Morgunblaðið - 23.08.1995, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
LITLA rauðhærða stelpan er að Aprílgabb! Það er 4. júlí! Gildir einu ...
spyija eftir þér við dyrnar ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
DÆMIGERÐ mynd eyðingar
Askorun um meiri
gróðureyðingu
Frá Herdísi Þorvaldsdóttur:
HINN 16. ágúst barst á ljósvak-
anum sú frétt frá Bændasam-
tökunum að þar hafi verið sam-
þykkt að skora á ríkisstjórnina
að vinna ennþá meira að markaðs-
málum og út-
flutningi á kjöti
og að nýta betur
gróður landsins
til matvæla-
framleiðslu. Eru
þessir bændur
blindari en aðrir
landsmenn á það
sem er að gerast
í uppblæstri og
gróðureyðingu á
landinu okkar, eða eru stundar-
hagsmunir og skammsýnin slík,
að þeim er sama þó að jörðin
bókstaflega brenni undir fótum
þeirra? Hvað með þá kynslóð sem
tekur við af þeim?
í áraraðir borguðum við millj-
arða f niðurgreiðslur á útfluttu
kjöti vegna offramleiðslu. Verðið
sem fékkst fyrir það var varla
fyrir sláturkostnaði. Það var hætt
að greiða þessar útflutningsbætur
fyrir nokkrum árum og það varð
meðal annars til þess að SÍS fór
á hausinn sem hafði fengið millj-
arða fyrir geymslu á kjöti sem
síðan var nánast gefið (í hunda-
mat til útlanda). Við eigum ekki
einu sinni gróður handa því fé sem
við þurfum til innanlandsneyslu
án skaða fyrir landið, hvað þá ef
framleiðslan yrði aukin í taprekst-
ur á útflutningi. Þeir geta aldrei
borgað það sem framleiðslan
kostar hvað þá að afgangur yrði.
Allt fólk með viti veit að
minnka þarf kjötframleiðsluna en
ekki auka, bæði vegna kostnaðar
fyrir ríkissjóð, en ekki síst til að
koma í veg fyrir gróðureyðing-
una. í haust þarf að farga á þriðja
þúsund tonnum af óseljanlegu
kjöti og svona er þetta á hveiju
hausti. Þarna er í raun verið að
urða og brenna gróðri landsins
að óþörfu. Er hægt að horfa á
þetta ófremdarástand ógrátandi?
Það var löngu fyrirsjáanlegt
hvert stefndi í landbúnaðarmálum
en ekkert raunhæft var gert til
úrbóta. Vandanum var aðeins
velt á undan sér með eilífum
styrkjum sem átti að nota til að-
lögunar á breytingum á búskapar-
háttum. Þær voru aldrei fram-
kvæmdar vegna getuleysis ráða-
manna.
Hvað með landbúnaðarbáknið
sem allt er á launum hjá ríkis-
sjóði og hvaða aðstoð hafa svo
bændur fengið til úrbóta hjá millj-
arða landbúnaðarbákninu? Hug-
myndaflugið hjá þeim nær ekki
lengra en að gera kröfur um
meiri styrk úr ríkissjóði til að við-
halda óbreyttu vandræðaástandi
öllum til skaða.
Er einhver von til þess að ker-
fiskarlarnir fari að vakna af
svefninum langa og taka til hönd-
um, bændastéttinni og landinu til
bjargar?
Nú eru sem betur fer að koma
nýir og yngri menn í ýmsar
ábyrgðarstöður í þjóðfélaginu og
við þá bindum við von okkar um
betri tíð með blóm í haga.
HERDÍS ÞORVALDSDÓTTIR,
formaður gróðurverndarnefndar
Lífs og lands.
Herdís
Þorvaldsdóttir
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.