Morgunblaðið - 03.12.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.12.1995, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LISTIR Rannsaka ástæð ur gjaldþrota Sjálfsbjörg Kvöld- lokkur á jólaföstu ÁRLEGIR tónleikar Blásara- kvintetts Reykjavíkur og félaga, „Kvöldlokkur á jólaföstu", verða haldnir í tveimur kirkjum í ár; mánudag 4. desember i Bessa- staðakirkju á vegnm menningar- félags Bessastaðakirkju og þriðjudaginn 5. desember í Kristskirkju, Landakoti. Tónleik- arnir hefjast kl. 20.30 bæði kvöldin. Að þessu sinni er röðin aftur komin að kvöldlokkum eða ser- enöðu Mozarts „Gran Partita" K. 361 í B-dúr fyrir þrettán blás- ara og kontrabassa. Það er Bern- harður Wilkinson, flautuleikari kvintettsins og hljómsveitarstjóri, sem sljórnar flutningnum. Hljóð- færaleikarar eru: Daði Kolbeins- son og Peter Tompkins á óbó; Einar Jóhannesson, Sigurður I. Snorrason, Kjartan Óskarsson og Óskar Ingólfsson á klarinettur og bassetthorn; Hafsteinn Guð- mundsson; Björn Th. Árnason og Rúnar Vilbergsson á fagott og kontrafagott; Þorkell Jóelsson, Lilja Valdimarsdóttir, Emil Frið- fínnsson og Svanhvít Friðriks- dóttir, horn. Og á kontrabassa leikur Richard Korn. Þess má geta að fyrir jól er væntanlegur nýr geisladiskur á vegum Merlin-útgáfunnar í London þar sem Blásarakvintett Reykjavíkur leikur vinsæl lög allt frá Bach og Schubert til Sig- fúsar Halldórssonar og Jóns Múla. Alþjóðadagur fatlaðra í Háskólabíói ÚR sönnum karlmanni. Kór Tónlistarskólans á Akureyri Gloria flutt á fyrstu tónleikunum FYRSTU tónleikar Kórs Tónlistar- skólans á Akureyri verða haldnir í Akureyrarkirkju miðvikudagskvöldið 6. desember kl. 20.30. Kórinn flytur Gloria eftir Antonio Vivaldi ásamt kammersveit, ein- söngvarar eru Björg Þórhallsdóttir mezzósópran og Hildur Tryggvadótt- ir sópran og þá verður fluttur óbó- konsert eftir Hándel, einleikari er Jacqueline F. Simm. Stjómandi er Michael J. Clarke. Kór Tónlistarskólans var stofnaður í haust og hefur hann á að skipa 45 söngvurum. Þetta eru fyrstu sjálf- stæðu tónleikar hans, en hann kom í fyrsta sinn fram á styrktartónleikum í Iþróttahöllinni í síðasta mánuði. Einsöngvararnir koma úr röðum nemenda Tónlistarskólans og hafa þegar getið sér gott orð fyrir söng sinn. Michael J. Clarke er þekktur fyrir söng sinn, en auk þess að stunda kennslu við Tónlistarskólann hefur hann stjórnað ýmsum kórum og hljómsveitum. Kammersveitin er skipuð kennurum og nemendur Tón- listarskólans. Gloria er eitt kunnasta verk Viv- aldis og er talið að það hafi verið samið um 1715. Það er í 12 þáttum fyrir fjórradda kór, einsöngvara, strengjasveit, óbó og trompet. Frá upphafi til enda verksins hljómar fagnandi lofgjörð um mikilleik Guðs. Kammertón- leikar í Lista- safni Sig-urjóns KAMMERÓNLEIKAR verða haldnir á vegum Tónlistarskólans í Reykja- vík í Listasafni Siguijóns Ólafssonar þriðjudaginn 5. desember næstkom- andi og hefjast kl. 20.30. Á efnisskrá eru Strengjakvartett í G-dúr op. 76 nr. 1 eftir Haydn, Strengjakvartett í A-molI op. 94 eft- ir Beethoven og Tríó í A-moll op. 114 eftir Brahms. Flytjendur eru nemendur Tónlistarskólans í Reykja- vík, Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. FÉLAGSVÍSINDASTOFNUN Há- skóla íslands vinnur um þessar mundir að könnun fyrir Aflvaka hf. á ástæðum þess að fyrirtæki verða gjaldþrota. Ennfremur er verið að kanna umfang, einkenni og fram- vindu fyrirtækja sem eru yngri en 10 ára og segir Sveinn Viðar Guð- mundsson, sem stýrir könnuninni, að 340 spumingalistar hafi verið sendir til starfandi fyrirtækja og forsvarsmanna fyrirtækja sem orðið hafa gjaldþrota. Ætlunin er meðal annars að bera saman fyrirtæki sem gengið hefur vel við þau sem orðið hafa gjaldþrota. „Auk þess að senda út spurninga- lista tökum við viðtöl við lána- drottna, hagsmunasamtök og fleiri, sem gefið geta upplýsingar um ytra umhverfi fyrirtækja. Upplýsingar, sem hægt er að fá úr rannsókn af af þessu tagi eru afar dýrmætar og því vonumst við eftir góðri þátt- töku. Við leggjum mikla áherslu á trúnað, enda er engin leið að rekja svör til ákveðinna einstaklinga eða fyrirtækja.“ Séríslenskar ástæður? Sveinn segir að meðal annars sé áhugi á að kanna hvort séríslenskar ástæður eru fyrir hinum mikla Qölda gjaldþrota hér. Á árunum 1989-1994 varð að meðaltali 1,4 félag gjaldþrota á hveijum virkum degi. Þetta kemur fram í yfirlits- skýrslunni „Lausleg athugun á gjaldþrotum á íslandi," þar sem ennfremur kemur fram að engar eignir hafí verið fyrir hendi í 65% þrotabúa, sem til athugunar voru. „Athyglisvert er að á sama tí voru að meðaltali stofnuð þijú fyrirtæki á hveijum virkum dej segir Sveinn. Hann segir að í umíjöllun gjaldþrot sé skuldinni oft skell slæmt efnahagsástand. „Fljótt á ið mætti ætla að beint orsakasí hengi væri milli mikils fjölda gjí þrota og slæms efnahagsástan en svo er ekki. Fyrritæki sem h tekið áhættu og skuldsett sig of eru að vonum viðkvæm _ fí sveiflum í sölu og vaxtastigi. í s um fyrirtækjum má lítið út af b til að illa fari. Vissulega getur staða komið upp að ytra umhvi kreppi svo að fyrirtækjum að rel ur þeirra sé óraunhæfur og stjó endur eigi ekki annarra kosta völ en hætta rekstri eða reka fyrirtæki sín með halla. Margar erlendar rannsóknir hafa sýnt fam á mis- munandi miklar líkur á gjaldþroti eftir aldri fyrirtækis og samkvæmt þeim minnka líkur á gjaldþroti með aldri fyrirtækja." Sveinn kveðst sannfærður um að upplýsingar úr þessari rannsókn muni nýtast mjög vel. „Bankar geta til dæmis nýtt sér niðurstöður til að skipuleggja ráðgjöf til viðskipta- manna sinna í tíma, en ég hef grun um að allt of margir bíði með að leita sér ráðgjafar þar til allt er komið í óefni. Upplýsingar sem fram koma í rannsókn af þessu tagi geta einnig nýst stjórnvöldum til að draga úr fjölda gjaldþrota og ennfremur stjórnendum fyrirtækja, sem styrkja vilja stöðu fyrirtæja sinna.“ Fyrirlestrar Þór- halls Vilmundarsonar um kirkjuleg örnefni NÚ nálgast óðum þús- und ára afmæli kristnitöku á íslandi, einhverra mestu um- skipta sem orðið hafa í íslenskri þjóðarsögu. Rómversk-kaþólskur siður ríkti hér á landi í hálfa sjöttu öld, en á afmælisárinu 2000 mun lútherskur siður hafa staðið í hálfa fimmtu öld. Á þessum tímamót- um beinist hugur manna að menningar- arfí kristninnar. Einn þáttur hans er kirkju- leg örnefni en þau eru sjálfsögðu flest frá kaþólskri tíð. Um þau mun Þórhallur Vilmundar- son, prófessor, forstöðumaður Ör- nefnastofnunar Þjóð- minjaafns, fyalla í tveimur fyrirlestrum í Háskólabíói: á Bar- bárumessu mánudag- inn 4. desember og á Nikulásmessu mið- vikudaginn 6. desem- ber kl. 17.15 (í sal 2). Sýndir verða margir uppdrættir ásamt myndum til skýringar. Efni fyrirlestranna ætti ekki aðeins að höfða til þeirra sem áhuga hafa á íslenskri kirkjusögu heldur einnig menningarsögu almennt, byggðasögu, fornminjum, bókmenntum, náttúru landsins, ferðalögum og útivist. Öilum er heimill aðgangur. Þórhallur Vilmundarson „ Morgunblaðið/Þorkell SKALDIN og söngkonan í Listaklúbbnum. Listaklúbbur Leikhúskjallarans ALÞJÓÐADAGUR fatlaðra er í dag, sunnudaginn 3. desember, og stendur Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, fyrir samkomu í Háskólabíói kl. 14.. Guðríður Ólafsdóttir, formaður Sjálfsbjargar, afhendir viðurkenn- ingar til nokkurra fyrirtækja fyrir gott aðgengi hreyfihamlaðra og Guð- mundur Bjamason umhverfisráð- herra flytur ávarp. Frumfluttur verður nýr íslenskur leikþáttur, „Fjötur um fót“, sem vann til fyrstu verðlauna í samkeppni Sjálfsbjargar sem haldin var í haust. Flytjendur eru Guðmundur Magnús- son, Gunnlaugur Helgason og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir. Leikstjóri er Hávar Siguijónsson og Hlín Gunn- arsdóttir sér um leikmynd. Fulltrúi Reykjavíkurborgar fær afhenta sérstaka viðurkenningu frá Sjálfsbjörg í Reykjavík fyrir mikið átak til að gera borgina auðveldari yfirferðar t.d. hreyfihömluðum og hjólreiðamönnum. Bubbi Morthens, KK og Laddi skemmta gestum milli atriða en kynnar á samkomunni eru félagar úr Spaugstofunni. Aðgangur er ókeypis.. Ljóðalestur - SKÁLDIN Árni Ibsen, Bragi Ólafs- son, Björg Gísladóttir, Einar Már Guðmundsson, Ingibjörg Haralds- dóttir, Linda Vilhjálmsdóttir og Sig- urður Pálsson lesa Ijóð eftir sig í Listaklúbbi Leikhúskjallarans á mánudagskvöld kl. 21. ljóðasöngnr Inga Backman söngkona syngur lög við ljóð eftir íslensk skáld og Ólafur Vignir Albertsson leikur undir á píanó. Dagskráin hefst eins og fyrr seg- ir kl. 21 og húsið verður opnað kl. 20.15. Sönnum karl- manni lýkur í dag NÚ um helgina lýkur sýningum Þjóðlcikhússins á leikritinu Sannur karlmaður eftir þýska leikskáldið Tankred Dorst. Síðasta sýning er í dag, sunnudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.