Morgunblaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ MIIMNIIMGAR t Móðir mín, MARGRÉT STEINGRÍMSDÓTTIR, Lindarsíðu 2, Akureyri, andaðist laugardaginn 8. júlí 1995 á hjúkrunarheimilinu Seli. Útför fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 17. júlí kl. 13.30. Tómas Ingi Olrich. t Eiginkona mín og móðir okkar, ÁSTA ÓLAFSDÓTTIR, ' Grænutungu 7, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum að morgni 9. júlí. Ólafur Jónsson, Bjarni Ólafsson, Anna Ólafsdóttir, Hafdís Ólafsdóttir. t Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, SIGRI'ÐUR JÓNSDÓTTIR, Hjarðarhaga 54, Reykjavík, andaðist í Landakotsspítala aðfaranótt sunnudagsins 9. júlf. Einar Þórðarson, Thelma Grímsdóttir, Elsa Þórðardóttir, Ásta Þórðardóttir, Oddur Ragnarsson. t Konan mín, móðir, tengdamóðir og amma, MAGNEA SÖRENSDÓTTIR fyrrv. talsi'makona, Jökulgrunni 2, áður Keilugranda 8, lést í Landspítalanum föstudaginn 8. júlí. Útför hennar verður auglýst síðar. Einar Snæbjörnsson, Gerður Guðmundsdóttir, Helgi Bernódusson, Snæbjörn Einarsson, Jean Einarsson, Árni Helgason, Kristinn Helgason. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGVI JÚLÍUSSON, Ránargötu 27, Akureyri, lést sunnudaginn 9. júlí. Guðrún Jónsdóttir, Maria E. Ingvadóttir, Herdís ingvadóttir, Jón Grétar Ingvason, Hjördís Arnardóttir, Bjarni Rafn Ingvason, Rósa Þorsteinsdóttir, Áslaug Nanna Ingvadóttir, Oddur Sigurðsson, Ingvi Júlfus Ingvason, Unnur Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, GUÐMUNDÍA LIUA ÞORKELSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, Reykjahlíð 10, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli að morgni 9. júlí. Jarðarförin ákveðin síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Stefán Þórðarson og dætur. t KRISTJÁN ÁGÚST HELGASON verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 14. júlí kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Helgi Ágústsson. + Eygló Gamalí- elsdóttir fædd- ist í Reykjavík 23. september 1910. Hún lést á Sólvangi í Hafnarfirði 2. júlí siðastliðinn. Eygló var dóttir hjónanna Sigurbjargar Björnsdóttur frá Grjóteyri í Andakíl og Gamaliels Jóns- sonar, sjómanns og verkamanns í Hafn- arfirði, en hann var ættaður úr Arnes- sýslu. Systkini Ey- glóar eru Ingibjörg og Kristján, sem bæðu eru látin, og Lárus, búsettur í Hafnarfirði. Eygló fluttist með foreldrum sínum til Hafnarfjarðar 1920, en þar höfðu þá föðurforeldrar henn- ar búið frá því fyrir aldamót. Árið 1932 giftist Eygló Finni Arnasyni, húsasmíðameistara og verksljóra á Akranesi og stóð heimili þeirra þar fram til 1968, er þau fluttu til Hafnar- fjarðar. Finnur lést 1980. Á unglingsárunum í Hafnarfirði stundaði Eygló alla algenga vinnu, en í 12 sumur var hún í sveit á Stóra-Lambhaga í Skil- mannahreppi í Borgarfirði. Eygló starfaði mikið innan Kvenfélags Akraness og Sam- bands borgfirska kvenna á meðan hún bjó á Akranesi. Hún var m.a. í nefnd kvenfélagsins, sem stóð fyrir stofnun fyrsta dagheimilisins á Akranesi á 6. áratugnum. Börn Eyglóar og í DAG verður jarðsungin föður- amma okkar Eygló Gamalíelsdóttir. Hún var fædd í Reykjavík og ólst þar upp til tíu ára aldurs er hún fluttist til Hafnaríjarðar. Hún gift- ist afa okkar Finni Árnasyni bygg- ingarmeistara frá Akranesi árið 1932. Þau stofnuðu heimili á Akra- nesi og þar bjuggu þau í 35 ár. í hugum okkar systkinanna tengjast bernskuminningarnar ferðum upp á Akranes til lengri eða skemmri dvalar. Það var mikil eftirvænting í hugum okkar þegar lagt var af stað og ekki var spennan minni handan Flóans. Afi var iðulega 'kominn akandi hálfa leið fyxir Hval- [ | Finns __ Árnasonar eru: 1) Árni Grétar, hæstaréttarlög- maður í Hafnar- firði, kvæntur Sig- ríði Oliversdóttur, húsmóður og eru börn þeirra Lovísa húsmóðir i Hafnar- firði, gift Viðari Péturssyni, fram- kvæmdastjóra og eiga þau þrjú börn, Finnur, markaðs- sljóri hjá Sláturfé- lagi Suðurlands, búsettur í Hafnar- firði, giftur Önnu Maríu Ur- banic, viðskiptafræðingi og eiga þau tvö börn og Ingibjörg, laganemi, búsett í Hafnarfiði, og eru unnusti hennar Jónas Þór Guðmundsson, lögfræðing- ur. 2) Anna, skjalavörður í fjár- málaráðuneytinu, búsett í Kópavogi, gift Trausta Þor- steinssyni, vélvirkja og er sonur þeirra Finnur, málarameistari í Reykjavík. 3) Trausti, rafvirki hjá Landsvirkjun, búsettur í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Stellu Gunnarsdóttur, ritara og eru börn þeirra, Erla sálfræð- ingur, búsett í Reykjavík og er sambýlismaður hennar Karl Þorsteins, viðskiptafræðingur og eiga þau tvær dætur, Eygló, nemi í sjúkraþjálfun og á hún einn son og Gunnar, iðnnemi óg eru þau búsett í Reykjavík. Útför Eyglóar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. fjörðinn til að taka á móti okkur. Þar urðu miklir fagnaðarfundir þeg- ar litlu barnabörnin stungu sér inn í afabíl og brunuðu niður á Skaga til ömmu Lóu, sem beið okkar á Skólabrautinni. Amma var mjög félagslynd manneskja og hafði yndi af því að taka á móti gestum. Það var því oft mannmargt á heimilinu. Þá var gjaman spilað á spil eða sungið. Þótt oft hafi verið erilsamt á heim- ili ömmu og afa var ávallt nægur tími fyrir okkur börnin. Tímaskort- urinn sem einkennir nútímann var ekki til hjá þeim. Amma Lóa hafði alla tíð unun af lestri góðra bóka og var mjög minnug. Hún var óþqotandi sagnabrunnur og nutum við þess í ríkum mæli. Hún kunni ógrynni af ævintýrum og kvæðum og ekki var síður vinsælt að fá sög- ur af henni eða afa þegar þau voru lítil. Af frásögnum þeirra kynnt- umst við bæjarnöfnum og fólki í Borgarfirðinum, sveitinni sem þeim var svo kær. Amma átti forkunnar æðardún- sæng og var hún aldrei kölluð.ann- að en himnasængin. Undir henni lágum við systkinin og hlustuðum á ævintýrin í rúminu sem afi smíð- aði og aðra eins hlýju höfðum við aldrei fundið. Árið 1963 réðst afi til starfa hjá húsameistara ríkisins og hafði þar með höndum eftirlit með prestsetr- um. Þeim starfa fylgdu mikil ferða- lög. Við urðum þeirrar gæfu aðnjót- andi að fá að ferðast með afa og ömmu um landið og voru það fróð- legar og skemmtilegar ferðir. Auð- vitað kunni amma sögur frá þeim stöðum sem við heimsóttum. Árið 1968 fluttust amma og afi til Hafnarfjarðar. Afi Iét af störfum þegar hann var sjötugur. Stuttu síðar veiktist hann alvarlega af heilablæðingu og var rúmliggjandi í fimm ár, en hann lést 24. maí 1980, 75 ára að aldri. í veikindum sínum dvaldi afi á Elli- og hjúkrun- arheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði. Naut hann þá umhyggju og að- hlynningar ömmu sem heimsótti hann daglega ef ekki tvisvar á dag. Þau voru mjög samrýnd hjón og var missir ömmu mikill við fráfall hans. Skömmu eftir að afi féll frá kom í ljós að_ amma gekk ekki heil til skógar. í fyrstu gerðum við okkur ekki grein fyrir hvað var að og.töld- um þetta stafa af því að hún hefði ofgert sér í veikindum afa. Fljótlega kom í ljós að hún var haldin alzhei- mer-sjúkdómnum og hrakaði henni nú ört. Ekki liðu nema örfá ár þar til Sólvangur varð heimili hennar. Þar naut hún þeirrar frábæru hjúkr- unar sem þar er veitt og viljum við færa starfsfólki Sólvangs okkar innilegustu þakkir fyrir þá nær- gætni og hlýju sem það sýndi henni. Það sem einkenndi h'f afa og ömmu var greiðvikni. Þau voru allt- af reiðubúin að rétta fram hjálpar- hönd og það má með sanni segja að þau hafi haft það að leiðarljósi í lífinu að betra væri að gefa en að þiggja. Þau voru bæði mikið kirkjunnar fólk og trúin-á Guð stór þáttur í lífi þeirra. Það var okkur systkinunum mik- il gæfa að fá að njóta á uppvaxtar- árum ástúðar og samfylgdar ömmu og afa, þar sem greiðviknin og trú- in á hið góða var ætíð í fyrirrúmi. Þau hafa gefið okkur margar dýr- mætar minningar sem við geymum. Við biðjum Guð að blessa minn- ingu þeirra. Lovísa, Finnur og Ingibjörg. í dag fer fram frá Hafnarfjarðar- kirkju útför tengdamóður minnar Eyglóar Gamalíelsdóttur. Það var í bytjun árs 1963 að ég flyst til Akraness sem tilvonandi tengda- sonur Eygjóar og eiginmanns henn- ar Finns Árnasonar og hefur sam- leið okkar því varað í rúm 30 ár. Eg vil þakka fyrir alla hlýjuna og hið góða viðmót sem ég naut frá þeim alla tíð. Heimili þeirra var lengst á Akranesi en síðan fluttu þau til Hafnarfjarðar og þar bjuggu þau síðustu æviárin. Þau ræktuðu vel sína fjölskyldu, ættingja og vini. Alla tíð var mikill gestagangur á þeirra heimili og naut Eygló sín sem húsmóðir og móðir en það var hennar ævistarf. Síðustu æviár Finns og síðar Eygló- ar dvöldu þau á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði og eru starfs- fólki þar færðar alúðarþakkir fyrir einstaklega góða umönnun alla tíð. Guð blessi tengdamóður mína. Trausti Þorsteinsson. EYGLÓ GAMALÍELSDÓTTIR t Ástkær móðir okkar, tengdamóöir og amma, GUÐRÚN HANSDÓTTIR frá Garðsstöðum, Ögurhreppi, sem lést föstudaginn 30. júní, verður jarðsett frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 15. júlí kl. 11.00. Guðbjörg Ólafsdóttir, Stefán Kristjánsson, Guðmundur Ólafsson, Inga Sigurjónsdóttir, Vilborg Ólafsdóttir, Steingrímur Pétursson, Kristín Ólafsdóttir, Héðinn Arason, Héðinn Ólafsson, Hjördfs Kristjánsdóttir, Ólöf Ólafsdóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir, Ragnar Ólafsson, Hallvarður Ólafsson, Guðjón Ólafsson, Magnús Ólafsson, Aðalsteinn Ólafsson, Birna Sigurðardóttir og barnabörn. ERFIDRYKKJUR P E R L A N sími 620200 Safnaðarheimili Háteigskirkju iífflii 551 im

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.