Morgunblaðið - 11.07.1995, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 11.07.1995, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBI@CENTRUM.1S / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Fornleifafræðingar rannsaka minjar við Nesstofu á Seltjarnarnesi Morgunblaðið/Golli ORRI Vésteinsson fornleifafræðingnr við vegghleðslu sem kom í Ijós við uppgröftinn við Nesstofu. Fjær honum er vegghleðsla sem hann telur yngri. Á meðal þess sem í ljós kom við uppgröft- inn eru mannabein og líkkistur, sem sjást á efri myndinni. Bið á að yfirdýralæknir taki ákvörðun um kalkúnaleggina Alagning- arseðlar væntan- legir STEFNT er að því að leggja fram álagningarskrár opin- berra gjalda 27. júlí nk. í öllum skattumdæmum. Samkvæmt upplýsingum frá embætti rík- isskattstjóra verða skrárnar til sýnis í tvær vikur áður en kærufrestur vegna álagningar rennur út. Skattstjórar í níu skattumdæmum sjá um að birta skrárnar og auglýsa hvar þær munu liggja frammi til sýnis. Kærufrestur 30 dagar Steinþór Haraldsson hjá rík- isskattstjóra sagði að skatt- greiðendur fengju álagningar- seðla senda heim á næstu dög- um. í þeim sé skattgreiðendum gerð grein fyrir þeim sköttum sem lagðir eru á þá. Innan 30 daga frá þeim degi sem skatt- stjóri auglýsir að álagningu sé lokið geta skattgreiðendur lagt fram skriflega og rök- studda kæru. Innan tveggja mánaða frá lokum kærufrests skal skattstjóri hafa úrskurðað í öllum kærumálum. Úrskurði skattstjóra má loks áfrýja til rikisskattanefndar. Þegar álagningu skatta og kærumeðferð er iokið skulu skattstjórar leggja fram skatt- skrá fyrir hvert sveitarfélag. Álagning hefur þá verið leið- rétt en í henni skal tilgreina álagðan tekju- og eignarskatt og aðra skatta hvers skatt- greiðanda. Skráin mun verða til sýnis í tvær vikur á hentug- um stað í hveiju sveitarfélagi. Að sögn Steinþórs verður skattskráin fyrst gefin út og lögð fram eftir áramót. Kannar lög i Hollandi áður en leyfi fæst BRYNJÓLFUR Sandholt yfirdýra- læknir segir að bið verði á að ofn- steiktu kalkúnalærin, sem Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus, hefur keypt og flutt til landsins, verði afgreidd úr tolli. Enn eigi eftir að kanna í Hollandi hvað liggi að baki þeim vottorðum sem Jóhannes framvísaði. Jóhannes er búinn að skila til landbúnaðarráðuneytisins tilskildum vottorðum sem eiga að fylgja send- ingunni og einnig þeim sem fylgja frosnum kjúklingum frá Svíþjóð sem hann hyggst flytja inn. Brynjólfur segist ekki geta sagt til um hvenær ákvörðun verði tekin um kalkúna- lærin, en hann býst við að í vikunni liggi fyrir hvort sænsku kjúklingarn- ir fái að koma inn í landið. Athuga lagaferilinn Brynjólfur segir að lengri tíma taki að afla upplýsinga frá Hollandi um hvað standi að baki vottorðun- um en frá Svíþjóð. Skýringin sé sú að íslendingar þekki betur til á Norðurlöndum auk þess sem margt væri líkt í lögum landanna. „Við þurfum að vita hvort slátur- húsið er viðurkennt og hvort þess- um dýrum hafi verið gefin vaxtar- aukandi lyf,“ segir hann. „Við þurf- um að athuga hvernig lagaferillinn er í þessum löndum. Við þurfum að vita hvað stendur að baki þessum vottorðum og athuga hvort kjötið uppfylli þær kröfur sem við gerum.“ Hann segir að heilbrigðisvottorð- ið segi til um hvort að varan stand- ist hollensk lög en síðan þurfi ís- lensk yfirvöld að vita hvaða kröfur hollensk yfirvöld geri til slíkra vott- orða. Þótt hlutirnir eigi að heita samræmdir innan EES-landanna, túlki menn reglurnar á mismunandi hátt. Skelfilegt kerfi Jóhannes í Bónus segir að sér fínnist kerfið hér á landi skelfílegt. Hins vegar verði einhver að standa í því að fá svona hluti í gegn. Stjórn- málamenn hafi sagt að hér myndi fijálsræði ríkja þegar GATT-samn- ingurinn gengi í gildi og nú væru neytendur farnir að biðja um þessar vörur. „Við verðum að sjá hvað býr að baki,“ segir hann. „Annars erum við að bregðast." Grafir og garð- hleðslur fundust við uppgröft GRAFIR og hleðslur, sem m.a. eru taldar vera úr nokkur hundr- uð ára gömlum kirkjugarði, eru meðal þess sem komið hefur í ijós við rannsóknaruppgröft á vegum Orra Vésteinssonar forn- léifafræðings og Seltjarnarnes- bæjar austan við Nesstofu á Sel- tjarnarnesi. Hefur lengi verið álitið að þarna væri að finna kirkjustæði og kirkjugarð, errí jarðsett var í honum eitthvað fram yfir aldamótin 1800. Seltjarnarnesbær samþykkti í fyrrahaust að leggja til eina milljón króna á ári til fornleifa- rannsókna í bænum næstu þijú árin og er uppgröfturinn við Nesstofu liður í þeim rannsókn- um. Orri segir afar líklegt að kirkjurúst sé að finna fyrir aust- ann skurðinn sem grafinn var nú í sumar. Að sögn Heimis Þor- leifssonar sagnfræðings er vitað að þarna var kirkja á 13. öld, en síðast var þarna timburkirkja sem fauk í Básendaveðrinu rétt fyrir aldamótin 1800. Mannabein og líkkistur Uppgröfturinn hófst á þriðju- daginn í síðustu viku. Honum er nú lokið og verða minjarnar sem í ljós komu huldar jarðvegi á nýjan leik í dag. Austast í skurð- inum sem grafinn var í tilrauna- skyni komu í ljós mannabein og líkkistur sem, að sögn Orra Vé- steinssonar, eru að öllum líkind- um ekki frá miðöldum heldur í nýrri jarðlögum. Vestar í skurðinum kom svo í ijós yngri vegghleðsla og stétt meðfram henni, og telur Orri að þar hljóti að vera um húsvegg að ræða, en hins vegar kom ekk- ert gólf með veggnum í ljós. Vestan við vegghleðsluna er svo garðhleðsla sem hann telur vera eldri en bæði grafirnar og vegg- hleðslan. „Vandinn við svona skurði er sá að maður getur séð eitthvað, en hins vegar getur maður yfir- leitt ekki séð hvað það er. Þess vegna gröfum við ekki í gegnum þessa hluti til þess að eyðileggja ekki samhengið ef einhver skyldi opna þetta seinna," sagði hann. Það sem í ljós hefur komið við uppgröftinn við Nesstofu hefur verið kortlagt og sagði Orri að endanlegar niðurstöður rannsóknarinnar ættu að liggja fyrir í haust. Hann sagði að þá yrði væntanlega tekin ákvörðun um hvort ráðist verður í frekari fornleifarannsóknir á þessu svæði. Bjórsala jókst um 30% SALA á bjór jókst um 30% í síð- asta mánuði samanborið við júní í fyrra. Aukningin í bjórsölunni fyrstu sex mánuði ársins nemur um 15% Sala á léttvíni hefur einnig auk- ist nokkuð á sama tíma, rauðvíni um 8% og hvítvíni um 9%. Sala á sterkum vínum hefur dregist saman um allt frá 2% upp í 19%. Sala á öllum tegundum tóbaks dróst saman hjá ÁTVR fyrstu sex mánuði ársins. ■ Nær 30% söluaukning/14

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.