Morgunblaðið - 23.09.1995, Page 23

Morgunblaðið - 23.09.1995, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995 23 bera innkaupaaðila um vöruþróun hafi verið mun árangursríkara en bein framlög ríkisins. Slík sam- starfsverkefni hafa aukið tækni- þekkingu og orðið þess valdandi að samkeppnisstaða á heimamark- aði hefur batnað og jafnframt hafa opnast möguleikar til útflutn- ings. Mörg íslensk framleiðslu- fyrirtæki hafa sýnt það og sannað að vel er unnt að reka þróttmikinn iðnað ef þau hafa aðgang að mark- aði á meðan vöruþróun stendur yfir. Sökum smæðar markaðarins og oft takmarkaðs fjármagns hef- ur umfangsmikil vöruþróun verið íslenskum framleiðendum nánast ómöguleg. Tækifærin eru alls staðar Óhætt er að fullyrða að nánast öll opinber umsýsla getur stuðlað að aukinni atvinnusköpun. Nánast er sama hvar gripið er niður. Inn- an heilbrigðisgeirans, orkugeirans og samgöngugeirans og víðar eru stórkaupendur vara sem eru inn- fluttar en gætu allt eins verið framleiddar hérlendis. Ef okkur ber gæfa til vöruþróunarsamstarfs framleiðenda og hins opinbera má jafnvel búast við útflutningi á vör- um sem nú eru fluttar inn. At- vinnuh'fið með Samtök iðnaðarins í broddi fýlkingar hafa lýst sig reiðubúin til að stofna til samtarfs- vettvangs um nýtingu opinberra innkaupa til atvinnu- og nýsköp- -unar. Höfundur er framkvæmdastjóri Meistarans hf. og á sæti í stjórn Samtaka iðnaðarins. sem ég raunar vissi, að það er hvorki á færi lækna og því síður stjórnmálamanna að meta gildi lífsins fyrir einstaklinginn. Því er umræðan um forganga- röðun, eins og hún hefur farið fram, út í hött. Hvað er þá til ráða? Því má svara með annarri spurningu. Hver er vandinn? Fjárlagahallinn, segja stjórnmálamennirnir. Heil- brigðismálin eru svo þung að turn- inn er kominn að falli. Ég hef raunar aldrei skilið það að kostn- aður við heilbrigðisþjónustu megi ekki fara fram úr ákveðnum hundraðshluta af vergum þjóðar- tekjum. Hlýtur ekki þörf að ráða þar einhveiju um? Er hugsanlegt að spara einhveija aðra hallaverk- andi þætti í þjóðarbúskapnum? Forgangsröðun í heilbrigðis- þjónustu, önnur en á læknisfræði- legum forsendum, þar sem gildi lífsins er haft að leiðarljósi, er vont mál. Að leggja slíka forgangsröðun á stjórnmálamenn væri ómannúðlegt og læknar eru að bijóta eigin siða- reglur, ef þeir láta annað en velferð sjúklingsins ráða gerðum sínum. Við skulum því leita annarra leiða. Þær eru til, ef vel er að gáð, en hveijar sem þær verða að lokum, heldur turninn áfram að hallast. Höfundur er læknir. Lítil plastklemma með secjulstáli til sölu Já pað Jer ekki mikiðjjrir henni. Og hagnýtt gildi hennarjýrir pig er jajnvel ekki stórvœgilegt. Það er Jreistandi að segja nei og nota aurana í annað. En klemman leynir á sér. Hún er svo öjlug að hún getur hjálpað hreyjihömluðum að komast leiðar sinnar í heimi stiga er stía sundur. Með sölu klemmunnar öjum viðjjár til að auðvelda aðgengijatlaðra í sartjélaginu. Og svo getur pú hengt í hana reikninga, uppskrijtir að hamingju, myndir aj uppáhaldshaðströndinni eða bara hajt hana til skrauts. Segulmagnað tilboð sem pú getur ekki hajnað... SJALFSBJORG LANDSSAMBAND FATLAÐRA Greiddn akkur Leid... K]e m m a n er t i I sölu pess a hc Ig i!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.