Morgunblaðið - 23.08.1995, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Félagsmálaráð-
herra vill bætt boð-
skipti vinnumiðlana
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra mun kalla forstöðumenn
helstu vinnumiðlana á landinu til
sín til fundar næstkomandi mánu-
dag þar sem fjallað verður um
hvernig samhæfa megi störf þeirra
og bæta boðskipti, en hann segist
vera mjög óánægður með hvað
vinnumiðlanirnar skili litlum ár-
angri.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær hefur félagsmálaráðu-
neytið vakið athygli á því í auglýs-
ingu að fiskvinnslufólk vanti til
starfa hér á landi og mörg slík störf
að losna á næstunni. Um 6.000
manns eru nú á atvinnuleysisskrá
og atvinnuleysisbætur og útgjöld
ríkisins þeim tengd áætluð hátt á
fjórða milljarð króna í ár. Páll sagði
í samtali við Morgunblaðið að nauð-
synlegt væri að bæta boðskipti
vinnumiðlana þannig að fólk í at-
vinnuleit vissi að minnsta kosti hvar
einhveija vinnu væri að hafa.
„Það er ekki rökrétt að taka við
atvinnuleysisskrám upp á sex þús-
und manns annan daginn og síðan
hinn daginn sendinefndum atvinnu-
rekenda sem lýsa áhyggjum sínum
og vandræðum út af því að þeir fá
ekki fólk að til vinna,“ sagði Páll.
Formannskj ör Alþýðubandalagsins
20 kynningarfundir
með frambjóðendum
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ efnir til
20 kynningarfunda með frambjóð-
endum til formannskjörs á næstu
vikum. Fyrstu kynningarfundirnir,
þar sem alþingismennirnir og fram-
bjóðendurnir Margrét Frímanns-
dóttir og Steingrímur J. Sigfússon
kynna viðhorf sín og svara fyrir-
spurnum, verða á Hótel ísafirði á
miðvikudagskvöld og í Félagsheim-
ilinu á Patreksfirði fimmtudags-
kvöld.
í fréttatilkynningu segir að kynn-
ingarfundimir á ísafirði og Patreks-
firði sé öllum opnir en rétt til þess
að kjósa í formannskjöri Alþýðu-
bandalagsins eiga flokksbundnir
félagar. Hægt er að ganga í Alþýðu-
bandalagið til þess að öðlast þátt-
tökurétt í formannskjörinu til loka
septembermánaðar. Bréfleg kosn-
ing sem fram fer fyrstu tvær vik-
urnar í október og verða atkvæði
talin á landsfundi flokksins sem
hefst 12. október á Hótel Sögu.
Kynningarfundurinn á Hótel Isa-
firði hefst kl. 20.30 miðvikudaginn
23. ágúst. Fundarstjóri er Bryndís
Friðgeirsdóttir bæjarfulltrúi.
Kynningarfundurinn í Félags-
heimilinu á Patreksfirði fyrir Vest-
urbyggð hefst kl. 20.30 fimmtudag-
inn 24. ágúst. Fundarstjóri er Einar
Pálsson, bæjarfulltrúi.
Þá hafa verið undirbúnir fundir
í Keflavík, Hafnarfírði, Akranesi,
Grundarfirði, Blönduósi, Siglufirði,
Sauðárkróki, Akureyri, Húsavík,
Vopnafírði, Egilsstöðum, Neskaup-
stað, Höfn í Hornafírði, Hvolsvelli,
Selfossi, Vestmannaeyjum og
Reykjavík.
Stórglæsileg
4ra herb. íbúð í Jörfabakka 22. Ný eldhúsinnr. Parket.
Verð 7,2 millj. Áhv. 4 millj. hagst. lán. Mögul. að taka
bíl og/eða hesthús og/eða minni íbúð uppí og/eða hag-
stæða greiðsluskilmála.
Jón Egilsson, hdl.,
Knarrarvogi 4, sími 568 3737.
Tölvuforrit
Til sölu er landsþekkt tölvuforritunarfyrirtæki
með um 1000 seldum forritum og mörg hundruð
þjónustusamninga. Hentar vel fyrir tölvunar-
fræðing, forritara eða verkfræðing. Mjög góð
skrifstofuaðstaða vel tækjum búin og aðstaða
fyrir námskeiðahald. Verð kr. 5 millj.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
msiiiizaazasGCT
SUOURVE R I
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
★ Vantar - Vantar ★
Höfum kaupanda að óvenjulegri íbúð í góðu ástandi
með tveimur svefnherb., stórri stofu, góðri geymslu,
stórum sólsvölum eða verönd. Miðsvæðis í Reykjavík,
hugsanlega í Kópavogi. Kaupverð 6,5-7,5 millj.
Upplýsingar hjá sölumönnum.
FASTEIGIMASALA
Si'mi 533-4040
ÁRMÚLA21
DAN V.S. WIIUM, HDL., LÖGG. FASTSALI
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJÓRI
SÖLVI SÖLVASON, HDL.
BIRGIR GEORGSSON, SÖLUM.
23 punda ferlíki úr
Vatnsdalsá í Vatnsfirði
EINN stærsti lax sumarsins veidd-
ist fyrir nokkrum dögum í Vatns-
dalsá í Vatnsfírði vestur á Barða-
strönd. Þetta var 23 punda hrygna
sem tók maðk og veiðimaðurinn,
Þorsteinn Árnason, gerði gott bet-
ur og náði þremur löxum til viðbót-
ar, tveimur 8 punda og einum 6
punda.
Lítt þekkt á
Fáum sögum fer af Vatnsdalsá
í Vatnsfirði, en að sögn Ragnars
Guðmundssonar, bónda á Brjáns-
læk, getur þó verið mjög dijúg
veiði þegar skilyrði eru góð. Aðal-
laxveiðisvæðið er mjög stutt, tæp-
lega kílómetri á -lengd, og á því
miðju er laxastigi fram hjá háum
fossi. „Vatnsdalsá hefur komist í
200 laxa þegar skilyrði hafa verið
góð og er það mikil veiði á aðeins
eina dagsstöng. Síðast var slík
veiði 1993, en skilyrðin í sumar
hafa verið mjög erfið, kalt og enn
er mikill snjór í fjöllum. Að undan-
fömu hafa þó skilyrði batnað veru-
lega og það fór strax að kroppast
lax úr ánni. Ef haustið verður gott
gæti veiðin orðið mjög góð, því
margir hafa séð að talsvert er kom-
ið af laxi í Vatnsdalsvatn og mikið
af þeim laxi sem hefur veiðst að
undanförnu hefur verið nýgeng-
inn,“ sagði Ragnar í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Veiðisvæðið er víðara en að
framan er getið, góð silungsveiði
er og hefur verið í sumar í Vatns-
dalsvatni, bæði bleikja og mjög
vænn urriði og að auki rennur á í
Vatnsdalsvatn sem nær langt inn
í dal. Þar veiðist silungur, báðar
tegundir, og lax gengur þangað
síðsumars og fram á haustið.
SPÁNVERJARNIR Juan Arrue og Jose Celaya með fallega
morgunveiði á eina stöng úr Laxá á Asum fyrir nokkrum dögum.
Laxaskot í „Hítará 2“
Síðustu vikuna hafa 25 til 30
laxar veiðst á efra svæði Hítarár,
sem kallað hefur verið „Hítará 2“.
Flestir hafa veiðst í Gijótá, einni
af þveránum en einnig hefur lax
gengið og veiðst fyrir ofan Kattar-
foss í Hítará. „Þetta hafa verið 4-6
laxar á dag að undanfömu og menn
hafa orðið varir við talsvert líf. Það
hefur greinilega farið ganga upp
úr neðra svæðinu og gaman væri
ef framhald yrði á þessari veiði,“
sagði Bergur Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri SVFR, sem er með
svæðið á leigu. Mikil áraskipti em
af því hvað veiðist af laxi á svæð-
inu „Hítará 2“ og er skotið síðustu
daga sjálfsagt eðlilegt framhald á
því að meira hefur gengið og veiðst
af laxi á neðri svæðunum heldur
en um nokkurt árabil. Að öllu jöfnu
er svæðið gott silungsveiðisvæði og
sagði Bergur að milli 30 og 40 sil-
ungar hefðu verið færðir til bókar
í sumar.
Sá stærsti í 8 ár
Fyrir fáum dögum veiddist 20
punda hængur í Laxá í Leirár-
sveit. Veiðimaður vildi ekki láta
nafns getið, en agnið var flugan
„Green But“ númer 12 og veiði-
staðurinn var Breiðan, þar sem
Laxá hefur göngu sína úr Eyrar-
vatni. Að sögn leiðsögumanna við
Laxá eru átta ár síðan að 20 punda
múrinn var rofinn í ánni, en síðast
þegar lax af þessari stærðargráðu
veiddist voru þeir reyndar tveir og
báðir 21 pund.
ÁRNI Sigfússon og Þráinn Hallgrímsson að lokinni undirskrift
samnings um rekstur Málaskólans Mímis.
T ómstundaskólinn
tekur við Mími
TÓMSTUNDASKÓLINN hefur
tekið við Málaskólanum Mími, sem
Stjórnunarfélag íslands hefur rek-
ið síðan 1984. Skólann stofnaði
Einar Pálsson árið 1947. Á þriðja
hundrað nemendur stunduðu nám
í ensku, þýsku og spænsku á síð-
asta námsári.
Málaskólinn Mímir flytur í
Gamla Stýrimannaskólann að
Öldugötu 23. Fjögur tungumál
verða í boði í skólanum í vetur.
Hilda Torres mun kenna spænsku,
Reiner Santuar þýsku, Peter
Chadwick ensku og Ánn Siguijóns-
son mun kenna frönsku.
Reykblys
hreinsuð af
Skjaldbreið
REYKBLYS sem fundust við gíg-
inn í Skjaldbreið fyrir skömmu til-
heyra björgunarþyrlusveit varn-
arliðsins. Áhöfn þyrlu varnarliðs-
ins hreinsaði upp afganga af blys-
unum í gærmorgun, að ósk varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins.
Samkvæmt upplýsingum vam-
arliðsins er um að ræða sjálf-
íkveikjandi reykblys sem notuð eru
af björgunarsveit varnarliðsins.
Blysunum er kastað út úr þyrlum
til að kanna vindátt áður en lent
er og eru þau hættulaus með öllu.
Umrædd blys glötuðust sl. vetur
á björgunaræfingum. Þau sukku
í fönn og því kviknaði ekki á þeim
öllum er þau snertu jörðu.
'---♦—♦—♦----
Launavísi-
talan hækkar
LAUNAVÍSITALAN hækkar um
0,1% frá fyrra mánuði samkvæmt
útreikningum Hagstofunnar.
Vísitalan er 139,7 stig og er
þá miðað við meðallaun í júlí. Sam-
svarandi launavísitala, sem gildir
við útreikning greiðslumarks fast-
eignaveðlána, er 3.055 stig í sept-
ember.