Morgunblaðið - 23.08.1995, Blaðsíða 44
L#T¥#
alltaf á
Miðvikudögnm
wgnutfrliifrifr |ip
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUaCENTRUM.lS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 23. AGUST 1995
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Góður afli 1 Smugunni
Mánaberg heim
meðmetafla
MÁNABERGIÐ frá Ólafsvík er væntanlegt til hafnar á föstudag með
mesta afla sem komið hefur til lands í ár úr Smugunni, 337 tonn af full-
unnum þorski. í fyrra fékk Snæfugl SU svipað aflamagn eða um 7 tonn-
um minna, en verðmætið' var þá einnig um 80 milljónir króna.
Að sögn Bjöms Kjartanssonar
skipstjóra fékk Mánabergið um 800
tonn af þorski upp úr sjó, en fiskur-
inn er fullunninn og frystur um borð
Stöðugt
, verð á
loðnumjöli
VERÐ á loðnumjöli er nokkuð stöð-
ugt um þessar mundir og hærra en
á sama tíma í fyrra. Lýsisverðið er
mjög hátt. Markaðurinn er sveiflu-
kenndur og fljótur að bregðast við
góðum afia eða aflabresti. Ef íslensk-
um loðnuskipstjórum tekst að finna
loðnu og veiðar hefjast um næstu
mánaðamót gæti lýsisverð lækkað
■«*>en verði bið á að loðnuveiðar hefjist
gæti mjölverðið hækkað.
íslensku loðnuverksmiðjumar
hafa selt mikið af mjöli til Danmerk-
ur og nánast tekið yfir þann mark-
að, þrátt fyrir öflugan danskan fiski-
mjölsiðnað. Danskt mjöl er hins veg-
ar mikið selt til Kína.
Sólveig Sámúelsdóttir, markaðs-
stjóri SR-mjöls, segir að verðið sé
hátt núna vegna þess hve lítið hefur
veiðst í sumar. En það geti breyst á
stuttum tíma. Framboðið frá íslandi
hafi afgerandi áhrif á markaðinn og
ef loðnan fari að veiðast um mánaða-
mótin megi búast við góðri lýsisnýt-
ingu. Hún segir að þá megi búast
við verðlækkun því margir kaupend-
-^ir séu búnir að skipta yfir í aðra
olíu og það taki þá einhvern tíma
að breyta aftur þegar þeir eigi aftur
kost á lýsi á samkeppnishæfu verði.
■ Markaðurinn bíður/lOB
-----♦---------
Erlendir
ferðamenn
eyða meiru
GJALDEYRISTEKJUR af ferða-
þjónustu fyrstu sex mánuði ársins
■voru rúmlega 1,5 milljörðum hærri
en á sama tímabili í fyrra, samkvæmt
upplýsingum frá Seðlabanka íslands.
Gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu
námu 7.685 milljónum króna á fyrri
helmingi ársins, en 6.137 milljónum
á sama tíma í fyrra. Þannig hækk-
uðu tekjurnar um 25%, en erlendum
gestum fjölgaði um 4%. Meðaltekjur
af hverjum gesti hækkuðu um 20%,
voru 100.689 krónur á mann í ár
miðað við 83.777 krónur árið 1994.
íslendingar á réttri leið
„Þessar tölur eru óneitanlega
glæsilegar og sýna að við Islendingar
erum á réttri leið í ferðaþjón-
ustunni,“ sagði Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra í samtali við Morgun-
blaðið. „Forsendan er auðvitað sú
að hér ríkir mikill stöðugleiki í efna-
hagslifinu og verðbólgan er minni
en víðast hvar annars staðar, sem
aftur bætir rekstrarumhverfi ferða-
þjónustunnar frá ári til árs.“
og er þannig 337 tonn. Talið er að
verðmæti aflans nemi um 80 milljón-
um og hásetahlutur verði nálægt 800
þúsund krónum.
Mánabergið var við veiðar í Bar-
entshafi í fjórar vikur. Væntanlega
verður stoppað í sex daga í landi og
þá verður haldið aftur í Smuguna.
Snæfugl SU fékk í Smugunni í
fyrra um 80 milljóna aflaverðmæti í
einum túr og kom að landi með 330
tonn af flökum. Það samsvaraði um
790 tonnum af þorski úr sjó og var
þá nær tvöfaldur árskvóti Snæfugls-
ins af þorski í íslenskri landhelgi.
Sú veiðiferð stóð í 36 daga, en þar
af fóru 9 sólarhringar í siglingu á
miðin og heim.
Skútunni Söru snúið við suður af Selvogi
Fariðmeðmálið
sem þjófnaðarmál
VARÐSKIPIÐ Ægir stöðvaði segl-
skútuna Söru í gær, en henni var
stolið úr Reykjavíkurhöfn aðfara-
nótt mánudags. Skútan var þá
stödd 69 sjómílur suður af Sel-
vogi. Um borð voru tveir menn
og er annar þeirra fyrrum eigandi
skútunnar, en hún var seld á upp-
boði fyrir þremur árum. Ægir
kemur með skútuna til Reykjavík-
ur í dag.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
reglumaður hjá RLR, sagði að
farið yrði með þetta mál eins og
hvert annað þjófnaðarmál. Allt
benti til að um kláran þjófnað
væri að ræða.
Lögregluaðgerð
Hörður sagðist ekki vita hver
kæmi til með að bera kostnað af
ferð varðskipsins, en hann benti
á að það væri hlutverk Landhelg-
isgæslunnar að halda uppi lögum
og reglu á hafinu kringum ísland.
I því ljósi yrði að líta á ferð Ægis
eins og hveija aðra lögregluað-
gerð.
Maðurinn, sem telur sig eiga
skútuna, er Frakki, Mathieu Mor-
verand að nafni. Hann kom til
íslands árið 1990 eftir að hafa
lent í hrakningum á skútunni við
England. Tollsljórinn í Reykjavík
seldi skútuna á uppboði tveimur
árum síðar. Morverand hefur alla
tíð verið mjög ósáttur við þá að-
gerð, að því er móðir hans sagði
í samtali við Morgunblaðið. Hún
sagði að hann hefði ítrekað reynt
að fá skútuna afhenta og í því
skyni leitað aðstoðar íslenskra
yfirvalda. Að lokum hefði hann
tekið þá ákvörðun að fara til ís-
lands og sigla henni til Frakk-
lands. Hann hefði gripið til þess-
ara aðgerða í andstöðu við vilja
foreldranna.
Akureyri
Deilur um
göngugötu
FJÖRUGAR umræður urðu í
bæjarstjórn Akureyrar í gær
um það hvort opna ætti
göngugötuna í hjarta bæjar-
ins fyrir bílaumferð eins og
verslunareigendur hafa ósk-
að. Fylkingar meirihluta og
minnihluta riðluðust og skoð-
anir voru mjög skiptar. Af-
greiðslu málsins var hins veg-
ar frestað.
Athygli vakti hugmynd
Gísla Braga Hjartarsonar,
bæjarfulltrúa Alþýðuflokks,
um að efna til skoðanakönn-
unar meðal bæjarbúa um
þetta mál þar eð ekki væri
víst að kjörnir bæjarfulltrúar
á hveijum tíma væru endilega
réttir aðilar til að útkljá það.
Þessi hugmynd fékk nokkurn
hljómgrunn.
Bílaumferð/12
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
VARÐSKIPIÐ Ægir kom að Söru um kl. 12 í gær um 69 sjómílur suður af Selvogi. Varðskipsmenn
fóru á báti út að skútunni og stöðvuðu ferð Frakkanna. Þeir sýndu engan mótþróa.
Borgarstjóri útilokar ekki eins milljarðs halla á borgarsjóði
Minnsti halli í fimm ár
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir
vel geta farið svo að halli borgarsjóðs nemi um
einum milljarði króna á þessu ári, eins og borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lýst yfir að
stefni í. Allar stofnanir borgarinnar séu hins veg-
ar að áætla útkomu sína um þessar mundir og
því verði ekki hægt að slá neinum tölum föstum
fyrr en í byijun næsta mánaðar.
„Við vitum þó að talsverður aukakostnaður
hefur orðið vegna kjarasamninga, sumarvinnu
skólafólks, átaksverkefna o.fl. sem stofnanir borg-
arinnar hafa þurft að bregðast við á árinu," segir
Ingibjörg Sólrún.
Hún segir hins vegar ljóst að fari svo að hallinn
nái einum milljarði króna, sem sé varla viðunandi
og ótímabært að meta á þessari stundu, verði hann
þrátt fyrir allt lægsti halli á borgarsjóði síðan 1990.
„Hallinn á borgarsjóði var 1,6 milljarðar árið 1991,
tæpir 2 milljarðar árið 1992, um 2,7 milljarðar
árið 1993 og 3,2 milljarðar árið 1994. Þarna er
um tölulega viðmiðun að ræða en ekki einu sinni
framreiknaðar tölur,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Halli virðist innbyggður
Aðspurð um aðrar skýringar en áður eru nefnd-
ar minnir Ingibjörg Sólrún á að tekjur borgarinn-
ar hafi dregist saman á sama tíma og rekstrar-
kostnaður hafi aukist verulega.
„Auðvitað kýs ég að hallinn verði minni og að
hann fari ekki svo langt fram úr áætluðum hálla
í ijárhagsáætlun borgarinnar, sem nam um 180
milljónum króna. Það þarf að ná hallanum niður
og við þurfum sérstaklega að velta fyrir okkur
hvort halli sé orðinn innbyggður í fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar, þegar við lítum á forsöguna.
Margar stofnanir virðast fara 5% fram úr áætl-
un og það eru þær sömu og á síðasta ári, sem
bendir til innbyggðrar skekkju sem þarf að takast
á við í næstu fjárhagsáætlun. Þetta er orðin ein-
hvers konar eilífðarvél að hluta til sem þarf að
reyna að stöðva."
Forstöðumenn borgarstofnana fengu frest
þangað til í gær til að skila útreikningum á fjár-
hagsstöðu, en borgarstjóri segir viðbúið að vegna
sumarleyfa dragist sú vinna iítillega.