Morgunblaðið - 06.09.1995, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B/C/D
201. TBL. 83.ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Kj araorkutilraunir
hafnar við Mururoa
París. Reuter.
FRAKKAR tilkynntu í gærkvöldi að
þeir hefðu framkvæmt kjarnorkutil-
raun neðansjávar við Mururoa í Suð-
ur-Kyrrahafi. Var kraftur spreng-
ingarinnar um 20 kílótonn. Hún er
sú fyrsta í röð tilraunasprenginga
sem Frakkar hyggjast framkvæma
í vetur.
Áætlun Frakka um kjarnorkutil-
raunirnar hefur mætt geysilegri
andstöðu víða um heim og í gær
léði Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, máls á því að Frakkar kynnu
að fækka fyrirhuguðum tilraunum
og hætta fyrr en áætlað var.
Grænfriðungar lýstu því yfir í
gærkvöldi að tilraunasprenging
Frakka væri óhæfuverk og „alger-
lega óásættanleg". Sögðu samtök
grænfriðunga á Nýja-Sjálandi að
með þessu hefði Chirac ritað nafn
sitt í sögubækur sem „alger glæpa-
maður í stjórnmálum og umhverfis-
málum“.
Bandarísk stjórnvöld hörmuðu
ákvörðun Frakka en sögðu jafnframt
að hún myndi ekki verða til þess að
þau féllu frá því að fresta eigin
kjarnorkutilraunum að sögn hátt-
setts embættismanns. Þá hafa Ástr-
alir fordæmt kjarnorkutilraunina.
■ Chirac ljær máls/16
Hillary Clinton flutti harðorða ræðu á kvennaráðstefnimni í Kína
Fagnað
sem mál-
svara
kvenna
Peking. Reuter.
HILLARY Rodham Clinton, for-
setafrú Bandaríkjanna, fór í gær
hörðum orðum um ríki, sem þving-
uðu konur til fóstureyðinga og
ófijósemisaðgerða, og var skeytun-
um augljóslega beint gegn kín-
verskum stjórnvöldum fyrst og
fremst þótt hún nefndi þau ekki á
nafn. Var ræðu hennar, sem hún
flutti á fyrsta eiginlega starfsdegi
fjórðu alþjóðakvennaráðstefnunnar,
vel fagnað en hún gagnrýndi einn-
ig, að þátttakendum í óháðu
kvennaráðstefnunni, sem haldin er
utan Peking, skuli vera meinað fullt
tjáningarfrelsi.
Hillary sagði í ræðu sinni, að
konur og karlar ættu að geta gert
sínar fjölskylduáætlanir án þving-
unar og ofbeldis, einkum þess, sem
fælist í fóstureyðingum og ófijó-
semisaðgerðum gegn vilja konunn-
ar. Var þessum orðum hennar vel
fagnað en ræðu hennar hafði verið
beðið með nokkurri eftirvæntingu
og forvitni um hve opinská hún
yrði með tilliti til stirðra samskipta
Bandaríkjanna og Kína. í Banda-
ríkjunum hafa einnig ýmis mann-
réttindasamtök gagnrýnt Hillary
fyrir Kínaferðina.
HILLARY Clinton ávarpar kvennaráðstefnu SÞ
Reuter
Peking í gær.
Reuter
Eiginkonur
knýja á um
lausn gísla
EIGINKONUR og unnustur gísl-
anna fjögurra sem uppreisnar-
menn halda í Kasmír, skoruðu í
gær á þá að láta mennina lausa
og sögðu að því meir sem málið
drægist á Ianginn, þeim mun
minni samúðar nyti málstaður
uppreisnarmanna á Vesturlönd-
um. Konurnar eru komnar til
Nýju-Delhi á Indlandi þar sem
þær héldu fréttamannafund í
gær. Lýstu þær yfir áhyggjum
sínum vegna frétta um að við-
ræður indverskra yfirvalda og
uppreisnarmanna hefðu farið út
um þúfur en talsmenn stjórn-
valda í Jammu og Kasmír full-
yrtu að viðræðum væri haldið
áfram. Þjóðveijinn Dirk Hasert,
Bandaríkjamaðurinn Donald
Hutchins og Bretarnir Paul
Wells og Keith Mangan hafa nú
verið í haldi á þriðja mánuð.
Á myndinni eru f.v.: Catherine
Mosley, Anne Henneg, Jane
Schelley og Julie Mangan.
Afganistan
Skæru-
liðar ná
Herat á
sitt vald
Islamabad. Reuter.
ÍSLAMSKA rétttrúnaðarhreyfingin
Taleban náði í gær á sitt vald borg-
inni Herat í vesturhluta Afganist-
ans. Sökuðu afgönsk stjórnvöld
Pakistani um að standa að baki
baráttu andstæðinga stjórnvalda.
Pakistanir vísuðu þessum ásökun-
um á bug í gær og sögðust ekki
fylgja neinni ákveðinni fylkingu að
málum í Afganistan.
Fall Herats er mikið áfall fyrir
stjórn Burhanuddin Rabbanis sem
hefur haldið borginni frá árinu 1992
er stjórn kommúnista í Kabúl féll.
Náðu borginni
án átaka
Að sögn eins starfsmanns Sam-
einuðu þjóðanna þurftu liðsmenn
Taleban vart að hleypa af einu ein-
asta skoti er borgin féll. Ekki er
vitað um mannfall. Taleban náði á
sunnudag næststærsta flugvelli
landsins í Shindand á sitt vald.
í gær var haft eftir starfsmönn-
um erlendra hjálparstofnana, að
hersveitir hliðhollar Abdul Rashid
Dostum fari nú um Badghis-hérað
og hafi náð bænum Kale Now á
sitt vald, auk þess sem þeir hafi
rofið vegasamband Herat við ná-
grannaríkið Túrkmenistan.
Leiðtogafundi um
N-Irland frestað
Dyflinni. Reuter.
BRESK og írsk yfirvöld slógu í
gær á frest mikilvægum fundi leið-
toga landanna um Norður-írland,
sem hefjast átti skammt frá Lond-
on í dag.
Fundinum var frestað vegna
ósættis um hvernig ætti að leysa
þann hnút sem viðræður um frið
á Norður-írlandi eru komnar í.
Að sögn írskra embættismanna
er deilt um hvernig boða eigi til
friðarviðræðna allra flokka og
kröfur um afvopnum írska lýð-
veldishersins og mótmælenda.
Lagði John Bruton, forsætisráð-
herra Irlands, til að fundinum yrði
frestað og féllst John Major, for-
sætisráðherra Bretlands, á það.
NATO og SÞ hefja loftárásir að nýju á stöðvar Bosníu-Serba nærri Sarajevo
Rússar for-
dæma árásir
Tjáningarfrelsi skert
Hillary gagnrýndi einnig, að kon-
um á óháðu kvennaráðstefnunni í
borginni Huairou, sem er nokkuð
fyrir utan Peking, skyldi ekki hafa
verið leyfð þátttaka í kvennaráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna og
sagði, að tjáningarfrelsi þeirra væri
skert með ýmsum hætti. „Frelsi
felst í rétti fólks til að koma saman
og láta í ljós skoðanir sínar,“ sagði
Hillary.
Hillary ætlar að ávarpa óopin-
beru ráðstefnuna í dag en hana
sækja 25.000 konur. Fögnuðu þær
sérstaklega ræðu hennar í gær og
margar telja sig sjá í Hillary öflug-
an talsmann kvenna um heim allan
á næstu árum hvort sem hún verð-
ur lengur eða skemur til heimilis í
Hvíta húsinu í Washington.
Sarajevo, París, Belgrad. Reuter.
HERIR Atlantshafsbandalagsins,
NATO, og Sameinuðu þjóðanna,
SÞ, hófu í gær að nýju loftárásir á
stöðvar Bosníu-Serba eftir fjögurra
daga hlé. Er ætlunin að íjúfa um-
sátur þeirra um Sarajevo og sögðu
talsmenn SÞ að árásuhum yrði
haldið áfranv þar til þungavopnin
hafi verið flutt á brott. Að sögn
talsmanna NATO var ákveðið að
láta til skarar skríða þar sem Bosn- •
íu-Serbar hefðu ekki gengið að skil-
yrðum SÞ um að flytja þungavopn
úr skotfæri við Sarajevo.
Leiðtogar á Vesturlöndum hafa
lýst yfir stuðningi sínum við aðgerð-
irnar en Rússar fordæmdu hins
vegar loftárásir í „hegningarskyni"
sem hafi skipað NATO á bekk með
þeim stríðsaðilanuni sem sé að
reyna vinna sigur á Serbum. Kváð-
ust þeir óttast áhrif loftárásanna á
fyrirhugaðar friðarviðræður í Genf
og kröfðust þess að þeim yrði hætt
nú þegar. Arásirnar hefðu verið
gerðar þrátt fyrir jákvæð viðbrögð
Serba við kröfum SÞ um að aflétta
umsátrinu um Sarajevo.
íbúar borgarinnar og bosnísk
stjórnvöld lýstu í gær ánægju sinni
með loftárásirnar.
Tólf aðildarþjóðir NATO tóku
þátt í aðgerðunum gegn Bosníu-
Serbum. Loftárásirnar hafa verið
gerðar á vígi Serba umhverfis
Sarajevo, á herskála þeirra í
Lukavica, Dobrinja-úthverfið í
Sarajevo, vopnabúr og flutninga-
leiðir Serba. Þá sökuðu þeit' NATO
um að hafa sprengt í loft upp vatns-
dælustöð í úthverfi Sarajevo sem
hafi séð óbreyttum borgurum fyrir
vatni.
Skömmu áður en loftárásirnar
hófust varaði Ratko Mladic, yfir-
maður hers Bosníu-Serba, við því
að yrði á þá ráðist, myndu þeir
svara fyrir sig.
Holbrooke ræðir
við Milosevic
*
Richard Holbrooke, sendimaður
Bandaríkjastjórnar, er nú staddur
í Belgrad, höfuðborg Serbíu, þar
sem hann ræddi við við Slobodan
Milosevic, forseta Serbíu. Mótmælti
Milosevic loftárásunum í samtali við
Holbrooke, kvaðst telja þær ónauð-
synlégar og lýsti áhyggjum sínum
af áhrifum þeirra á friðarviðræður.