Morgunblaðið - 31.10.1995, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Ljóska
HEie&J, BlSeAH, AAIS \
LAHCASt SJGIHL eGA
TU AOKCMA Mt&þée A
éNþtHK SÍ/HA <5Ó/MS*TA
eém f&) ðtuMt i
LÖNOU/U HEhttS
þBTTA veeouR. .
sreesrA sw/no a
ALÞJÓOL&SKI AAATAR
GmtDAeusr sem haldiun
-.NEFuR —'
Ét
Ferdinand
UJHY ARE VOU SITTINO HERE
UJHEM VOU COULD BE UP
THERE FLYIN6 AROUMD WITH
Hvers vegna siturðu hérna þegar
þú gætir verið fijúgandi þarna
uppi með öllum hinum fuglunum?
Ég veit við hvað þú átt...
kóngur.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 ® Símbréf 569 1329
Girðingar á
Grundartanga
Frá Sigurði Má Einarssyni:
AÐ undanförnu hefur umræða á ný
kviknað um möguleika á frekari
stóriðju á Grundartangasvæðinu, en
svæðið hefur m.a. komið til álita sem
valkostur vegna byggingar á 60
þúsund tonna álveri. Þá er í athugun
stækkun járnblendiverksmiðjunnar
og fleiri valkostir hafa borið á góma
svo sem bygging zinkverksmiðju.
Enginn vafí leikur á að Grundar-
tangasvæðið hefur marga kosti, sem
gerir það fýsilegt til staðsetningar á
stóriðju. Þar má nefna góða höfn,
aðgang að orku og nægu vinnuafli
í nálægum byggðakjömum. Fyrir-
huguð bygging jarðganga undir
Hvalfjörð mun einnig gera svæðið
enn samkeppnisfærara við aðra
staði, vegna betri tengingar við höf-
uðborgarsvæðið.
Vestlendingar munu án efa fagna
slíkum áformum á tímum samdrátt-
ar í landbúnaði og sjávarútvegi sem
leitt hefur til atvinnuleysis og
fólksfækkunar og í þessum lands-
hluta er almenn sátt um Grundar-
tangasvæðið sem stóriðjusvæði
Vestlendinga. Líklegt er að á
Grundartanga rísi slík starfsemi þótt
síðar verði, vegna hágstæðra skil-
yrða fyrir slíkan rekstur.
Á þessum tímapunkti er nauðsyn-
legt að vekja athygli á þeim „girð-
ingum“ sem reistar hafa verið um
réttinn til vinnu á þessu svæði. í
samnirigum Islenska járnblendifé-
lagsins er beinlínis kveðið á um for-
gangsrétt verkalýðsfélaga til vinnu
í fyrirtækinu. Þar hafa Verkalýðsfé-
lag Akraness og Verkalýðsfélagið
Hörður forgangsrétt til vinnu, síðan
Verkamannasambandið og aftast
kemur Verkalýðsfélag Borgarness.
Á tímum þegar við Islendingar
erum orðnir aðilar að evrópsku efna-
hagssvæði og eigum rétt á að stunda
vinnu víða um heim er hveijum manni
ljósara að girðingar um atvinnusókn
að Grundartanga verður að rífa. At-
vinnusvæði verkalýðsfélaga eru arfur
frá fyrri tíð, sem urðu til við gjörólík-
ár þjóðfélagsaðstæður en við búum
við í dag. Þótt Grundartangasvæðið
sé hér sérstaklega til umræðu er ljóst
að slík dæmi er að fínna alls staðar
hérlendis. Nýlegur dómur um ólög-
mæti þess að segja upp starfsmanni
hjá Reykjavíkukrborg vegna búsetu
á Selfossi, sýnir að girðingamar er
víða að finna. Slíkar hindranir á at-
vinnusókn m.t.t. búsetu eru í and-
stöðu við nútímaþjóðfélag, þar sem
samgöngubætur hafa gjörbreytt
möguleikum til atvinnusóknar jafnvel
fjarri heimabyggð. Slíkar hindranir
leiða ennfremur til hrepparígs og
óþarfa ágreinings milli sveitarfélaga
þar sem keppt er um skatta af launa-
fólki.
Lausnin hlýtur að vera sú að allt
ísland verði eitt atvinnusvæði og
fólk geti stundað vinnu hvar sem er
á landinu á tillits til búsetu. Umræða
um þessi mál er mjög þörf og er hér
skorað á verkalýðshreyfinguna að
stíga nauðsynleg skref til aukins
fijálsræðis í þessum efnum.
SIGURÐUR MÁR EINARSSON,
Borgarbraut 28, Borgarnesi.
„Miðbæjarbáknið“
í Hafnarfirði
Brandari sem hættur er að vera skemmtileg-
ur - hafi hann nokkurn tíma verið það
Frá Kristjáni Bersa Ólafssyni:
„MIÐBÆJARBÁKNIÐ" í Hafnar-
fírði er orðið að Hafnarfjarðarbrand-
ara sem er hættur að vera skemmti-
legur - hafí hann nokkru sinni ver-
ið það.
Þegar skipulagi svæðisins fyrir
neðan Strandgötu var breytt og
ákveðið að byggja þar háhýsi ofan
á venjuleg metnaðarlaus stórversl-
unarhúsnæði var það rökstutt með
því að gistihús þyrfti að vera í bygg-
ingunni og gistihúsi væri erfitt að
koma fyrir með öðru móti en því að
byggja áleiðis til himins. En löngu
áður en starfsemi hófst í húsinu var
orðið ljóst að forsendan var brostin
- gistihús yrði ekki rekið á þessum
stað. Og þá var farið að binda vonir
við að kannski vildu einhveijir físk-
salar hafa þar kontór í staðinn. (En
það eru vonir sem enginn veit ennþá
hvort líklegt er að geti ræst.)
Hafnfírðingar mótmæltu því á
sínum tíma að hús af þessari stærð
og einkum þessari hæð yrði byggt
á þessum stað. Þau mótmæli byggð-
ust á þeim rökum að taka yrði tillit
til umferðar og þeirrar byggðar sem
fyrir var í bænum. En yfir þau rök
var valtað og meirihlutavilji bæj-
arbúa hunsaður.
Nú er svo komið að Hafnfirðingar
þurfa ekki aðeins að hafa daglega
fyrir augunum sjónmengun sem þeir
vildu vera lausir við, heldur skilst
mér að þeir þurfti líka að borga fyr-
ir hana hundruð milljóna króna. Sú
upphæð yrði áreiðanlega greidd með
glaðara geði ef hún færi til þess að
skera hótellausu hótelturnana af í
stað þess að tvíborga einhver bíla-
stæði neðanjarðar (sem enginn vill
nota hvort eð er). Það yrði líka áreið-
anlega ódýrara fyrir bæjarbúa, að
minnsta kosti ef til lengri tíma er
litið.
En enn betra væri ef húsið næst
að sunnan, hús Árna Hjörleifssonar
bæjarfulltrúa, yrði líka rifið, svo að
aftur sæist út á höfnina frá Hafnar-
borg.
KRISTJÁN BERSIÓLAFSSON,
Tjarnarbraut 11, Hafnarfírði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.