Morgunblaðið - 11.07.1995, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ1995 31
MINNINGAR
SIGRIÐUR
FRIÐRIKSDÓTTIR
+ Sigríður Frið-
riksdóttir fædd-
ist á Löndum í Vest-
mannaeyjum 23.
júní 1914. Hún lést
á Hrafnistu í
Reykjavík 25. júní
1995. Foreldrar
hennar voru Elín
Þorsteinsdóttir
húsmóðir, ættuð
frá Dyrhólum í
Mýrdal, og Friðrik
Svipmundsson skip-
sfjóri og útvegs-
bóndi frá Loftsöl-
um í sömu sveit.
Systkini hennar í aldursröð
voru: Matthildur, Jengst af hús-
móðir í Kanada, Asmundur,
skipstjóri, Sigríður var þriðja í
röðinni, næst yngst var Þóra
og yngstur var Þorsteinn, þau
dóu bæði ung. Að auki ólu þau
Friðrik og Elín upp Arna bróð-
urson hans og Guðrúnu Jóhann-
esdóttur, sem býr í
Reykjavík og ein lif-
ir af þessum hópi.
Eiginmaður Sig-
ríðar var Hjalti
Árnason frá Höfða-
hólum á Skaga-
strönd, f. 21. ágúst
1903, d. 28. júní
1961. Dætur þeirra
eru Nanna húsmóð-
ir í Grindavík,
Hrönn loftskeyta-
maður á Reykjavík-
urradíói, Elín sál-
fræðingur, búsett í
Englandi, og
Hrefna húsmóðir og víóluleik-
ari í Austurríki. Að auki ól hún
upp Sigríði Jónsdóttur, dóttur
Elinar, með henni. Barnabörn
Sigríðar eru sjö talsins og
barnabarnabörn tvö.
Útför Sigríðar fór fram í
kyrrþey frá Fossvogskapellu
3. júlí síðastliðinn.
MEÐ nokkrum orðum vil ég minn-
ast Siggu föðursystur minnar, sem
lengst af var búsett á Njálsgötu 7
í Reykjavík. Hún var fædd á Lönd-
um í Vestmannaeyjum. Heimilið
var mannmargt eins og heimili
útvegsbænda í Vestmannaeyjum á
þeim tíma. Þar áttu heima fyrir
utan fjölskylduna, sjómenn og
landmenn, sem voru beitu- og að-
gerðarmenn og vinnukonur. Þetta
var heimili, þaðan sem gerðir voru
út bátar og landbúnaður var stund-
aður með sauðfé og kýr. Einnig
fuglatekja, fýll og lundi, og egg
voru sótt í björg. Sigga minntist
oft á öll þessi störf og fólkið sem
við þetta vann. Sjálf fór hún eins
og önnur börn frá svona heimilum,
fljótt að taka þátt í allri þessari
vinnu. Heyskap og saltfiskþurrkun
á stakkstæðum á sumrin og að
pakka honum síðan til útflutnings.
Einnig að reyta fýl og lunda, hnýta
á og setja upp línu á haustin, verka
sundmaga og margt annað sem
gera þurfti og börn og unglingar
gátu unnið.
Ung fór hún til náms í Gagn-
fræðaskóla Reykvíkinga enda bráð-
vel gefin. Á skólatímanum í Reykja-
vík bjó hún hjá þeim heiðurshjónum
Hólmfríði Þorláksdóttur og ísleifi
Jónssyni í Bergstaðastræti 3. Hún
lét alltaf mikið af því heimili og
heimilisfólkinu öllu og hélt tryggð
við afkomendur þeirra til dauða-
dags.
Eftir gagnfræðaprófið hóf hún
störf hjá Ragnari Jónssyni í Smára,
fyrst sem sendill og síðar við skrif-
stofustörf. Alltaf minntist hún ár-
anna hjá Ragnari í Smára með
ánægju.
Þegar hún fór að dvelja í Reykja-
vík kynntist hún jafnaðarstefnunni,
og í framhaldi af því gekk hún í
Kommúnistaflokkinn 1936. Þar
kynntist hún tilvonandi eiginmanni
sínum Hjalta Árnasyni, sem var
einn af stofnendum þess flokks.
Sambúð þeira varð innileg og góð,
þar sem gagnkvæm virðing þeirra
hvort til annars var áberandi. Frá-
fall Hjalta sem varð snöggt og fyrir-
varalaust, varð henni mikið áfall,
en hún stóð eins og klettur í þeirri
miklu sorg. Hjalti hafði verið
kvæntur áður og átti tvö börn,
Hörð og Ingibjörgu Olgu eða Gógó
eins og hún er kölluð. Alla tíð hefur
verið hlýtt og innilegt samband
milli hennar og Siggu. Einnig átti
hann soninn Barða sem dó 16 ára
gamall.
Heimilislífið á Njálsgötunni og
annars staðar, þar sem þau Hjalti
og Sigga bjuggu var mjög lifandi
og litríkt. Þangað komu flokks-
systkin þeirra mikið og ræddu mál-
in og þáðu góðgerðir. Pólitíkin var
þó lögð til hliðar, þegar við ættingj-
arnir eða aðrir andstæðingar þvert
hinum megin í þeim málum komum
í heimsókn. Og margir voru með
' lykla að Njálsgötunni, því það þótti
sjálfsagt að gestir færu inn og
fengju sér kaffi og meðlæti, þótt
enginn væri heima. Yngsti sonur
okkar Erlu var alltaf með lykil,
þegar hann stundaði háskólanám
skammt frá Njálsgötunni, og ef
Sigga var ekki heima var máltíð til
reiðu fyrir hann þegar hann kom.
Sigga var mikil baráttu- og kven-
réttindakona og friðarsinni. Hún
var lengi í stjórn Kvennafélags
Sósialista og var formaður Kvenna-
deildar MIR, Menningartengsla Is-
lands og Ráðstjórnarríkjanna, frá
upphafi og einnig í stjórn Verka-
kvennafélagsins Sóknar.
Hún barðist líka fyrir viðurkenn-
ingu Austur-Þýskalands og var
henni veitt orða af stjórn þess lands
fyrir framgöngu sína. Vegna þess-
ara starfa fór hún margar ferðir
til Ráðstjórnarríkjanna gömlu og
Austur-Þýskalands. Þar hélt hún
ræðu um landhelgismál okkar þegar
við áttum í útistöðum við Breta
vegna útfærslu fiskveiðimarkanna
í 200 sjómílur 1976.
Á seinni árum, eftir að Sósíalista-
flokkurinn varð allur, studdi hún
Samtök um kvennalista vel og
dyggilega og var í nefnd til undir-
búnings fyrsta kvennafrídeginum á
íslandi. Henni fannst mjög gaman
að starfa með þessum duglegu kon-
um og fannst sem hún sæi þar
nýja kynslóð halda jafnréttisbarátt-
unni áfram.
Þegar hún missti Hjalta. 47 ára
gömul frá fjórum dætrum, hafði
hún alltaf unnið að hluta til úti með
heimilisstörfunum, en eftir það all-
an daginn og fljótlega í þvottahúsi
Landspítalans, sem aðstoðarfor-
stöðukona til starfsloka 1984. Hún
hafði hlakkað mikið til þess tíma.
Þá ætlaði hún að lesa allar bækurn-
ar, sem hún hafði ekki komist yfir
að lesa, hlusta á tónlist og ferðast.
Hún var mikil tungumálamann-
eskja. Frábær í ensku, vel talanadi
á dönsku og þýsku, og hún fór að
læra rússnesku eftir starfslok
ásamt áframhaldandi þýskunámi.
Hún var tónlistarunnandi, fór mikið
á tónleika og var meðlimur í Tónlist-
arfélagi Reykjavíkur frá upphafi.
Hún tók mikið af myndum á ferða-
lögunum erlendis, sem hún geymdi
vel og skipulega og hélt þá einnig
dagbók.
Árið 1958 tók hún móður sína
Elínu á Löndum inn á heimilið sitt
og þar dvaldi hún við góðan kost
og atlæti til 1968, þegar hún flutt-
ist á Hrafnistu.
Eftir fimm ár á eftirlaunum
veiktist Sigga af Parkinsonveik-
inni, dró hún smátt og smátt úr
henni mátt og þrek. Síðustu 8
mánuðina sem hún lifði dvaldi hún
á Hrafnistu í Reykjavík, en kom
öðru hvoru heim á Njálsgötuna
með Hrönn dóttur sinni, en þau
ferðalög enduðu eins og önnur og
hún lést eins og fyrr segir 25. júní
sl.
Okkur Erlu, sonum okkar og
systur minni, Ellu Fríðu, og hennar
fjölskyldu í Svíþjóð, reyndist hún
mikið vel. 011 sendum við frænkum
okkar, systrunum af Njálsgötunni
og börnum, dýpstu samúðarkveðj-
ur.
Friðrik Ásmundsson.
Emdiykkjur
Glæsileg kaffi-
hladborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
ísíma 5050 925
og 562 7575
&
FLUGLEIÐIR
HÖTEL LÖFTLEIÐIR
Friðfinns
Suðurtandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öli kvöld
til kl. 22,- einníg umhelgar.
Gjafavörur.
Sianens í eldhúsið!
Gufugleypar
- i öll alvöru eldhús.
E3 Eldavélar
- sigildar gæöavélar.
□ Innbýggðir ofnar
- þeir gerast ekki betri.
E3 Örbylgjuofnar
- mikið úrval og gott verð.
E3 Helluborð
- treystu Siemens.
Mikið úrval af eldavélum, bakstursofnum,
helluborðum, gufugleypum og örbylgjuofnum.
Gæða-eldunartæki til að pryða eldhúsið þitt.
Þúáttþaðskilið.
Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru:
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir Borgarfjörðun Rafstofan Hvítárskála Hellissandur.
Blómsturvellir Grundarfjörður: Guðni Hallgrtmsson • Stykkishólmun Skipavík • Búðardalur. Ásubúð • Isafjörður
Póllinn Hvammstangi: Skjanni • Sauðárkrókur: Rafsjá • Siglufjörður: Torgið • Akureyri: Ljósgjafinn Húsavfk:
öryggi • Þórshöfn: Norðurraf ■ Neskaupstaður: Rafalda • Reyðarfjörður. Rafvélaverkst. Árna E. • Egilsstaðir.
Sveinn Guðmundsson Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson • Höfn í Hornafirðí: Kristall • Vestmannaeyjar Tréverk
Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga • Selfoss: Árvirkinn • Grindavík: Rafborg • Garður Raftækjav. Sig. Ingvarss.
Keflavík: Ljósboginn • Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla, Álfaskeiði
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 511 3000
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, simi S-rm
567-1800 ^
Löggild bílasala
Verið velkomin.
Við vinnum fyrir þig.
M. Benz 230E '91, svarblár, sjálfsk., ek.
aðeins 41 þ. km., ABS-bremsur, fjarst.
læsingar og þjófav., sóllúga, geislasp. o.fl.
V. 3,3 millj. Sk. ód.
MMC Colt EXE ’92, hvítur, 5 g., ek. 69
þ. km, samlitir stuðarar, hiti í sætum o.fl.
V. 790 þús.
Suzuki Vitara JSi ’92, hvítur, 5 g., ek.
aðeins 26 þ. km., fallegur jeppi. V. 1.530
þús.
MMC Colt GLi '93, hvítur, 5 g., ek. 32
þ. km., hiati í sætum o.fl. V. 1.040 þús.
Ford Explorer Eddie Bauer V-6 ’91, svart-
ur, sjálfsk., ek. 67 þ. km., leðurinnr., rafm,
í öllu. Toppeintak. V. 2.550 þús.
Nissan Sunny 2000 GTi '92, rauður, 5
g., ek. 55 þ. km., sóllúga, álfelgur, rafm.
í öllu, ABS o.fl. V. 1.230 þús.
Toyota Corolla GL Speciai Series ’92,
steingrár, 5 g., ek. 49 þ. km., álfelgur,
rafm. í rúðum o.fl. V. 890 þús.
Range Rover 4ra dyra ’87, grásans., 5 g.,
ek. 130 þ. km. Tilboðsverð kr. 1.400 þús.
Toyota Corolla XLi Liftback S Series '94,
rauður, 5 g., ek. 22 þ. km., rafm. í rúðum,
þjófavkerfi, álfelgur o.fl. V. 1.250 þús.
Grand Cherokee Limited V-8 ’94, græns-
ans., sjálfsk., ek. aðeins 9 þ. km., leður-
innr., álfelgur, geislasp., einn með öllu.
Sem nýr. V. 4.550 þús.
BMW 3161 4ra dyra '93, svartur, 5 g., ek.
25 þ. km, toppeintak. V. 1.800 þús.
Toyota Carina E (2.0) ’93, rauður, sjálfsk.,
ek. 35 þ. km., ABS bremsur, álfelgur o.fl.
V. 1.590 þús.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfm
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
-kjarni málsins!