Morgunblaðið - 23.08.1995, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995 33
BREF TIL BLAÐSIIMS
Öryggisbúnaður - Sparnaður
fyrir heilbrigðiskerfið
Frá Skarphéðni Hinrik Einarssyni:
NU gerist æ algengara að í viðbót
við beltin séu bílar búnir líknar-
belgjum, sem komið er fyrir í
stýrishjóli ökumannsmegin, en
fyrir ofan hanskahólf farþegameg-
in. Verði bíllinn fyrir höggi af
ákveðnum þunga spretta þessir
belgir upp á sekúndubroti og grípa
ökumann og farþega, sem þá ná
ekki að slengjast á framrúðu, stýr-
ishjól eða mælaborð. Líknarbel-
girnir afstýra þannig stórfelldum
meiðslum á höfði og efri hluta lík-
amans.
Fram undir þetta hafa líknar-
belgir einkum verið aukabúnaður,
sem kaupendur hafa geta valið í
bíla sína eða hafnað. Nú eru þeir
í vaxandi mæli orðinn fastur hluti
af búnaði bílsins.
Um það er ekki deilt að þessi
búnaður sparar heilbrigðiskerfínu
stórfé með því að draga úr meiðsl-
um í umferðaróhöppum eða jafn-
vel afstýra þeim alveg. Það sést
glöggt þegar haft er í huga að
maður sem neyðist til að liggja á
spítala í eina viku kostar heilbrigð-
isþjónustuna milljónarfjórðung,
lauslega áætlað. Höfuð- og bijóst-
holsáverkar taka þó oft mun lengri
tíma en eina viku.
í löndunum í kringum okkur
hafa stjórnvöld gripið þennan
möguleika til sparnaðar í heil-
brigðiskerfinu tveim höndum og
beinlínis hvetja til þess að hann sé
í öllum nýjum bílum, með því að
gefa afslátt af aðflutningsgjöldum
bíla með líknarbelgjum, sem nem-
ur áætluðu verði belgjanna. í Dan-
mörku nemur þessi afsláttur núna
7.600 Dkr. (88 þús. Jkr.) fyrir
hvem líknarbelg í bíl. í Noregi er
hann 5.075 Nkr. (51.700 íkr) fyr-
ir hvern líknarbelg í bíl.
Hér á landi hefur mikið verið
talað um nauðsyn þess að spara í
heilbrigðiskerfínu. En hér er enginn
afsláttur veittur af þessuin búnaði,
sem augljóslega á þó eftir að spara
fé og sársauka. Þvert á móti verð-
ur að greiða sömu aðflutningsgjöld
af kostnaðarverði líknarbelgjanna
og af bflnum í heild.
Sömu sögu er að segja um læsi-
varða hemla, sem eru mikilsverður
öryggisbúnaður þar sem þeir gera
ökumanni kleift að stýra bílnum
jafnhliða nauðhemlum, sem þýðir
að menn missa miklu síður vald á
bílum sínum þó þeir þurfi að hemla
snögglega við slæmar aðstæður. í
grannlöndum okkar er veittur af-
sláttur sem nemur aukakostnaði
af læsivörðum hemlum, hér eru
þeir tollaðir í topp.
SKARPHÉÐINN HINRIK
EINARSSON,
Njarðvík.
ATVINNU/u A :/ YSINGAR
Bar i' Lúxemburg
óskar eftir vönum, heiðarlegum og röskum
starfskrafti í vinnu strax. Húsnæði á staðn-
um. Viðkomandi þarf að vera 25-35 ára og
hafa einhverja kunnáttu í ensku, frönsku eða
þýsku. Meðmæli og mynd fylgi.
Svör leggist inn á afgreiðslu Mbl., merkt:
„Bar - 8265“, fyrir 26. ágúst.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Rafmagns verk-
og tæknifræðingar
Iðnskólinn í Reykjavík vill ráða verkfræðinga
eða tæknifræðinga til kennslu í fjarskipta-
og tölvugreinum.
Umsóknir berist skólanum fyrir 28. ágúst.
Nánari upplýsingar gefa áfangastjóri
og kennslustjóri í síma 552-6240.
Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra, Reykjavík
Lausar stöður
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík
auglýsir eftirtaldar stöður lausar til
umsóknar:
1. ForstÖðumaður á sambýli, þar sem búa
6 fatlaðir í tveimur íbúðum. Staðan veitist
frá 15. september nk. Upplýsingar gefur
forstöðumaður milli kl. 9 og 12 virka daga
í síma 568-9554.
2. Forstöðumaður á nýtt sambýli fyrir 5 fatl-
aða, sem mun taka til starfa á næsta
ári. Leitað er að fagaðila sem er reiðubú-
inn að vinna undir handleiðslu og stjórn
sérfræðinga í atferlismótun. Viðkomandi
þarf að geta tekið þátt í undirbúnings-
vinnu vegna stofnsetningarinnar nú þegar
í tímavinnu.
3. Forstöðumaður á nýtt samþýli fyrir 5 fatl-
aða. Staðan veitist frá 1. október eða
eftir nánara samkomulagi. Viðkomandi
þarf að geta tekið þátt í undirbúnings-
vinnu nú þegar í tímavinnu.
4. Stuðningsfulltrúi á nýja dagvist fyrir fatl-
aða. Staðan veitist frá 15. september.
Upplýsingar gefur forstöðumaður milli
kl. 9 og 12 virka daga í síma 562-1388.
Áskilið er að umsækjendur hafi menntun og
reynslu á sviði uppeldis og fatlana.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri
í síma 562-1388.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, berist til Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra, Nóatúni 17, 105 Reykjavík,
fyrir 1. september nk. Umsóknareyðublöð
liggja frammi á skrifstofunni.
Fiskvinnsla
Starfsfólk óskast í snyrtingu og pökkun.
Símar 456-6105 og 456-6107.
Kennarar - fallegt umhverf i á
Barðaströnd
Birkimelsskóli
Fiskiðjan Freyja,
Súgandafirði.
„Au pair“ Þýskaland
íslensk/þýsk fjölskylda, búsett í nágrenni
Múnchen, óskar eftir ábyggilegri „au pair“
frá hausti til sumars.
Upplýsingar í síma 551 5727 fyrir 3. septem-
ber og eftir það í síma 0049813196879.
Starfskraftar
óskast í eftirtalin störf:
Afgreiðslu fyrir og eftir hádegi, barnagæslu
fyrir og eftir hádegi og þrif frá kl. 18.00.
Upplýsingar sendist afgreiðslu Mbl. fyrir
28. ágúst, merktar: „Hress - 25“.
Offsetprentarar
Óskum að ráða offsetprentara til framtíðar-
starfa sem fyrst. Þarf að vera vanur 4-lita
prentvél, tölvustýrðri. Vandvirkni, metnaður
og stundvísi er áskilin.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 562-7233,
Guðjón.
Þverholt 13 Sími 562 72 33 • Fax 562 72 15
Veitingastaður
Óskum eftir að ráða duglegt og ábyggilegt
fólk, 20 ára og eldra, á veitingastað IKEA í
versluninni við Holtagarða. Almennt af-
greiðslustarf er í boði á veitingastað, hreinsa
af borðum, uppvask o.s.frv. Viðkomandi þurfa
að geta hafið störf sem fyrst.
Umsókn, merkt: „Veitingastaður", með upp-
lýsingum um menntun og fyrri störf, skal
senda til IKEA, Holtagörðum, eigi síðar en
26. ágúst 1995.
- fyrir fólkið í landinu
Holtagörðum - sími 568-6650.
Hefur þú áhuga á að starfa úti á landi?
Birkimelsskóli er lítill sveitaskóli, sem vantar
kennara í 1.-10. bekk.
Almenn kennsla með áherslu á íslensku.
Birkimelsskóli er á Barðaströnd við norðan-
verðan Breiðafjörð í friðsælu og fallegu um-
hverfi. Við bjóðum nýjan kennara velkominn
með flutningsstyrk, húsnæðishlunnindum og
góðu starfsumhverfi.
Umsóknarfrestur er til 27. ágúst.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í símum
456-2028 og 456-2025 heimasími,
fax 456-2030.
KENI
ISLANDS Baðvörður
Kennaraháskóli íslands óskar að ráða bað-
vörð í kvennaböð í íþróttahúsi skólans frá
1. september. Vinnutími er frá kl. 8-16 í níu
mánuði á ári og er íþróttahúsið lokað
á sumrin.
Umskóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, óskast sendar á skrif-
stofu skólans fyrir 29. ágúst nk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum
opinberra starfsmanna.
Markaðsstarf
Opinbert fyrirtæki óskar að ráða starfsmann
til að sinna markaðsmálum.
Starfið
Bein markaðssetning með kynningum til
opinberra fyrirtækja, gerð markaðsáætlana
og markaðskannana, ásamt þátttöku í
stefnumótun fyrirtækisins.
Hæfniskröfur
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur frum-
kvæði og þekkingu til að byggja upp árang-
ursríkt og öflugt markaðsstarf, er skipulagð-
ur í starfi og hefur góða framkomu.
Reynsla af markaðsstarfi æskileg en ekki
skilyrði.
Um er að ræða áhugavert starf fyrir metn-
aðarfullan einstakling í góðu umhverfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Auður
Bjarnadóttir frá kl. 9-12.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs
á eyðublöðum er þar liggja frammi merktar:
„Markaðsstarf" fyrir 26. ágúst nk.
Vegna mistaka Morgunblaðsins kom merki
Vegagerðarinnar fyrir í haus þessarar aug-
lýsingar sl. sunnudag. Auglýsing þessi er
Vegagerðinni með öllu óviðkomandi.
RÆX3ARÐURM
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
FURUGERÐI 5 108 REYKJAVÍK ® 533 1800