Morgunblaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Nf þessn/EeozmeÞ. /HGUfZ Etz A&H!.. HANN SASÐí AS> ÞAP VCÍ>/ SKÍK.T UAA HBlQ/tíA/ ■i'tt 018MT|1bun>M«dh ftyvlcw. Inc. Grettir Ferdinand HOU) CAN VOU TELL IF A POÖ 15 INTELLIéENT? PR08ABLY IFHE SEEM5TO BE CURI0U5 ABOUT THING5. IVE ALWAY5 WONPEREP WHATANNA YARENINA B/ER 5AW IN COUNT VR0N5KY.. J Hvernig getur maður vitað Líklega af því hvort hann Ég hef alltaf velt því fyrir mér hvort hundur er gáfaður? virðist forvitinn um hluti... hvað Anna Karenina sá við Vronsky greifa... BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reylqavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Nýtt nám í Reyk- holti í Borgarfirði Frá Þóri Ólafssyni: EITT af því sem einkennt hefur þró- un menntamála hér á landi undanf- arin ár er aukin sókn í framhalds- nám. Almennt er talið að allir þurfi á framhaldsmenntun að halda. Nú sækja um 90 af hundraði þeirra sem ljúka skyldunámi um nám í framhalds- skólum strax haustið eftir lok grunnskóla. Þetta er kunnug- leg þróun sé litið til þess sem gerst hefur i grannlöndum okkar. Sam- hliða hefur sú þróun orðið í atvinnu- lífi að störfum fyrir ófaglærða fækk- ar og unglingar fá síður vinnu en áður var. Skólamir hafa tekið við hlutverkum sem atvinulífið gegndi áður fyrir nokkuð stóran hluta ung- menna. Fyrir vikið lengist sá tími sem hver einstaklingur ver í skóla- göngu. í byrjun verður framhalds- skólanámið hjá mörgum n.k. um- þóttunartími, tími sem notaður er til að átta sig á hlutunum. Ungling- amir eru óvissir um hvað leggja skuli fyrir sig í námi og starfi og em að átta sig á tilfinningum sínum, löngunum og hæfileikum. Eins árs nám á framhaldsskólastigi Menntamálaráðherra hefur ný- verið falið Fjölbrautaskóla Vestur- lands á Akranesi (FVA) að bjóða upp á eins árs nám á framhalds- skólastigi í Reykholti í Borgarfirði. Skólinn í Reykholti verður skipulags- lega hluti af Fjölbrautaskóla Vestur- lands. Nemendur í Reykholti bætast í um 700 nemenda hóp sem að jafn- aði stundar nám í FVA á nokkrum stöðum á Vesturlandi. Tillögur um námið vora unnar af starfsmönnum FVA að þeiðni ráðherra. Þær taka mið af þeim aðstæðum sem að ofan var lýst. Markmið námsins eru eink- um þijú: 1. Að auka almenna kunnátu nemenda og fæmi í grunngreinum og gefa þeim kost á að ljúka hluta af framhaldsnámi eða fornámi. 2. Að auka þroska nemenda, sjálfstraust þeirra og samskipta- hæfni. 3. Að veita nemendum markvissa ráðgjöf um náms- og starfsval. Námið á að standa yfir í einn vetur og fá nemendur það staðfest með burtfararskírteini. Það á að nýtast nemendunum til áframhalds í flestum íslenskum framhaldsskól- um eða vera vegamesti þegar sótt er um starf. Námið á að henta breið- um hópi nemenda. Þeir sem hafa góða undirstöðu úr fyrra námi geta lokið allt að 44 námseiningum á tveimur önnum. Jafnframt því verð- ur þeim sem lakar eru undirbúnir veitt sérstök aðstoð til að ná sér á strik. Öruggt og notalegt heimili Skólanum er ekki ætlað að vera sérstakt athvarf fyrir unglinga sem eiga við persónuleg- eða félagsleg vandamál að stríða. Krafa verður gerð til nemenda um eðlilegan skólaaga og verður allt gert til að skólinn verði notalegt og öruggt heimili nemenda á námstímanum. í skólanum verður reynt að að efla sjálfstraust og bæta samskipta- hæfni nemendanna og veita þeim- markvissa ráðgjöf um náms- og starfsval. Sérstakar starfsaðferðir í skólanum og viðhorf til nemenda verður kjarninn í viðleitninni til að uppfylla markmið námsins. Skóla- starfið er skilgreint sem tilraun af menntamálaráðuneytinu og verður fylgst með framvindu mála jafnt og þétt. Reykholt er menntasetur frá fornu fari og einn þekktasti staður landsins meðal Norðurlandabúa. Þar er góð aðstaða til skólahalds og tækifæri til tómstundastarfs eru mörg t.d. er þar aðstaða fyrir þá sem vilja stunda hestamennsku sem hluta af námi sínu. í skólanum er íþróttahús og sundlaug. Heimavistir era nýlegar og skólinn hefur verið búinn góðum kennslutækjum á síð- ustu árum. Um þá kosti sem um- hverfi staðarins býr yfir þarf ekki að fjölyrða. Afmarkaðra nám - skýrari markmið Fyrirhugað skólastarf mun að ýmsu leyti njóta góðs af þeirri reynslu sem hlaust undafarna þijá vetur i Reykholti undir stjórn Odds Albertssonar. Munurinn er e.t.v. einkum sá að nú er farið af stað með afmarkaðra nám með skýrari markmið. Undanfarna vetur hefur þróun skólahaldsins verið með nokkuð tilviljanakenndum hætti. Það er líklega til marks um óljósa stöðu skólans í Reykholti að í nýrri útgáfu ferðahandbókar um ísland er fullyrt að lýðháskóli sé starfandi í Reykholti. Aðdragandi að því skólastarfi sem nú er boðað til í Reykholti hef- ur verið mjög skammur og vissulega er óheppilegt að vera að kynna nýjan valkost í námi tæpum mánuði eftir að umsóknarfestur um fram- haldsnám í landinu rann út. Viðtök- ur þær sem fást í sumar verða tæp- ast marktækar um þá möguleika og erindi sem nám af þessum toga á í íslensku skólakerfi. Þá er hætt við að sú Sturlungaöld sem vakin var upp í fjölmiðlum vegna stöðu skólastjóra í Reykolti veki efasemd- ir í hugum einhverra þegar skóli á staðnum er nefndur. Það er eigi að síður sannfæring mín að nám í þeim anda sem ákveðið hefur verið að gera tilraun með í Reykholti eigi að geta auðgað íslenskt mennta- kerfi. Þar gæfist vettvangur tii að þróa námsaðferðir og kennsluhætti er þjóna sem best ungu fólki sem er að búa sig undir framtíðina. Slík- ur skóli gæti eðlilega orðið víðtækt samstarfsverkefni í skólakerfinu með tengsl við þær stofnanir sem mennta kennara eða annast rann- sóknir í uppeldis- og skólamálum. ÞÓRIR ÓLAFSSON, skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þórir Ólafsson Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi. I í i i < ( I I i i ( ( ( ( ( (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.