Morgunblaðið - 22.11.1995, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.11.1995, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995 29 fHtrgnniMalíili STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FRIÐUR í BOSNÍU IGÆRKVOLDI settu leiðtogar hinna stríðandi fylkinga á Balkanskaga stafi sína undir samninga um frið í Bosníu, sem unnið hefur verið að undir forystu Bandaríkja- manna á undanförnum mánuðum. Á engan er hallað, þótt fullyrt sé, að friðarsamningar þessir eru fyrst og fremst árangur af störfum sendimanna Bandaríkjastjórnar. Sjald- an hefur það komið jafnskýrt í ljós og einmitt nú, að þetta öflugasta stórveldi heims gegnir lykilhlutverki í því að tryggja frið í heiminum. Hernaðarátökin á Balkanskaga undanfarin ár hafa leitt til þess, að 250 þúsund manns hafa misst lífið og tvær milljónir manna misst heimili sín og orðið landflótta. Nú er þessum hörmungum vonandi Iokið á þann veg, að þeir sem eftir lifa geti snúið til síns heima. Bosnía verður eitt ríki en skipt nokkurn veginn til helm- inga á milli Serba annars vegar og múslima og Króata hins vegar. Fijálsar kosningar fara fram í landinu undir alþjóðlegu eftirliti og stjórnskipan þess byggist á þjóð- þingi og forsetaembætti. Þeir, sem sekir hafa gerzt um stríðsglæpi, fá ekki leyfi til að taka þátt í stjórnmálum. Sarajevo verður sameinuð borg. Til þess að tryggja, að friður verði haldinn munu Atl- antshafsbandalagsríkin senda samtals 60 þúsund manna herlið til Bosníu, þar af Bandaríkjamenn 20 þúsund og Þjóðveijar 4.000 hermenn. Rússar munu einnig leggja sinn skerf af mörkum til friðargæzlu í Bosníu með því að senda herlið þangað. Friðar í Bosníu verður því gætt sameiginlega af Atlantshafsbandalaginu og Rússlandi en þessar tvær fylkingar stóðu andspænis hvor annarri gráar fyrir járnum þar til fyrir nokkrum árum. Það er endalaust hægt að deila um það, hvort hægt hefði verið að koma á friði í Bosníu fyrr og þar með koma í veg fyrir þau ósköp, sem dunið hafa yfir þetta fólk á undanförnum mánuðum og misserum. Evrópuríkin náðu ekki miklum árangri í þeirri viðleitni á meðan forystan fyrir friðarumleitunum var í þeirra höndum. Á margan hátt má segja, að Evrópuríkin hafi beðið ákveðið skipbrot í Bosníu. Á hinn bóginn er það skoðun eins helzta sáttasemjara Evrópuríkjanna, Sir David Owen, fyrrum utanríkisráð- herra Breta, að hefðu Bandaríkjamenn tekið af skarið fyrr en þeir gerðu, hefðu friðarsamningar náðst mun fyrr. Eftir stendur sú staðreynd, að þá fyrst þegar Banda- ríkjamenn komu til skjalanna af fullum krafti komst skrið- ur á friðarviðræður með þeim árangri, sem nú liggur fyr- ir. Bandaríkin voru í forystu fyrir þeim þjóðum, sem að lokum knúðu fram lyktir kalda stríðsins. Það er líka ljóst, að Bandaríkjamenn hafa átt meginþátt í því að tryggja friðarsamninga í Miðausturlöndum, fyrst á milli Israela og Egypta, síðan á milli ísraela og Palestínuaraba og næsta verkefni þeirra er væntanlega að koma á friði á milli ísraela og Sýrlendinga. Þetta er stórkostlegur árangur á skömmum tíma og sennilega hafa Bandaríkin ekki verið jafnsterkt afl í þágu friðar í heiminum í marga áratugi og þeir eru nú. Það er ástæða til að vekja athygli á og undirstrika þessa stað- reynd um leið og það hlýtur að vera Evrópuþjóðum alvar- legt umhugsunarefni, að þrátt fyrir vaxandi samstarf á flestum sviðum hefur þeim ekki tekizt að byggja upp þann sameiginlega pólitíska styrkleika, sem hefði dugað til að tryggja frið á Balkanskaga. Ekki fer á milli mála, að hryllilegir glæpir hafa verið framdir í Bosníu í þessu stríði. Þar eiga allir stríðsaðilar hlut að máli, þótt menn geti greint á um, hveijir hafi verið verstir. Hver sem örlög helztu stríðsforingjanna verða er nauðsynlegt, að upplýst verði um alla þessa stríðsglæpi og fólk um víða veröld fái skýra mynd af því, sem þarna hefur gerzt. Hugsanlegt er að það geti dregið úr slíkum glæpum á cðrum vígstöðvum um skeið a.m.k., þótt ódæðisverkin, sem unnin voru í valdatíð Adolfs Hitlers sýnist ekki hafa dregið úr stríðsglæpum á Balkan- skaga og eru þeir glæpir mönnum þó enn í fersku minni. Það er mikið verk óunnið í Bosníu og það á eftir að koma í ljós, hvernig til tekst um framkvæmd friðarsamn- ■ inganna. Það verður mikið átak að koma fótunum undir fólk í þessu stríðshrjáða landi á nýjan leik. En þegar öll heimsbyggðin leggst á eitt og gamlir fjendur taka höndum saman hlýtur það að bera einhvern árangur. Það þarf áreiðanlega mikla hörku til að halda hinum stríðandi fylk- ingum við efnið en sá árangur, sem nú hefur náðst gefur fyrirheit um, að ekkert verði gefið eftir í þeim efnum. SATT SKAL STANDA Hjálmar H. Ragnarsson svarar aðfinnslum Jóns Þórarinssonar við útvarpsþætti um Jón Leifs ÁT- ^ ~c'Xy-Kir ._______—• ° u í«J> 0 ÚR HANDRITI Jóns Leifs úr verkinu FINEII (Kveðja til jarðlífsins). LAUGARDAGINN 11. nóvember síðastliðinn birtist í miðopnu Morgunblaðsins löng og mikil grein eftir Jón Þórarinsson sem hann nefnir „Páll Isólfsson - Jón Leifs.“ Undirrtitill greinarinnar er: „Athugasemdir við útvarpsþætti Hjálmars H. Ragnarssonar frá Jón Þórarinssyni." í þessari grein ásakar Jón mig um að hafa hallað réttu máli i útvarpsþáttum sem ég gerði nýlega um lif og starf Jóns Leifs og var útvarpað fjóra sunnu: daga í röð í október á rás 1, Ríkisútvarpinu. í máli sínu vænir Jón mig ekki aðeins um að hafa farið með augljósar missagnir í þessum þáttum og frásagnir sem orka tvímælis heldur er hann einnig með aðdróttanir um að ég hafi sniðið heim- ildir að einhveijum ímynduðum þörfum mínum og beinlínir falsað þær. Þetta eru alvarlegar ásak- anir og ærumeiðandi og þær eru þeim mun þyngri þar sem þær eru birtar á viðhafnarstað í stærsta dagblaði þjóðarinnar. Það er mér létt verk að hrekja í einu og öllu þessar ásakanir Jóns Þórarinssonar, en það breyt- ir ekki því að þær varpa skugga á nafn mitt sem fræðimanns og á baráttu mína fyrir viðurkenn- ingu á tónlist Jóns Leifs. Það eitt að ásaka annan mann um ósæmilegt athæfi dugar nefnilega til þess að skapa um þann mann tortryggni og efa- semdir, sem getur orðið býsna erfitt að eyða, þó svo að sakimar séu með öllu tilhæfulausar, eða eins og klókindarefurinn Nixon Bandríkjaforseti orðaði það þegar hann hvatti til lymskubragða: „Let the bastards deny it!“ („Látum þijótana neita því!)“. Það sem að baki býr Ásakanir Jóns Þórarinssonar beinast að um- ^’öllun minni um skipti þeirra Jóns Leifs og Páls Isólfssonar. Hann tínir til fjögur atriði úr þriðja útvarpsþættinum, sem hann segir að ég hafi ýmist afflutt eða rangtúlkað, en er jafnframt svo smekklegur að dylgja um það að hann hefði get- að tínt til langtum fleiri atriði en þessi fjögur. í þessari löngu grein hefur Jón ekkert gott um þessa útvarpsþætti mína að segja né heldur um það margra ára starf mitt að koma tónlist Jóns Leifs á framfæri við nýjar kynslóðir hlustenda. Það eina sem virðist komast að í huga Jóns Þórar- inssonar er ofurviðkvæmni fyrir því, að eitthvað það sé sagt um viðskipti þeirra Páls ísólfssonar og Jóns Leifs, sem hugsanlega mætti túlka sem hallmæli í garð Páls, breytir þá engu hvort ég í útvarpsþættinum tali í fyrstu persónu eða hafí eitthvað eftir öðrum. Staðreyndin er hins vegar sú, að hvorki í þessum þáttum né nokkurn tím- ann áður í skrifum mínum um tónlist hefi ég farið niðrandi orðum um Pál ísólfsson eða afrek hans, enda hefi ég hvorki haft til þess löngun né ástæðu. Páll varð strax í lifanda lífi nokkurs konar goðsögn á meðal þjóðarinnar og hefur ætíð síðan staðið ljómi um nafn hans. Hann var mikilvægur brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi og framúr- skarandi músíkant. Mörg sönglaga hans eru fyr- ir löngu orðið samofin þjóðarsálinni og hinar stærri tónsmíðar hans nýttust vel til þeirra verka sem þeim var ætlað. Goðsögnin um Pál ísólfsson ætti því að standa á styrkari stoðum en svo að hún hryndi við það eitt, að Jón Leifs fengi það rými í íslenskri tónlistarsögu sem honum hefur hingað til verið neitað um. íslandskantata Jóns Leifs og Alþingishátíðin 1930 Fyrsta atriðið sem Jón Þórarinsson finnur að í frásögn minni um Jón Leifs varðar kantötuna Þjóðhvöt op. 13, sem sá síðamefndi samdi á árun- um 1929 og 1930. Um smíði þessa verks sagði ég meðal annars: Næsta stórvirki Jóns var íslandskantatan Þjóð- hvöt... op. 13. Jón samdi þessa kantötu í Bad- en-Baden og Travemiinde á árunum 1929- 1930, líklega með það í huga upphaflega að senda hana inn í samkeppni um hátíðatónverk fyrirþjóðhátíðina áÞingvöIlum 1930.... Verkið er samið við hátíðaljóð Davíðs Stefánssonar og er í sjö aðskildum þáttum. Jón sýndi forn- vini sínum, Páli ísólfssyni, tvo þætti úr kantöt- unni nokkru áður en skilafrestur ísamkeppnina rann út, en ákvað í kjölfar þess fundar að hætta við að senda hana til dómnefndarinnar. Hann taldi sig vita eftir þetta samtal við Pál að hann ætti enga möguleika á að vinna sam- keppnina. Jón Þórarinsson finnur að því, að ég láti í þess- um texta liggja að því að Páll ísólfsson hafí með einhveijum hætti orðið þess valdandi að Jón Leifs sendi ekki verk sitt í samkeppnina um kantötu fyrir Alþingishátíðina og telur hann að slíkt hafí verið fjam öllum sanni. Fyrir því færir hann þau rök, að Jón Leifs hafi löngu síðar sagt að það hefði á sínum tíma ekki verið ætlun hans að taka þátt í samkeppninni, og auk þess hafi Jón ekki notað allt hátíðaljóð Davíðs í þessu verki sínu. Því miður fyrir Jón Þórarinsson hefí ég betri sannanir fyrir máli mínu en hann. Þessar sannan- ir er að fínna í bréfí Jóns Leifs til móður hans. Bréfið er dagsett 26. nóvember 1930. í því vísar hann meðal annars til fundar sem hann hafði átt með Páli ísólfssyni um það bil ári fyrr, þ.e.a.s. í vetrarbyijun 1929: Greinilega þóttist eg sjá Páls innra mann, þeg- ar eg hitti hann í Lubeck um þetta leyti í fyrra. Eitthvað það fyrsta, sem hann sagði mér, var að þjóðlagaheftið mitt, sem hann hafði litið í væri „bara svínarí. “ Svo sýndi eg honum tvo eða þtjá kafla úr kantötu minni, sem þá var í smíðum og þá sagði hann strax, án þess að athuga kaflana til hlítar: „Þetta verk mundi eg aldei vilja æfa. “ Þá skyldi eg hvernig í öllu lá og hætti við að ser.da „dómnefndinni“ kafl- ana, eins og [egj var hálfpartinn að hugsa um. Annars var Páll þarna þó að minnsta kosti opinskárri, en ella. Þetta bréf sýnir með óyggjandi hætti, að Jón Leifs samdi kantötuna Þjóðhvöt op. 13. „líklega með það í huga upphaflega að senda hana inn í samkeppnina,“ og að hann breytti þeim ásetningi eftir að hafa sýnt Páli nokkra hluta úr því verki. Orð mín um þetta mál standa því fullkomlega og breytir engu þótt Jón Leifs hafi löngu síðar á lífsleiðinni látið svo í veðri vaka, að hann hefði aldei ætlað þessu verki upp á pall á Alþingishátíð- inni 1930. Hann hlýtur þá að hafa annaðhvort gleymt upphaflegum ásetningi sínum eða að þetta mál hafi verið honum viðkvæmara en svo, að hann vildi upplýsa það til fulls. Hvort sem er þá er það Jón Þórarinsson sem situr eftir með sárt ennið fyrir að hafa farið með fleipur um ályktan- ir mínar um þetta mál. Hann fær samt nokkra uppreisn æru fyrir að hafa getað bent á mistök á vali mínu á orðum þegar ég í þessum útvarps- þætti sagði frá flutningnurn á hátíðarkantötu Páls á sjálfri Alþingishátíðinni. Þar sagði ég,"að kantatan hefði verið flutt með undirleik „danskr- ar sinfóníuhljómsveitar". Þetta er auðvitað ekki rétt því að eins og flestir vita þá voru það bæði Danir og íslendingar sem skipuðu þessa hljóm- sveit. í handriti mínu að þættinum notaði ég orð- ið „dansk-íslenskrar“ en af einhveijum orsökum hefí ég klúðrað þessu orði í upplestrinum og eft- ir stóð að hljómsveitin væri aldönsk. í grein sinni gerir Jón sér mikinn mat úr þessum mistökum mínum og sýnir það best hversu fátækur hann er af málefnum þegar hann reynir að klekkja á frásögn minni af Jóni Leifs og tónlist hans. Þularstarf í útvarpi Annað atriði sem Jón Þórarinsson skfifar sér- staklega um í grein sinni varðar boð Ríkisútvarps- ins til Jóns Leifs um starf þular við stofnunina. Um þetta mál sagði ég í þætti mínum: Hugur Jóns stóð ávallt til fósturlandsins og hann dreymdi um að fá starf á íslandi við sitt hæfi sem hann gæti framfleytt sér og sinni fjölskyldu af. Hann reyndi mikið að fá starf við útvarpið við stofnun þess 1930, en sú til- raun bar ekki annan árangur en þann, að hon- um var boðið starf þular við hina nýju stöð, en það starf þótti honum sér engan veginn vera samboðið. ... Jón Ieit svo á að Páll ísólfs- son, hans gamli vinur, hefði staðið á bak við þetta tilboð um starf hjá Ríkisútvarpinu og ætlað með því að niðurlægja Jón í augum ís- lendinga. Hann trúði því, að Páll hefði lagt dæmið þannig upp: Með því að taka við þular- starfinu viðurkenndi Jón fyrir þjóð sinni að hann væri tilbúinn til þess að fórna köllun sinni fyrir eins veraldlega hagsmuni og fast starf hjá hinu opinbera. Ef Jón hinsvegar hafnaði starfinu sýndi hann með því oflæti og hroka og sannaði í eitt skipti fyrir öll að hann væri óalandi og óferjandi. Jón Þórarinsson gerir ekki neinar beinar aðf- innslur við þennan texta minn, en eyðir þess í stað miklu plássi í að fjalla um tillögu Jóns Bald- vinssonar á Alþingi 1929 um að Jóni Leifs verði veittur sérstakur styrkur til þess að undirbúa starfsemi við væntanlegt ríkisútvarp. Ég get ómögulega séð, að sú staðreynd að Jón Baldvins- son skyldi hafa lagt fram þess tillögu á Alþingi (hún var síðar felld) breyti neinu um málflutning minn sem vitnað er til hér á undan. Þvert á móti þá styrkir tilvist tillögunnar þau orð mín að Jón hafi mikið reynt „að fá starf við útvarpið við stofn- un þess 1930“. Hér er því um enn eitt vindhögg- ið að ræða frá Jóni Þórarinssyni. í framhaldi af skrifum sínum um tillögu Jóns Baldvinssonar á Alþingi fjallar Jón Þórarinsson nokkuð um þær hugrenningar Jóns Leifs, að Páll hafí með tilboðinu um þularstarfið staðið að einhvers konar ráðabruggi um að niðurlægja hann. Jón Þórarinsson telur það fjarstæðu að Páll hafi bruggað Jóni Leifs einhver slík ráð, og dettur mér ekki í hug að mótmæla því, enda eru það ekki mín orð að slík ráð hafí einhvem tímann verið brugguð. Það breytir þó ekki því, að Jón Leifs sjálfur taldi að slíkt hefði verið gert, og sagði ég rétt og skilmerkilega frá þeim hugrenn- ingum hans í útvarpsþætti mínum. Til þess að forðast frekari hártoganir af hendi Jóns Þórarins- sonar um þetta atriði er réttast að vitna til fmm- heimildar minnar í þessu máli. Hún fínnst í bréfí Jóns til móður hans, dagsettu 19. nóvember 1930: Þú veizt, að Páll ísólfsson, sem stendur að ein- hveiju leyti á bak við þetta, vill mér ekki vel... Til þess svo að friða samvisku sína og aðra menn lét hann (eða studdi að því að) gera mér boð um þessa framsagnarstöðu. Af allri með- ferð málsins var augljóst að, svo langt sem vit hans náði, þá hugsaði hann sér það þannig, að annaðhvort mundi eg nú svara skömmum í vonsku og þannig eyðileggja allt fyrir mér, (það hefði eg sennilega gert nokkrum árum fyrr og hefði það verið eðlilegt) eða að eg mundi taka við stöðunni til þess að forðast • hungrið og þannig yrði mér og list minni kom- ið fyrir kattarnef, því að þá mundu allar leiðir lokast fyrir list mína og störf hér erlendis og lslendingar mundu missa allan snefil af trausti til listamanns, sem segði skilið við list sína og ynni að ólistrænum störfum langt fyrir neðan Pál hinn „mikla Iistamann.“ Eg vil hvorugt gera. Tónlistarstjóri útvarps í beinu framhaldi af frásögn minni af tilboðinu um þularstarfið (sjá á undan) sagði ég frá því í útvarpsþættinum, að Jóni Leifs hefði nokkmm ámm síðar verið boðin staða tónlistarstjóra við Ríkisútvarpið. Sú frásögn mín var með eftirfar- andi hætti (í upphafínu vísa ég til áðumefndra hugrenninga Jóns í garð Páls): Hvort sem Jón hafði rétt fyrir sér í þessu máli eður ei er hitt víst, að það var hinn sami Páll sem tæpum fimm árum síðar stóð fyrir því að Jóni væri boðin staða tónlistarstjóra Ríkisútvarpsins. Jón þáði þetta boð, enda var hann byijaður að gera sér það Ijóst að fjöl- skyldu hans var varla vært til lengdar í hinu nýja Þýskalandi nazismans. Það þarf meira en lítið afbrigðilegan lesanda til þess að lesa eitthvað annað úr þessum texta mínum en það, að ég telji Pál ekki hafa verið illgjarnari í garð Jóns Leifs en svo, að hann hafi beitt sér sérstaklega fyrir því að Jón fengi stöðu tónlistarstjóra við Ríkisútvarpið. Þetta dugar hins vegar ekki Jóni Þórarinssyni því að hann fjargviðr- ast í löngu máli yfír því, að ég skuli ekki í þætti mínum hafa getið um það hversu fórnfús Páll hefði verið í þessu sambandi. Páll hafi nefnilega staðið upp úr hlutastarfi tónlistarráðunauts til þess að Jón kæmist að við útvarpið, og hafi hann meira að segja gert það ótilneyddur en að beiðni Jóns. Jón Þórarinsson segist hafa þessar upplýs- ingar úr eftirlátnum minnispunktum Páls. Satt best að segja veit ég ekki hvernig á að svara málflutningi eins og þessum öðruvísi en svo, að enn á ný fær maður staðfestingu á því hversu góður Páll ísólfsson var við annað fólk, sérstaklega þó við Jón Leifs. Mér verður vonandi fýrirgefið að hafa ekki í útvarpsþáttum mínum getið um þessa manngæsku Páls, en hefí það þó mér til afsökunar að þættirnir áttu að fjalla um Jón Leifs en ekki um Pál ísólfsson. íslenskir tónleikar í Kaupmannahöfn 1938 Norrænir tónlistardagar voru haldnir í Kaup- mannahöfn í september 1938. ísland tók þá í fyrsta skipti þátt í þessari hátíð og voru eingöngu leikin verk íslenskra höfunda á opnunartónleikun- um, m.a. verk Jóns Leifs, Páls ísólfsonar og Sig- urðar Þórðarsonar. Frá þessum hljómleikum sagði ég I þriðja út- varpsþætti mínum um Jón Leifs og við þá frá- sögn bætti ég við eftirfarandi útleggingu: Það var skrifað um þessa tónleika í öll helstu blöðin á Norðurlöndum og var þetta í fyrsta sinn sem íslensk tónlist fékk slíka athygli. Samkvæmt þessum skrifum voru gagnrýnend- ur á eiríu máli um að tónlist Jóns væri bæði stórbrotin og dramatísk og að í henni væri að finna sterkan karakter, frumstæðan en heill- andi. Verk hinna íslensku tónskáldanna fengu hins vegar afleita dóma, - þóttu gamaldags, klisjukennd og án minnstu persónulegra sér- kenna. Fyrir Jón voru þessir tónleikar fágætur sigur og hafa viðtökurnar eflaust gefið honum aukinn styrk til þeirra átaka sem biðu hans, bæði í einkalífinu og í tónsmíðunum sjálfum. Fyrir þá Sigurð, Pál og hin tónskáldin hljóta þessir tónleikar hins vegar að hafa verið mikil auðmýking. Það er yfir þessum sakleysislega texta sem Jón Þórarinsson bókstaflega umturnast. í fyrsta lagi fínnur hann að því við mig, að ég skyldi í útvarps- þætti mínum ekki hafa getið um þær heimildir, sem ég hafði fyrir þessari útleggingu minni, og í öðru lagi fullyrðir hann að ég hafí aldrei séð þau biaðaummæli sem ég þó dirfíst að vitna í texta mínum. Til stuðnings síðari ásökun sinni endursegir Jón eftir eigin höfði ummæli nokkurra norrænna blaða (og eins þýsks) um þessa tón- leika í Kaupmannahöfn og fyllir sú endursögn nærri heilan blaðadálk af breiðari gerðinni. Um fyrri ásökunina segi ég það eitt, að eins og allir þeir vita, sem hafa þjálfun í að gera þætti fyrir hljóðvarp eins og þá sem ég gerði um Jón Leifs, þá gengur það alls ekki að vera sífellt að geta um þær heimildir sem frásögnin byggist á. Slíkt er auðvelt að gera í rituðu máli, en í lesn- um texta myndu sífelldar tilvísanir í heimildir ijúfa frásögnina með þeim hætti að hún yrði nánast óskiljanleg öllum hlustendum, svo ekki sé nú minnst á skemmtigildi hennar. Þetta ætti nú hver maður að geta séð í hendi sinni, — líka Jón Þórarinsson. Síðari ásökunin, þ.e.a.s. að ég hafi alls ekki séð þau blaðaummæli, sem frásögn mín um þenn- an konsert byggist á, á rætur sínar í heilaspuna, sem ekki er sæmandi nokkrum söguritara sem vill láta taka sig eitthvað alvarlega. Til fróðleiks fyrir Jón Þórarinsson og lesendur Morgunblaðsins get ég upplýst að blaðaummælin, sem ég hafði til hliðsjónar við frásögn mína, birtust í eftirfar- andi blöðum: Berlingske Tidende, Svenska Dag- bladet, Arbejderbladet, Hufvudstadsbladet og Jyllandsposten. Umsagnirnar í þessum blöðum sýnast mér hafa verið flestar á sama veg, en ef marka má endursagnir Jóns Þórarinssonar úr öðrum blöðun en hér eru talin þá hafa ekki allir norrænir gagnrýnendurnir verið sama sinnis um kosti og gæði íslensku tónverkanna. í þessu sambandi tel ég þó mikilvægt, að menn geri sér það ljóst að í ýmsum tilfellum getur ein- um þótt eitthvað hafa verið sagt til hróss sem öðrum þykir hafa verið til lasts, — og svo öfugt. Til dæmis þætti mér sjálfum það til lasts ef sagt væri um tónverk eftir mig að það væri gamal- dags, en ekki er ólíklegt að t.d. Jóni Þórarinssyni þættu slík ummæli um eigið verk vera til hróss. Hins vegar þætti mér það harla gott ef sagt væri um tónlist mína að hún væri primitíf (frum- stæð) en hins vegar má ætlað að slíkt þætti Jóni hið versta mál ef sagt væri um hans eigin tón- list. Með þetta í huga tel ég því réttast að birta hér orðrétt nokkrar glefsur úr þessum blaðaum- mælum og geta þá lesendur sjálfir dæmt um hvaða ályktanir megi af þeim draga um afstöðu norrænu gagnrýnendanna og hvort aðdróttanir Jóns Þórarinssonar um að ég stundi falsanir á heimildum eigi við rök að styðjast eður ei. Þetta eru beinar tilvitnanir, en ekki endursagnir, og eru þýðingamar gerðar af löggiltum skjalaþýðanda: Berlingske Tidende, 4. september 1938: [...] Þetta æskuverk Jóns Leifs: hvílík þijóska, hvílíkur þungi og hvílík einlægni — hann gat ekki samið öðmvísi. Alvaran vék ekki einu sinni til hliðar í „Intermezzóinu", þar sem búast hefði mátt við bjartari, léttari og glaðlegri hljómum. í tónlist hans við leikrit [Jóhanns] Siguijónssonar „0nsket“ [Galdra-Loftur], er hið mikla og á stund- um geysilega hrífandi hugarflug allsráðandi. Þáð er sem tónskáldið sé „heltekið" af þessu skáld- verki, túlkun hans á „Særingunni", og einkum og sér í lagi „Sorgargöngulaginu" og „Finale" er með svo bráðri stígandi að við liggur að áheyr- endur verði jafnframt „helteknir". Þessu til viðbót- ar veit tónskáldið hvemig á að nýta sér mögu- leika hljómsveitarinnar... Hljómsveitarstjórn hr. Leifs á verki sínu var í senn innileg og lifandi. Eftir hlé stjórnaði orgelleikarinn [Páll] ísólfs- son, sem okkur er ekki alls ókunnur, heldur ómerkilegum forleik í gamaldags stíl. Hljómsveit- arstjórn hans var svolítið stirðleg og eftir bók- inni... Og loks [var leikin] sérstaklega vel sam- sett (og útfærð) Passacaglía. Þó verður það að segjast, að þegar innblástur verks í þessu tónlist- arformi kemur frá tónskáldi, sem ekki telst af- burðamaður, er hætt við að það verði stirt og hljómi eins og pappírstónlist. [...] WILL BEHREND. Svenska Dagbladet, 4. september 1938: [...] ísland nútímans lítur á Jón Leifs sem sitt fremsta tónskáld og það voru líka höfundarmerki hans sem vora ríkjandi á efnisskrá kvöldsins. Umfangsmikill skerfur hans til efnisskrárinnar vakti nokkuð blendnar tilfínningar, en um heildar- áhrifín má segja í eitt skipti fyrir öll: bragðdauf er tónlist hans allavega ekki. [...] [...] Eftir hlé gátu áheyrendur slakað á, því nú vora þræddar þekktar slóðir. Menn héldu sig næstum eingöngu við velþekkt tónmál — þó að nöfn tónskáldanna væru ný. Fulltrúi þessarar tónlistar var t.d. Sigurður Þórðarson, sem átti þarna forleik í klassískum stfl, sem var hreinrækt- uð stæling, mjög laglega gerð en gjörsneydd per- sónulegum einkennum. Einnig koih þar fram hljómsveitarstjórinn Páll ísólfsson með verk sitt Introduktion og Passacaglíu fýrir stóra hljóm- sveit, sem virtist næstum barmafull af hugmynd- um sem eiga rætur í sinfónískum stíl Brahms. [...] K.R-n. Arbejderbladet, 6. september: [...] Fyrri hluti tónleikanna var helgaður Jóni Leifs og tónverkum hans: Lítilli trílógíu fyrir hljómveit op. 1 og „0nsket“ [Galdra Loftur], sem er tónlist við samnefnt leikrit Jóhanns Siguijóns- sonar, [Jón] hefur augljósa dramatíska náðargáfu og er næmur fyrir lífsþrótti tónlistarinnar. Þess vegna hæfði tónlist hans svo vel hinu sterka og hjartnæma leikriti [Jóhanns] Siguijónssonar. Textinn og tónlistin studdu vel hvort við annað, svo að úr varð stórbrotin heild, sem sýndi greini- lega í hveiju hæfíleikar Jóns felast og hvemig honum ber að nýta þá. Sé tónlistin við Galdra Loft höfð í huga skilur hlustandinn betur Litlu trílógíuna fyrir hljómsveit og gerir sér betur grein fyrir hinum andlega skyldleika verkanna tveggja. Jón Leifs stjórnaði sjálfur verkum sínum, færari hljómsveitarstjóri hefði vafalaust fengið meira út úr tónlistinni en hann náði; en hvað um það. Það vora verk Jóns Leifs sem mesta athygli vöktu á tónleikunum. Forleikur Sigurðar Þórðarsonar í klassískum stíl og Introduktion og Passacaglía Páls ísólfssonar máttu sín einskis í samanburði við verk Jóns Leifs... Páll ísólfsson stjórnaði og leiddi hljómsveitina það sem eftir lifði kvöldsins og gerði það bærilega og nákvæmt, næstum of nákvæmt. [...] K.Bo. Hufvudstadsbladet, 5. september: [...] Jón Leifs flutti undir eigin stjórn „Litla trílógíu fýrir hljómsveit“, en hvað varðar hljóð- fall er verkið sérstaklega áhugavert. „Prelúdían" með sínu knappa, smástíga grunnstefí hljómaði sem sorgartónlist, og bar að nokkra leyti ein- kenni göngulagsins, en hún varð þegar á leið vonglaðari og bjartari. Eftir hugmyndaríkt „Int- ermezzo“ tók við stuttur þriðji kaflinn, glettinn og ævintýralegur lokakafli. í þessum kafla heyrðu menn mjög svo persónlegan tón, sem gaf fyrirhe- it um framtíðina. [Jón] Leifs er hvorki maður formsins né heldur hins lagræna, en hugmyndir hans streyma það áreynslulaust fram að ágallar á uppbyggingunni ættu ekki að þreyta [áheyrand- ann]. Jyllandsposten, 14. september 1938: [...] Nú þegar Norrænum tónlistardögum í Kaupmannahöfn er lokið og við lítum um öxl til hins gífurlega fjölda tónlistaráhrifa, sem menn urðu þar fyrir, era nokkrir sérkennilegir tónlistar- viðburðir sem munu greypast í minninguna. í samantekt sem þessari er eðlilegt að nefna ísland fyrst, því þetta var í fyrsta skipti sem ís- land var þátttakandi og ennfremur var íslensk tónlist fyrst á dagskrá tónlistardaganna. Auk þess kvað við alveg nýjan tón í norrænni tónlist og þó fannst mönnum þeir heyra eitthvað æva- fornt, líkt og hljóma úr djúpi hinnar samnorrænu sálar. Þetta á sér samsvörun í því, að íslensk tunga hefur varðveist mun betur en hin Norður- landamálin frá tímum „dönsku tungunnar". Sá maður sem öðram fremur framkallaði þessar upprunalegu og sérstæðu tilfinningar var Jón Leifs. Tónlist hans var Sagnaeyjan í tónum, ákaf- lega drungaleg, án brosvipru, en hafði í sér þá frumstæðu frjósemi sem framtíð íslenskrar tón- listar mun vaxa upp úr. [...] Til framtíðar Þegar saga listarinnar er skráð era menn ekki vegnir eftir manngæsku eða eftir því hvernig þeir hafa komið fram við aðra. Það era verkin þeirra, listaverkin, sem þá skipta máli og ekkert annað. I kjölfarið kemur svo áhuginn á persónu- gerð viðkomandi listamanns, einkalífi hans og almennum viðhorfum, og menn fínna verkum hans stað í einhvers konar ferli til aukins þroska. Skiptir þá engu máli hvort manni finnst viðkom- andi persóna vera geðfelld eður ei. Það þarf varla lengur um það að deila, að Jón Leifs ber höfuð og herðar yfír öll þau íslensk tónskáld sem voru honum samtíða. Þessir yfír- burðir Jóns í tónsmíðunum hafa hins vegar ekki orðið almenningi ljósir fyrr en á síðustu áram, enda er það fyrst núna sem verk hans eru flutt með þeim sóma sem þeim ber. Menn hafa nú fengið brennandi áhuga á persónunni, sem býr að baki verkunum, og fólk er forvitið um það líf sem hún lifði. í útvarpsþáttum mínum um Jón Leifs reyndi ég að nokkru að svala þessum nýju þörfum og af undirtektum að dæma virðist fólk almennt hafa kunnað því mjög vel. Það á þó enri eftir að skrifa ævisögu Jóns Leifs og safna mikli af þeim gögnum sem til þess verks era nauðsyn leg. Ekki er þó síður brýnt, að einhver vitræn umræða skapist um sjálf tónverkin, svo betur sé hægt að meta þau með tilliti til hugmynda og listsköpunar okkar eigin samtíðar. Skref í þá átt gæti verið sérstök ráðstefna, sem helguð væri tónverkum Jóns Leifs. Þar yrði að finna fyrir- lestra og umræðufundi auk hljómleika með viðeig- andi verkum. Til þeirrar stefnu þyrfti að safna fólki sem þrátt fyrir ólík viðhorf og skoðanii ætti saman þá yfírsýn að geta séð skóginn fyrii trjánum sem í honum vaxa. Þetta væri sannar- lega verðugt verkefni og líklegra til árangurs er að kasta hnútum að þeim sem verkin vinna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.