Morgunblaðið - 11.07.1995, Side 48

Morgunblaðið - 11.07.1995, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR UIMGLINGA BORÐTENNIS Stórmót Gogga galvaska ífrjálsíþróttum Spennandi keppni í mörgum greinum ALLS voru níu mótsmet bætt á Stórmóti Gogga galvaska í frjálsum íþróttum sem fram fór á íþróttavellinum að Varmá í Mosfellsbæ. Eg held að árangurinn lofi góðu í mörgum greinum. Þessir krakkar eru frjálsíþróttamenn framtíðarinnar og það eru alltaf tjokkrir sem koma sterkir upp_ á nveiju ári, sagði Lilja Petra Ás- geirsdóttir, mótstjóri. Fijálsíþróttadeild UMFA gekkst fyrir þessu móti í fimmta skipti og það hefur notið mikilla vinsælda alveg frá byrjun. Keppendur voru um 250 á aldrinum sex til fjórtán ára og hafa oft verið fleiri, nokkur ungmennafélög ákváðu að velja á milli hvort þau sendu keppendur sína á Unglingalandsmótið sem fram fer um næstu helgi. Bryddað var upp á nokkrum nýj- ungum, þar á meðal keppt í sex nýjum greinum, 80 metra grinda- hlaupi hjá telpum og piltum og skutlukasti hjá strákum og stelpum. Þá var keppt í flokkum átta ára og yngri, svokölluðum „polla- og pæjuflokki," en keppendur í þessum flokki reyndu fyrir sér í boltakasti og í boðhlaupi. Veitt voru stig fyrir þátttöku og sigraði FH í stigakeppninni þrátt fyrir að Afturelding ynni til flestra verðlauna eða 51 talsins, en veitt voru verðlaun fyrir þijú efstu sætin í hverri grein. Keppinautar „Ég hef ekki verið að kasta langt að undanförnu en þetta er góð bæting hjá mér,“ sagði Ásgeir Þór Erlendsson úr Aftureldingu sem sigraði í spjótkasti pilta. Ásgeir kastaði spjótinu rúma 36 metra og það nægði til sigurs. „Ég æfi marg- ar greinar, ég hef lagt mesta áherslu á grindahlaupið, það er mín aðalgrein þó ég hafi einnig keppt í öðrum greinum," sagði Ásgeir Þór. Ámi Óli_ Ólafsson, úr Ungmenna- félginu Óðni frá Vestmannaeyjum varð annar en hann keppti uppfyrir sig þar sem ekki var keppt í spjót- kasti í strákaflokki. „Ég hef ein- beitt mér að kastgreinunum og mundi segja að ég væri bestur í UIMGLINGALANDSLIÐIÐ í borðtennis sem keppti í Belgíu. Frá vinstri: Peter Nilsen þjálfari, Eva Jóstelnsdóttir, Ingólfur Ing- ólfsson og Lilja Rós Jóhannesdóttir. Fyrir framan er Guð- mundur E. Stephensen. Silfur hjá íslenskum unglingum í Belgíu Unglingalandsliðið í borðtennis keppti fyrir nokkru á alþjóð- legu móti sem fram fór í Hasselt í Belgíu. Tveir íslenskir spilarar náðu þar silfurverðlaunum. Guð- mundur Stephensen og Lilja Rós Jóhannesdóttir. Margir af bestu unglingum Evrópu tóku þátt í mótinu en alls voru keppendur um 500 talsins frá fimmtán löndum. Guðmundur sigraði í níu leikjum en mátti þola tap gegn Hollend- ingi í úrslitaleik 21:17, 16:21 og 17:21. Lilja Rós sigraði í sex leikj- um en tapaði fyrir belgískum mót- heija 15:21 í báðum lotum úrslita- leiksins. Eva Jósteinsdóttir, Ing- ólfur Ingólfsson og Markús Árna- son höfnuðu öll í níunda sæti í sínum flokki. I liðakeppninni 15 til 17 ára hafnaði stúlknaliðið í þriðja sæti og drengirnir í fimmta sæti í flokki 17 til 21 árs en þeir eru 12, 14 og 17 ára. ■ Úrslit / B11 Morgunblaðið/Frosti Ásgeir Þór Erlendsson úr Aftureldingu og Árni Óii Ól- afsson úr Ungmennafélag- inu Óðni frá Vestmanneyjum börðust um sigurinn í spjót- kastkeppni pilta og hafði Ásgeir betur eftir spennandi keppnl. Á minni myndinni má sjá Gogga galvaska í hópi hressra krakka sem tóku þátt í mótinu. spjótkasti og boltakasti. Ég á best rúma 33 metra með 400 gramma spjóti en er óvanur að kasta 600 gramma spjótinu sem við notuðum í þessari keppni,“ sagði Árni. Landsmót Knattspyrna ogfrjálsar vinsælustu greinamar UM 1800 keppendur verða á Unglingalandsmótinu sem fram fer í Húnavatnssýsl- unni um næstu helgi en skráningu í mótið er nýlokið. ^Pæplega átta hundruð kepp- ■ endur voru á fyrsta Ungl- ingalandsmótinu, sem fram fór á Dalvík fyrir tveimur árum, svo íjölgun keppenda er mikil á milli móta. Mótið hefst á hádegi á föstudag en þá hefst keppni í Qórum greinum, knattspymu, körfuknattleik, fijálsum íþrótt- um og golfi. Hinar íjórar grein- arnar eru sund, skák, glíma og hestaíþróttir. Mestur áhugi er á knatt- spyrnu og fijálsum íþróttum ef dæma má af skráningu kepp- enda, en 500 unglingar keppa í hvorri grein. Körfuknattleikur- inn kemur næstur í röðinni en Jiar verða keppendur um þtjú ' hundruð talsins. Framkvæmd mótsins er í höndum USAH. KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Sigurður Bjamason SIGURVEGARARNIR ásamt þjálfurum sínum og Sigurðl Jónssyni. Frá vinstri: Sveinn Vilhjálms- son, Skúli Jóhannsson þjálfari, Ásdís Ólafsdóttir, Sigurður Jónsson, Guðný Kjærbo, Óskar P. Jensson og Sigurður Guðnason þjálfari. Fremst situr Pála Ólöf Júlíusdóttir en nafn hennar var dregið út úr nöfnum keppenda í sjöunda flokki. Mót haldið með nýju keppnisfyrirkomulagi Fyrir nokkru var haldið innanfé- lagsmót í knattspyrnu hjá yngri flokkum Reynis í Sangerði. Mót þetta var með nýju Hrefna Björg fyrirkomulagi, sem Óskarsdóttir kallast „íjórir gegn skrifar frá íjórum.“ Er þetta í Sandgerði fyrsta sinn svo vitað sé, sem slíkt mót er haldið hér álandi. Spilað var á fjórum völlum og voru ijórir leikmenn í hveiju liði. Gefin voru stig, 20 fyrir unninn leik, tíu fyrir jafntefli og eitt stig fyrir hvert skorað mark og var leiktíminn sjö mínútur. Eftir hvern leik var skipt þannig að hver leikmaður fékk nýja samheija og nýja mótheija. Stigin voru svo talin eftir mótið og stóð sá uppi sem sigurvegari sem flest stigin hlaut. Mótsfoim þetta er af hollenskri fyrirmynd, innleitt af Bjarna Stefáni Konráðssyni íþróttafræðingi, en það er talið eiga dijúgan þátt í vel- gengni hollenskra knattspyrnuliða. Megintilgangur þessa keppnisfyrir- komulags er að auka ánægju af knattspyrnu og draga úr keppni í yngstu flokkunum, því sigurvegar- inn er ekki nauðsynlega besti maður vallarins. Leikreglur eru þannig, að það er enginn dómari heldur sjá leik- menn sjálfir um að dæma, enginn markvörður, engin rangstaða, allar aukaspymu óbeinar, innspörk í stað innkasta, vítaspyrnur frá miðju og má skora hvar sem er af vellinum. Vítaspyrna er aðeins dæmd er hend- ur em notaðar til að koma í veg fyrir mark. Mótið gekk greiðlega fyrir sig, sjöundi flokkurinn tók ekki þátt í mótinu sjálfu en spilaði opnunarleik- inn. Hinn kunni knattspyrnumaður Sigurður Jónsson frá ÍA var vernd- ari mótsins og Lotto - vörur gáfu verðlaunin sem vom skór og búning- ar. í lok móts er stigin höfðu verið talin, veitti Sigurður verðlaunin og slegið var upp grillveislu. Vom kepp- endur og þjálfarar mjög ánægðir með mótið og þótti vel til hafa tekist.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.