Morgunblaðið - 11.07.1995, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Þorkell
JÖRMUNDUR Ingi allsherjargoði ásatrúarmanna
gaf dönsk hjón saman á víkingahátíðinni.
Víkingahátíðinni lauk á sunnudag
13 þúsund gestir
VÍKINGAHÁTÍÐINNI í Hafnar-
firði lauk á sunnudaginn. Alls
sóttu um 13 þúsund gestir hátíð-
ina og stefnt er að því endurtaka
leikinn eftir tvö ár.
Að sögn Lilju Hilmarsdóttur
hjá skrifstofu Landnáms gekk
hátiðin mjög vel og ekkert stór-
vægilegt kom upp á. Erlendu
gestirnir voru mjög ánægðir með
móttökurnar að sögn Lilju og góð
aðsókn var að fyrirlestrum.
Á laugardaginn gekk danskt
par í hjónaband að heiðnum sið.
Allsheijargoði ásatrúarmanna á
Islandi, Jörmundur Ingi, gaf
hjónin saman, en þau eru bæði
ásatrúar. Brúðhjónin klæddust
víkingafötum og brúðarvöndur-
inn var úr sóleyjum.
„Það er algengt á svona hátíð-
um að pör noti tækifærið og
gangi í hjónaband undir berum
himni“, sagði Lilja. „Mikill fjöldi
fylgdist með athöfninni og á eft-
ir bauð Hafnarfjarðarbær völd-
um gestum til griliveislu."
Að hátíðinni lokinni fóru
margir erlendu gestanna í
tveggja daga ferð um söguslóðir
Njálu og nokkrir ætla að ferðast
um iandið á eigin vegum.
11 Cn 197(1 Þ VALDIMARSSON, fr&mkvæmdastjori
UUL I IuU'uJL Iu/U KRISTJÁN KRISTJANSSON, LOGGILTUR FASTEIGNAS4LI
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Góð eign á góðu verði
Endurnýjað einbhús með rúmgóðri 3ja herb. íb. á hæð. Nýtt eldhús.
Ný sólstofa. Nýtt parket. Kj.: 2 herb., sturtubað, þvhús og geymsla. Stór
ræktuð lóð 988 fm, há tré. Húsið stendur á útsýnisstað við Digranesveg.
Góðar íbúðir - lækkað verð - við:
Barðavog: 2ja herb. rúmgóð kjallaraíb. Sérinng. Samþykkt.
Eiríksgötu: 3ja herb. jarðhæð. Öll eins og ný.
Má vera í Seljahverfi
Til kaups óskast 2ja herb. góð íb. á 1. eða 2. hæð. í skiptum fyrir
4ra herb. úrvals íbúð með sérþvottahúsi og bílgeymslu.
Sumarhús á Vatnsleysuströnd
Nýlegt timburhús, grunnflötur um 40 fm. Hæð og portbyggt ris. Vönd-
uð viðarklæðning. Góð viðbygging 50 fm með 3 m vegghæð. Eignar-
land 6000 fm. Uppsátur fyrir bát f fjöru. Ýmiss konar skipti.
Stór og góð við Stigahlíð
Sólrík 4ra herb. íb. lítið niðurgrafin í þríbýlishúsi. 108,5 fm auk geymslu
og sameignar. Sérinngangur, sérhiti. Nýjar flísar á gólfum. Langtlán
um 4,8 millj. Vinsæll staður.
Á söluskrá óskast:
3ja herb. íb. við Birkimel eða nágrenni. Má vera lítil 4ra herb.
3ja herb. góð íb. í Heimum eða nágrenni. Má vera í lyftuhúsi.
Sérhæð 4-6 herb. með rúmgóðum bilsk.
Gamalt hús í gamla bænum. Margt kemur til greina.
í meira en hálfa öld hefur Almenna fasteignasalan útvegað traustum
viðskiptavinum sínum íbúðir og aörar fasteignir.
• • •
Opiðá laugardögum
Kynnið ykkur laugardagsaugl.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 14. júlí 1944. UI)6tVEBI18S. 552 1150-552 1371
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
FRÉTTIR___________________________________
Siglingamálastj óri segir embættið hafa sýnt eins
mikinn sveigjanleika og mögulegt sé
Skylda stofnunarinnar
að fara eftir reglum
BENEDIKT E. Guðmundsson sigl-
ingamálastjóri segir það skyldu
stofnunarinnar að sjá til þess að
farið sé eftir settum reglum um um
skip nútímans. Haft var eftir Ragn-
ari Thorseth leiðangursstjóra á vík-
ingaskipinu Gaiu í Morgunblaðinu
á sunnudag að breytingar þær sem
stofnunin krefst á bol víkingaskips
sem Gunnar Marel Eggertsson er
að láta byggja beri skilningsleysi
vitni.
„Þetta skip er fjarri því að upp-
fylla þær kröfur sem gerðar eru í
dag og okkur er gert að sjá um að
farið sé eftir. Það hvarflar ekki að
nokkrum manni að skip frá víkinga-
öld uppfylli þær reglur sem settar
hafa verið. Við verðum að skírskota
til reglna og það er háalvarlegt mál
að gefa út haffærniskírteini. Það
er verið að tala um að byggja at-
vinnutæki til að starfrækja og taka
gjald fyrir með allt að 50 manns
um borð,“ segir Benedikt.
Hópur fólks fór að skoða víkinga-
skipið á laugardag og var skoðunar-
maður siglingamálastjóra með í
þeirri för til að útskýra kröfur emb-
ættisins að sögn Benedikts. Segir
hann jáfnframt að í skoðun hafi
verið hversu langt væri hægt að
víkja frá reglum. „Þær lágmarks-
breytingar sem við höfum farið
fram á eru þegar mjög langt frá
þeim enda er farið fram á mjög
takmarkaða notkun skipsins," segir
Benedikt.
Ekki vanhugsuð ákvörðun
Fram hefur komið að víkinga-
skipin Gaia, Kvitserk og Borgund
Frjókom
helmingi
færri en
ífyrra
FRJÓKORN í Reykjavík í júnímánuði
eru 43% af því sem þau voru á sama
tíma í fyrra. í ár voru 293 frjókom
í hverjum rúmmetra andrúmslofts en
í fyrra 689. Flest voru þau í júní
1991 eða 797 í hveijum rúmmetra
en það sumar er mörgum minnis-
stætt sakir einmuna veðurblíðu.
í frétt frá Raunvísindastofnun
íslands, en á hennar vegum hafa
fijómælingar verið gerðar frá árinu
1988, kemur fram að hér á landi
sé algengast að ftjónæmi stafi af
grasfijóum. Reynslan sýni að búast
megi við grasftjóum alla daga júlí-
mánaðar og þá aðallega á þurrum
og heitum dögum. Fyrsta grasfijó
sumarsins kom í fijógildruna 1. júní.
Birkifræ eru 17% af því sem þau
mældust í fyrra og 15% af því sem
þau mældust árið 1991. Þau voru
seint á ferðinni í ár og mældist það
fyrsta í lok maí. Tímabil birkifijóanna
er talið liðið víðast hvar á landinu.
Súrufijó hafa verið í loftinu nær
stöðugt frá miðjum júní.
Frjónæmi algengara í
þéttbýli en strjálbýli
Fijónæmi er samheiti yfír nokkra
ofnæmissjúkdóma sem ftjókorn frá
grasi, birki og súrum valda að því
er segir í viðtali sem birt er í nýj-
asta hefti Lyljatíðinda við Davíð
Gíslason, sérfræðing í Iyflækningum
og ofnæmissjúkdómum. Þar kemur
einnig fram að fijónæmi er algeng-
ara í þéttbýli en stijálbýli en að
ástæðan fyrir því sé ekki þekkt.
Knarren hafi fengið leyfi til siglinga
með ferðamenn í Noregi. „Þetta er
ekki vanhugsað af okkar hálfu. Við
kynntum okkur hvað gert hefur
verið í Danmörku og Noregi. Ég
fékk meðal annars skriflegt svar
um það að Kvitserk sé smíðað með
botnstokkum og böndum sem talið
er jafngilda þeim kröfum sem sett-
ar eru fram í Norðurlandareglun-
um. Þær eru settar um smíði tré-
skipa og gilda einnig hér á landi
og við höfum haft þær til hliðsjón-
ar. Um Gaiu veit ég ekki en það
er ljóst að hún uppfyllir ekki neinar
reglur. Ég hef ekki fengið svör við
því enda get ég ekki krafið norsk
yfirvöld um hvað þau leyfa,“ segir
hann.
Gaia ekki með leyfi til
farþegaflutninga
Benedikt vill ekki meina að um
ósveigjanleika sé að ræða hjá emb-
ættinu. Hann bendir á til viðbótar
að norsku skipin sigli inni í fjörðum
en ekki fyrir opnu hafi líkt og hér.
„Við erum líka á kaldari sjó og
verðum að meta okkar aðstæður."
Siglingamálastjóri segir ennfremur
rangt að Gaia hafi siglt undir ís-
lenskum fána í nærri tvö ár.
„Gaia kom siglandi til íslands og
þá var ákveðið, ég veit ekki hver
gerði það, að hún fengi að sigla
undir íslenskum fána í tilteknum
ferðum, sem ætlað var að kynna
ferðir víkinga fyrr á öldum og við
hátíðahöld.
Hún fékk tvö mjög takmörkuð
haffærnisskírteini. Gilti annað frá
21. júní- 30. september 1991 til að
sigla frá Reykjavík til Washington.
Hið síðara var gefið út 15. nóvem-
ber 1991 og gilti til 1. júní 1992
vegna ferðar til Rio de Janeiro.
Skírteinin voru háð því skilyrði að
henni fylgdi ávallt vélknúin skip.
Þarna var eingöngu um landkynn-
ingu að ræða en ekki leyfi til far-
þegaflutninga,“ segir Benedikt.
Loks segir siglingamálastjóri að
búið sé að senda fyrirspurnir til
embættisins vegna fyrri ákvörðunar
enda hafi Gunnar kært niðurstöð-
una til samgönguráðherra. „Þetta
var afgreitt í vor og er í skoðun.
Við erum að fara yfir gögnin og
reyna að svara því sem að okkur
snýr. Það er ekki okkar hlutverk
að standa í vegi fyrir nýmælum.
Menn voru áhugasamir um það
strax í upphafi að góð samvinna
tækist um að leysa þetta spennandi
verkefni. Það eru allir af vilja gerð-
ir til þess að leysa þetta mál en það
verða að vera forsendur til þess.“
Jóhannes Pálmason forstjóri
Borgarspítalans
Stjórnarsetan
aldrei leyndarmál
JÓHANNES Pálma-
son, forstjóri Borg-
arspítalans, stað-
festir að hann hafi
setið í stjórn Lyija-
verslunar ríkisins og
Lyfjaverslunar ís-
lands eftir að fyrir-
tækið var gert að
einkafyrirtæki.
Hann vill hins vegar
ekkitjásig umfram-
tíð sína í stjórninni
fyrr en eftir að hafa
ráðfært sig við borg-
aryfirvöld.
Borgarendur-
skoðandi segir í
Jóhannes Pálmason
skýrslu sinni um reikninga borg-
arinnar fyrir árið 1994, að dæmi
séu um að einstakir forstöðumenn
sitji í stjórnum fyrirtækja sem séu
í viðskiptum við stofnunina. Það
hljóti að teljast í hæsta máta óeðli-
legt vegna hættu á hagsmunaá-
rekstrum og hamli um leið eðlileg-
um samskiptum fyrir hönd við-
komandi stofnunar við samkeppn-
isaðila.
Jóhannes staðfesti að hann sæti
í stjórn fyrirtækisins. „Það hefur
aldrei verið leyndarmál að ég hef
setið í stjórn Lyfjaverslunar ís-
lands núna eftir að fyrirtækið varð
einkafyrirtæki og sat áður í Lyfja-
verslun ríkisins af því lyfjalög á
íslandi gerðu ráð fyrir að sjúkra-
húsin ættu fulltrúa í stjórninni.
Að öðru leyti, um hvað tekur við,
vil ég ekki tjá mig opinberlega
heldur ræða fyrst við
borgaryfirvöld,"
sagði Jóhannes.
Hann sagðist reynd-
ar þegar hafa rætt
við staðgengil borg-
arstjóra eftir að hann
kom úr fríi í gær-
morgun. Hann vildi
hins vegar ekki gefa
neinar upplýsingar
um þær viðræður.
Ekki liags-
munaárekstrar
Jóhannes sagðist
ekki telja að starf
hans á sjúkrahúsinu
og seta í stjórninni hefði valdið
hagsmunaárekstrum. „Lyljainn-
kaup eru afar sjálfstæður rekstur
og meira að segja gert ráð fyrir
því að apóteksrekstur sé aðskilinn
frá öðrum rekstri vegna sam-
keppni við almennan apóteka-
rekstur. Því eru afar skýr ákvæði
um hvernig staðið skuli að lyfja-
innkaupum á sjúkrahúsum. Ég
kem ekki að því á einn eða neinn
hátt, mun ekki og get ekki, sama
hvort ég er í stjórn eða utan stjórn-
ar Lyfjaverslunar íslands, haft
áhrif á hvaða lyf eru keypt hér,“
segir Jóhannes.
Þess má geta að hann er í tíma-
bundnu leyfi frá daglegum störf-
um á Borgarspítalanum til að
vinna að verkefnum vegna samein-
ingar Borgarspítala og Landakots-
spítala.