Morgunblaðið - 11.07.1995, Side 33

Morgunblaðið - 11.07.1995, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ1995 33 r i > I > > í > > I I i I I i i i MINIMINGAR JÓiV ## FRIÐBJORNSSON -4- Jón Friðbjörns- * son fæddist í Vík á Fáskrúðsfirði 5. mars 1922. Hann lést á heimili sínu á Droplaugarstöðum 2. júlí siðastliðinn. Foreldrar hans voru lijónin Guðný Guðjónsdóttir og Friðbjörn Þor- steinsson. Jón var fimmti í röðinni af níu systkinum. Eft- irlifandi eiginkona hans er Sveina P. Lárusdóttir og eignuðust þau einn son, Lárus Grétar. Jón starfaði lengst af við leigubílaakstur lyá Hreyfli. Utför Jóns fer fram frá Fossvogskirkju f dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. MIG langar að minnast Jóns tengdaföður míns með fáeinum orðum. Jón ólst upp á Fá- skrúðsfirði og stundaði sjómennsku og almenn bústörf með foreldrum sínum og systkinum. Um tvítugt fór hann að Reykholti í Borgar- fírði og var þar við nám einn vet- ur. Eftir það fluttist hann til Reykjavíkur. Þar kynntist hann eft- irlifandi eiginkonu sinni, Sveinu P. Lárusdóttur, og eignuðust þau einn son, Lárus Grétar. Jón starfaði sem leigubflstjóri hjá Hreyfli um 40 ára skeið. Það var auðvelt að láta sér þykja vænt um Jón. Hann var viðmótshlýr og umburðarlyndur, ákaflega bam- góður og þolinmóður. Alla tíð var hann rausnarlegur, sannkallaður höfðingi og hafði ánægju af að gefa. Fyrir rúmu ári var heilsu Jóns farið að hraka en þá fluttust þau hjónin að Droplaugarstöðum. Ég hef dáðst að því í huga mín- um hvað Jón bar veikindi sín með mikilli reisn þó að ég viti að það hafi ekki alltaf verið auðvelt. Síð- ustu vikurnar sýndi hann mikla hugarró. Hann skilur þannig við að fyrir mér hefur hann vaxið að verðleik- um og mun ég ævinlega minnast hans með mikilli virðingu. Ásdís Benediktsdóttir. FRIÐFINNA SÍMONARDÓTTIR + Friðfinna Símonardóttir fæddist í Hrísey 8. janúar 1927. Hún lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar 3. júlí siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Siglufjarðarkirkju 8. júlí. Jarð- sett var á Barði í Fljótum. ÞEGAR við krakkamir á Hóli í Siglufírði fómm að átta okkur á næsta umhverfi þá horfðum við yfir ána, upp Skútuveginn í áttina að bænum. Þar vom Steinaflatir undir fjallinu Skildi. Þaðan kom Gestur gangandi á hveijum morgni, fyrir allar aldir, og sá til þess að bæjarbúar fengju mjólkina sína þann daginn, En Lilla kom á Fíatin- um, ömgglega minnsta bíl sem þá hafði verið smíðaður, sífelldu undr- unarefni okkar krakkanna, eigin- lega frekar í ætt við leikföngin okkar en venjuleg farartæki, eða það fannst okkur. Ég fékk líka snemma að fara yfir að Steinaflöt- um, stundum til að heilsa upp á botnóttu rolluna sem ég eignaðist óverðskuldað á fimmta ári og skil- aði mér fyrirhafnarlaust mörgum lömbum á uppvaxtarárunum. Nokkrum árum áður hafði Lilla tekið að sér ráðsmennsku á Hóli, umsjón með matseld fyrir fjölmennt Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta- skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word- perfect eru einnig auðveld i úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs- ingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallinubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Höf- undar eru beðnir að hafa sktrnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. sumarstarfslið, starfslið sem sam- anstóð af fólki frá ýmsum lands- homum og flestum Norðurland- anna, það þurfti að sækja fólk langt að á Siglufjörð fyrir heyverkin eins og fyrir síldina. Ráðsmennskan stóð þar til heilsan bilaði og berklarnir settu brennimark sitt á hana til lífstíðar. Mótlæti fer misjafnlega með fólk. Fyrir mér var Lilla á Steinaflötum, eins og við kölluðum hana alla tíð, besta fyrirmyndin um hvemig hægt er að vinna með mótlætinu, bogna en brotna ekki. Hún bjó við brostna heilsu í hálfan fímmta áratug, en hélt sínu striki af æðruleysi, lét aldrei bilbug á sér finna, stýrði sinu búi og atvinnurekstri af festu og útsjónarsemi. Ég heyrði Lillu aldrei tala um lasleika sinn, þó vissi ég af astma- köstunum og rúmlegunum í gegn- um móður mína. Hún hafði fyrir mér ímynd hins hljóðláta stáls. í gegnum allt heilsuleysið hafði Lilla manna mest að gefa öðrum. Hún sýndi vinunum vakandi um- hyggju og aðstoð, hún fylgdist með velferð þeirra, og þegar eitthvað bjátaði á fundu þeir fyrir þessari notalegu, hæversku nálægð. Trygglyndi var hennar annað aðalsmerki, það hafði sýnt sig í nær hálfrar aldar samfylgd hennar og minnar fjölskyldu, samfylgd sem við öll þökkum fyrir. Jónas Guðmundsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður míns, fósturföður, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS J. JÓNSSONAR, Kirkjuvegi 48, Keflavík. Guðbjört Ólafsdóttir, Kristján Hansson, Bjarni Valtýsson, Þóranna Erlendsdóttir, Pétur Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför KRISTINS ÞORVALDSSONAR, Munkaþverórstræti 16, Akureyri. Kristín Guðlaugsdóttir, Skjöldur Kristinsson, Þóra Benediktsdóttir, Þorvaldur Kristinsson, Kristinn Þór Skjaldarson, Kristín Skjaldardóttir. Skilafrest- ur vegna minningar greina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. + Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför systur okkar, GUÐBJARGAR HELGU JÓNSDÓTTUR frá Ásmúla. Guðmundur Jónsson, Lilja Jónsdóttir, Þórunn Jónsdóttir, Dagbjört Jónsdóttir. IÐNAÐARHURÐIR - BÍLSKÚRSHURÐIR ÞAK- OG VEGGSTÁL HÖFÐABAKKA9 -112 REYKJAVÍK - SÍMI: 587 8750 - FAX: 587 8751 + Elskuleg móöir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG EIRIKSDÓTTIR, Furugerði 1, lést á heimili sínu laugardaginn 8. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. F.h. aðstandenda, Eiríkur Oddsson. KRISTÍN JÓNSDÓTTIR Nökkvavog 28, andaðist í Landspítalanum aðfaranótt laugardagsins 8. júlí. Vandamenn. + Maðurinn minn, faðir okkar og tengda- faðir, HÓLMAR MAGNÚSSON, Miklubraut 64, Reykjavfk, lést laugardaginn 8. júlí. Oddný Þorvaltlsdóttir, Ragnar Hólmarsson, Man'a Finnsdóttir, Sverrir Hólmarsson, Mette Fane og fjölskyldur þeirra. + Sonur minn og faðir, JÓN KRISTINN GUNNARSSON, lést af slysförum 8. júlí sl. Jarðarförin auglýst síðar. Áslaug F. Arndal Lísa Margrét Jónsdóttir. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EYGLÓ GAMALÍELSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar- kirkju í dag, þriðjudaginn 11. júlí, kl. 13.30. Árni Grétar Finnsson, Sigrfður Oliversdóttir, Anna Finnsdóttir, Trausti Þorsteinsson, Trausti Finnsson, Stella Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Islenskur elniviður Islenskar steintegundir henta margar afar vel í legsteina og hverskonar minnismerki. Eigum jafnan til fyrir- liggjandi margskonar íslenskt efni: Grástein, Blágrýti, Liparít og Gabbró. Áralöng reynsla. Leitið S| S. HELGAS0N HF upplýsinga. IISTEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 . SlMI 557 6677 ■i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.