Morgunblaðið - 22.11.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.11.1995, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Jón Gunnar Traustason, skipveiji á Akureyrinni, sem gerði mettúr í Smuguna Morgunblaðið/Kristján ELIN Dóra Signrðardóttir smellir kossi á unnusta sinn, Jón Gunnar Traustason, við heimkomuna úr Smugunni. Morgunblaðið/Kristján KARLINN í brúnni fékk líka koss. Freyja Valgeirsdóttir, eigin- kona Sturlu Einarssonar skipstjóra, heilsar manni sínum. Mikilvægt að hafa húmor- ista um borð ÞETTA er allra lengsti túr sem ég hef tekið þátt í og hann var svona heldur í lengra lagi,“ sagði Jón Gunn- ar Traustason, skipverji á Akur- eyrinni EA í samtali við Morgunblað- ið. Jón Gunnar var þá rétt kominn úr 67 daga mettúr í Smuguna. Aður hafði Jón Gunnar verið lengst 33 daga í einum túr. Ágreiningsmál afgreidd snarlega „Lífíð um borð var frekar erfitt fyrsta mánuðinn, þegar lítið var að hafa en seinni mánuðurinn bjargaði túmum. Menn notuðu dauða tímann misjafnlega. Ég og tveir félagar mín- ir fórum að spyrða, þegar við sáum fram á lítinn hlut fyrri mánuðinn. Aðrir horfðu á myndbandsspólur, tefldu eða spiluðu brids, en það er nú ekki auðvelt að komast inn í brids- hópinn.“ Jón Gunnar sagði að auðvitað kæmi það fyrir að menn æstu sig um borð en slík mál væm jafnan afgreidd mjög snarlega. „Það gengur ekki í svona litlu samfélagi að menn séu ósáttir. Karlamir í brúnni, Sturla (Einarsson) skipstjóri og Árni (Bjamason) stýrimaður eiga stærsta þáttinn í þvi hversu mannlífíð gekk annars vel um borð. Það skiptir miklu máli að hafa húmorista um borð og þar fer Ámi Bjarnason fremstur,“ sagði Jón Gunnar. 100 milljóna króna toghleri Snemma í túrnum missti togarinn annan toghlerann í hafið og þar sem ekki var auka hleri um borð þurftu skipverjarnir að slæða hlerann upp. Jón Gunnar sagði að það hafi tekið 4-5 daga og hefðu sumir skipverjam- ir verið orðnir heldur óþolimóðir og skildu ekki eljuna í kallinum við að eltast við hlerann. „Annað kom á daginn, hlerinn náðist um borð og því má segja að þetta hafi verið 100 milljóna króna hleri þegar upp var staðið.“ Akureyrin var við veiðar syðst í Smugunni fyrri mánuðinn en færði sig norður á bóginn seinni mánuðinn og þar fékkst góður afli. „Við fórum á eftir Sléttanesinu en þeir létu okk- ur vita af góðri veiði þar norður frá en þar vom einnig erlend skip á veið- um.“ Hitastigið í sjónum við frostmark „Það var oft ágætis veður í Smug- unni en frostið fór allt upp í 15° og þá var hitastigið í sjónum við frost- mark. Það gat því verið ansi kalt ef hann fór að blása og eins voru menn kaldir á höndum við að handíjatla fiskinn úr þessum kalda sjó.“ Venja er að gefa upp aflaverð- mæti um borð í skipinu á hvetjum sólarhring og segir Jón Gunnar að aflaverðmætið hafí aukist um 7,5 milljónir króna einn sólarhringinn. „Þannig tölur gáfu okkur aukinn kraft og undir það síðasta voru menn svekktir ef aflaverðmætið jókst um minna en 4 milljónir á sólarhring." Eftir þennan langa túr fá skipverj- arnir 10-12 daga til að hlaða rafhlöð- urnar, einhverjir fara svo í frí en aðrir fara annan túr fyrir jól. Konur skipveijanna tóku vel á móti þeim þegar togarinn kom að landi og um helgina ætla þær með kalla sína í helgarferð til Reykjavík- ur. Tveir menn handteknir með hass TVEIR menn á Akureyri voru hand- teknir um helgina en þeir hafa báð- ir viðurkennt við yfirheyrslur hjá rannsóknarlögreglu að hafa keypt hass í Reykjavík sem ætlað var til eigin nota. Tveir menn voru handteknir á Akureyri í gærmórgun grunaðir um aðild að fíkniefnamáli. í Ijós kom að aðeins annar þeirra var viðriðinn málið. Hann viðurkenndi að hafa fengið send sunnan úr Reykjavík um 10 grömm af hassi og ætlað það til eigin nota. Þá handtók rannsóknarlögreglan mann á veitingahúsi á Akureyri aðfaranótt laugardags, en hann hafði í fórum sínum hass og hass- pípu. Viðurkenndi hann við yfir- heyrslu að hafa farið suður til Reykjavíkur og keypt þar um 10 grömm af hassi. Eitthvað af efninu fannst á manninum en hitt hafði hann þegar reykt sjálfur. Fíkniefnamálum hefur fjölgað verulega hjá rannsóknarlögreglunni á Akureyri að undanförnu. ------» ♦ ♦----- Ellefu yfir- hafnir eyði- lagðar ELLEFU yfirhafnir, sem verið var að viðra á snúru við hús í Lerki- lundi, voru eyðilagðar aðfaranótt síðastliðins laugardags. Þær höfðu verið rifnar eða skornar í tætlur. Tjón íjölskyldunnar sem átti yfir- hafnirnar er um 200 þúsund krónur. Skemmdarverkið er óupplýst en rannsóknarlögreglan á Akureyri fer með rannsókn þess og biður þá sem kunna að hafa orðið varir við mannaferðir á þessum slóðum frá því seint á föstudagskvöld og fram á laugardagsmorgun að gefa upp- lýsingar. Mikill samdráttur í sjávarútvegi hjá Kaupfélagi Eyfirðinga Morgunblaðið/Kristján MAGNÚS Gauti Gautason greindi frá afkomu KEA fyrstu 8 mánuði ársins á aðalfundi Akureyrardeildar í fyrrakvöld. Bæjarstjórn samþykkti viðræður um kaup á Krossanesi Ahætta að taka málið upp aftur JAKOB Bjömsson bæjarstjóri á Akureyri sagði á fundi bæjarstjórnar Akur- eyrar í gær að þegar farið var í viðræður við SR-mjöl á síðasta ári um hugsanleg kaup á loðnuverksmiðjunni Krossanesi hefði sú skoðun ekki kom- ið fram að auglýsa ætti fyrirtækið til sölu. Bæjarstjóri hefur verið gagnrýnd- ur fyrir að hafa ekki auglýst hlutabréf bæjarins til sölu, en óskað var eftir tilboðum frá þeim sem lýst höfðu yfir áhuga á að kaupa. Bæjarstjórn sam- þykkti að gengið yrði til viðræðna við Þórarinn Kristjánsson og fleiri um kaup á hlutabréfum bæjarins í Krossanesi. Slakasta afkoma ítvo áratugi MIKILL samdráttur hefur orðið innan sjávarútvegsgeirans hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á fyrstu 8 mánuðum ársins, en hann nemur um 26% miðað við sama tímabil í fyrra. Afkoman er 55 milljónum króna lakari í ár en var á sama tíma á liðnu ári. Magnús Gauti Gautason kaupfélagsstjóri sagði á aðalfundi Akureyrardeildar KEA í fyrra- kvöld að um væri að ræða slök- ustu afkomu í frystingunni frá því hann fór að fylgjast með rekstrin- um árið 1974. Heildarvelta í sjávarútvegi hjá KEA var um 666 milljónir króna. Velta frystihússinS á Dalvík var um 411 milljónir sem er um 17% samdráttur miðað við fyrstu 8 mánuði síðasta árs og veltan hjá frystihúsi félagsins í Hrísey var 226 milljónir, rúmlega 28% sam- dráttur frá fyrra ári. Kaupfélagsstjóri sagði að togar- ar félagsins hefðu í mun minna mæli landað afla hjá frystihúsun- um. „Togaramir hafa lítið verið að veiða fyrir okkar hús, við höfum verið að kaupa fisk á fiskmörkuð- um, því miður oft lélegan fisk fyr- ir of hátt verð,“ sagði Magnús Gauti. Frystihús félagsins hafa á tímabilinu keypt fisk af togurum þess fyrir tæpar 30 milljónir en til samanburðar má geta þess að fyrir tveimur árum nam upphæðin tæpum 300 milljónum króna. 112 milljónir í Snæfelling Þátttaka KEA í útgerð á Snæ- fellsnesi hefði verið með það fyrir augum að fá físk til vinnslunna og frá því hún hófst hefði afkoman batnað til muna, fískurinn væri einfaldlega miklu betri en fískur sem keyptur er á mörkuðum. Því vænti hann þess að botnlausu tapi fískvinnslunnar linnti og hún næði að rétta úr kútnum fyrir áramót. Snæfellingur gerir m.a. út togar- •ann Má sem frá því í september hefur landað hjá frystihúsum KEA á Dalvík og Hrísey. Fram kom á fundinum að KEA hefur keypt hlutabréf á fystu 8 mánuðum ársins fyrir 139 milljón- ir króna og munar þar mestu um 112 milljóna króna hlutafé sem lagt var í Snæfelling. Þá keypti KEA hlutabréf í bjórverksmiðjunni Viking fyrir 20 milljónir á árinu. Bæjarstjóri fór ítarlega yfir gang mála, allt frá því hann lýsti yfír í sjónvarpsviðtali f ágúst síðastliðnum að hlutabréf bæjarins í loðnuverk- smiðjunni væru til sölu bærist viðun- andi tilboð. Málið hefði mikið verið til umræðu í fjölmiðlum og öllum hefði því átt að vera ljóst hvað væri í gangi og hefðu því getað gefið sig fram til viðræðna þar um. Ákveðið var á fundi bæjarráðs síð- astliðinn fímmtudagsmorgun að taka hagstæðasta tilboðinu í verksmiðjuna sem þá hafði borist, en um kvöldið barst símbréf með tilboði Sverris Leóssonar útgerðarmanns og fleiri sem hann segir 10 milljónum króna hærra en það hæsta sem barst áður en frestur þeirra þriggja sem gefinn var kostur á að bjóða í bréfin rann út. „Að mínu mati er staða málsins í þeim farvegi að ekki sé ástæða til að taka það upp aftur. Það hefur verið gagnrýnt að menn hafi ekki fengið sömu tækifæri og þeir sem buðu og menn geta spurt sig hvort eðlilegra hefði verið að auglýsa bréf- in til sölu, það er endalaust hægt að velta því fyrir sér. Þetta mál hef- ur verið mikið til umræðu í fjölmiðl- um og öllum sem áhuga hafa á fyrir- tækinu hlýtur að hafa verið ljóst að bærinn hafði hug á að selja það. Ég tek tilboð Sverris Leóssonar alvar- lega en sé samt ekki ástæðu til að taka málið upp að nýju. Með því tækjum við áhættu, við vitum ekki hver viðbrögð þeirra sem þegar hafa boðið í fyrirtækið yrðu og í versta falli gæti sú staða komið upp að við gætum ekki selt fyrirtækið," sagði Jakob. Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn, Alþýðubandalags og Sjálfstæðisflokks gagnrýndu þá að- ferð sem viðhöfð var í málinu. Rétt hefði verið að taka það upp í bæjar- ráði og ræða þar hvernig skynsam- legast væri að standa að, en þeir töldu ekki gerlegt að taka málið upp aftur. ( ( I u í < ( i ( i ( i i i i ( ( < (
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.