Morgunblaðið - 26.07.1995, Blaðsíða 48
L0TT#
alltaf á
Miðvikudögum
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBU?XENTRUM.IS / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Mannbjörg varð þegar trilla sökk
úti fyrir Vestfjörðum
Neyddist til að kafa
eftir gúmmíbátnum
MANNBJÖRG varð þegar
Hilmir B A-48, sem er tveggja
ára 4 tonna trefjaplastbátur
frá Patreksfirði, sökk um 15
mílur norðvestur af Blakksnesi
laust eftir hádegið í gær. Einn
maður var um borð og komst
hann í gúmmíbjörgunarbát eft-
ir að hafa kafað niður að bátn-
um til að losa hann frá trill-
unni. Skipveijar á Elsu EA-60
björguðu manninum og komu
með hann til Patreksfjarðar.
Það voru Tómas Vilbergsson
og Valþór Þórgeirsson, skip-
veijar á Elsu, sem björguðu
skipveijanum. Báturinn var
staddur um mílu frá Hilmi þeg-
ar óhappið varð.
„Valþór var staddur uppi á
dekki og sá einhveija þúst út
í hafi. Hann héit fyrst að þetta
væri bauja, en sá við nánari
athugun að þetta var gúmmí-
bátur á reki. Þegar við fórum
að athuga þetta betur sáum við
að bátur maraði í hálfu kafi
skammt frá gúmmíbátnum. Við
gáfum allt í botn og náðum
manninum um borð. Hann var
þá orðinn blautur og kaldur.
Hann sagði okkur að þetta
hefði gerst það snöggt að hann
hefði ekki komist í stöðina til
að tilkynna sig. Þegar við kom-
um að honum hafði hann skot-
ið upp öllum flugeldum, en
enginn virtist hafa orðið var
við þá,“ sagði Tómas.
Sökk á skömmum tíma
Elsa fór strax með skipveij-
ann í land á Patreksfirði. Þeir
komu þangað um klukkan 16.
Arni Jóns tók Hilmi í tog, en
stefnt er að því að bjarga bátn-
um.
Ekki er ljóst hvers vegna
Hilmir sökk. Nokkur öldu-
gangur var á svæðinu, norð-
austan gola og 3-4 vindstig.
Enginn fyrirvari var á óhapp-
inu og komst skipveijinn út við
illan leik. Hann festi sig þegar
hann var á leið úr stýrishúsinu
og reif gallann sinn. Við að ná
björgunarbátnum varð hann
að kafa undir trilluna til að
losa bátinn. Talið er að hann
hafi verið 15-20 minútur í
gúmmíbátnum.
Neyðarmerki frá gúmmí-
björgunarbátnum heyrðust eft-
ir að skipveijinn var kominn
um borð í Elsu. Tómas sagði
að talsvert af bátum hefðu ver-
ið á svæðinu. Enginn hefði
samt tekið eftir neyðarblysinu
frá Elsu. Gúmmíbjörgunarbát-
urinn hefði hins vegar sést
nokkuð vel á sjónum enda úr
sjálflýsandi efni.
Hilmir var búinn að vera
sólarhring að veiðum og í hon-
um voru 1.500-1.600 kíló þegar
hann sökk.
S veitarsj óðareikningar 1993
Halli sveitarfélaga
tvöfaldast milli ára
SKÝRSLA Hagstofu íslands um
íjármál sveitarfélaga, Sveitarsjóða-
reikningum 1993, sýnir að saman-
lagður halli sveitarfélaga árið 1993
nam 5,7 milljörðum króna og
reyndist tvöfalt meiri en árið áður.
Hallinn svaraði til um 15% af heild-
artekjum sveitarfélaganna á árinu.
Peningaleg staða var neikvæð í
árslo'k 1993 hjá öðrum en fámenn-
ustu sveitarfélögunum en þar var
hún nánast í lágmarki. í heild var
staðan neikvæð um 51.430 kr. á
hvem íbúa landsins árið 1993 sam-
anborið við 32.688 kr. árið áður.
Halli á hvern íbúa hefur verið
hæstur á undanförnum árum hjá
sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu að því er fram kemur í
fréttatilkynningu Hagstofunnar.
Árið 1993 var hallinn 27.273 kr. á
hvem íbúa á höfuðborgarsvæðinu
samanborið við 15.370 kr. árið
áður.
Skuldir sveitarfélaganna námu
alls 27,6 milljörðum króna í árslok
1993 eða sem svarar um 73% af
heildartekjum þeirra á því ári.
Skuldir reyndust hæstar hjá sveit-
arfélögum utan höfuðborgarsvæð-
isins með 1.000-3.000 íbúa.
Fleiri fá fjárhagsaðstoð
Tæplega 4.800 heimili nutu fjár-
hagsaðstoðar sveitarfélaga árið
1993 og /jölgaði um 20% frá árinu
áður. Útgjöld sveitarfélaganna
vegna fjárhagsaðstoðar jukust aft-
ur á móti um tæpan helming á
milli áranna. Skýrsluhöfundar
Hagstofunnar telja að margt bendi
til þess að erfitt atvinnuástand
hafi orsakað töluvert aukin útgjöld
á þessu sviði á árinu.
Fíkniefna-
neytendur
handteknir
LÖGREGLAN á ísafirði handtók
fimm ungmenni með 11 grömm
af hassi og 22 grömm af amfet-
amíni sl. sunnudag. Við yfir-
heyrslu viðurkenndi fólkið kaup
á 50-60 gröminum af amfetam-
íni, svipuðu magni af hassi og
nokkrum töflum af alsælu. Þau
höfðu neytt mikils hluta efnisins.
I yfirheyrslu hjá lögreglunni hélt
fólkið því fram að það hefði ver-
ið svikið í viðskiptum við sölu-
menn. Rannsókn málsins er lokið
og hefur öllum verið sleppt úr
haldi.
Síðastliðinn laugardag hand-
tók lögreglan á ísafirði mann í
ísafjarðardjúpi. Við leit í bíl
mannsins fundust 77 grömm af
hassi. Hann viðurkenndi að hafa
keypt í Reykjavík 84 grömm af
hassi og gramm af amfetamíni.
■ Lögreglan á ísafirði/2
Morgunblaðið/JHE
Hj artaaðger ðir
Innflutningur á unnu kjöti leyfður eftir 1. september næstkomandi
Heimilt að flytja inn magn
sem samsvarar 3% af neyslu
í DAG tekur gildi reglugerð land-
búnaðarráðuneytisins um úthlutun
á tollkvótum fyrir osta, ýmsar teg-
undir grænmetis og unnar kjötvör-
ur, en samkvæmt henni verður ekki
heimilt að flytja inn unnar kjötvörur
fyrr en eftir 1. september nk. Þá
verður leyfilegt að flytja inn 26
tonn af kjötvörum til áramóta, sem
eru um 3% af neyslu á soðnum kjöt-
. vörum hérlendis á umræddu tíma-
^bili.
Reglugerðin heimilar innflutning
12 tonna af smjöri og 18 tonna af
ostum frá 1. ágúst nk. til 31. októ-
ber og innflutning þess grænmetis
sem um ræðir 1. september til 31.
september nema innflutning á selju
annarri en en seljurót sem miðast
við 1. október til 31. október.
Reglugerðin heimilar t.d. inn-
flutning á nautakjöti, soðnu kalk-
únakjöti og svínakjöti, þar á meðal
soðnum hamborgarhrygg, og dilka-
kjöti, en ekki ósoðnar kjötvörur á
borð við danska spægipylsu að sögn
Guðmundar Sigþórssonar, skrif-
stofustjóra hjá landbúnaðarráðu-
neytinu. Magntollar leggjast á kjöt-
vörurnar, misháir eftir því hversu
mikið varan er unnin, sem þýðir í
raun að dýrasta og vandaðasta kjöt-
varan hafi hæstu tollana. Hæstir
eru þeir 526 krónur á hvert kiló,
en lægstir 44 krónur. Á flestu
grænméti eru 30% verðtollar, en í
nokkrum tilvikum bæði verðtollar
og magntollar, t.d. af sveppum sem
200 króna magntollur leggst á auk
15% verðtolls.
Guðmundur segir að stærð toll-
kvóta séu í samræmi við tilboð ís-
lendinga í aðildarviðræðum að
GATT-samningnum, flestir í lág-
marki nema magn gerilsneyddrar
eggjarauðu sem nokkur skortur sé
á, en heimilt verður að flytja inn
15 tonn af henni á tímabilinu.
Ekki til að tálma
Verði mjög margar umsagnir um
innflutning um mikið magn, gerir
reglugerðin ráð fyrir að heimilt sé
að láta hlutkesti ráða úthlutun eða
leita tilboða í tollkvóta, þangað til
kvótinn er uppurinn. Tollkvótum
verður úthlutað samkvæmt auglýs-
ingu ráðuneytisins þar sem til-
greindir verða nánari skilmálar
vegna úthlutunarinnar, þar á meðal
umsóknarfrestur.
Guðmundur segir að skilmálar
ráðuneytisins munu ekki binda
hendur innflytjenda að neinu ráði.
„Menn munu þurfa að senda
umsókn til ráðuneytisins þar sem
þeir gera grein fyrir þeirri vöru sem
þeir vilja flytja inn, undir hvaða
tollflokk hún heyrir og hversu
magnið sé mikið. Síðan förum við
yfir allar umsóknir sem berast og
úthlutum eftir þeim. Umsóknir sem
berast fljótlega verða afgreiddar
hið fyrsta og ég sé ekki sérstaka
annmarka á að þær verði tilbúnar
til afgreiðslu fyrri hluta næsta
mánaðar, en við munum að sjálf-
sögðu gæta þess að gefa svo mikinn
tíma að innflytjendur á öllu landinu
eigi jafna möguleika á að sækja
unij“ segir Guðmundur.
Úthlutun verður bundin við hand-
hafa heildsöluleyfis og ekki fram-
seljanleg öðrum.
Aukafjár-
veiting
samþykkt
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær
tillögu Ingibjargar Pálmadóttur heil-
brigðisráðherra um 35 millj. kr.
aukafjárveitingu til hjartaaðgerða á
Landspítala.
„Ein hjartaaðgerð kostar frá 790
þúsund til 1,1 milljón króna. Kostn-
aður fer eftir því hvað aðgerðin er
flókin. Við reiknum með því að með
þessari aukafjárveitingu verði hægt
að fækka sjúklingum á biðlista veru-
lega. Á biðlista eftir hjartaaðgerðum
eru 82 sjúklingar í dag, en með
aukafjárveitingunni á að vera hægt
að fækka á biðlista niður í 30-35
um næstu áramót. Það er talinn viðr-
áðanlegur biðlisti," sagði Ingibjörg.
Á seinasta ári voru gerðar 280
hjartaaðgerðir hér á landi. í fjárlög-
um fyrir árið 1995 er gert ráð fyrir,
að gerðar verði 250 aðgerðir á þessu
ári.