Morgunblaðið - 22.11.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.11.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995 21 ERLENT við að laga sig að lífinu í flóðljós- um fjölmiðlanna. Þá hefði hún sagst hafa orðið þess vör fljót- lega, að Karl, sem hefði orðið fyrir vonbrigðum með sína ungu konu, hefði endurnýjað gamalt samband sitt við Camillu Parker- Bowles. „Við vorum þijú i þessu hjónabandi þannig að það var orðin dálítil þröng á þingi.“ Þau Karl og Díana skildu að borði og sæng 1992 en hún kvaðst ekki vilja fullan skilnað vegna sona þeirra tveggja. Will- iam, sá eldri, gengur næst föður sínum að ríkiserfðum. Dagblaðið The Sun sagði, að boðskapur Díönu væri skýr: „Hún ætlar ekki að láta konungs- fjölskylduna segja sér fyrir verk- um. Hún vill, að fari Karl fram á skilnað, þá sé það hann, sem slíti hjónabandinu, ekki hún.“ Viðurkenndi framhjáhald Mesta athygli vakti í viðtalinu þegar Díana viðurkenndi að hafa sjálf átt í ástarsambandi við Jam- es Hewitt, foringja i riddaralið- inu. Það var árið 1989. „Já, ég dáði hann,“ sagði hún. „ Já, ég var ástfangin af honum." Fyrir rúmu ári skrifaði Hewitt ásamt öðrum bók um samband þeirra og lýsti því í smáatriðum. Díana hélt því fram, að ráð- gjafar og vinir Karls hefðu hald- ið uppi ófrægingarherferð gegn sér og vitnaði til þeirra sem „óvinarins". Þessu vísa þeir á bug og einnig þeirri yfirlýsingu henn- ar, að Karl sé ef til vill ekki til konungs fallinn. „Karl hefur alla tíð verið að búa sig undir það eitt,“ sagði Jonathon Porritt, kunnur un- hverfisverndarmaður og vinur Karls. þetta fékk mikið á mig. Ég dáðist þó að hreinskilninni, það þarf kjark til. Rússland Getaekki staðið við afvopnun- arsamning Moskvu. Reuter. RÚSSAR geta ekki eyðilagt þúsund- ir skriðdreka og stórskotavopna austan Úral-fjalla fyrir áramót eins og kveðið er'á um í afvopnunarsamn- ingi frá árinu 1991, að sögn Dmítríjs Khartsjenkos hershöfðingja, hátt setts embættismanns í rússneska varnarmálaráðuneytinu. Khartsjenko sagði í gær að Rússar hefðu ekki nægilegt fjármagn til að eyðileggja vopnin og lagði til að fresturinn yrði framlengdur til loka ársins 1998. „Eyðilegging vopna er dýr,“ sagði Khartsjenko. „Við þurfum um 100 milljarða rúblna [1,3 milljarða króna] til að framfylgja ákvörðun sovésku stjórnarinnar." Sovéska stjórnin féllst á að eyði- leggja vopnin í málamiðlunarsam- komulagi frá 14. júní 1991 sem greiddi fyrir staðfestingu CFE, samningsins um fækkun hefðbund- inna vopna í Evrópu. CFE var þá í hættu þar sem Sovétmenn höfðu flutt vopn austur yfir Úral-fjöll, eða út fyrir það svæði sem samningurinn náðitil. Samkvæmt málamiðlunarsam- komulaginu féllst sovéska stjórnin á að CFE næði einnig til vopnanna handan Úral-fjalla. Khartsjenko sagði að Rússar ættu að eyðileggja 6.000 skriðdreka, 1.500 brynvarðar bifreiðar og 7.000 stórskotavopn austan Úral-fjalla. Þar af hafa þeir þegar eyðilagt 1.400 skriðdreka, 608 brynvarðar bifreiðar og 2.709 stór- skotavopn. Pavel Gratsjov, varnarmálaráð- herra Rússlands, sagði í vikunni sem leið að Rússar hygðust eyðileggja vopnin en gætu það ekki vegna fjár- skorts. nýtt þjónustunúmer Nýtt þjónustunúmer +354 809 0118 hefur verið tekið í notkun fyrir upplýsingar um símanúmer á íslandi þegar hringt er erlendis frá. Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að hringja í þetta númer hér á landi. liliiist jÆ'. 'V '« | p< ___________________________________________ Ég elskaði hann M: Önnur bók, sem kom út ný- lega, er um James Hewitt, sem segist hafa staðið í nánu sambandi við þig frá 1989. Hvað er rétt í því? D: Hann var vinur minn á erfið- um tíma, mjög erfiðum tíma og ég var eyðilögð manneskja þegar bók- in kom út. Ég hafði treyst honum og hafði áhyggjur af börnunum. M: Var samband ykkar meira en vináttan ein? D: Já. M: Hélstu framhjá manni þínum? D: Já, ég dáði hann. Já, ég elsk- aði hann. M: Hvernig viltu lýsa lífi þínu núna? Þú virðist vera mjög ein. D: Já, en mér er sama um það. Fólk virðist halda, að það sé ekk- ert líf . nema karlmaðurinn bíði manns að loknum degi en ánægju- legt starf er betra fyrir mig. M: Við hvað áttu? D: Ég á við það, að rekist inn til mín karlmaður þá er óðara búið að splæsa okkur saman í fjöl- miðlunum og allt orðið vitlaust. Þetta hefur gert vinum mínum af karlkyninu dálítið erfitt fyrir og mér líka. Annars á ég enn mína góðu vini, börnin mín og starfið. M: Það er mikið um það rætt hvernig leyst verði úr málum ykkar Karls, jafnvel, að til fulls skilnaðar komi. Hvað segirðu um það? D: Ég vil ekki skilnað en við þurfum að ræða saman og fá mál- in á hreint. Ég bíð þess vegna eft- ir ákvörðun eiginmanns míns. M: Heldurðu, að þú eigir eftir að verða drottning? D: Nei, það held ég ekki. M: Hvers vegna? D: Ég vildi gjarna vera drottning í huga fólksins en ég sé ekki, að ég verði drottning þessa lands. Ég held, að margir yrðu lítt hrifnir af því. Við seljum amerískar gæðadýnur frá Kingsdown og mikið úrval af fallegum rúmum. Það sem gerir Kingsdown dýnurnar frábrugðnar öðrum sambærilegum dýnum er að í neðri dýnunni er samskonar gormastell og í þeirri efri. Þetta gefur stóraukna fjöðrun og tryggir að dýnurnar laga sig betur að líkamanum. Hryggsúlan verður bein í svefni og betri djúpsvefn næst. Trégrindin í neðri dýnunni er sérlega styrkt á álagsflötum. Gormastellin í báðum dýnunum eru tvíhert sem eykur lífslengd gormanna mikið og hæfni þeirra til að fara aftur í rétta stöðu. 1ÉTK1NGSDOWN Heilsusamlegar og þægilegar dýnur ágóðuverði! Suðurlandsbraut 22 Sími: 553 6011 og 553 7100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.