Morgunblaðið - 31.10.1995, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.10.1995, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hreppsnefnd Fiateyrarhrepps boðar til borgarafundar um málefni byggðarlagsins Morgunbiaðið/Árni Sæberg FUNDARMENN hlýða á ræðuhöld, þeirra á meðal Einar K. UM 200 Flateyringar sóttu borgarafundinn á sunnudaginn. Guðfinnsson alþingismaður. Vilja byggja upp að nýju neðar á eyrínni A fjölmennum og alvöruþrungnum borgara- fundi á Flateyri á sunnudaginn var faríð yfír stöðuna og skýrt frá fyrstu skrefum til uppbyggingar á staðnum. Siguijón J. Sig- urðsson fylgdist með fundinum. ísafirði. Morgunblaðið. HREPPSNEFND Flateyrarhrepps boðaði til borgarafundar sl/sunnu- dag þar sem farið var yfir stöðu mála í byggðarlaginu sem og fram- tíðaráform hreppsnefndarinnar varðandi uppbyggingu staðarins. Um 200 Flateyringar mættu til fundarins auk fundarboðenda og nokkurra gesta á vegum hrepps- nefndar. Þar var einnig þingmaður Vest- firðinga, Einar K. Guðfmnsson, for- maður samgöngunefndar Alþingis, sem falið var að reka erindi fyrir hreppsnefndina innan stjórnkerfis- ins. Einar Oddur Kristjánsson, al- þingismaður og íbúi á Flateyri, setti fundinn og bað viðstadda að minn- ast látinna vina og ættingja með einnar mínútu þögn. Hann tjáði síð- an fundarmönnum að fjölmiðlar myndu fylgjast með fundinum en óskaði síðan eftir íjarveru þeirra um leið og fundarmönnum yrði gefínn kostur á að koma með fyrirspumir tii hreppsnefndarinnar og annarra gesta sem voru á vegum hennar á fundinum. Kristinn Tómasson, sérfræðingur á geðdeild Landspítala Islands, tók fyrstur til máls, og fjallaði um streitu, afleiðingar hennar og að- gerðir til að vinna bug á henni. Krist- inn sagði fundarmönnum, sem flest- ir áttu um sárt að binda, að mikil- vægt væri að reyna að hugsa rétt og láta sér líða vel þrátt fyrir alla þá erfíðieika sem á dyndu. Skólastarf hófst að nýju í gær Magnea Guðmundsdóttir, oddviti Flateyrarhrepps, þakkaði Flateyr- ingum fyrir samstöðuna sem og björgunarsveitarmönnum fyrir það ómetanlega starf sem þeir hafa innt af hendi. „Við finnum kraftinn frá fólkinu í landinu. Við verðum að vera róleg, ná áttum og taka síðan höndum saman. Mín hugsun er að halda áfram uppbyggingu á staðnum og ég hef þá trú að það sé einnig ykkar hugsun," sagði Magnea, en mikið hefur mætt á henni frá því snjóflóðið féll á Flateyri aðfaranótt miðvikudags, þar sem sveitarstjór- inn var erlendis í sumarleyfi. Magnea sagði að hreppsnefnd hefði fundað fyrr um daginn og kvatt nokkra menn til skrafs og ráðagerða, þ.ám. Jón Gauta Jóns- son, sem settur var sveitarstjóri í Súðavík eftir að snjóflóð féll á þorp- ið 16. janúar síðastliðinn. Hún sagði ennfremur að ákveðið hefði verið að hefja skólastarf að nýju á mánudag (í gær), og yrði skólanum skipt í tvo 10 manna hópa. Öðrum hópnum yrði kennt í verkalýðshúsinu, fyrir ofan sparisjóðinn, og hinum á bóka- safni staðarins, sem er til húsa í húsnæði sveitarstjómar Flateyrar- hrepps. Magnea sagði ennfremur að fjölmargir Flateyringar væru nú húsnæðislausir og yrði því gerð könnun á þörfinni strax á mánudag (í gær), en hún mun hafa yfirumsjón með því verki. Flateyrarhreppi hafa boðist nokkrir sumarbústaðir til láns og geta a.m.k. þrír þeirra verið komnir til staðarins innan 10 daga eða í bytjun næsta mánaðár. „Okkar bíða ótal verkefni að leysa og það er mín ósk að við getum leyst þau saman, því lífið heldur áfram,“ sagði Magnea. Mikið verk framundan Kristján Jóhannesson, sveitar- stjóri á Flateyri, sem var í sumar- leyfi á Flórída, þegar hörmungarnar dundu yfir, vottaði viðstöddum sam- úð sína og fjölskyldu sinnar og sagði að þrátt fyrir að hann hefði verið fjarri héimabæ sínum þegar snjóflóð féll, hefði hugur hans verið heima. Sagði hann það einstaklega athyglis- vert hvað allir íbúar Flateyrar hefðu staðið sig vel. „Snjóflóðið markaði stórt skarð í byggðina okkar og kollvarpaði öllum þeim hugmyndum sem sveitarstjórnin hafði unnið eftir. Framundan bíður okkar því mikið verk,“ sagði Kristján. Hann sagði að ákveðið hefði verið að hefja starfrækslu leikskólans að nýju í þessari viku og hefði honum verið valinn staður í Hafnarstræti 13. Hefur Samband íslenskra sveit- arfélaga tekið að sér að útvega hreppnum þrjár fóstrur til starfa, svo að hið daglega líf yngstu barnanna komist sem fyrst í samt lag. Bensín- stöð staðarins gjöreyðilagðist í snjó- flóðinu og tjáði Kristján fundar- mönnum að ákveðið hefði verið að opna nýja afgreiðslu strax á mánu- dag við birgðastöð Éssó, sem stend- ur á hafnarbakkanum. Þá gat hann þess að vilyrði hefði fengist frá ríkis- stjórninni fyrir nýrri bráðabirgðainn- keyrslu í bæinn, en hún mun að hluta til verða á varnargarði sem byggður hefur verið við höfnina. Engin byggð ofan Tjarnargötu Kristján sagði ennfremur að hreppsnefndin hefði ákveðið að láta hefja að nýju vinnu við gerð nýs hættumats fyrir Flateyri svo að þeir sem vildu búa áfram á staðnum gætu það án nokkurrar hættu, en það var einróma álit hreppsnefndar að hefja uppbyggingu að nýju á neðri hluta eyrarinnar. Þá vill hreppsnefnd láta reisa nýja varnar- garða fyrir ofan byggðina, en í hug- myndum hreppsnefndar er gert ráð fyrir að engin byggð verði fyrir ofan Tjarnargötu. Verði svo mun búseta í 40-50 íbúðarhúsum leggjast af. Eyrin verður endurskipulögð neðan Tjarnargötu með það að markmiði að þar geti risið byggð sem hýst getur 4-500 manns. Til þess að það geti gerst þarf að leysa ýmis mál og hefur Einari K. Guðfinnssyni, alþingismanni Vestfírðinga og for- manni samgöngunefndar Alþingis, verið falin forysta í því efni. Vinna hafin hjá Kambi Kristján sagði ennfremur að Einar Kristinn hefði óskað eftir því við hafnarmálastjóra, að Holtsbryggja yrði endurbyggð og vonaðist hann til að við þeirri beiðni fengjust já- kvæð og fljót viðbrögð. „Öll vinna til að koma mann- og atvinnulífínu í gang er hafin og horfur eru þokka- legar. Samstaða er það sem gildir," sagði Kristján. Hinrik Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Kambs hf., sagði á fundinum að ákveðið hefði verið að hefja vinnu að nýju í frystihúsinu á mánudag, en þar mun vera til fiskur sem veiddist fyrir snjóflóð. Kambur gerir út fjóra báta og vonaðist Hin- rik til að flestir þeirra yrðu komnir á sjó í vikunni. „Við erum staðráðn- ir í að halda uppbyggingunni áfram, þrátt fyrir áfallið. Látum því ekki deigan síga,“ sagði Hinrik. Nýtt hættumat ofarlega í huga fólks Einar Oddur Kristjánsson sagði í samtali við Morgunblaðið, eftir lok- aðan fund með bæjarbúum, að spurningarnar hefðu verið margar, og engin ein hefði verið áberandi. „Fólk vildi vita hvernig hættumatið væri statt, hvernig vinnan við það færi fram, þá var spurt um skólamál- in sem og önnur mál er varða sveit- arfélagið. Við gerðum fólkinu grein fyrir því að við yrðum að bíða eftir hættumatinu og fyrr en það lægi fyrir en aðeins útlínur þess, yrðu engar ákvarðanir teknar. Það var mjög mikið jafnvægi á fundinum og mikil ró. Margir heimamanna höfðu orð á því að fram yrði að koma þvílíkt afreksfólk hefði komið til björgunar- starfa á staðnum, og hversu vel vinna þeirra hefði gengið. Það voru allir á einum rómi um þessi mál og það var mikið þakklæti í huga fólks- ins til þessara einstaklinga." Aðspurður um hug bæjarbúa til uppbyggingarinnar á staðnum sagði Einar Oddur: „Við sögðum sem svo. Nú fer enginn fram úr sjálfum sér, við tölum ekki um þá hluti í dag. Við tökum eitt fyrir í einu. Við höf- um verið í því að hugga og hjálpa og því er spurning sem þessi ótíma- bær.“ Þekkir þú merkáö? • Á bifreiðaverkstæöum þar sem félagsmenn okkar starfa eru þeir klæadir sérstökum vinnufatnaði með merki Bíliðnafélagsins. • Merkið tryggir þér traustan fagmann sem kann vel til verka og hefur aögang að endurmenntun á sinu sérsviði. • Láttu ekki bílinn þinn í hendurnar á hverjum sem er. Það gætí orðið þér dýrt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.