Morgunblaðið - 03.12.1995, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
, Morgunblaðið/Þorkell
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra ætlar að leita eftir heimild hjá Alþingi fyrir því að Póstur og sími fái að færa út starfsvettvang sinn.
ÍSLAND ÞARF ÓDÝR
OG TRYGG FJARSKIPTI
Hröð þróun ij'arskipta og hörð samkeppni á ijarskiptamarkaði
hefur verið til umræðu. Guðni Einarsson hitti Halldór Blön-
dai, samgönguráðherra og yfirmann fjarskiptamála, og ræddi
við hann um framtíð Pósts og síma og samkeppni í ijarskiptum.
HALLDÓR var fyrst inntur eftir því
hvenær frumvarp um breytingu
Pósts og síma í hlutafélag verður
lagt fram og hvort hann væntir
þess að það verði að lögum á þessum þingi.
Hann viídi ekki tjá sig efnislega um frum-
varpið því málið hefur ekki verið lagt fyrir
ríkisstjóm og heldur ekki endanlega kynnt
stjórnum starfsmannafélaga Pósts og síma.
En var það skoðað við undirbúning frum-
varpsins að skipta Pósti og síma upp í fleiri
en eitt félag?
„Já, það var gert en ekki talið heppilegt.
En það má vera að það verði síðar gert, en
fyrst verður að styrkja fjárhagslega stöðu
póstsins. Ef þú ert að tala um símann sérstak-
íega, þá er samkeppnin á fjarskiptamarkaði
það hörð að það dettur engum í hug að bijóta
upp fyrirtækin bara til að brjóta þau upp og
veikja samkeppnishæfni þeirra. Við erum að
tala um alþjóðiega samkeppni og höfum orð-
ið mjög rækilega varir við það, bæði Póst-
og símamálastofnun, og eins hér í ráðuneyt-
inu, að það er áhugi erlendra fjölþjóðafyrir-
tækja fyrir því að koma hingað til íslands
ef eitthvert tómarúm skapast. Hér er mikil
velta á hvem einstakling og því eftir miklu
að slægjast. Alþýðuflokkurinn stöðvaði það
í síðustu ríkisstjóm að frúmvarp um Póst og
síma hf. yrði flutt.“
Sjólfstæð somkeppnisdeild
- Samkeppnisstofnun lagði til að stofnað
yrði sérstakt félag um samkeppnisrekstur
Pósts- og síma. Kom það ekki til greina?
„Samkeppnisstofnun hefur ekki gert at-
hugasemdir við nýja reglugerð um aðskilnað
samkeppnissviðs og einkaréttarsviðs Pósts
og síma.“
- Samráðherra þinn lét svo ummælt um
daginn að selja beri þau ríkisfyrirtæki sem
em í beinni samkeppni við einkafyrirtæki.
Gæti það átt við um hluta af Pósti og síma?
„Það þjónar ekki íslenskum hagsmunum
að veikja samkeppnisstöðu Pósts og síma
gagnvart erlendum fjölþjóðafyrirtækjum sem
hingað vilja teygja arma sína. Ég sem ráð-
herra samgöngumála ber embættislega
ábyrgð á að því eigin fé sem er inni í Pósti
og síma sé ekki kastað á glæ. Ég er vörslu-
maður þessara hagsmuna og þessara fjár-
muna. Það sem ég er að beita mér fyrir er
að breyta Pósti og síma í hlutafélag í eigu
ríkisins til þess að það geti starfað á mark-
aðnum með öðrum fyrirtækjum sem þar
starfa á fjarskiptasviði eftir þeim leikreglum
sem þar gilda. Allir íslenskir athafnamenn
og íslenskir verslunarmenn hljóta að láta í
Ijós ánægju sína yfir þessu skrefi. Þeir hljóta
að skilja það betur en ég hversu mikilvægt
það er að hið opinbera sé ekki að krenkja
sum fyrirtæki framyfír önnur.“
Sérfræóiþekking í ráðuneytinu
Samgönguráðuneytið fer með yfirstjórn
fjarskiptamála. Hvemig er ráðuneytið í stakk
búið til þess að fylgjast með þróun á fjar-
skiptasviði? Gegnir Póstur og sími því hlut-
verki að vera sérfræðideild ráðuneytisins?
„Hann gerði það eins og sjálfsagt þótti á
þeim tíma, en svo er ekki lengur. Sigurgeir
H. Sigurgeirsson hagfræðingur hefur tekið
við þessu sviði hér í ráðuneytinu. Jafnframt
höfum við verkfræðilegan ráðgjafa hjá Fjar-
skiptaeftirlitinu. Þeim ráðgjafa hefur verið
falinn undirbúningur að því með hvaða hætti
við getum boðið út GSM-þjónustu, ef til kem-
ur. Það er mikið verk að undirbúa það. Flók-
in útboðsgerð og það þarf að taka margar
pólitískar ákvarðanir á þeirri leið. Þessi kostn-
aður verður að síðustu greiddur af þeim sem
reka starfsemina. Af Pósti og síma, sem
auðvitað heldur sínu starfsleyfi og þeim fyrir-
tækjum eða því fyrirtæki sem inn kæmi.“
- Hvenær verður GSM-þjónusta boðin út?
„Ég held að það sé mikill misskilningur
sem manni finnst maður lesa í gegnum síður
Morgunblaðsins að hver sem er geti farið að
reka hér GSM-kerfi, jafnvel strax á morgun.
Það er nú ekki þannig. Það hafa tveir sótt
um formlega og aðrir verið uppi með fyrir-
spurnir. Þeim hefur öllum verið gerð grein
fyrir því að fyrsta skrefið sem stíga verði,
áður en slíkt sé boðið út, sé að aðgreina einka-
leyfisrekstur og samkeppnissvið Pósts og
síma og breyta félaginu í hlutafélag. Það tel
ég að sé grundvallaratriði til þess að Póstur
og sími geti brugðist hratt og vel við slíkri
samkeppni, vegna þess að það verða erlend
fjölþjóðafyrirtæki sem koma inn í samkeppn-
ina, en ekki kaupmaðurinn á horninu."
Samkeppni í GSM-rekstri
- Hvenær má vænta þess að reglur um
farsímarekstur verði gefnar út?
„Slíkur undirbúningur hefur tekið eitt eða
tvö ár erlendis þegar búið er að ákveða að
leyfa samkeppnisrekstur. Það mál hefur ekki
verið borið upp í ríkisstjórninni og ekki verið
tekin ákvörðun um það. Við höfum hins veg-
ar hafið undirbúning og njótum tæknilegrar