Morgunblaðið - 23.09.1995, Side 11

Morgunblaðið - 23.09.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995 11 Borgarstjórn samþykkir hækkun á fargjöldum SVR þrátt fyrir mótmæli Stendur til að bæta þjónustu og samgöngukerfi HÆKKUN á fargjöldum Strætis- vagna Reykjavíkur var samþykkt í borgarstjórn í fyrrakvöld. Borgar- fulltrúar R-listans greiddu atkvæði með hækkuninni, en borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á móti. Fyrir fundinn var Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, borgarstjóra, afhentur undirskriftalisti með nöfnum 11.335 íbúa Reykjavíkur. „Við gerum okkur grein fyrir því að þessi aðgerð er ekki til vinsælda fallin," segir Arthur Morthens, stjórnarformaður SVR og borgar-- fulltrúi R-listans. „Það þarf stundum að taka erfið- ar ákvarðanir og það er það sem við stöndum frammi fyrir í þessu tilviki. Fjárhagsstaða SVR er svo erfið að við áttum ekki annarra kosta völ en að fara út í þessar aðgerðir. Borgarbúar munu hins vegar sjá á næstu misserum, í síð- asta lagi næsta vor, bætt sam- göngukerfi og bætta þjónustu. Sér- staklega munu íbúar í austurhluta borgarinnar sjá verulega bætta þjónustu. Eins munu allar samgöng- ur við miðbæinn verða miklu öflugri eftir að nýja leiðakerfið kemst á.“ En eru borgarbúar ekki að segja með þessum undirskriftum að þeir vilji ekki fargjaldahækkun, þrátt fyrir að hún hafi betri þjónustu í för með sér? „Samkvæmt skoðanakönnun sem við létum Gallup gera fyrir okkur, þá kemur í ljós að borgarbúar eru óánægðir með þjónustuna og telja hana ekki nægilega góða. Það kom líka fram að fólk væri tilbúið að borga meira fyrir betri þjónustu. Ég held að við verðum að skoða það borgarbúar, þegar nýtt og bætt al- menningssamgöngukerfi verður komið á, hvort að við höfum farið hér rangar leiðir. Það sem gerist á næstu tveimur og hálfu ári er veruleg uppbygging á leiðakerfinu. Og ég held að öllum sé ljóst að austurhluti borgarinnar hefur orðið mjög útundan í þróun almenningssamgangna í borginni. Þegar leiðarkerfið var sett á fót á sínum tíma, þá var austurhlutinn nánast ekki til, þ.e. Breiðholt, Árbær og Grafarvogur. Það þarf auðvitað að byggja leiðakerfið upp á þessu svæði. Það þýðir einfaldlega að við verðum að kosta meiru til. Það kost- ar meira að reka Strætisvagna Reykjavíkur eftir því sem borgin stækkar.“ Nú tala sjálfstæðismenn um að 6 prósenta hækkun, í samræmi við verðlagsþróun í þjóðfélaginu, hefði verið ásættanlegri. „6 prósenta hækkun hjá Sjálf- stæðisflokknum þýðir 24 milljónir fyrir SVR. Þeir hafa sjálfir skorið á undanförnum fjórum árum í burtu 207 milljónir af árlegu framlagi til SVR. Þeir eru í raun og veru að skila til baka 10 prósentum af skerðing- unni sem þeir stóðu að og það dugar ekki.“ En þegar fargjalda- lækkun var samþykkt á síðasta kjör- tímabili. Voru framlög til SVR ekki aukin aftur um 60 milljónir til að mæta því? „Nei, þetta var óútfyllt ávísun, kosningavíxill, sem engin innistæða var fyrir. SVR hafa orðið að bera þessar 60 milljónir og 30 milljónir, þ.e.a.s. hálft ár í viðbót, að auki, vegna þess að ekkert hefur komið á móti.“ Nú tala sjdlfstæðismenn um hag- ræðingu og þið um niðurskurð á síðasta kjörtímabili. „Auðvitað fóru sjálfstæðismenn í hagræðingu á SVR. Ég held að þeir hafi hagrætt SVR alveg inn að beini og ég held að það sé ekki hægt að komast lengra í þeirri hag- ræðingu en þeir gerðu. Þeir gerðu ákveðna hluti þar sem út af fyrir sig voru ágætir, en hins vegar tel ég að þeir hafi mjög markvisst þrengt að almenningssamgöngu- kerfinu, sem er ekki rétt pólitík." Býstu við einhverjum eftirmálum af þessum hækkunum? „Nei, ég á nú ekki von á því. Ég vænti þess að borgarbúar muni verða ánægðir með þá bættu þjón- ustu sem að þeir munu fá í sam- bandi við nýtt leiðakerfi á næstu árum.“ Ekki hlustað á borgarbúa Það kom fram í máli R-listans að hækkun á fargjöldum SVR væri afleiðing af aðgerðum sjálfstæðis- manna í borgarstjórn á síðasta kjör- tímabili. „Þetta er furðulegur fyrir- sláttur vegna þess að R-listinn gerði sína eigin fjárhagsáætlun um síð- ustu áramót, og þar hafa engar forsendur breyst,“ segir'Árni Sig- fússon. „Það virðist vera kostnaðarauki, samtals um 5 milljónir, þegar tekn- ar eru auknar tekjur á móti auknum gjöldum vegna samninga við starfs- menn. Við höfum fallist á 6 prósent hækkun fargjalda, sem þýðir 27 milljónir. Það hefði nægt á næsta ári til þess að greiða hækkun vegna samninga við starfsmenn og til bóta á leiðakerfinu og kannski svipaða upphæð og rætt hefur verið um í stjórn SVR. Fullyrðingar R-listans um fortíð sjálfstæðismanna í máli SVR eru að verða gamlar lummur. Okkur tókst ágætlega að breyta rekstri SVR úr því að borga með þeim eina milljón á dag 1991, í um 560 þús- und krónur 1994 og það teljum við vera ánægjulegan árang- ur. Það virðist vera að þótt á tólfta þúsund íbúar mótmæli þessum aðgerð- um og hafi safnað undir- skriftunum á aðeins sex dögum, þá sé ekki hlustað á þau mótmæli. Við gætum allt eins staðið frammi fyrir 40-50 þúsund mótmælum miðað við þessa niðurstöðu og þessa svörun á svo skömmum tíma, sem virðist ekki vera hlustað á. Það er mjög leitt. Margir segja að SVR hafí ekið R-listanum til valda vegna óánægju borgarbúa með breytingar Sjálf- stæðisflokksins á rekstri SVR. Nú sýnist mér allt stefna í að SVR aki R-listanum aftur heim í næstu kosn- ingum," sagði Árni Sigfússon. Engar for- sendurhafa breyst TIL SÖLU ER ÁRMÚL118 42S FM EFRI HÆÐ TIL SOLU er um 425 fm full innrétt- uð og vönduð skrifstofu hæð (efri hæð) í Armúla 18. Skiptist hæðin m.a. í 14 skrifstofuherbergi, afgreiðslu, lítinn sal, tölvuherbergi, 2 geymsluherbergi, eldhús, tvö salerni og sér stigahús. Hluti af útgáfustarfsemi Fróða og starfsemi Frjáls framtaks voru í húsnæðinu í fjölda- mörg undanfarin ár. - Útborgun getur verið lítil ef um traustan kaupanda er að ræða. Frjálstframtak Héöinshúsinu, Seljavegi 2, 101 Reykjavik Simi 515 5500 - Telefax 515 5599. FASTEIGNASTARFSEMI - LANDVINNSLA A LITLA SVIÐI KL:20:00 Hvaö geröist d 17 dra afnuelisdegi Ljúbu? Spennandi leikrit um samband mceöra og dcetra. Ljúfsdrt verk og ófyrirsjdanlegt. Eftir Liúdmílu Razumovskaju, höfund Kæru Jelenu Þýðandi:Arni Bergmann Leikmynd: Steinþór Sigurðsson Búningar: Stefanía Adolfsdótt|r ] , Tm Lýsing: Elfar Bjarnason , Æf í Leikstjóri: Hlín Agnarsdóttir -> Leikarar: Ásta Arnardófttir, Guðrún ÁsmundsdóttÍR og Sigrún Edda Björnsðottlr FRUMSYNING sunnudag 24.09 2. sýning þriðjudag 26.09 3. sýning miðvikudag 27.09 LEIKFELAG REYKJAVIKUR Borgarleikhús S:568 8000 i n 1 11 n

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.