Morgunblaðið - 28.10.1995, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 17
FRÉTTIR
Foráttu-
brim
MIKLAR skemmdir urðu á hafn-
armannvirlqum á Bakkafirði í for-
áttubrimi sem fylgdi óveðrinu
mikla í vikunni. Eins og fram kom
í frétt í blaðinu tók brimið af allt
ysta grjótlagið á ytri helmingi
brimvarnargarðs, um 50-70 metra
langt. I þessu ysta lagi er grjót
sem vegur 2-5 tonn, svo sjá má
að kraftur brimsins hefur verið
gífurlegur. Fyrir tveimur árum
var gert við skemmdir á garðinum
fyrir rúmlega 20 milljónir og virð-
ist tjónið vera meira nú.
♦ ♦ ♦
Mikið tjón
á raflínum
í Þistilfirði
Þórshöfn. Morgnnblaðið.
ÓVEÐRIÐ sem gekk yfir landið olli
miklum skemmdum á raflínum í Þist-
ilfirði. Þótt veðurhæðin væri minni
hér á norðausturhorninu en víðast
annars staðar á landinu var ísing
mikil svo raflínur og staurar sliguðust.
Á Þórshöfn var rafmagnslaust í
tvær klukkustundir en allt að þijátíu
stundir á nokkrum bæjum í Þist-
ilfirði. Dísilvélar sjá Þórshöfn fyrir
rafmagni og viðgerð á raflínum er
ekki lokið.
Spennir við bæinn Hallgilsstaði fór
alveg niður og er nú festur upp með
dráttarvél. Frá Laxá að Hölkná í
Þistilfirði eru staurar víða brotnir,
einnig við Flautafell og víða í flóum.
Jörð er ófrosin og blaut og staurarn-
ir leggjast því flatir undan þunga
ísingarinnar og yfirferð um landið
er erfið. Skilyrði til viðgerðar eru því
slæm og mikil vinna framundan hjá
starfsmönnum Rarik.
-----♦-■♦-♦---
Fjórar flug-
Morgunblaðið/Áki Guðmundsson
Snjóflóð úr Óslandshlíðarfjöllum
Fjögnr hross drápust
Hofsósi. Morgunblaðið.
KEÐJA snjóflóða féll úr Óslandshlíð-
arfjöllum fyrir ofan bæina Sleitu-
staði og Smiðsgerði í Hólahreppi
aðfaranótt fimmtudags.
Ná flóðin samfellt yfir svæði sem
er um kílómetri að breidd. Heita
má að snjórinn hafi hreinsast úr
hlíðunum fyrir ofan þessa bæi.
Snjóflóðið í Smiðsgerði lenti á
útihúsum sem standa fyrir ofan
íbúðarhúsið og er fjárhúshlaða mikið
skemmd. Kindur í fjárhúsunum sak-
aði ekki.
Á Sleitustöðum lenti hópur hrossa
í flóðinu, sex hross voru grafin upp
lifandi, en tvö fundust dauð. Aðeins
tæpum sólarhring áður höfðu tvö
hross frá Sleitustöðum drepist í
minna snjóflóði sem kom úr hlíðinni
öllu norðar.
Brimskaflar gengu
yfir hafskipabryggjuna
IÐULAUS norðaustan stórhríð var
í Ólafsfirði seinni part miðvikudags
og aðfaranótt fimmtudags. Mikið rót
var í höfninni enda stórbrim úti fyr-
ir og mjög hásjávað. Aðeins einn
stór bátur var í höfninni, Sigurfari
ÓF og var hann vaktaður, sem og
einnig fjöldi minni báta og trillur sem
í höfninni voru.
Flotbryggja slitnaði frá landi en
henni tókst að bjarga með því að
festa hana í stóra vinnuvél. Brim-
skaflar gengu yfir hafskipabryggj-
una og gijótvarnargarða. Mann-
virkin stóðust raunina en þó urðu
nokkrar skemmdir á trébryggjum.
Gijót gekk á land og þekur nú
bryggjur og plön framan við fisk-
verkunarhús og áhaldahús bæjar-
ins. Sjór gekk alveg upp að Hrað-
frystihúsi Ólafsfjarðar og komst inn
í húsið. Ekki 'munu þó hafa orðið
stórfelldar skemmdir á frystihúsinu
eða búnaði þess.
vélar Islands-
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Skemmdir á hafnar
garðinum í Vogum
Vogum. Morgunblaðið.
flugs á Egils-
stöðum
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
FJÓRAR flugvélar íslandsflugs
komu til Egilsstaða fyrir skömmu,
þegar félagið flutti Sinfóníuhljóm-
sveit íslands austur. Hljómsveitina
skipa 65 manns og var hópurinn
fluttur með fjórum flugvélum, tveim
Dornier, einni Metro og Chieftain.
Þetta er í fyrsta skipti sem jafn-
margar vélar Islandsflugs eru sam-
tímis á Egilsstaðaflugvelli.
MIKLAR skemmdir urðu á hafn-
argarðinum í Vogum í veðrinu í
vikunni. Gijótvörn er mikið
skemmd og þekja ónýt að hluta.
Mestar eru skemmdirnar á um
100 m kafla næst landi.
Jólianna Reynisdóttir sveitar-
stjóri sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þingmenn kjördæmisins
hefðu verið í heimsókn á mánu-
öag og þá hafi verið lögð áhersla
á áhyggjur heimamanna um að
hafnargarðurinn kynni að gefa
sig í vetur. Hún segir að ef ekki
verði gerðar lagfæringar strax
sé hætta á að garðurinn gefi sig.
Viðgerðir á grjótvörninni og
þekju kosta milljónir króna.
AKUREYRI
Leikfélag Akureyrar
Æfíngar
á Spor-
vagninum
ÆFINGAR eru hafnar á leikritinu
Sporvagninum Girnd hjá Leikfélagi
Akureyrar, einu helsta leikverki sem
skrifað hefur verið á öldinni. Þetta
magnaða verk . Tennessee Williams
hefur notið mikilla vinsælda frá því
að var skrifað.
Aðalhlutverkin eru í höndum Rósu
Guðnýjar Þórsdóttur og Valdimars
Flygenring, en auk þeirra kemur
fram fjöldi leikara. Haukur J. Gunn-
arsson er leikstjóri og leikmynd ger-
ir Svein Lund-Roland. Haukur hefur
starfað sem leikstjóri í Noregi und-
anfarin einn og hálfan áratug, síð-
ustu árin sem leikstjóri Samíska
þjóðleikhússins Beaiwas og er ný-
ráðinn leikhússtjóri við stærsta
landshlutaleikhús Noregs í Tromsö.
Svein Lund Roland er meðal þekkt-
ustu leikmyndateiknara Norðurlanda
eii starfar jafnframt í Bandaríkjun-
um og Englandi. Þeir Haukur og
Svein unnu saman hjá LA fyrir 12
árum, í Bréfberanum frá Arles, sem
fjallar um síðustu æviár Van Goghs.
Sporvagninn verður frumsýndur
þriðja dag jóla, 27. desember.
Atvinnuskrifstofan
Helgi Jóhann-
esson ráðinn
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt að til-
lögu atvinnumálanefndar Akureyrar
að ráða Helga Jóhannesson verkfræð-
ing forstöðumann Atvinnuskrifstofu
Akureyrarbæjar. Hann hefur undan-
farin ár starfað hjá Sláturfélagi Suð-
urlands, í Reykjavík og Hvolsvelli sem
deildarstjóri tæknideildar. Eiginkona
hans er Stefanía Sigmundsdóttir og
eiga þau fjögur böm.
Hlutabréf í Skinnaiðnaði seld
Samþykkt var á fundi bæjarráðs
í gær að heimila bæjarstjóra að selja
öll hlutabréf bæjarins í Skinnaiðnaði
hf. Leita á eftir samningi við Kaup-
þing Norðurlands um að annast sölu
bréfanna.
Messur
AKUREYRARPRESTA-
KALL: Sunnudagaskóli í
Safnaðarheimilinu á morgun
kl. 11.00. Öll börn velkomin.
Munið kirkjubílana. Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Séra Ólafur
Jóhannsson prédikar. Biblíu-
lestur á mánudag kl. 20.30.
GLERÁRKIRKJA: Biblíu-
lestur og bænastund kl. 13.00
í dag, laugardag. Guðsþjón-
usta kl. 11.00 á morgun. Sókn-
arprestur sér um guðsþjónustu
á Dvalarheimilinu Hlíð kl.
16.00 sama dag. Fundur
æskulýðsfélagsins kl. 18.00.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli kl. 13.30 á
morgun og almenn samkoma
kl. 20.00. Heimilasamband á
mánudag, krakkaklúbbur á
miðvikudag, biblíulestur á
fimmtudag og 11+ og ungl-
ingaklúbbur á föstudag.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Samkoma í umsjá ungs fólks,
ræðumaður Jóhannes Hinriks-
son, í kvöld kl. 20.30. Vakn-
ingasamkoma kl. 15.30 á
sunnudag, ræðumaður Jó-
hannes Hinriksson. Biblíulest-
ur á miðvikudag kl. 20.30.
HÚSAVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11.00 á
morgun. Kyrrðar- og bæna-
stund, sunnudagskvöld kl.
21.00 vegna náttúruhamfar-
anna á Flateyri.
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kyrrðar- og bænastund í
Grenivíkurkirlqu næstkom-
andi sunnudagskvöld, 29.
október kl. 21.00.
LAZY*BOY
Lazy-boy
2Ja sœta kostar f rá
kr. 99.980,- stgr.
Með einu handtaki er skemill dreginn út
og maður iíður þægilega aftur í hvíidarstöðu,
auðvelt. Lazy-boy sjónvarpssófinn
fæst aðeins í Húsgagnahöllinni.
-mjög;
Sjónvarpssófinn á engan sinn líka.
Hann fæst í mismunandi stærðum,
gerðum og áklæðaiitum. Einnig er
hann fáanlegur í leðri.
Staðgreiösluafsláttur
eða góð greiðslukjör
J5.
HÚSGAGNAHÖLLIN