Morgunblaðið - 11.07.1995, Page 20

Morgunblaðið - 11.07.1995, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Falleg raddskípan oggóður leikur TÓNIIST Hallgrímskirkja ORGELTÓNLEIKAR Lothar Knappe lék á Klais-orgel Hallgrímskirkju verk eftir Reger, Lubrich ogVidor. Sunnudagur 9. júlí 1995. LISTVINAFÉLAG Hallgríms- kirkju hélt sína „Sumartónleika við orgelið“ s.l. sunnudag og enn sækja hingað til íslands frægir orgelsnillingar til að leika á Klais- orgel Hallgrímskirkju, að þessu sinni er það Lothar Knappe, orgel- leikari við Pálskirkjuna í Berlín. Tónleikarnir hófust á inngangi og passakaglíu í d-moll eftir Max Reger, glæsilegu verki sem Lot- har Knappe lék mjög vel. Eftir stuttan inngang koma tólf til- brigði , sem unnin eru á mjög hefðbundin máta og án mikilla frávika í meðferð stefsins. Verkið er einkar skýrt í formi og var leikur og raddskipan Lothars Knappe mjög í anda verksins, ris- mikill en þó aldrei ofgert í radd- skipan og styrk. Fritz Lubrich (1888-1971) er af sömu kynslóð og Páll ísólfsson og lærði einnig hjá Reger og Straube. Eftir hann voru leikin þijú verk, er nefnast Þijár róman- tískar tónamyndir, op. 37, nr. 1-3, sem gerðar eru 1913 fyrir áhrif af myndverkum eftir Amold Böcklin. Þetta er hárómantísk tón- list„ ágætlega samin, sérlega fal- lega leikin og raddmótuð af Lot- har Knappe. Tónleikunum lauk með Org- elsinfóníu nr. 7 eftir orgelsnilling- inn Charles-Marie Vidor. Þetta er rismikið verk og eru þrír fyrstu þættimir bestir, sá fyrsti rismikill upphafsþáttur (Moderato), þá skemmtilega unnin smá kóraltil- brigði og lagrænn þriðji þáttur (Allegretto-animato- allegro). Leikur Lothars Knappe var glæsi- lega útfærður og eftirtektarvert hversu hann notaði raddmöguleika orgelsins skemmtilega, án þess þó að vera með áberandi raddsýning- arleik eða fullreyna styrk orgels- ins. Jón Ásgeirsson. ÍBÚÐABLOKK í Japan eftir Steven Holl. Morgunblaðið/Golli GYÐINGASAFNIÐ í Berlín, tengibygging við Berlínarsafnið. Byggingarlist, matur og ísland Arkitektúr er ung listgrein á íslandi sem á framtíðina fyrir sér segja þeir Daniel Libeskind og Steven Holl í viðtali við Þórodd Bjamason sem hitti þá þegar þeir voru staddir hér á landi á dögunum. TVEIR kunnir arkitektar, þeir Daniel Libeskind frá Póllandi og Steven Höll frá Bandaríkjunum, voru staddir hér á dögunum i tengslum við sum- amámskeið ísark, Íslenska arki- tektaskólans. Þeir hafa báðir hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín og unnið samkeppnir m.a. í Þýska- landi, Japan og Bandaríkjunum. Eftir þá liggur fjöldi greina sem þeir hafa ritað um arkitektúr. Verkefni þeirra eru í byggingu um allan heim auk þess sem þeir eru eftirsóttir kennarar og fyrirlesarar um byggingarlist. Gyðingasafnið I Berlín Daniel Libeskind er almennt talinn meðal helstu framúrstefnuarki- tekta í heiminum. Árið 1988 var hann einn af sjö alþjóðlegum arki- tektum sem valinn var á sýning- una„ Deconstructivist Architect- ure“ á Museum of modern art, Nútímalistasafninu í New York. Sumarið 1989 vann Daniel til fyrstu verðlauna í alþjóðlegri sam- keppni um gerð safns til minningar um Gyðinga í tengslum við Berlín- arsafnið, „Jewish Extension to the Berlin Museum“. Gyðingasafnið, sem byggt er á hugmyndinni um brotna Davíðsstjömu, er ein óvenjulegasta og umdeildasta bygging samtímans. Verk hans eru gjarnan byggð á flókinni hugmyndafræði tengdri landi því sem byggingin rís í, þar sem saga landsins og hefðir spila stóran þátt ásamt tónlist, bók- menntum, og heimspeki. Libeskind hefur sagt að gerð safnsins í Berl- ín hafi verið spennandi og krefj- andi verkefni þar sem hann átti við að glíma að byggja safn um gyðinga og samfélag þeirra í Ber- lín sem nú er nær liðið undir lok. Land framtíðar „Ég hef verið svo til allsstaðar nema hér á íslandi og er mjög hrif- inn af kynnum mínum af Reykja- vík og fólkinu sem þar býr. Ég er undrandi á hve mikið er að gerast í menningarlífinu í borginni, það virðist vera viðburðir af öllu tagi í hveiju homi. Ég er með stofu í Berlín og Los Angeles og er mikið á ferð um heiminn bæði til að fylgj- ast með verkefnum mínum og halda fyrir- lestra o.fl. Það er geysilega mikilvægt að þróaður verði íslenskur skóli í byggingarlist þar sem sú auðlind sem saga og menningararfur ykkar er, yrði m.a. nýttur. ísland er ungt land og að mínu áliti er það land framtíðar- innar. Ég sé hér mikla möguleika í sambandi við hugvit og menn- ingu enda virðist mér íslendingar vel menntáðir, vel að sér og opnir fyrir nýjungum," sagði Daniel Libeskind í samtali við blaðamann. Steven Holl Nútímalistasafn í Helsinki og ný- stárleg Ibúðablokk í Japan eru meðal verka Stevens Holls. „Frágangi á teikningum fyrir nútímalistasafnið í Helsinki er að ljúka og áætlað er að byija að byggja það I desember næstkom- andi. Þetta er stórt verkefni og teikningar eru orðnar um 400 tals- ins. Það verða 25 sýningarsalir í byggingunni og hver þeirra með sérstaka náttúrulega lýsingu. Ég taldi tilvalið að nota norrænu birtuna til lýsingar og fékk í lið með mér frábæran ljósahönnuð sem gerði okkur kleift að leysa alla tæknilega hlið málsins. Þetta verða náttúruleg rými fyrir listsýningar." Hann sagði að við hönnun safnsins hefði hann og aðrir teiknar- ar sem unnu að verk- efninu bæði í Finn- landi og í New York notað tölvutæknina á þann hátt að hægt var að vinna að sömu teikn- ingunni á sama tíma þó höf og álfur skildu þá að. Breytilegt rými Ein þekktasta bygging Holls er íbúðablokk í Fukuoka í Japan, byggð 1989-1991, sem er þannig hönnuð að milliveggir í íbúðunum eru færanlegir og því er hægt að breyta rýminu eftir hentugleika, t.d. væri hægt að stækka stofuna yfir daginn en taka svo aftur hluta hennar inn í svefnherbergi þegar kvölda tæki. „Menn voru mjög vantrúaðir á að fólk myndi nýta sér þennan möguleika og sögðu að það myndi bara steypa fasta veggi inn í íbúðir sínar en annað kom á daginn og þetta hefur jafn- framt komið af stað auknum sam- skiptum íbúa blokkarinnar því a!l- ir eru spenntir að sjá hvað ná- granninn hefur gert í sinni íbúð o.s.frv. Þessi hugmynd er í takt við nútíma lifnaðarhætti þar sem fólk þarf að geta nýtt rými íbúða sinna sem best.“ Mikilvægast að kunna að matbúa Holl var ánægður með dvöl sína hér á landi og sagði ísark nám- skeiðið gott framtak og mikil orka og starfsgleði væri samankomin I skólanum. Hann sagði það mikil- vægt að Ríkisstjórnin styrkti skól- ann og hjálpaði honum á fót því hann sagðist geta séð ísland með í fararbroddi næsta framfaraskeiðs í Arkitektúr í heiminum ef góður stuðningur yrði fyrir hendi. „Ferða- menn koma til að sjá fallegar bygg- ingar og það sem er inni í þeim jafnt og náttúruna og fólkið í land- inu. Maturinn hér er alveg sérstakur. Ég hef borðað sex máltíðir og þær hafa verið hver annarri ljúffengari. Ég held að aðrir Norðurlandabúar ættu að koma hingað í frí þó ekki væri nema bara til að borða.“ „Matur og matargerð er nátengd byggingarlist. Góður arkitekt borð- ar vel og kann að elda, það er byijunin, svo lærirðu um rými og efni og loks sjálft fagið. Nemendur í byggingarlist ættu aidrei að borða skyndibita og ég legg til að skyndi- bitastaðir borgi sérstakan skyndi- bitaskatt sem verði notaður til að byggja upp kennslu I arkitekt- úr,“sagði Steven Holl að lokum og brosti. STEVEN Holl Fallegur hljómur og sönggleði „Dægurflugur“ TÓNLIST Norræna hösið KÓRSÖNGUR Stúlknakór frá Norður-Jótlandi flutti norræna söngva og bandarísk skemmtilög. Sljórnandi Gunnar Petersen. Laugardagur 8. júlí 1995. MARGIR fræðimenn hafa velt því fyrir sér, hvers vegna stúlkur virðast fúsari til söngs en drengir. Söngraddir barna liggja nærri sóprankvenröddum í blæ og tón- sviði og því mun mörgum drengn- um þykja miður, þurfandi að syngja eins og stelpa, vitandi það, að fullvaxnir karlmenn syngja ekki eins og konur. Þá hafa menn fyrir satt, að félagsleg sjónarmið hafi mikil áhrif og því leiti dreng- ir frekar eftir því að leika á hljóð- færi en að syngja, þó hæfileikar og löngun til tónlistariðkunar sé síst minni hjá þeim en hjá stúlk- um. Drengjakórar eru eins konar mótsvar við þessari tregðu og má segja að karlakórarnir séu fram- hald af þessari sérkennilegu kynjagreiningu. Stúlknakór frá Norður-Jótlandi hefur gert víðreist um ísland und- anfarnar vikur og söng í Norræna húsinu sl. laugardag. Á efnis- skránni voru dönsk sumarlög, þrjú íslensk lög og „barber-shop“ lög frá Bandaríkjunum. Það var mik- ill hlýleiki í söng stúlknanna, sem sungu tandurhreint og af tölu- verðri raddkunnáttu um sumarást sína í dönsku lögunum. íslensku lögin, sem voru Á Sprengisandi, Barnagæla frá Nýja íslandi og Maístjarnan, voru sér- lega fallega sungin, einkum lag Sigvalda 'Kaldalóns, Á Sprengi- sandi, er var flutt í skemmtilegri raddsetningu, líklega eftir söng- stjórann. Hin sérkennilega barna- gæla eftir Halldór Laxness var sungin af þokka og með einstak- lega góðum framburði íslenskunn- ar en vantaði þó þann sársauka og söknuð, sem er bakgrunnur sögunnar. Maístjarnan var fallega sungin á dönsku, í þýðingu sem er að finna í dönsku stúdentasöng- bókinni. Á eftir íslensku lögunum voru nokkrir sumarsöngvar, tveir mjög fallegir eftir Schultse og gaman- samir söngvar við texta eftir Piet Hein, sem allir voru sérlega fallega sungnir. Tónleikunum lauk með banda- rískri skemmtitónlist, sem var að því leyti til skemmilega sungin, að ekki var gerð tilraun til að syngja þau á bandarískan máta, heldur naut elskulegur söngmáti stúlknanna sín sérlega vel, einkum í síðasta laginu, því fræga lagi „Side by side“ eftir Harry Wood, sem stúlkurnar náðu að gæða sér- stökum innileik. Nordjysk Pigekor undir stjórn Gunnars Petersen er góður kór, ræður yfir töluverðum raddstyrk, sem stjómandinn mótar á mjög skemmtilegan máta. Aðalsmerki stúlknanna var fall- egur hljómur og sönggleði og þó öll lögin væru vel flutt, voru dönsku sumarlögin sérlega fallega sungin. Jón Ásgeirsson MYNPLIST Listhúsiö Grcip MÁLVERK Guðni Harðarson Opið alla daga frá 14-18. Lokað mánudaga til 19. júlí. Aðgangur ókeypis. LEIKURINN er iðkaður á margan hátt í list samtímans, og það er stund- um eins og útjaskað og úrelt að tala um sársauka og þjáningu í tilurð myndverka. Líkast öfugmælum að segja að öll fegurð sé afkvæmi þján- inga og baráttu við lífið, líkt og fæð- ingin og átökin, sem við upplifum í grómögnum jarðar. Allt í kring er fólk að leika sér í nafni listarinnar og á stundum er eins og sýningar séu frekar gjömingar í sandkassa en heilabrot og átök við grunnhugmynd- ir listarinnar, hvort sem það skarar fagurfræði eða andhverfu hennar. Velferðarþjóðfélagið losar mann- inn líka við flest heilabrot um hvunndagsþarfír sínar, því menn fá þær niðursoðnar og tilbúnar á borðið og menntun miðast við ákveðnar þarfir þjóðfélagsins í skyndibita- formi. Það er þannig verið að setja einstaklinginn í hólf á mjög áþekkan hátt og í sósíalísku ríkjunum fyrrum og gera hann óábyrgan, en allt í anda frelsis og framfara sem nú hafa verið markaðsett og seljast í kílóavis á sölutorgum. Enginn er að amast við skyndibit- um né sandkassaleik, en hitt er líka til og ber ekki að láta sér yfirsjást og það mun þrýsta á aftur, því lífið þarfnast aga og agi skynrænnar dýptar. Það er svo af hinu góða, er menn koma til dyra eins og þeir eru klædd- ir líkt og Guðni Harðarson, sem líkir listsköpun sinni við dægurflugur. Segir myndir sínar opnar tilraunir með mannslíkamann/fígúruna og boðskapinn lítinn eins og oft í dægur- tónlist, sem sé frekar til skemmtunar en að koma hugmyndum til skila. Myndverkin eru svo mjög á mörkum þess, sem menn hafa nefnt „comic strip“, eru líkust ærslafullum leik við sundruð og óregluleg form. Maður greinir sitthvað í formrænum brota- brotum myndflatarins, en er einfald- lega ekki með á nótunum, því hér er sem yfirborðið fari hamförum. Helst er það í myndinni „Woman“ (6), sem skynrænn agi kemst í sam- spil lita og forma, sama má segja um snoturt riss í skrá. Bragi Ásgeirsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.