Morgunblaðið - 23.08.1995, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995 9
FRÉTTIR
Símstöðvar á Islandi alveg stafrænar
Fyrstir í heiminum með
alstafrænt símakerfí
ÍSLAND er fyrsta iandið í heiminum
til að taka í notkun alstafrænar sím-
stöðvar fyrir alla símnotendur lands-
ins en síðustu símnotendumir tengd-
ust stafræna kerfinu í gær.
Allir notendur íslenska símakerfis-*
ins eru komnir með samband við staf-
rænar stöðvar og er Island fyrsta
landið sem nær þessum áfanga.
Stefnt er að algerlega stafrænum
símakerfum á hinum Norðurlöndun-
um á árunum 1997-2000.
Nýir möguleikar
Stafræna kerfíð er af gerðinni
AXE frá Ericsson og var fyrsta slíka
stöðin tekin í notkun í Múla í janúar
1984. Eftir góða reynslu af kerfinu
var markvisst hafíst handa við að
skipta út hliðræna kerfinu árið 1993.
Auk endurnýjunar notendastöðva
hafa verið settar upp tvær skipti-
stöðvar í Landsímahúsinu og í Múla-
stöð sem eiga að auka rekstrarör-
yggi kerfisins. í skiptistöðvunum er
einnig hugbúnaður fyrir greindar-
kerfi sem mun m.a. afgreiða græn
númer og símatorg á hagkvæmari
hátt, sem og bjóða upp á ýmsa nýja
sérþjónustu.
Nú er unnið að því að fullkomna
símakerfíð enn frekar og mun sím-
notendum í framtíðinni bjóðast nýj-
ungar, t.d. myndflutningar og upp-
lýsingar á skjá notandans. Á blaða-
mannafundi, sem Póstur og sími
hélt í gær, sagði Ólafur Tómasson,
póst- og símamálastjóri, að hugsan-
lega yrði tekið upp svokallað breið-
bandskerfí eftir nokkur ár sem gæfi
m.a. aðgang að sjónvarpsefni.
Þessi nýja þjónusta mun berast
samtímis til allra notenda óháð bú-
setu.
Á fundinum voru staddir tveir full-
trúar Ericsson í Danmörku og sögðu
þeir að Ericsson væri sérlega stolt
af því að hafa tekið þátt í að koma
upp á Islandi fullkomasta símakerfí
í heimi.
Blikur á lofti
í ársskýrslu Pósts- og síma sem
kynnt var á fundinum kom fram að
velta fyrirtækisins á árinu 1994 var
tæpir tíu milljarðar króna sem er 7%
aukning frá árinu á undan. Rekstar-
gjöld voru um átta og hálfur milljarð-
ur og hagnaður af reglulegri starf-
semi fyrirtækisins er því einn og
Öfyndin
ganga á bíl
23 ÁRA ölvuð kona var handtekin
aðfaranótt laugardags eftir að hún
hafði gert sér lítið fyrir og gengið
yfír bifreið sem var kyrrstæð á
Klapparstíg við Laugarveg.
Konan gaf þá skýringu á hegðan
sinni að hún hefði verið að metast
við vinkonu sína um hvor gæti verið
fyndnari og þá hefði henni dottið
þetta i hug.
Að sögn lögreglu kunnu ökumaður
bifreiðarinnar og eigandi hennar ekki
að meta fyndnina þegar þeir virtu
fyrir sér dældir og rispur á bifreið-
inni.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
ÞAÐ tókst að bjarga mestu af mjólkinni.
Mjólkurbíll valt þegar
vegarkantur gaf sig
Fagradal. Morgunblaðið.
MJÓLKURBÍLL frá Mjólkurbúi
Flóamanna valt þegar vegarkant-
ur heim að bænum Götum í Mýr-
dal gaf sig. Bílstjórinn slapp
ómeiddur frá óhappinu og þakk-
aði hann það því að hann var
spenntur í bílbelti.
í bilnum voru um 6.000 lítrar
af nyólk og tókst að bjarga mestu
af injólkinni með dælingu yfir í
annan mjólkurbíl. Til að koma
bílnum á hjólin aftur þurfti að
grafa veginn í sundur og fá rúss-
neskan hertrukk með spil til að
velta honum á hjólin.
Þetta er þriðja óhappið sem
verður þarna frá því um verslun-
armannahelgina, fyrst keyrðu
saman þrír bílar á brúnni yfir
Hvammsá, viku seinna valt fisk-
flutningabill við brúna á
Hvammsá.
Morgunblaðið/Golli
BO Stokholm og Jens Krohn Jensen, fulltrúar Ericsson í Dan-
mörku, ásamt Ólafi Tómassyni, póst- og símamálastjóra, og Guð-
mundi Björnssyni, aðstoðarpóst- og símamálastjóra.
hálfur milljarður en arðgreiðslur til
ríkis voru ákveðnar 850 milljónir
króna. Sagði Guðmundur Björnsson,
aðstoðarpóst- og símamálastjóri, að
það væri viðunandi niðurstaða. Eigið
fé fyrirtækisins væri nú um þrettán
milljarðar króna en hinsvegar væru
nú ýmsar blikur á lofti, m.a. væri
ákveðið að lífeyrissjóðsskuldbinding
Pósts og síma skuli í fyrsta sinn
færð í reikningsskil fyrirtækisins
árið 1995. Guðmundur sagði að nú
næmi lífeyrissjóðsskuldbindingin um
8 milljörðum króna og ef sú upphæð
væri tekin með inn í reikningsskil
síðasta árs hrapaði eiginfjárstaðan
úr þrettán milljörðum niður í fimm
milljarða króna.
Breyttar reglur Félagsmálastofnunar
ekki ástæða útgjaldaaukningar
Fjölgam 18%
fyrir gildistöku
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri kveðst ekki telja að nýjar
reglur Félagsmálastofnunar Reykja-
víkur hafi valdið útgjaldaaukningu
stofnunarinnar sem sögð er nálgast
100 milljónir króna. Reglurnar hafí
tekið gildi 1. maí sl. og þá hafi legið
fyrir að fjölgun skjólstæðinga stofn-
unarinnar næmi um 18% frá áramót-
um, en hún er nú um 20% „Það er
því ljóst að ijölgun skjólstæðinga
átti sér stað áður en reglurnar tóku
gildi,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Borgarstjóri segir að útgjalda-
aukning Félagsmálastofnunar á sein-
ustu árum stafi fyrst og fremst af
fjölgun skjólstæðinga, en of snemmt
sé að segja til um hvort nýjar reglur
hafí sömu afleiðingar í för með sér.
Réttlátari reglur
„Markmið nýrra reglna er ekki að
fjölga skjólstæðingum og kannski
ekki að spara sérstaklega, heldur að
gera þær réttlátari og aðstoða þá
fyrst og fremst sem hafa mesta
framfærslubyrði. Við miðum við að
fá áfangaskýrslu um reynslu af regl-
unum um áramót og munum í kjöl-
farið kanna hvort endurmeta þurfi
reglurnar, í ljósi þeirrar niðurstöðu
sem þá liggur fyrir,“ segir Ingibjörg
Sólrún.
Hún kveðst telja að viðvarandi
lægð í efnahagslífí og atvinnuleysi
leiddu til aukinnar fjárhagsaðstoðar
sveitarfélaga í félagsmálum, sem sé
erfítt að búa við árum saman. Lang-
stærsti hópur skjólstæðinga Félags-
málastofnunar sé skipaður einhleyp-
um körlum. „Það sérkennilega var
að einhleypir karlmenn eru miklu
stærri hópur skjólstæðinga hér í
Reykjvík en t.d. hópurinn á Akur-
eyri, þar sem einstæðar mæður voru
í meirihluta. Skýringin er kannski að
einhveiju leyti sú að við höfum hér
einhvem hóp einstæðra karlmanna
sem eru í raun ekki vinnufærir vegna
andlegra veikleika, drykkjusýki eða
af öðrum ástæðum. Þessi hópur hefur
hins vegar verið álíka stór og nú
gegnum árin,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Hún segir að sé beðið eftir útreikn-
ingum forráðamanna Félagsmála-
stofunar Reykjavíkur á fjárþörfinni
og verði tekin afstaða til aukafjár-
veitingar í kjölfarið.
«M"g
Síðasta útboð
spariskíiteina
Klukkan 14 í dag ferfram hjá Lánasýslu ríkisins,
í síðasta sinn, útboð á verðtryggðum
spariskírteinum ríkissjóðs með lánstíma til 5 ára.
Hér eftir verða aðeins seld verðtryggð
spariskírteini til 10 og 20 ára í útboðum.
Tryggðu þér því nú í þessu síðasta útboði,
5 ára verðtryggð spariskírteini.
verðtryggðra
til 5 ára
Hafðu samband við ráðgjafa
Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa
og iáttu þá gera tilboð fyrir þig.
Sími 562 6040.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið við Hverfisgötu)
sími 562 6040, fax 562 6068.
Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum