Morgunblaðið - 11.07.1995, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 49
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
Slapp vid
að spila
gegnKR
|^etta er í fyrsta skipti sem ég
fer í svona æfingabúðir og
ég kann vel við mig. Æfingarnar
eru skemmtilegar og félagsskap-
urinn góður, segir Heiða Kristín
Víðisdóttir úr Leiftri frá Ólafs-
firði.
Heiða leikur ýmist sem miðju-
maður eða vængmaður með öðr-
um flokki félagsins og hún hefur
einnig fengið að spreyta sig með
meistaraflokknum. Enginn þriðji
flokkur keppir á vegum Leifturs
í kvennaflokki vegna þess að fáar
stúlkur í þeim aldursflokki æfa
knattspyrnu á Ólafsfirði.
„Við erum í annarri deild og
ég fór að spila með meistara-
flokki núna í ár. Það getur stund-
um verið erfitt að leika með
tveimur flokkum þegar margir
leikir eru í röð. Við erum hins
vegar dottnar út úr bikarkeppn-
inni eftir tap gegn KR 15:0 svo
leikirnir verða eitthvað færri fyrir
bragðið,“ sagði Heiða. „Sem betur
fer spilaði ég ekki þann leik, ég
var látin hvíla.“
Morgunblaðið/Frosti •
NEMENDUR f knattspyrnuskóla fyrlr stúlkur sem fæddar eru 1981 var haldinn að Laugarvatni og lauk sl. föstudag. Aftasta röð frá vinstri: Þóra
Helgadóttir [Val], Ragnhildur Ágústsdóttir [Haukum], íris Sigurðardóttir [ÍBV], Árdís Ármannsdóttir [UMFA], Elín Jóna Þorsteinsdóttir [KR], Laufey
Ólafsdóttir [Val], Guðrún Gunnarsdóttir [KR], Þóra Lilja Sigurðardóttir [Haukum], Arna Steinsen skólastýra. Þriðja röð frá vinstri: Eyrún Eyleifsdóttir
[ÍA], Erna Björg Gylfadóttir [ÍA], Kolbrún Georgsdóttir [Leikni], Jónína Guðbjartsdóttir [Hvöt], Hugrún Sif Hallgrímsdóttir [Hvöt], Hulda Sigmundsdóttir
[FH], Ingibjörg Sigurðardóttir [Fylki]. Önnur röð frá vinstri: Marín Sörens [Víkingi], Eyrún Jónsdóttir [UMFG], Herdís Jónsdóttir [Stjömunni], Ema Sigurð-
ardóttir [Stjömunni], Heiða K. Víðisdóttir [Leiftri], Steinunn Jóhannsdóttir [Þór Akureyri], Brynja Árnadóttir [Fjölni] og Bára Gunnarsdóttir [UBK]. Fremsta
röð frá vinstri: Gyða Ingólfsdóttir [Víkingi], Bryndís Jóhannesdóttir [ÍBV], Björk Óladóttir [Leiftri], Anna Hilmarsdóttir [UMFA], Anna Björg Bjömsdóttir
[Fylki], Eva Ósk Ólafsdóttir [Fjölni], Guðrún Sveinsdóttir [FH] og Rósa Ragnarsdóttir [UMFG]. Á myndina vantar Aðalheiði Kristjánsdóttur úr Breiðabliki.
HUGRÚN Hallgrímsdóttlr Hvöt, Anna BJörg Björnsdóttlr
Fylki og Eva Ósk Ólafsdóttlr FJölni.
Áhuginn mikill hjá Fylki en
Hvatarstelpur rétt ná í lið
Flugurnar eru erfiðastar að eiga við, var samdóma álit þeirra Hugrún-
ar Hallgrímsdóttur úr Hvöt, Önnu Bjargar Bjömsdóttur úr Fylki
og Evu Óskar Ólafsdóttur Fjölni en mikið var um mý við vatnið skóladag-
ana.
Hugrún sagði að áhuginn væri meiri á Blönduósi fyrir knattspymunni
yfír vetrarmánuðina. „Sumar stelpumar em hættar að nenna þessu og
við rétt náum í lið. Við emm heldur ekki með á íslandsmótinu, höfum
látið okkur nægja að vera með á Nikulásarmótinu á Ólafsfirði og Gull
& silfurmótinu." Öllu meiri áhugi er hjá Fylki og sagði Anna Björg að
28 stelpur hefðu mætt á æfingar í sumar. „Okkur hefur líka gengið
vel, við töpuðum reyndar fyrir ÍBV, en vomm fyrir leikinn búnar að
vinna átta leiki í röð,“ sagði Anna. Aðspurð um hvort fyrirlestramir
um teygjur og næringafræði hafí verið fróðlegir svöruðu þær því til að
þar hefði margt komið fram sem þær ekki vissu. „Við vomm mest hissa
á því hvað ijóminn er fítandi," sagði Eva Ósk.
BRYNJA Árnadóttir Fjölnl og Þóra Björk Helgadóttir Val.
Skemmtilegar æfingar
Æfingarnar era skemmtilegastar og þó að dagurinn geti stundum
verið langur er þetta ekkert erfitt, bara skemmtilegt, var álit
þeirra Brynja Árnadóttur úr Fjölni og Þóru Bjarkar Helgadóttur mar-
kvarðar úr Val. „Ég prófaði að fara í markið í vetur og líkaði svo vel að
ég hélt áfram,“ sagði Þóra sem nýlega var valin í átján manna leik-
mannahóp í stúlknalandsliðinu. Brynja er hins vegar í sókninni hjá sínu
félagi og sagði að áhuginn mætti gjarnan vera meiri í Grafarvoginum.
„Við eram sautján sem æfum í þriðja flokki og okkur hefur gengið
þokkalega í sumar."
Knattspyrnuskóli fyrir stúlkur haldinn að Laugarvatni
Mættu á tvær æfingar dag-
lega og hlýddu á fyririestra
KNATTSPYRNUSKÓLA
stúlkna lauk sl. föstudag en þá
höfðu 32 stúlkur á fjórtánda
aldursári verið í æfingabúðum
að Laugarvatni í viku. Stúlkurn-
ar mættu á tvær æfingar á dag
og hlýddu á fyrirlestra um efni
tengd knattspyrnu og ekki var
annað að heyra en að þær
væru ánægðar með dvölina.
(Jetta er annað árið sem að KSÍ
gengst fýrir Knattspymuskóla
fyrir stúlkur en það er komin löng
hefð fyrir því að drengir komi sam-
an í eina viku á Laugarvatni. Stúlk-
urnar voru valdar af þjálfurum fé-
laga sinna og vora félögin misjafn-
lega dugleg að tilnefna stúlkur að
þessu sinni. Sum félög skiluðu ekki
inn neinum tilnefningum en flest
félög sem eru með kvennaknatt-
spyrnu á sínum snærum áttu þó tvo
fulltrúa í skólanum.
Með þessum æfingabúðum gefst
stúlkunum tækifæri á að reyna sig
á æfingum, þær hlýða á fýrirlestra
um ýmislegt sem tengist íþróttum
eins og til að mynda næringafræði,
meiðsli, upphitun og teygjur og
sálræna þáttinn í íþróttunum.
Arna Steinsen, sem þjálfar
stúlknalandsliðið, hafði yfirumsjón
með skólanum en sér til halds og
traust hefur hún gestaþjálfara sem
koma í einn dag. Arna sagði að það
hefði gefist vel en sami háttur hef-
ur verið á í Knattspyrnuskóla
drengja. „Með því að hafa tvo þjálf-
ara hvern dag er hægt að skipta
hópnum í tvennt og mismunandi
þjálfarar gera það að verkum að
æfingarnar eru fjölbreyttar. Stelp-
urnar fá því alltaf eitthvað nýtt og
skemmtilegt til að glíma við því það
er enginn þjálfari eins,“ segir Arna.
Morgunblaðið leit við í íþrótta-
miðstöðinni að Laugarvatni sl.
þriðjudag og þá voru gestaþjálfar-
arnir, Olafur Þ. Guðbjörnsson
Haukum og Eiríkur S. Sigfússon
Aftureldingu að stjórna æfingum.
Daginn áður höfðu fimm landsiiðs-
konur litið við og rabbað við hópinn
og miðlað reynslu sinni.
„ HEIÐA Krístín Víöisdóttir úr Lelftri frá Ólafsfirði og Bryndís
Jóhannsdóttlr úr ÍBV.
Öðruvísi æfingar
„Æfingarnar héma eru allt öðru
vísi en ég á að venjast heima,“ sagði
Bryndís Jóhannsdóttir úr ÍBV.
„Við höfum ekki búnað til að
vera með æfingar eins og eru hérna,
í fyrsta lagi eigum við ekki svona
marga bolta vegna þess að meist-
arafiokkur karla fær alla boltana.
Við spilum því oftast á æfingunum.
Svo er ég ekki vön svona löngum
æfingum, æfingamar hjá okkur
heima eru yfirleitt ekki nema fjör-
tíu mínútur. Mér finnst samt áhug-
inn fyrir kvennaknattspyrnu alltaf
vera að aukast og ég held að Pæju-
mótið eigi stóran þátt í því. Þá
koma mörg lið saman og áhuginn
eykst mikið.“