Morgunblaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 39
BRÉF TIL BLAÐSINS
Hlutdrægni
Morgunblaðsins
Frá Þorsteini Jónssyni:
ÞAÐ SKAL tekið fram að þegar
þetta er skrifað hefur undirritaður
aðeins séð umfjöllun RÚV og lesið
umfjöllun Moggans um eftirfarandi
leik (reiði varð til þess að ég gat
ekki beðið!)
Tilefni þessara skrifa er umfjöllun
Morgunblaðsins um leik Fram og
IA í 16-Iiða úrslitum Mjólkurbik-
arkeppni KSÍ. Eins og allir vita
núna fór sá leikur 1:0 fyrir Fram
og íslandsmeistararnir slegnir strax
I út.
Ég er fyrstur til að viðurkenna
að gengi Framara hefur verið mjög
slakt í sumar og leikurinn við
Skagamenn var sannarlega sá besti
sem ég hef séð með Fram frá því
einhvern tíma í fyrra (eða lengur!)
Þeir léku hreint stórkostlega og áttu
heilmikið í leiknum. Allir sem ég
hef talað við (NB: þetta er skrifað
morguninn eftir leikinn) voru sam-
mála um að Fram átti skilið sigur.
Blöskraði dómgæslan
Það var hinsvegar margt sem
I mér blöskraði meðan á leiknum stóð
og ber þar hæst Ijárans dómgæslan.
Virðingin fyrir ÍA fór í taugarnar á
mörgum áhangendum Fram og
Skaga-áhangandi fyrir aftan mig í
stúkunni tautaði nokkrum sinnum,
-,,Tja, ég er ekki frá því að þetta
hefði átt að vera aukaspyrna...“
En nei, aldrei dæmdi dómarinn vafa-
j atriði Frömurum í hag. „Umdeilt"
gult spjald Sigga Jóns í fyrri hálf-
) leik var fyrir grófan leik og leikmað-
} ur lá meiddur á vellinum eftir hann.
Kæru Moggamenn: Hvað í andsk...
þarf til að þið sjáið hvað er brot?
(„Vægast sagt vafasamt" er ykkar
frasi hins vegar yfír þetta spjald!)
Siggi var eftir þetta ansi pirraður
og mörgum sinnum var hann ná-
la?gt því að fá sitt annað gula spjald
og það í fyrri hálfleik. Skagamenn
| voru orðnir pirraðir og ég var á því
að leikhléið hefði verið þeim nauð-
I synlegt, sökum skapofsa og grófs
| leiks. Þeir voru skárri í síðari hálf-
leik en þegar brotið var á Sigurði í
síðari hálfleik stendur hann harka-
lega upp, ýtir frá sér og skallar
hausnum til Péturs Marteinssonar í
Fram sem fellur auðvitað á jörðina.
Elsku Moggafólk: Hann var
EKKI að þessu til þess að ýta leik-
mönnum frá til að taka aukaspyrnu!
| Hvað þarf til að sýna ykkur að svona
athæfi er hreinn og klár skapofsi?
I Jú, kannski annað lið. Ef Fram hefði
| lent í þessu eða KR eða önnur lið,
þá hefði eflaust sömu aðstöðu verið
lýst sem fullkomlega réttlátri. Einn-
ig langar mig til að minnast á sam-
kvæmni dómarans. í síðari hálfleik
komust Framarar í blússandi sókn
og leikmaður nr. 2 hjá ÍA togar í
og fellir sóknarmann Fram. Auðvit-
að hefði átt að spjalda manninn
| fyrir en hann var í einhverri náð
hjá dómaranum (eins og aðrir leik-
menn ÍA), aðeins aukaspyrna. Svo
| þegar samskonar brot átti sér stað
hinum megin á vellinum nokkrum
mínútum síðar var gula spjaldið það
fyrsta á loft. Mogginn minntist slæ-
legrar dómgæslu en átti við það
öfugt! Jú, akkúrat, Fram í náðinni
hjá dómara... góður brandari. Eng-
ilinn Ólaf Þórðarson mátti aldrei
snerta því þá var aukaspyrna, en
það mátti oftast fara aftan í Fram-
ara (örugglega bara rosalega
skemmtileg taktík hjá ÍA, sem dóm-
arinn heillaðist svona af). Allt tuðið
í Skagamönnum, sem var ansi mik-
ið, varð eins og héilagur sannleikur
hjá dómaranum! Kvabb ÍA í dómar-
anum var liðinu til skammar. Gul
spjöld Sigga Jóns hefðu því komið
miklu fyrr hjá sanngjörnum dómara.
Glæsileg markvarsla
Að lokum skal minnast mar-
kvörslu Ólafs Adolfssonar í fyrri
hálfleik - glæsilega gert Óli minn
- en hann er ekki markmaður og
má því ekki hanáleika knöttinn.
Dómarinn hins vegar þorir ekki að
dæma vítaspymu („allt í lagi að ÍA
hafí tvo markmenn") og Mogga-
menn: Ummæli ykkar um þetta at-
vik voru ykkur lýsandi. ÍA-dýrkun
út í ystu æsar: „... auðvitað dæmdi
(dómarinn) ekki vítaspyrnu!!!“ Svei
ykkur! Og það var líka eftir ykkur
að segja: „Enn og aftur voru Skaga-
menn slegnir út.. .“ Þetta var í
annað skiptið sem þeir voru slegnir
út í 16-liða úrslitum og „aftur“ hefði
verið alveg nóg. Og að segja það
að Ríkharður Daðason hafí ekki hitt
boltann en samt skorað!!!! Hér er
verið að gera lítið úr frábærri sókn
Fram. Maðurinn er örvfættur! Við
hveiju búist þið? Álíka skotkrafti í
báðum löppum??!! Svei ykkur . ..
„enn og aftur“?
Margar gagnrýnisraddir
Ofantaldir gagnrýnispunktar
mínir hljóta að vekja reiði Skaga-
manna sem auðvitað viðurkenna
aldrei að ég hafi rétt fyrir mér, en
í síðari hálfleik sat við hlið mér
gamalreyndur þjálfari (sem þjálfað
hefur mörg fræg lið) sem var mér
alveg sammála. Skaga-áhangand-
inn fyrir aftan mig var ekki ángæð-
ur með sína menn (og virtist ekkert
mótmæla brottrekstri Sigga, sem
flestir leikmenn sjálfs liðsins gerðu
ekki heldur!!);... var sigur Fram
sanngjarn, eða hvað?
I blálokin aðeins þetta: Baksíðu-
frétt ykkar um gengi ÍA eftir leikinn
gegn KR í deildinni og sjálf umfjöll-
unin í blaðinu var enn eitt merki
um hlutdrægni ykkar og aðdáun á
ÍA. „Svona gekk leikurinn fyrir
sig...“ gleymdi alveg nokkrum
færum KR-inga! og það er yfirhöfuð
fáránlegt að koma með svona dálk.
Ég hins vegar brosti yfir honum þar
sem skoðun mín á KR er í svo mikl-
um mínus eftir frægan leik KR og
Fram!! Fyrir einhveijum árum var
ansi mikill Fram-stimpill á blaðinu
en það er eins og þið séuð að reyna
að þvo hann af ykkur! verið hlutlaus-
ir og gagnrýnir á alla í umfjöllun
ykkar. Gefíð lof þar sem lof skal
gefið. DV er með heilmikið forskot
á ykkur í allri íþróttaumfjöllun sinni,
og ég bið ykkur vinsamlegast um
að breyta því sem fyrst!!!
Ég skora á ykkur að svara þessu
bréfi fljótt (minnsta kosti birta það!!)
ÞORSTEINN JÓNSSON,
Breiðvangi 56, Hafnarfirði.
• Askorun til kvenna
| Frá Hrafnhildi Guðmundsdóttur:
DÓMUR í „Hæstarétti íslands"
er hvati þessarar áskorunar.
Stúlkum eru dæmdar lægri bæt-
ur vegna kynferðis á því herrans
ári 1995. Tryggingafélagið Sjóvá-
Almennar fer fram á að kynferði
bótaþega sé haft til hliðsjónar þeg-
|j ar bætur viðkomandi eru metnar,
m Og nú skora ég á konur sem tryggja
hjá Sjóvá-Almennum að segja þeim
V tryggingum tafarlaust upp. Konur,
látum þetta ekki hljóðalaust yfir
okkur ganga, hundsið þetta trygg-
ingafélag.
Að mínu áliti er „Hæstiréttur
íslands" múraður inni í grárri forn-
eskju eftir þennan dóm, þrátt fyrir
alla þjóðfélagsumræðuna um
launamisrétti kvenna er þetta nið-
urstaðan. Sjóvá-Almennar bjóða
konum upp á þetta og það kallar
aðeins á eitt svar frá konum, engin
viðskipti við tryggingafélagið
Sjóvá-Almennar.
HRAFNHILDUR
GUÐMUNDSDÓTTIR, Garðabæ.
Siemens ryksuair
á útsöluverði!
• 1300W
• Stillanlegur sogkraftur
• Afar lipur, létt og hljóðlát
• Fylgihlutir í innbyggðu hólfi
• Margfóldsýklasíaíútblæstri
• Sjálfinndregin snúra
og hleðsluskynjari
• Siemens framleiðsla
tryggir endingu og gæði
• Verð aðeins kr. 12.900,-
Kraftmikil, 1200 W
IM, létt og fipur
Stór rykpoki og sýklasía
Sjálfinndregin snúra
og hleðsluskynjaii
Verð aðeins kr. 9*900,-
Einstakt tilboð sem aðeins gildir í sumar.
shSSs'®
Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru:
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir • Borgarfjörðun Rafstofan Hvítárskála • Hellissandur
Blómsturvellir • Grundarfjörður Guðni Hallgrímsson • Stykkishólmur: Skipavik Búðardalur Ásubúö • ísafjörður
Póllinn • Hvammstangi: Skjanni • Sauðárkrókur Rafsjá • Siglufjörður: Torgið • Akureyri: Ljósgjafinn Húsavík:
öryggi • Þórshöfn: Norðurraf • Neskaupstaður Rafalda Reyðarfjörður Rafvélaverkst. Árna E. • Egilsstaðir.
Sveinn Guðmundsson ■ Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson • Höfn i Hornafirði: Kristall Vestmannaeyjar Tréverk
Hvolsvöllur Kaupfélag Rangæinga • Selfoss: Árvirkinn • Grindavík: Rafborg • Garður: Raftækjav. Sig. Ingvarss.
Keflavík: Ljósboginn • Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla, Álfaskeiði
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 511 3000
REYKJAVÍKURVEGI 62 HAFNARFIRÐI
SÍMI 565 1680
Opið laugardag
til kl. 16.00.