Morgunblaðið - 06.09.1995, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1995 7
FRÉTTIR
, Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
ÁHUGASAMIR kornræktarmenn. Jónatan Hermannsson tilrau nastjóri lengst til vinstri.
Rannsaka
virkni lúp-
ínuseyðis
VERIÐ er að vinna úr niðurstöðum
rannsóknar á seyði úr lúpínurót á
vegum Hjartaverndar og rannsókn-
arstofu í ónæmisfræði en rannsókn-
in er styrkt af Rannsóknaráði ríkis-
ins.
Ævar Jóhannesson hefur fram-
leitt seyðið og gefið mörg hundruð
manns það við ýmsum kvillum í
mörg ár. Rannsóknin gengur út á
það að kanna líffræðilega virkni
seyðisins.
Mikill fjöldi manns tók þátt í
rannsókninni og var skipt í tvo
hópa. Var öðrum hópnum gefið lúp-
ínuseyði en hinum gerviseyði.
Þátttakendur eru af ýmsum ár-
göngum en einnig er kannað hver
áhrif seyðisins eru á ónæmiskerfið.
Ævar hefur gefið seyðið við marg-
víslegum kvillum og margir hafa
talið sig hafa haft mikið gagn af því.
Utlit er fyrir
meðaluppskeru
af korni
Syðra-Langholti. Morgunblaðið.
Á VEGUM Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins eru gerðar kynbætur
á íslensku korni, einkum byggi, með
tilliti til íslenskrar veðráttu. Það er
Jónatan Hermannsson, tilraunastjóri
hjá RALA, sem hefur yfirumsjón
með þessum tilraunum. Hann var í
sinni árlegu skoðunarferð síðastlið-
inn mánudag til að líta á tilrauna-
reiti og kornakra á Suðurlandi ásamt
Kristjáni Bj. Jónssyni ráðunauti.
Ahugasamir kornræktarbændur
slógust með í förina til að kíkja á
hvernig uppskeruhorfur væru.
Fréttaritari hitti þá að máli þar sem
þeir voru að skoða kornakur í Birt-
ingaholti í Hrunamannahreppi hjá
þeim feðgum Ágústi Sigurðssyni og
Sigurði Agústssyni, þeir hafa ræktað
korn með góðum árangri á undan-
förnum árum.
Menn voru sammála um að ef tíð
yrði hagstæð næstu tvær til þrjár
vikur yrði góð kornuppskera. Ein
frostnótt gæti stoppað allan þroska
kornsins svipað og gerðist í fyrra
aðfaranótt 11. september en þá var
kornið komið svipað á veg og nú er.
Jónatan sagði að tveggja raða bygg
þroskaðist best í lágsveitunum og
hlýrri sandjörð en sex raða byggið
ætti betur við fyrir norðan og í mold-
ar- og mýraqarðvegi á Suðurlandi.
Héi' í uppsveitum gerði ekki þau
veður að það ylli skemmdum á sex
raða bygginu en austanveðrin í lág-
sveitunum við ströndina væru sex-
raða bygginu skeinuhætt.
Ný afbrigði í ræktun
„Hér í Birtingaholti eru 60 til-
raunareitir, 20 liðir í þremur samreit-
um,“ sagði Jónatan. „Við gerum ráð
fyrir að geta fengið afbrigði sem eru
sambærileg við það sem hægt er að
fá erlendis, jafnvel fljótari til þroska.
Víxlfijóvganir fara fram í gróður-
húsi, við erum ekki komnir með þessi
afbrigði á markað ennþá en það verð-
ur vonandi eitthvað til sölu næsta
vor og síðan aftur meira magn árið
1997. Árið í ár nær því sennilega
að verða meðalár, sumarið heldur
styttra en hlýrra en langtímameðal-
tal segir til um. Seinna var sáð vegna
klaka í vor en við vitum ekki hvern-
ig endirinn verður. Hér hefur mest
uppskera orðið 4 tonn á hektara en
mest uppskera hefur orðið á Þor-
valdseyri um 5 tonn. Sögur eru um
meiri uppskeru á einum hektara í
Mýrdal. „í fyrra var meðaluppskera
úr 588 tilraunareitum 3,2 tonn á
hektara og það er alls ekki slæmt
miðað við Norðurlöndin," sagði Jón-
atan.
Hann sagði að þegar best lét árin
1992-’93 hefði verið ræktað korn á
660 hekturum lands en síðustu ár
hefði það verið eitthvað minna og
einkum væri samdráttur í kornrækt-
inni á þessu ári.
Morgunblaðið/Ásdís
Hljóðfæraleikari í 50 ár
GUÐMUNDI Steingrímssyni
trommuleikara, sem þekktur er
undir nafninu Papa Djass meðal
djassáhugamanna, var veitt silf-
urmerki Félags íslenskra hljóm-
listarmanna, FÍH, á veitingahús-
inu Ommu Lú síðastliðið mánu-
dagskvöld. Tilefnið er að Guð-
mundur hefur starfað sem hljóð-
færaleikari í 50 ár og hefur verið
traustur félagi í FÍH alla tíð. Þetta
ber upp á sama tíma og Jazzvakn-
ing fagnar 20 ára afmæli sínu,
tónlistarskóli FIH 15 ára afmæli
og RúRek djasshátíðin 5 ára af-
mæli. Þegar Björn Árnason, skóla-
stjóri FÍH, hafði afhent Guðmundi
silfurmerkið lék Guðmundur með
kvartetti sínum á RúRek djasshá-
tiðinni sem nú stendur sem hæst.
Líftryggingar
á heimsmælikvarða
• Friends Provident eru í fremstu röð
enskra líftiyggingarfélaga.
Bretland er ein helsta miðstöð
veraldar í tryggingum og
fj ármálaþj ónustu.
• Starfsstöðvar í 16 löndum
um víða veröld.
• Frá stofnun 1832 heftir
félagið éflst með ári hverju.
• I sjóðum þess eru nú um
£14.000.000.000 og tryggingatakar
yfir 2.500.000.
Friends bjóða íslendingum nú að reyna:
• Úrval persónutrygginga sem sameina vernd og sparnað.
f
« Sveigjanlega samninga og úrvals þjónustu sem er
verðlaunuð í Bretlandi og Svíþjóð.
• Ávöxtun með því besta sem þekkist í 14 sjóðum á heimsmarkaði.
Fitt er valið.
Við bjóðum þér að eflast með árunum í félagsskap með okkur.
Upplýsingar hjá löggiltri vátryggingamiölun á íslandi.
FRIENDS^PROVIDENT
INTERNATIONAL
Unitcd Kingdom House, Castlc Strcct, Salisbury, Wiltshirc SPl 3SH England UK. Tcl: 0044 1722 413366. Fax: 0044 1722 332005.
Principal and Hcad Ofticc: Pixham End, Dorking, Surrcy RH4 ÍQA England.
Incorporatcd by Act of Parliamcnt in the United Kingdom with limited liability and registcrcd in England No. ZC115.
Mcmbcr of thc Association of Intcrnational Life Officcs.
FRIENDS PROVIDENTINTERNATIONALIS THF. TRADING NAME FOR BUSINESS CONDUCTED OUTSIDE THE UNITED KINGDOM OF FRIENDS PROVIDENT LIFF. OFFICES.
Ævitrygging
Alþjóðleg! Sveijjjanlejj!
Líf- tekjutjóns- ojj lífeyristryjjginjj
Frábær kostur fyrir
sjálfstætt starfandi fólk!
HAGALL
LÖGGILT VÁTRVGGINGAMIÐLUN
HAGALL, Ámi Reynisson Ivtm, Túngata 5, Sími 55 11 110