Morgunblaðið - 23.08.1995, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
ERLENT
CARLSSON gengnr af blaðamannafundi þar sem hann greindi
frá því að hann hyggist láta af embætti í mars á næsta ári.
Carl um ESB-stefnu og afsögn Carlssons
„Svíar missa
nugið
Smygehuk. Morgxmblaðið.
UM LEIÐ og Carl Bildt, formaður
sænska Hægriflokksins, batt enda
á vikukosningatöm flokksins, sagði
hann að með stefnulausa jafnaðar-
menn við stýrið og forsætisráð-
herra, sem væri að segja af sér,
stæðu Svíar illa í Evrópusamstarf-
inu. Jafnaðarmenn hefðu mestan
áhuga á styrktarkerfum í stað al-
vöru atvinnutækifæra.
Afsögn Ingvars Carlssons er
helsta umræðuefni Svía þessa dag-
ana og Bildt kom einnig inn á hana
í samtali við nokkra blaðamenn á
syðsta odda Svíþjóðar. Hann sagði
það liggja í hlutarins eðli að slíkar
ákvarðanir kæmu alltaf á slæmum
tíma og því ekki hægt að gagnrýna
Carlsson fyrir að velja frekar tímann
núna en einhvem annan. Afsögnin
kæmi sér hins vegar ekki á óvart,
því Carlsson hefði alltaf sagt að
hann hygðist ekki vera í stjómmál-
um fram á elliárin, heldur vildi ná
að lifa lífinu líka.
Ekki gagnrýni á Carlsson
„Svíar missa flugið í ESB, bæði
vegna afsagnar Carlssons og
stefnuleysis jafnaðarmanna," sagði
Bildt, en það væri engin gagnrýni
á Carlsson, þótt hann héldi því fram.
Forsætisráðherra, sem væri á síð-
í ESB“
asta snúningi í embætti, gæti ekki
beitt sér á sama hátt og ella og það
væri einstaklega óheppilegt nú í
aðdraganda að ríkjaráðstefnu ESB
1996. Stefnuleysi jafnaðarmanna
kæmi fram í að kosningastefnuskrá
þeirra væri ekkert um veigamikil
atriði. Um aðild Svía að myntsam-
starfinu þegðu jafnaðarmenn þunnu
hljóði og sama væri að segja um
aðildina að Vestur-Evrópusamband-
inu.
Bildt sagði að atvinnumálastefna
jafnaðarmanna væri skuggaleg, þvi
um leið og ný skýrsla um sænska
atvinnustefnu hefði sýnt að hún
væri ekki aðeins gagnslaus, heldur
hreinlega héldi fólki frá vinnu,
stefndu sænskir jafnaðarmenn að
því að flytja þessa stefnu út til
ESB. Innan ESB væri þvert á móti
nauðsynlegt að stefna að afnámi
hafta til að auka vöxtinn, ekki að
koma á nýju og flóknu kerfi. ESB-
löndin höktu á eftir hagvaxtarsvæð-
um í Asíu og Bandaríkjunum og
Svíar höktu enn á eftir ESB-löndun-
um. Því hefðu Svíar enn meira að
vinna upp en hin löndin og hefðu
sérlega mikla þörf fyrir vöxt, sem
skapaði í raun ný atvinnutækifæri,
en væri ekki aðeins styrktar- og
stuðningskerfí.
Aukin iðnaðarframleiðsla
IÐNAÐARFRAMLEIÐSLA í
ríkjum Evrópusambandsins jókst
um 0,4% á tímabilinu mars til
maí miðað við fyrstu þijá mán-
uði ársins, að sögn hagtölustofn-
un sambandsins Eurostat.
Lítil sem engin aukning í
tveimur af stærstu aðildarríkjun-
um dró hins vegar heildina nið-
ur. Iðnaðarframleiðsla stóð í stað
í Þýskalandi og jókst einungis
um 0,1% í Bretlandi.
I Svíþjóð jókst hún hins vegar
um 3,2% og um 2,2% í Austurríki.
Vandamál í Svíþjóð
Sænskir sérfræðingar óttast
að erfiðlega muni ganga að fá
réttar hagtölur á þessu ári vegna
aðildar rikisins að ESB. Sænska
hagstofan, SCB, varð að skipta
um öll kerfi sem hún hefur notað
til þessa og taka í staðinn upp
kerfi sem sniðin eru að reglum
Evrópusambandsins.
Hefur þetta valdið því að tölur
um útflutning, sem liggja mörg-
um öðrum tölum til grundvallar,
eru mun seinna á ferðinni en
venjulega. Áður gaf SCB út tölur
um inn- og útflutning mánaðar-
lega en nú hefur stofnuninni
ekki einu sinni tekist að gefa út
tölur fyrir janúarmánuð. Því er
líklegt að allar hagspár í Svíþjóð
verði að endurskoða í október
en þá eiga réttar tölur loks að
liggja fyrir.
Fundi með Bonino aflýst
Bclgrað. Reuter.
EMMA Bonino, sem Islendingum
er kunnust fyrir að fara með sjávar-
útvegsmál í framkvæmdastjórn
ESB, er nú stödd í Serbíu, en hún
fer einnig með málefni hjálparstarfs
Evrópusambandsins og er í nafni
þess embættis í erindagjörðum í
fyrrverandi Júgóslavíu. Hún átti í
gær að hitta háttsetta fulltrúa serb-
nesku stjórnarinnar til að ræða
flutninga serbneskra flóttamanna
til Kosovo-héraðs, sem að meiri-
hluta til er byggt Albönum, en þeim
fundum var aflýst af hálfu Serba
án frekari útskýringa.
„Þetta var í fyrsta sinn á ferli
mínum sem erindreki hjálparstarfs
sem mér gafst ekki færi á að tala
við rétt staðaryfirvöld," sagði Bon-
ino fréttamönnum í gær.
Vitað er að nú þegar hefur 2.700
serbneskum flóttamönnum frá
Krajina-héraði í Króatíu verið kom-
ið fyrir i Kosovo, en íbúar þess
syðsta héraðs Serbíu eru að um níu
tíunduhlutum af albönsku þjóðerni.
tjttast er að aukinn straumur Serba
til Kosovo muni verða til þess að
spenna aukist þar til muna, sem
vart er þó á bætandi; óánægja með
stefnu serbneskra stjórnvalda í
Kosovo-héraði hefur kraumað með-
al albanskra íbúa þar um langt
skeið.
Alsírbúi yfirheyrður í Svíþjóð
Frakkar efla
öryggisgæslu
París. Reuter.
Yilja að
IRA af-
vopnist
MEIRIHLUTI íbúa Norður-
írlands er hlynntur því að írski
lýðveldisherinn (IRÁ) láti vopn
sín af hendi áður en stjórnmála-
armur IRA, Sinn Fein, fái aðild
að viðræðum um framtíð Norð-
ur-írlands. Kemur þetta fram
í skoðanakönnun, er birt var í
gær. Alls sögðust 65% vera
hlynnt því að Bretar stæðu fast
á þessari kröfu. Helmingur
kaþólikka á Norður-írlandi tel'-
ur hins vegar að leyfa eigi að-
ild Sinn Fein að viðræðunum
skilyrðislaust. Þá kom fram í
könnuninni að fjórðungur íbúa
óttast óeirðir í tilefni þess að
þann 1. september verður ár
liðið frá því IRA lýsti yfir
vopnahléi.
MiG-þota
hrapar
RÚSSNESKA sjónvarpið
skýrði í gær frá því að orrustu-
þota af gerðinni MiG-29 hefði
hrapað skammt frá borginni
Chita í Síberíu. Flugmaður þot-
unnar lést í slysinu en ekki
voru veittar frekari upplýsingar
um orsakir þess.
Aukin sala á
kampavíni
ALLS voru seldar 93,2 milljón-
ir flaskna af kampavíni í heim-
inum á fyrstu sex mánuðum
þessa árs og er það 4% sölu-
aukning frá því í fyrra.
Það er hins vegar töluvert í
að metið frá 1989 verði slegið
en þá voru seldar 250 milljónir
flaskna. „Eftir langt samdrátt-
arskeið virðist sem salan sé
loks að taka kipp,“ sagði Jean-
Luc Barbier, framkvæmda-
stjóri samtaka kampavínsfram-
leiðenda. Þrátt fyrir aukna sölu
hefur verð á kampavíni hins
vegar ekki hækkað að undan-
förnu.
FRANSKA lögreglan efldi öryggis-
gæslu sína í frönskum stórborgum í
gær eftir að meintur forsprakki
tireyfingar múslimskra öfgamanna í
Alsír var handtekinn í Stokkhólmi.
Tollverðir aðstoðuðu lögreglu-
menn, sem stöðvuðu ferðamenn og
leituðu að sprengjum í farangri
þeirra í helstu lestastöðvum landsins.
Lestafyrirtækið SNCF bannaði öll-
um, sem ekki höfðu keypt farmiða,
að fara á brautarpallana.
Fregnir hermdu að öryggisgæslan
væri mest við hraðlestir. Franska lög-
reglan hafði áður komið á viðamikilli
öryggisgæslu eftir tvö sprengjutilræði
sem urðu sjö manns að bana og særðu
100 í hjarta Parísar.
Viðbúnaðurinn var aukinn eftir að
skýrt var frá því að sænska lögregl-
an hefði handtekið Abdelkrim Denec-
he að beiðni franska rannsóknardóm-
arans Jean-Francois Ricard og yfir-
heyrt hann vegna sprengjutilræð-
anna. Franska lögreglan telur að
RÚSSNESKI þjóðernissinninn
Vladimír Zhírinovskíj var bros-
mildur þegar hann hitti kóreska
spámanninn Son Sok U í Moskvu
á mánudag. Vildi Zhírinovskíj
Deneche sé einn af forsprökkum
Vopnuðu múslimahreyfingarinnar
(GIA), herskáustu íslömsku hreyf-
ingarinnar í Alsír. Grunur leikur á
að hreyfingin hafí staðið fyrir
sprengjutilræðunum.
Sást stíga úr lestinni
Franska dagblaðið Le Monde sagði
að franska lögreglan teldi að Denec-
he væri Abdessabour, sem alsírska
dagblaðið La Tribune sakaði um að
hafa myrt klerkinn og skipulagt
sprengjutilræði í Frakklandi.
Blaðið sagði að nafn Deneche hefði
verið á póstkassa al-Ansar, íslamsks
fréttablaðs í Stokkhólmi sem hélt því
fram að alsírskir bókstafstrúarmenn
hefðu staðið fyrir sprengjutilræði í
neðanjarðarlest í París 25. júlí.
Franskir fjölmiðlar segja að lögreglu-
maður hafi borið kennsl á Deneche
sem órólegan mann er hann sá stíga
úr lestinni nokkrum sekúndum áður
en sprengjan sprakk.
fá spámanninn til að segja fyrir
um möguleika flokks þjóðernis-
sinnans í væntanlegum þing-
kosningum í Rússlandi. Engum
sögum fer af spádómnum.
Reuter
Spáð fyrir Zhírínovskíj
Allt að 80 Tsjetsjenar féllu í átökunum í Argun
Rússar vilja frek-
ari friðarviðræður
Moskvu. Reuter.
RÚSSAR sögðu í gær að fyrstu al-
varlegu átökin milli rússneskra her-
manna og tsjetsjenskra aðskilnaðar-
sinna í þrjár vikur merktu ekki að
allsheijarstríð væri yfirvofandi í
Tsjetsjníju. Haft var eftir Viktor
Tsjemomyrdín, forsætisráðherra
Rússlands, að Rússar vildu frekari
friðarviðræður við Tsjetsjena en
áskildu sér rétt til að refsa þeim sem
gerðust sekir um „ögranir".
Rússneskar hersveitir drápu 60-80
tsjetsjenska hermenn í áhlaupinu á
lögreglustöð í bænum Argun í
Tsjetsjníju á mánudag, að sögn rúss-
nesku fréttastofunnar Interfax.
Fréttastofan sagði að einn rússnesk-
ur hermaður hefði fallið og tólf særst
í fyrstu alvarlegu átökunum í hérað-
inu frá því samningur um hernaðar-
hlið Tsjetsjníju-deilunnar var undir-
ritaður 30. júlí. Aslan Maskhadov,
yfirmaður hers Tsjetsjena, kenndi í
gær Rússum um bardagana í Argun
og sagði að Tsjetsjenar neyddust til
að búa sig undir stríð gegn Rússum
ef þeir gripu til slíkra hernaðarað-
gerða að nýju.
Rússnesku hersveitirnar leituðu í
gær tsjetsjenskra hermanna, sem
komust undan í áhlaupinu í Argun.
Ekki kom til skotbardaga í bænum,
sem er skammt austan við Grosní.
Fréttastofan Itar-Tass sagði að
rússneskir hermenn hefðu orðið fyrir
tólf skotárásum á einum sólarhring
á öðrum stöðum í Tsjetsjníju. Tveir
hermenn hefðu fallið og 21 særst.
Um 250 tsjetsjenskir hermenn
náðu lögreglustöðinni í Árgun á sitt
vald á sunnudagskvöld. Ekki var ljóst
hvort Dzhokhar Dúdajev, leiðtogi
Tsjetsjníju, hefði heimilað árásina
eða hvort hún benti til klofnings í
röðum tsjetsjenskra aðskilnaðar-
sinna.
Dúdajev hafnaði hemaðarsamn-
ingnum í fyrstu en sagði á sunnudag
að hann vildi friðsamlega lausn á
deilunni. Alaudi Khamzatov, foringi
tsjetsjenska herliðsins í Argun,
kvaðst ekki hafa gert neitt rangt.
„Dúdajev skipaði mig yfirmann her-
liðsins og ég gerði aðeins skyldu
mína,“ sagði Khamzatov.
Hindra ekki friðarsamning'
Interfax sagði yið Tsjernomyrdín
hefði lofað að rússheska stjórnin og
Borís Jeltsín forseti héldu friðarvið-
ræðunum áfram og framfylgdu
samningnum um afvopnun tsjetsj-
enskra uppreisnarmanna. Sergej
Medvedev, fréttafulltrúi Jeltsíns,
sagði að bardagarnir í Argun torveld-
uðu frekari samningaumleitanir en
merktu ekki að allsheijarstríð myndi
skella á milli Rússa og Tsjetsjena.
„Það mun koma til slíkra ögrana,
þetta er ekki sú síðasta," sagði
Medvedev. „Þetta getur líka gerst
utan Tsjetsjníju. Slíkir hópar
100-200 manna geta vissulega valdið
miklum vanda. Við verðum að vera
harðir."