Morgunblaðið - 11.07.1995, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
^úðkaupsveislur—útisamkornur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og fl. og fl. og fl.
N
Risotiöld - ^©isiutB<i)0^oo
"og ýmsir fy|s|hlutir
«>« '
8 T|öl<i
* Ekki treysta ó veðrið þegar
skipuleggja á eftirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á
staðinn - jxið marg borgar sig.
Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700m2.
Einnig: Borð, stólar, tfaldgótf og
tjaldhitarar.
iQelga ikáta
..rræo skötum á hetmavelli
s&nl 562 1390 • fax 552 6377
LÁDA SAFÍR
Frá 588.000 kr. \
148.000,-kr. út og’
14.799,- kr.
í 36 mánuði.
Tökum notaða bíla sem greiðslu
upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra
greiðslumöguleika.
Tekið hefur verið tillit til vaxta í
útreikningi á mánaðargreiðslum.
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 12 00 • BEINN SÍMI: 553 12 36
Sýningatjald
við Seglagerðina
í Reykjavík
Kaffitjald í
Kaupmannahöfn
Lýðveldistjöldin eru íslensk framleiðsla
hönnuð af Einari Þorsteini Ásgeirssyni.
Hægt er að fá tjöldin í mismunandi stærðum;
25m2, 70m2, 120m2og 220m2.
Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 51 I -2200
Veitingatjald
við Bláa lónið
Blab allra landsmanna!
- kjarni máisins!
I DAG
SKÁK
Umsjðn Margcir
Pctursson
SVARTUR á leik:
Þessi staða kom upp
stystu vinningsskákinni é
opna mótinu í Kaupmanna-
höfn. Per Rasmussen
(2.250) hafði hvítt en Erik
Brondum (2.245) hafði
svart og átti leik:
9. — Bh3! og þessum þrumu-
leik lék Brandum með þvílík-
um sannfæringarkrafti að
Rasmussen sá sitt óvænna
og gafst upp. En glöggir les-
endur hafa líklega tekið eftir
að undir stöðumyndinni
stendur ekki „svartur leikur
og vinnur“. Uppgjöfin var
nefnilega engan veginn
tímabær. Eftir 10. Rxd4 —
Bxg2 11. Bg5! má nefnilega
svara 11. — f6? með 12.
Re6. Best virðist 11. — Bf6
12. Rxf6+ - Rxf6 13. Hgl
— Bxe4 14. dxe4 — cxd4
og svartur er peði yfir, en
skákin er rétt að byija.
Með morgun-
kaffinu
A
Ast er...
að deila öllu, mat-
reiðslu, matartíma og
uppþvotti.
TM R*a U.S P*t Off.-«ll riflhU r«a«rvwJ
o 1993 Loa AngaUs Times Syndkute
/
Heyrnarmælingar-
tæki okkar eru hár-
námkvæm
Farsi
VELVAKANDI
Svarar í sínia 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Gullhálsmen
tapaðist
LÍTIÐ gullhálsmen, sem
er eins og höfrungur í
keðju tapaðist mjög lík-
lega á Kambsveginum
28. maí sl. Skilvís
finnandi vinsamlega
hringi í síma 562-1747.
Hliðartaska
tapaðist
SVÖRT lítil hliðartaska
tapaðist úr fatahenginu
í Þjóðleikhúskjallaranum
aðfararnótt sl. sunnu-
dags. Skilríkin úr vesk-
inu fundust niðri í bæ en
ýmislegt fleira var í því,
s.s. glænýtt ilmvatn,
snyrtivörur o.fl. Kannist
einhver við að hafa fund-
ið veski í miðbænum eða
við Þjóðleikhúskjallarann
er hann vinsamlega beð-
inn að láta vita í síma
587-1556.
Kettlinga vantar
heimili
TVO tíu vikna gamla
kettlinga, fress og læðu,
vantar góð heimiii. Þeir
eru af gerðinni Brown-
Tabby, mjög fallegir á
litinn, blíðir, góðir og
barnvæniii. Kettlingamir
eru loðnir og mjúkhærð-
ir. Uppl. í síma
553-6781.
LEIÐRÉTT
Viku of snemma
Greint var frá því í
laugardagsblaði Morgun-
blaðsins að Steinunn
Helga Sigurðardóttir
hefði opnað sýningu í Við
hamarinn í Hafnarfírði.
Að sönnu mun Steinunn
Helga opna sýningu á
verkum sínum, en það
verður ekki fyrr en næst-
komandi laugardag, þann
15. júlí. Listakonan og
aðrir eru beðin velvirðing-
ar á þessari ótímabæru
frétt.
Soffía frænka
Á laugardag var frétt í
blaðinu um Kar-
demommubæinn sívin-
sæla, sem Þjóðleikhúsið
tekur til sýninga á næsta
leikári. Ekki tókst betur
til en svo, við mynd-
skreytingu fréttarinnar
að röng mynd slæddist
með, sem er af Krist-
björgu Kjeld úr leikritinu
Stræti og sagði í mynda-
texta að myndin væri af
Ólafíu Hrönn í hlutverki
Soffiu frænku. Viðkom-
andi eru beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
Fiskveiðasjóður
í athugasemd Fisk-
veiðasjóðs á viðskiptasíðu
á föstudag vegna fréttar
blaðsins um lántöku
Granda hf. hjá Norræna
fjárfestingarbankanum
féll niður setning. Fram
kom að fastir vextir af
lánum i jenum eru nú um
2,8% en hins vegar féll
niður setningin: „Ofan á
fasta vexti telur hann
álag NIB vera 0,21% og
ríkisábyrgðargj ald
0,25%.“ Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistök-
um.
Ragnar Thorseth
í viðtali við Ragnar
Thorseth, leiðangurs-
stjóra á Gaia, á sunnudag
var ættarnafn hans rangt
stafsett. Þá víxsluðust
tölur í ártali, víkingaskip-
ið Hjemkomst sigldi til
Noregs árið 1982.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI þekkir mann sem
fékk sér GSM-farsíma fyrir
nokkru, en vinnu hans vegna var
hér um bil ómögulegt að ná í hann
á vinnutíma.
Um daginn brá hann sér inn á
Póst og síma til að athuga hvað það
kostaði að flytja símtöl á milli sima.
Þá komst hann að því að Póstur og
sími hafa búið mjög svo haganlega
um hnútana og ekki er nokkur leið
að komast ódýrt frá símtölunum.
Eftir því sem Víkveiji kemst næst
er málum þannig háttað að ef ein-
hver hringir heim til þín og þú ert
búinn að flytja símtalið í GSM-síma
þá borgar sá sem hringdi innanbæj-
arsímtal en þú borgar mismuninn'
upp í GSM-skrefagjald. Þar með fær
Póstur og sími annars vegar gjald
fyrir innanbæjarsímtal frá þeim sem
hringdi og hinsvegar mismuninn upp
í GSM-símgjöld frá þeim sem hringt
var í, fyrir eitt og sama símtalið.
Sé hins vegar hringt í GSM-síma og
þú ert búinn að færa hringinguna
yfir í heimasímann þá borgar sá sem
hringdi í þig GSM-símtal en ekki
innanbæjarsímtal. Þessi verðmunur
er því alltaf Pósti og síma í hag því
þeir breyta gjaldinu einungis í aðra
áttina, þ.e.a.s. upp á við.
Reglan hjá Pósti og síma er sem
sagt sú að sá sem hringir borgar
gjald samkvæmt gjaldskrá þess
númers sem hann hringdi í en sá
sem færði hringinguna borgar mis-
muninn. Mínútan í GSM-síma kostar
tæpar 25 krónur, um 16 krónur í
venjulegum farsíma, en eitt skref í
venjulegum síma kostar um 3 krón-
ur og á ódýrasta tímabili er hvert
skref allt að fjórar mínútur, Þessi
mismunur er því töluverður.
Þá þarf einnig að greiða fyrir sím-
talaflutninginn, en það eru einungis
tvö eða þijú skref fyrir hvem flutn-
ing.
xxx
ETTA eru upplýsingarnar sem
kunningi Víkverja fékk hjá
Pósti og síma en hann setti af-
greiðslufólkið í mikinn vanda með
þessum spurningum og bar ekki
öllum saman. Honum fannst þetta
dýrt og leigði sér því talhólf hjá
Pósti og síma, en það er einskonar
símsvari sem hringir í viðkomandi
þegar skilaboð eru lögð inn í hólfið.
Þar ætlar hann að lesa inn skilaboð
og vísa í öll símanúmerin sín eða
bjóða viðkomandi að leggja inn
skilaboð.
VÍKVERJI vildi fá vissu sína í
þessu máli og hringdi á tvö
pósthús til að fá þetta staðfest. Þar
bar fólki ekki saman, á öðru póst-
húsinu var honum var sagt að ein-
ungis þyrfti að borga mismuninn
upp í dýrara símtalið en hinu að
það þyrfti að borga bæði gjöldin
að fullu.
Víkverji er því enn ekki með á
hreinu hvað svonalagað kostar, en
veit þó að það er dýrt, hann er líka
að verða alveg ruglaður í allri þess-
ari símatækni. Það nýjasta sem
hann heyrði var að nú er hægt að
fá sér einhverskonar símtól og
tengja við tölvuna hjá sér og þá
er hægt að tala við fólk út um all-
an heim í gegnum tölvuna, sé mót-
aðilinn einnig með svona apparat.
Þetta fer allt í gegnum Internetið
sem er að leggja Island að fótum
sér.
Víkveija var sagt að mínútan í
svona „símtali" kostaði aðeins um
40 aura hvert út í heim sem hringt
er. Víkverji bíður bara eftir því að
boðið verði upp á símtöl „að hand-
an“ og hann geti spjallað við vini
og vandamenn sem farnir eru yfir
móðuna miklu. Þess verður sjálfsagt
ekki langt að bíða.