Morgunblaðið - 11.07.1995, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 11.07.1995, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 13 FRÉTTIR Nýjungar í Heilsuhorninu á Selfossi Nudd og vörur til heilsuuppbyggingar Selfossi - Heilsuhornið á Selfossi er 15 ára um þessar mundir. Hing- að til hefur verið boðið upp á ljós og nudd og Slendertone-meðferð auk ráðlegginga um mataræði og aðstoð við þá sem vilja grenna sig. „Það kemur hingað fólk á öllum aldri, ég held sá elsti hafi verið yfír áttrætt," sagði Nína Björg Knútsdóttir eigandi Heilsuhornsins sem er til húsa í Lyngheiði 14, en sú gata er heilsugata í sjálfu sér því þó úti blási napur vindur er allt- af logn í Lyngheiðinni enda hávax- in tré í flestum görðum þessarar grónu götu Selfossbæjar. Langbest að hjálpa líkamanum Nína Björg hefur fengið viður- kenningu í austurlensku nuddi og til hennar kemur fólk aftur og aftur í svæðanudd. „Nuddið hjálpar líkamanum að lækna sig og mér fínnst vera geysi- legur árangur, enda Kínveijar eng- ir aular. Nuddið er frá þeim komið og byggist á 5.000 ára gamalli hefð. Fólk finnur batann svo sem í blóðrás, meltingu og fleiru sem hrekkur í lag við örvun nuddsins. I Austurlöndum er nuddið notað sem fyrirbyggjandi atriði til þess að koma í veg fyrir sjúkdóma. Það er nefnilega langbest að hjálpa lík- amanum til að hjálpa sér sjálfum,“ segir Nína Björg. Heilsuvörur og heilsuklúbbur í tilefni afmælisins er nú boðið upp á ýmsar nýjungar í Heilsuhorn- inu með framboði á heilsuvörum sem hingað til hafa eingöngu feng- ist í Heilsuhúsinu i Hafnarfírði en fást nú einnig í Heilsuhorninu og á sama verði. I þeim efnum má nefna jurtate, slökunartónlist á snældum, baðkúlur til að auka slökunarmátt baðsins, ýmis náttúruvítamín og fæðubætandi efni sem gjarnan eyð- ast við suðu matvæla. Þá má nefna ýmsar nudd- og baðolíur og Aloe Vera húð- og hársnyrtivörurnar. í sumar verður stofnaður heilsu- klúbbur sem dóttir Nínu, Anna Árnadóttir, mun annast. Markmið hans verður að sögn Önnu að láta sér líða vel og helst öllum í kringum sig. Klúbburinn verður með fýrir- lestra og kynningar á því hvernig má láta sér líða betur. Indverskar heilsuvörur sem ætlaðar eru sér- stökum manngerðum verða kynnt- ar, gönguferðir farnar og hugleiðsla stunduð. Fyrirhugaðar eru ferðir út í náttúruna til að tína jurtir í te og fleira. Morgunblaðið/Sig. Jóns. NlNA Björg Knútsdóttir í Heilsuhorninu á Selfossi. Morgunblaðið/Frímann Ólafsson VARÐELDUR var kveiktur við athöfnina í Grindavík. Þorskblót í Grindavík Grindavík - Þorski var blótað í Grindavík á sunnudaginn í tilefni heimsóknar víkinga sem hér eru staddir á Iandi á víkingahátíð- inni. Þegar þorsknum hafði verið blótað var hann vafinn inn í ál- pappír og hann étinn og smakkað- ist ljúflega að sögn viðstaddra. Blótið var haldið þar sem Tryggvi Gunnar Hansen hugðist reisa hof í bakgarði Hraungerðis í Grindavík. Þar hafa nú verið reistir veggir og kveðst Tryggvi stefna að því að tjalda yfir hofið fýrir veturinn. Hann segir að vík- ingarnir sem komu hafi verið víða að, frá Norðurlöndum, Þýska- landi og Englandi. Tryggvi tók á móti gestunum og sýndi þeim staðinn og skýrði út húsakynni áður en blótið hófst. Ruðu blóði á ennisér Blótið hófst með því að allir viðstaddir lögðu grip frá sér sem var þeim hjartfólginn. Mátti þar merkja ýmis hálsmen og hringa sem fólk lagði frá sér. Einnig mátti merlq'a gripi sem hafa efnis- lega merkingu svo sem farsíma, bíllykla og húslykla. Þorskurinn BÚIÐ er búið að reisa útveggi að hofi að miklu leyti og vonast til að hægt verði að tjalda yfir það fyrir veturinn. Tryggvi Gunnar Hansen sýnir gestunum húsakynnin. var síðan tekin úr keri, blóðgaður og blóðið látið leka í skál. Tryggvi las fornan rímkveðskap meðan skálin gekk á milli manna og þeir ruðu blóði á enni sér. Að sögn Tryggva átti blóðið að vera tákn um samkennd milli manna og ali- ir séu af samablóði og fórnardýr- ið. Það að fórna þorski á vel við í Grindavík, þetta mikla sjávar- plássi og með því sé undirstrikað að fleira sé í Grindavík en fiskur undir steini. Þegar fórnarathöfninni lauk var safnast kringum varðeld og meðan þorskurinn var eldaður fór fólk í leiki í því sem verður i fram- tíðinn einhvers konar samkomu- staður fyrir uppákomur af ýmsu tagi. Skólastofur fyrir reykvísk ungmenni rísa í Hveragerði Hveragerði - Fjölmargar skóla- stofur hafa í sumar verið byggðar fyrir Reykjavíkurborg af fyrirtæk- inu Byggðaseli í Hveragerði. Enginn sem til Hveragerðis hef- ur komið nýlega getur hafa komist hjá því að taka eftir stóru vinnu- svæði við innkeyrslu bæjarins þar sem 14 kennslustofur og 8 tilheyr- andi tengibyggingar hafa risið á ógnarhraða undanfarið. Það er fyr- irtækið Byggðarsel í Hveragerði sem sér um smíði kennslustofanna en verkið er unnið fyrir Reykjavík- urborg. Fyrirhugað er að tíu stofur verði staðsettar við Engjaskóla í Grafarvogi en þijár verða settar við Seljaskóla í Breiðholti þar sem þær munu hýsa smíðakennslu skól- ans. Hver kennslustofa er 63 fm að stærð. í hverri þeirra verður snyrting og geymsla. Tengibygg- ingar verða á milli stofanna þannig að innangengt verður á milli þeirra Vantar menn í vinnu Stofurnar eru byggðar úr eining- um er trésmiðjan SG einingahús á Selfossi sá um smíði á. Einingarnar voru síðan settar saman í Hvera- gerði en þar fer allur frágangur á stofunum fram. Að sögn Hafsteins Bjarnasonar, forstjóra Byggðarsels, vinna um Morgunblaðið/Aldis Hafsteinsdóttir HAFSTEINN Bjarnason við skólastofurnar. 20 manns hjá fyrirtækinu nú í sum- ar. Munar þar mest um kennslu- stofusmíðina sem er eitt stærsta verk sem fyrirtækið hefur fengið fram að þessu. Samhliða skólastof- unum sér Byggðasel um smíði á aðveitustöð fyrir Rarik á Hellu en smíði annarrar aðveitustöðvar á Flúðum er nýlokið. Hafsteinn kvartar ekki yfir verkefnaskorti núna. „Það er frekar að það vanti vana menn til vinnu hér í upphafi verksins. Þetta hefur annars geng- ið alveg samkvæmt áætlun og ráð- gert að fyrstu stofurnar verði til- búnar í endaðan júlí.“ Ármúli 17 108 Rvk. S: 533 1234 GRÆHIT MÚMER: 800 6123

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.