Morgunblaðið - 11.07.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 15
Saudi-
prins með
tilboð í
Canary
Wharf
London. Reuter.
KAUPSÝSLUMAÐUR í Saudi-
Arabíu, al-Waleed bin Talal bin
Abdul-Aziz prins, býr sig undir
að bjóða í Canary Wharf-skrif-
stofubyggingarnar í London
samkvæmt góðum heimildum.
Prinsinn þarf engan sam-
starfsaðila til að kaupa bygg-
ingarnar samkvæmt heimildun-
um. Gegn honum standa samtök
undir forystu Pauls Reic-
hmanns, sem reyna að endur-
heimta yfirráð yfir byggingun-
um. Fyrirtæki hans Olympia &
York var tekið til skiptameð-
ferðar 1992 þegar fasteigna-
verð snarlækkaði.
al-Waleed prins á tæp 25% í
Euro Disney SCA og er stærsti
hluthafi í Citicorp. Hann hefur
aldrei komið nálægt Canary
Wharf, ólíkt Reichmann, og það
er talinn kostur.
Canary Wharf er nú í eigu
samtaka 11 banka undir forystu
Lloyds Bank Plc. Þar á meðal
eru Barclays Plc, Citicorp, Com-
merzbank og Credit Suisse.
Talsmaður Lloyds staðfesti
að nokkrir aðilar hefðu sýnt
áhuga á Canary Wharf, sem
AL-WALEED bin Talal bin
Abdul-Aziz prins.
hefur hækkað í áliti á ný. Nokk-
ur kunn fyrirtæki komið sér
fyrir í Canary Wharf, sem hefur
tekið við hlutverki Fleet Street
sem aðsetur nokkurra blaða,
þar á meðal Daily Mirror og
Daily Telegraph.
FrændiFahds konungs
al-Waleed prins er frændi
Fahds konungs og hefur hleypt
lífi í nokkur dauðadæmd fyrir-
tæki í Saudi-Arabíu, sem hann
hefur keypt hlut í eða tekið við.
Hann er leiðtogi samtaka, sem
eiga í viðræðum um kaup á
hluta Fininvest, fjölmiðlafyrir-
tæki Silvios Berlusconis.
Prinsinn er stjórnarformaður
United Saudi Commercial Bank
og á 25% hlut í Four Seasons
Hotels Inc. í Toronto.
VIÐSKIPTI
Kantor hyggst
kanna filmu-
markað Japana
Ný viðskiptadeila í uppsiglingu
eftir lausn bíladeilu?
Washington, Tókýó. Reuter.
JAPANAR hafa vísað á bug
bandarískum ásökunum um óeðli-
lega viðskiptahætti á japönskum
ljósmyndafilmumarkaði og segjast
ekki semja við Bandaríkjastjórn
um málið ef þeim sé hótað refsiað-
gerðum.
„Ljósmyndafilmumarkaðurinn í
Japan er opinn,“ sagði Ryutaro
Hashimoto viðskiptaráðherra
vegna ákvörðunar bandarískra
stjórnvalda um að rannsaka við-
skiptahætti á ljósmyndafilmu og
pappírsmarkaði í Japan, en þar
með kann að vera hafin ný við-
skiptadeila Bandaríkjamanna og
Japana — aðeins örfáum dögum
eftir að bíladeila þjóðanna leystist.
Japanar hafna viðræðum
Mickey Kantor, viðskiptafulltrúi
Bandaríkjastjórnar, skýrði frá
ákvörðuninni, þar sem Eastman
Kodak-fyrirtækið hafði kært Fuji
Photo Film og fleiri japönsk fyrir-
tæki fyrir brot á samkeppnisregl-
um samkvæmt bandarískum við-
skiptalögum. Lagagrein, sem vís-
að var til, heimilar Bandaríkja-
stjórn að fyrirskipa refsiaðgerðir
gegn erlendum innflutningi og
fyrirtækjum, sem talið er að skaði
bandaríska hagsmuni.
Hashimoto sagði á blaðamanna-
fundi í Washington að Japanar
mundu ekki semja við Bandaríkin
samkvæmt þessari grein. Þótt
Bandaríkin hefðu ekki enn farið
fram á viðræður um ljósmyndaf-
ilmur kvaðst hann búast við að
það yrði gert samkvæmt um-
ræddri grein.
Kodak heldur því fram að kom-
ið hafí verið í veg fyrir eðlilega
fílmudreifíngu fyrirtækisins í Jap-
an á skipulagsbundinn hátt.
Stundum hafi verið brotið í bága
við samkeppnireglur með vitund
og þátttöku japanskra stjórnvalda.
Japönsk nefnd sem vinnur gegn
óréttmætum viðskiptaháttum,
FTC, hyggst ekki rannsaka ástand
á japönskum ljósmyndafilmu- og
pappírsmarkaði, að minnsta kosti
ekki að svo stöddu, að sögn tals-
manns nefndarinnar.
JFuji neitar
Fuji neitar ásökunum Kodaks
og kveðst harma ákvörðun banda-
rískra yfirvalda um rannsókn á
filmumarkaðnum í Japan.
Nýbakað-
ur banki?
Helsinki. Reuter.
FINNSKI bankinn Merita
hefur uppgötvað sér til furðu
að nafnið sem hann valdi
þegar hann sameinaðist nýj-
um norrænum banka er einn-
ig nafn á tegund af banda-
rísku „gamaldags brauði.“
„Við könnuðum heiti fjölda
tryggingafyrirtækja og
banka þegar við völdum nafn-
ið, en okkur datt ekki brauð
í hug,“ sagði formælandi
bankans í samtali við finnska
dagblaðið Kauppalehti, sem
birti auglýsingu um brauðið.
Bankinn er hinn ánægðasti
með slagorðið í auglýsingunni
— „furðanlega heilsubæt-
andi.“
Smith
Corona
gjaldþrota
New Canaan, Connecticut. Reuter.
SMITH Corona fyrirtækið,
hinn kunni framleiðandi ritvéla
og annarra skrifstofuvéla, hef-
ur beðið um gjaldþrotaskipti
þannig að hluta starfseminnar
sé haldið áfram undir eftirliti
skiptaráðenda.
Endurskipulagning er boð-
uð á fyrirtækinu og dótturfyr-
irtæki og erlend fyrirtæki í
eignatengslum við Smith Cor-
ona eru undanskilin í beiðn-
inni.
Lortdon 26.140 Belfast
Öll gjöld innifalin I verði
Sölustaðir:
Ferðaskrifstofan Alis, slmi 565-2266
Ferðaskrifstofan Ferðabær, sími 562-3020
Ferðaskrifstofa Reykjavíkur, slmi 562-1490
Ferðaþjónusta bænda, slmi 562-3640
Ferðaskrifstofa Stúdenta, slmi 561-5656
Norræna ferðaskrifstofan, slmi 562-6362
EMERALD
- lengra fyrir lœgra