Morgunblaðið - 23.08.1995, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Bílaumferð í göngugötunni
Skoðanakönnun
meðal bæjarbúa?
Fíkni-
efnamál-
um hefur
fjölgað
FLEIRI fíkniefnamál hafa
komið til kasta rannsóknar-
lögreglunnar á Akureyri á
þessu ári miðað við á sama
tíma í fyrra, ekki síst nú í
sumar. Ef til vill má setja
þetta í samhengi við aukinn
ferðamannastraum en Daníel
Snorrason fulltrúi hjá rann-
sóknarlögreglunni vill ekki
gera mikið úr því en staðfest-
ir að um nokkra aukningu sé
að ræða í þessum málaflokki.
Skipt á skóm
Að undanförnu hefur borið
töluvert á þjófnaði úr stiga-
göngum ijölbýlishúsa og öðr-
um málum sem flokkast und-
ir smáþjófnaði. Oft eru það
vandaðir skór sem hverfa úr
skógeymslum og stundum
eru skóræflar skildir eftir í
staðinn. Þetta vandamál er
líka áberandi í íþróttahúsúm.
Daníel sagði að það væri
alltaf þó nokkuð um mál af
þessu tagi en hann greindi
þó ekki neina aukningu. Þessi
mál upplýsast sjaldan.
BRÉF verslunareigenda og hags-
munaaðila við göngugötuna á Ak-
ureyri um opnun götunnar fyrir bíla-
umferð varð að þverpólitísku hita-
máli í bæjarstjórn Akureyrar í gær.
Þótt málið hafi verið til umræðu um
nokkra hríð sáu flestir ef ekki allir
bæjarfuiltrúar ástæðu til að viðra
skoðanir sínar á bæjarstjórnarfund-
inum og ljóst er að þær skoðanir eru
skiptar. Bæjarráð hafði áður frestað
erindinu en af umræðunum í gær
að dæma er ekki ósennilegt að efnt
verði til skoðanakönnunar meðal
bæjarbúa.
Jakob Björnsson bæjarstjóri sagð-
ist vera fylgjandi því að láta skoða
það í bæjarkerfinu, með tilliti til
kostnaðar og fleiri þátta, hvort skyn-
samlegt væri að opna þennan hluta
Hafnarstrætis á ný fyrir bílaumferð.
Það var á honum að heyra að hann
væri hlynntur slíkri tilraun.
Gísli Bragi Hjartarson bæjarfull-
trúi Alþýðuflokks sagði að fyrst
vinna við reynslusveitarfélagið Ak-
ureyri væri farin af stað og það
væri eitt af markmiðum reynslu-
sveitarfélaga að gefa almenningi
kost á að koma nálægt ákvarðana-
töku þá væri lag að gera skoðana-
könnun meðal bæjarbúa á þessu
máli.
Heimir Ingimarsson bæjarfulltrúi
Alþýðubandalags sagði að slík skoð-
anakönnun þyrfti ef til vill að vera
alþjóðleg í Ijósi þess að erlendir
ferðamenn væru hvað mest áberandi
í göngugötunni á sumrin. Hann
fagnaði þó þeim lýðræðistilhneiging-
um sem kæmu fram í tillögu Gísla
Braga. Heimir kvaðst hafa vissa
samúð með verslunareigendum en
taldi það ekki hlutverk bæjaryfir-
valda að smala fólki í bæinn til að
versla. Kaupmenn hlytu að hafa
önnur ráð en að opna götuna fyrir
bílaumferð. Hann vildi frekar láta
gera göngugötuna hlýlegri. Sigrún
Sveinbjörnsdóttir flokkssystir hans
tók í sama streng og sagði það ekki
koma til greina að hleypa bílaumferð
á götuna, það væri skref aftur á
bak. Þvert á móti ætti að gera hana
vistlegri.
Oddur Halldórsson, Framsóknar-
flokki, kvaðst eindregið vilja opna
götuna fyrir bílaumferð. Það væri
skref áfram. Flokkssystir hans Sig-
fríður Þorsteinsdóttir forseti bæjar-
stjórnar sagði hins vegar að göngu-
gatan ætti fullan rétt á sér sem
göngugata og ekkert annað. Hún tók
vel í hugmyndina um skoðanakönn-
un.
Þórarinn B. Jónsson, Sjálfstæðis-
flokki, sagðist fagna erindi verslun-
areigenda og vonaðist til að því yrði
sinnt. Hann sagði ófremdarástand
ríkja í göngugötunni sjö mánuði árs-
ins.
Eftir fjörugar umræður um
göngugötuna tók Jakob Björnsson
aftur til máls og sagðist sammála
því að það mætti gera götuna í hjarta
bæjarins hlýlegri en hann taldi það
vart eyðileggja stemmninguna þótt
ein akrein eftir miðri götunni yrði
opnuð fyrir bílaumferð.
Bæjarstjórn afgreiddi ekki erindið
formlega þannig að málið er enn
opið fyrir frekari umræður og hugs-
anlega mun afgreiðslan koma til
kasta bæjarbúa sjálfra.
Mikið af
karfa að
undan-
förnu
NÆG vinna hefur verið í
frystihúsi Útgerðarfélags
Akureyringa hf. í sumar og
síðustu vikurnar er það karf-
inn sem hefur flætt um borð-
in. Á tímabili var gripið til
þess ráðs að hefja vinnslu
klukkan 4 á morgnana og
vinna fram á kvöld á tvískipt-
um vöktum.
Gunnar Aspar framleiðslu-
stjóri Útgerðarfélagsins sagði
að til að nýta til fulls þann
eina lausfrysti sem fyrir hendi
er hafi vöktum verið skipt
upp. Þá var vinnsla í gangi
nánast allan sólarhringinn en
núna er látið nægja að vinna
frá 7-17.
Að sögn Gunnars er karf-
inn enn í meirihluta og sjó-
menn hafi haldið að sér hönd-
um í ufsa- og ýsuveiðum.
Afli berst reglulega til
vinnslu, yfirleitt koma þrjú
skip inn í viku hverri en ann-
ars sagði Gunnar að tog-
ararnir væru iðulega á undan
áætlun núna því þeir væru
fljótir að fylla sig.
Morgunblaðið/Berglind H. Helgadóttir
Innlit
ÞÓRÐUR Jónasson EA var að
koma til Akureyrar úr rækjutúr
og ljósmyndarinn leit um borð
frá þessu óvenjulega sjónar-
horni.
XJtlit fyrir
vaxandi at-
vinnuleysi
Í BYRJUN ágúst voru 422 á at-
vinnuleysisskrá hjá Vinnumiðiunar-
skrifstofu Akureyrarbæjar, 167
karlar og 255 konur. Þetta er svip-
að og um sömu mánaðamót á síð-
asta ári þegar 425 voru á skrá.
Ástandið batnaði hins vegar tölu-
vert á milli mánaða en í byrjun júlí
voru 489 án atvinnu í bænum.
Fyrstu mánuði ársins voru að
jafnaði um 600 manns á atvinnu-
leysisskrá, mest 630 í mars. Síðan
hefur verið heldur bjartara yfir at-
vinnumálunum en þær upplýsingar
fengust hjá Vinnumiðlunarskrif-
stofunni að nú í ágúst hefði verið
töluvert um nýskráningar og útlit
væri fyrir vaxandi atvinnuleysi þeg-
ar sumarvinnu lyki í næsta mánuði.
Lausar stofur reist-
ar við bamaskólann
BÆJARSTJÓRN Akureyrar skóla ef miklar sveiflur yrðu á
samþykkti á fundi sínum í gær
að ganga til samninga við Pál
Alfreðsson á grundvelli tilboðs
hans í lausar kennslustofur við
Barnaskóla Akureyrar. Tilboð
Páls nemur 8,6 milljónum króna.
Samkvæmt úttekt tæknideild-
ar Akureyrarbæjar sem kynnt
var á bæjarstjórnarfundinum var
tilboð Páls Alfreðssonar talið
hagstæðast. Það gerir ráð fyrir
að ein laus stofa verði sett við
skólann 1. október næstkomandi
og önnur 1. júní 1996 ásamt
tengigangi.
Jakob Björnsson bæjarstjóri
sagði að búið hefði verið að
kanna kaup á notuðu húsnæði í
grennd skólans svo og leigu á
salarkynnum í Gagnfræðaskóla-
num. Báðar þessar lausnir voru
óheppilegar að mati skólanefnd-
ar og þótti heppilegast að byggja
færanlegar kennslustofur sem
þá væri hægt að fiytja á milli
fjölda nemenda.
Ófremdarástand
Valgerður Hrólfsdóttir velti
því fyrir sér hvers vegna menn
hefðu ekki séð þetta fyrir. Vitað
væri hvenær bömin fæddust og
hvenær þau yrðu sex ára og hún
taidi að komast hefði mátt fyrir
slík vandamál með framsýni í
stað þess að vera að þvælast til
og frá með lausar kennslustofur.
Ásta Sigurðardóttir formaður
skólanefndar sagði að erfítt
væri að sjá flutning barna milli
skólahverfa fyrir. Nú væru 17
deildir við Barnaskóla Akureyrar
í stað 15 á síðasta skólaári og
þetta hefði ekki verið ljóst fyrr
en í sumar. Ásta sagði að
ófremdarástand ríkti í húsnæðis-
málum grunnskólanna því fólk
mætti varla flytja á milli skóla-
hverfa án þess að vandræði
sköpuðust.
Háskólinn á Akureyri
Aðalskrifstofurn-
ar í Sólborgarhús
UNNIÐ er að lokafrágangi við aðalskrifstofur
Háskólans á Akureyri í Sólborgarhúsunum en
stefnt er að flutningi um næstu mánaðamót.
HÚSAKYNNI
hluta Sólborgarhús-
anna hafa verið end-
urinnréttuð fyrir
Háskólann á Akur-
eyri og þangað mun
skólinn flytja aðal-
skrifstofur sínar um
næstu mánaðamót.
Það rými sem þá
losnar í skólahúsinu
við Þingvallastræti
verður nýtt undir
skrifstofur fyrir
kennara sem ráðnir
hafa verið að skól-
anum.
Kennsla hefst í
Háskólanum á Akur-
eyri mánudaginn 28. ágúst næstkom-
andi. Þorsteinn sagði að 410-420
nemendur væru skráðir í nám eða
tæplega 10% fleiri en á síðasta skóla-
ári. Kennt er í fjórum deildum, heil-
brigðisdeild, kennaradeild, rekstrar-
deild og sjávarútvegsdeild.
Álitamál um innritunargjöld
Innritunargjöld í Háskóla íslands
hafa verið talsvert í sviðsljósinu og
sérstaklega sá þáttur að hluti þeirra
skuli renna til Stúdentaráðs. Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
sagði á þingi SUS á Akureyri sl.
föstudag að það væri álit ráðuneytis-
ins að líta beri á Stúdentaráð sem
félag og samkvæmt stjórnarskránni
séu menn ekki skyldugir að vera í
félögum.
Innritunargjöld í Háskólanum á
Akureyri eru 23 þúsund krónur og
renna um 6 þúsund krónur beint til
nemendafélags skólans þannig að
hér er um hliðstæða innheimtu að
ræða og í Háskóla íslands. Aðspurð-'
ur um þetta mál sagði Þorsteinn að
Háskólinn á Akureyri hefði sent er-
indi til ráðuneytisins þess efnis að
innheimta gjaldanna fyrir komandi
skólaár yrði með sama hætti og á
síðasta skólaári og ekki hefðu borist
athugasemdir við það. Hins vegar
sagðist Þorsteinn ekki hafa fengið
formlega staðfestingu á þessu máli
frá menntamálaráðuneytinu.
Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson
ú
c;
€
c
€
I
Æ
4
C