Morgunblaðið - 11.07.1995, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 7
F'
Mælt með Sig-
urði Thorlacius
sem trygginga-
yfirlækni
TRYGGINGARÁÐ og forstjóri
Tryggingastofnunar ríkisins hafa
mælt með að Sigurður Thorlac-
ius, sérfræðingur í heila- og tauga-
sjúkdómum, verði ráðinn trygg-
ingayfirlæknir.
Tryggingaráð
tók afstöðu til 11
umsókna á fundi
sínum á föstu-
dag. Sigurður
Thorlacius hlaut
4 atkvæði og
Vigfús Magnús-
son geðlæknir
hlaut 1 atkvæði. Niðurstaðan var
því sú að mælt var með Sigurði í
stöðuna. Karl Steinar Guðnason,
forstjóri Tryggingastofnunar,
kemst að sömu niðurstöðu í umsögn
sinni.
Karl Steinar mælir með að Vig-
fús verði skipaður tryggingalæknir
og staðgengill tryggingayfirlæknis.
Vigfús hefur þegar verið settur
tryggingalæknir í eitt ár og hefur
gegnt stöðu tryggingayfirlæknis
frá því Júlíus V alsson lét af störfum
snemma í vor.
Sigurður Thorlacius er 42 ára
gamall og hefur starfað við sérr
fræðistörf, m.a. við Landspítalann
og Haukeland-sjúkrahúsið í Berg-
en, frá því hann fékk sérfræðileyfi
í taugalækningum árið 1986. Hann
tók doktorspróf í læknisfræði frá
háskólánum í Bergen árið 1989.
Sigurður hefur verið kennslu-
stjóri framhaldsmenntunar hjá
læknadeild HÍ og Landspítalanum
og lektor við HÍ í hlutastarfi og er
í hlutastarfi í læknadeild Trygg-
ingastofnunar. Hann hefur verið
formaður Félags taugalækna frá
1994 og í stjórn Endurmenntunar-
stofnunar Háskólans frá 1992.
Hann hefur átt sæti í nefndum á
vegum Landspítala, læknadeildar
Háskóla íslands og Læknafélags
íslands. Sigurður. er kvæntur Sif
Eiríksdóttur, uppeldisfræðingi og
félagsráðgjafa, og eiga þau tvö
börn.
Umsögn send ráðherra
Umsagnir Tryggingaráðs og for-
stjóra Tryggingastofnunar verða
sendar heilbrigðisráðherra og skip-
ar hann \ stöðuna. Nýr trygg-
ingayfirlæknir tekur væntanlega
við störfum um mánaðamótin júlí
og ágúst.
málum.
m
fÆI ISLENSK FJALLAGROS H F.
FÆST I HEILSUBÚÐUM OC APÓTEKUM.
FRETTIR
Hugmynd ferðamálanefndar
Græn orka í Reykjavík
REYKJAVÍK, borg grænnar orku,
er ein af þeim hugmyndum sem
yaknað hafa hjá ferðamálanefnd
Reykjavíkurborgar með það að
markmiði að búa tii nýja ímynd af
borginni. Með grænni orku er átt við
kalda og tæra, íslenska vatnið, hita-
veituvatnið og raforkuna.
Að sögn Helga Péturssonar, for-
manns ferðamálanefndar Reykjavík-
urborgar, er þetta liður í stefnumörk-
un í ferðaþjónustu borgarinnar. Hug-
myndin sé að koma því á framfæri
að Reykjavík sé umhverfisvæn höf-
uðborg.
„Hingað til höfum við lagt áherslu
á staðsetingu borgarinnar s.s. að hún
sé höfuðborg norðursins en við viljum
koma því á framfæri að hún sé um-
hverfisvæn með hreint vatn og hreina
raforku. Grunnhugmyndin er að
þessi græna orka verði sýnilegri og
aðgengilegri fróðleikur fyrir ferða-
menn, jafnt innlenda sem erlenda,
en nú er,“ segir Helgi.
Komið hefur til tals að halda sýn-
ingu, jafnvel margmiðlunarsýningu á
grænni orku, t.d. í Perlunni þar sem
segja má að kalt og heitt vatn og
rafmagn mætist á einum stað.
^ HSM Pressen GmbH
• Öruggir vandaöir pappírstætarar
• Margar stærðir - þýsk tækni
• Vönduð vara - gott verð
J. líSTVniDSSON HF.
SKIPHOLII33,105 REYKJAVÍK, SÍMI552 3580
nyia
...þið eruð skráðir eigendur hans,
...fáið hann á staðgreiðsluverði
-og tryggið hann þar sem ykkur hentar best!
Sölumenn bifrdðaumboðanna annast
útvegun lánsins á 15 mínútum.
Allt að 5 ára lánstími*
Allt að 100% lán
-og lánskostnaður í lágmartó.
*hámarkslán til 5 ára er 65% afbílverði
M
Glitiiirhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Ármúla 7, 155 Reykjavík. Sími 560 88 00. Myndsendir 560 88 10.