sem fáir sendibifreiðastjór- ar stundi ólöglega fólksflutninga. Langflestir eru með sitt á hreinu og flytja einungis fólk þegar það er að fylgja varningi eins og regl- ur kveða á um. 26. Ólympíuleikarnir í eðlisfræði Verkiega hluta keppninnar lokið Canberra, Morgunblaðið. KEPPENDUR Á 26. Ólympíuleikun- um í eðlisfræði í Canberra í Ástralíu draga nú andann léttar, því fyrir þeim er erfiði keppninnar lokið. í gær leystu þeir seinni hluta verk- efnanna, tvö löng tilraunaverkefni, og eru í fríi þar til verðlaun verða afhent á miðvikudag. Fararstjórarnir vinna nú hörðum höndum við að fara yfir lausnirnar og semja um sann- gjarnar einkunnir við dómnefndar- menn. Verklegu verkefnin voru tilraunir j úr námsefni framhaldsskólanna og fengu keppendur tæki og aðstöðu eðlisfræðiskorar háskólans í Can- berra til að framkvæma þær. Fyrri tilraunin var framlag háskólans í Sidney og var um lokahraða málmsívalninga i glyceríni. Seinni tilraunin var framlag háskólans í Brisbane og var um dreifingu og deyfingu leysisljóss í missterkum mjólkurupplausnum. Báðar tilraun- irnar kröfðust mikillar nákvæmni í { mælingum ásamt mati á óvissu í mælistærðum og útreikningi á skekkju í lokaniðurstöðum. Bráðabirgðaniðurstöður liggja nú þegar fyrir og er ljóst að íslenska keppnisliðið hefur sýnt jafnan og góðan árangur. Einn keppendanna Gunnlaugur Briem, MR rýfur 50% múrinn og á í vændum heiðursskjal fyrir góða frammistöðu, en nákvæm stigagjöf verður ekki ljós fyrr en að loknum viðræðum dómnefndar- manna við fararstjórana. Þeirra hlut- verk er að útskýra vafaatriði í lausn- um keppenda sem allir skila svörum sínum á móðurmálinu svo atriði sem verðskulda stig gætu hafa farið framhjá hinum áströlsku dómurum. íslendingar skemmtilegasta liðið? Af viðræðum við starfslið leikanna má ráða að íslensku keppendurnir eru þroskaðri og sjálfstæðari en al- mennt gerist á Ójympíuleikunum í eðlisfræði enda eru þeir með þeim elstu hér í Canberra. Þeir virðast vera á góðri leið með að fá nafnbót- ina „skemmtilegasta liðið“ því þeir hafa verið virkir í félagslífinu og blandast vel keppendum frá öðrum löndum. í dag hitta þeir íslenska konsúlinn í Canberra, Ross L. Gib- son, og á morgun liggur leiðin í gervi- hnattaeftirlitsstöð og nýja þinghúsið. FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Helgason. MARKAÐSRÁÐ Stykkishólms. Bryndís Guðbjartsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Svanborg Siggeirsdóttir, Dagbjört Höskuldsdóttir og Sigurjón Jónsson. Markaðsráð í Stykkishólmi MARKAÐSRÁÐ Stykkishólms var formlega stofnað 28. júní sl. Fé- lagar eru fyrirtæki í Stykkis- hólmi, stéttarfélög, einstaklingar sem stunda atvinnurekstur í eigin nafni og svo einstaklingar sem hafa áhuga á atvinnumálum og atvinnuþróun í Stykkishólmi. Stjórn félagsins er þegar farin að starfa. „Danskir dagar“ voru haldnir í Stykkishólmi í fyrra og tókust mjög vel. Því er áformað að bjóða aftur upp á „Danska daga“ helgina 19. og 20. ágúst nk. Þá hefur stjórn Markaðsráðsins auglýst eftir starfsmanni. Ætlunin er að ráða mann í hálft starf allt árið. Þeir sem hafa áhuga á starf- inu skulu hafa samband við stjórn félagsins. Þá hefur stjórnin aug- lýst eftir nafni á nýja félagið og er öllum bæjarbúum heimilt að Dregið í hraðbankaleik DREGIÐ hefur verið í hraðbankaleik Búnaðarbankans og Euroc- ard sem fram fór á Kringlukasti 22.-24. júní. Rúmlega átta þúsund þátttökuseðlum var skilað inn. Myndin var tekin við verðlaunaafhendinguna. Halla Guðrún Jónsdóttir frá Eurocard, Guðrún Ósk Guðmundsdóttir sem hlaut sólarlandaferð fyrir tvo í leiguflugi með Samvinnuferðum - Landsýn að andvirði kr. 100.000, Halla Dóra Halldórsdóttir sem hlaut Ævintýraferð fyr- ir tvo til Vestmannaeyja og Halldóra Traustadóttir frá Búnaðar- banka íslands. Á myndina vantar Helgu Hansdóttur sem hlaut vöruúttekt í einhverri af verslunum Kringlunnar fyrir kr. 10.000. Benny Hinn í Laugar- dalshöll BANDARÍSKI sjónvarpspredik- arinn Benny Hinn heldur þrjár samkomur í Laugardalshöll þriðjudaginn 18. og miðvikudag- inn 19. júlí nk. Samkomurnar hefjast báða dagana kl. 20.00 en einnig verður morgunsam- koma miðviku- daginn 19. júlí kl. 11.00. Benny Hinn hélt samkomu í fyrrasumar í Kaplakrika. Hafnarfjarðar- meistaramót í dorgveiði ÞRIÐJUDAGINN 11. júlí stendur Æskulýðs: og tómstundaráð Hafn- arfjarðar fyrir dorgveiðikeppni við Flensborgarbryggju. Keppnin er ætl- uð börnum á aldrinum 6 til 12 ára. Leiðbeinendur íþrótta- og leikja- námskeiðanna verða með gæslu auk þess em björgunarsveitin Fiskaklett- ur verður með björgunarbát á sveimi. Keppnin hefst um kl. 13.30 og lýkur um kl. 15.00. - kjarni málsins! leggja inn tillögur. Margar hug- myndir hafa komið upp varðandi verkefni fyrir Markaðsráðið og mun stjórnin ásamt væntanlegum starfsmanni reyna að koma sem flestumþeirra í framkvæmd. Stjórn Markaðsráðs Stykkis- hólms skipa: Bryndís Guðbjarts- dóttir, Dagbjört Höskulsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Sigurjón Jóns- son og Svanborg Siggeirsdóttir. VINNIN LAUGA (h (r GSTÖLUR 08.07.1995 I RDAGINN I l)(25) (23) VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1.5 at 5 1 2.029.350 2.piús5» 1.203.060 3. 4at5 114 4.280 4. 3af 5 3.126 360 Heildarvinningsupphæð: 4.845.690 m : BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR 21. leikvika, 8.-9. júli 1995 Nr. Leikur:_______________Röóin: 1. Gefle-Lira - X - 2. Lulcá - Forward 1 - - 3. Sirius - GIF Sundsvall - - 2 4. Umeá - VSsby I - - 5. Vasalund - Assyriska I - - 6. Visby - Bromntapojkarn - - 2 7. VUstcrás - Bragc I - - 8. Basel - Karlsruhe - - 2 9. Köln - Luzcrn - X - 10. Öster - Rudar Velnje 11. Odensc - HJK Helsingfo 12. Mctz - Partick 13. Keflavik - Zagreb 1 - - 1 - - 1 - - - X - Heildarvinningsupphæðin: 56 milljón krónur | 13 réttir: | 716.980 kr. 12 réttir: 13.730 kr. 11 réttir: 1.040 | kr. 10 réttir: 290 J kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.