Morgunblaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 23 LISTIR Framkvæmdastjóri hjá Gaumont kvikmyndafyrirtækinu Þróið ykkar eigin frásagnarmáta PHILIPPE MAYGNAL er fram- kvæmdastjóri alþjóðadeildar kvik- myndafyrirtækisins Gaumont sem ásamt fleirum stendur að kvik- myndahátíð í Háskólabíói þessa dagana. Maygnal segir að Gaumont haldi slíkar hátíðir víða í ár vegna hundrað ára afmælis fyrirtækisins og kvikmyndarinnar. „Við munum halda slíka hátíð í þeim löndum sem við viljum kynna fyrir- tækið betur, starfsemi þess og franskan kvik- myndaiðnað. Leikstjórar í fremstu röð Gaumont framleiðir á milli sex og tólf myndir á ári að sögn Maygnal og er það stefna fyrirtækisins að vinna einungis með leikstjórum í fremstu röð. „Markmið fyrir- tækisins er ekki að uppgötva unga og efni- lega leikstjóra. Við fáum leikstjóra til liðs við okkur þegar þeir hafa slegið í gegn, ekki fyrr. Þess- um leikstjórum gefum við algerlega ftjálsar hendur. Þeir fá að gera þær myndir sem þá langar til, burtséð frá því hvað þær kosta. Þannig er t.d. samstarfi okkar við Luc Besson háttað sem gert hefur myndir eins og Subway, The Big Blue, Nikita o. fl.“ Ný mynd eftir Luc Besson Maygnal segir að fyrirtækið sé með fimmtán myndir í framleiðslu Philippe Maygnal sem stendur, sem ætlað er að komi á markað á næstu tveimur árum. Þar á meðal nýja mynd eftir Luc Besson sem heitir The Fifth Ele- ment. „Þetta er gríðarstórt verkefni en myndin kostar um 75 milljónir dollara í framleiðslu. Bruce Willis leikur aðalhlutverkið en hann einn kostar okkur um fimmtán milljónir dollara. Myndin segir sögu manns sem ætlar að ferðast um tunglið og er eins konar sambland af hasarmynd og vísinda- skáldskap. Svo erum við að ljúka við gerð myndar sem Mel Bro- oks leikstýrir og heitir Dracula is dead, and loving it, en Leslie Nilsen, leikur aðalhlut- verkið. Við erum einn- ig að framleiða myndir eftir Gérard Oury og Jean-Marie Poiré svo einhveijir séu nefndir.“ Líf í íslenskri kvikmyndagerð Aðspurður segist Maygnal þekkja eilítið til íslenskrar kvikmyndagerðar. „Það hefur kom- ið mér á óvart hvað íslendingar fara víða með myndir sínar. Þeir eru á öllum helstu kvikmyndahátíð- um í heiminum og það er merki um mikla orku og framtakssemi. Það virðist því vera mjög mikið Iíf í ís- lenskri kvikmyndagerð en eins og aðrir verða þeir að læra að laga sig að markaðnum; þéir ættu að ein- beita sér að því að þróa sinn eigin frásagnarmáta." Morgunblaðið/Rúnar Þór HÉR SÉST hluti bókasafns Davíðs Stefánssonar í húsi hans á Akureyri Bókasafn Davíðs Stefánssonar skráð Mörg sjaldgæf rit í safninu Á VEGUM Amtsbókasafnsins á Akureyri er unnið að því að skrá bækur í bókasafni Davíðs Stefáns- sonar skálds. Davíð átti mikið safn bóka sem hingað til hefur ekki ver- ið nægilega aðgengilegt en stefnt er að því að áhugamenn geti í fram- tíðinni nálgast bækur úr safninu með milligöngu Amtsbókasafnsins. Að sögn Sigrúnar Ingimarsdótt- ur, bókasafnsfræðings á Amts- bókasafninu sem vinnur að skrán- ingunni, eru um 5.500 titlar í safni Davíðs en ekki er vitað fyrir víst hversu mörg bindin eru. „Það kom mér mjög á óvart hvað þetta er mikið magn af bókum og hvað úrvalið er mikið,“ segir Sigrún. „Það kom líka á óvart hversu bæk- urnar eru vel með farnar, þær eru og flestar vel innbundnar.“ . 'Á'. "MI ... *■' ' F' j ■............* - 'z?;. . -,: .: • íj:,;; ^ ’ i fiíii» -v.; I: Lokaverkefni í lagi NEMENDUR í listaskóla í Brighton á Englandi myndinni virðir Pierpaolo Inga, einn nemend- völdu sér óvenjulegan stað fyrir lokaverkefni anna fyrir sér verkið „Englaaugun snotru og þessa skólaárs; Hanover-hverfið í borginni. A smáu“. Lárus Sophaníasson, bókavörður á Amtsbókasafninu, segir að mörg sjaldgæf rit sé að finna í safni Davíðs. „Hann átti t.d. flestöll gömlu tímaritin, Lærdómslistafé- lagsritin, Pjölni, Sunnanpóstin o. fl. Þarna eru einnig margar dýr- mætar bækur, s.s. úrvalseintak af frumútgáfunni á þjóðsögum Jóns Árnasonar.“ Lárus segir að Davíð hafi verið mjög vandlátur á bækur. „Hann sagði mér einu sinni að hann gæti kannski eignast tvö til þrjú eintök af fágætum pésa áður en hann fengi það sem hann vildi eiga. Hann hafði ekkert gaman af ljótum bókum.“ Sigrún og Lárus segja að senni- lega taki skráningin á safninu um fjögur til fimm ár. Síðasta sending -Sjónvarpssófinn- Tökum heim gám í dag -talið við sölumenn því næsta sending kemur ekki fyrr en í septemherlok. Sjónvarpssófinn frá Lazy-hoy sem er í raun tveir Lazy-hoy stólar (24 milljónir seldar um allan heim) hefur fengið frábærar móttökur á Islandi. Fæst aðeins hjá okkur í hinni nýju og glæsilegu Broyhill verslun. EUROCARD V/SA Sófinn á myndinni kostar kr. 116.750,- 10% staðgreiðsluafsláttur eða góð greiðslukjör til margra mánaða. Húsgagnahöllinni S: 587 1199 - Bfldshöfði 20 - 112 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.