Morgunblaðið - 03.12.1995, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995 13
herforingja á Haítí til að leggja
niður völd með friðsamlegum hætti
eftir að þeir höfðu fótum troðið lýð-
ræðið þar. Nú hafa Bandaríkja-
menn, undir forystu Bill Clinton,
lagt grunn að friðarsamkomulagi í
fyrrum Júgóslavíu og haft afger-
andi áhrif á þróunina á Norður-
írlandi. Síðast en ekki síst hefur
Clinton skilgreint hlutverk Banda-
ríkjanna á alþjóðavettvangi á ný,
með þeim árangri að fáir efast nú
um forystu þeirra. Þetta hlýtur að
teljast einstakur árangur á aðeins
þremur árum.
Mistök og röng forgangsröðun
Árangurinn er ekki síst merkileg-
ur fyrir þær sakir að lagt var upp
með allt annað veganesti. Bill Clint-
on var kjörinn forseti Bandaríkj-
anna haustið 1992 á grundvelli
þeirrar umbóta- og umskiptastefnu
sem hann boðaði á vettvangi banda-
rískra þjóðmála. Sú afrekaskrá er
ekki jafn glæsileg. Forsetanum mis-
tókst að knýja fram þá grundvallar-
breytingu sem hann ræddi hvað
mest um í bandarískum heilbrigðis-
málum og forgangsröðunin í innan-
ríkismálunum hefur verið í molum
frá upphafi. í fyrra náðu síðan and-
stæðingarnir, bandaríski Repúblík-
anaflokkurinn, að veikja mjög stöðu
forsetans er meirihluta demókrata
í báðum deildum þingsins var
hnekkt í kosningum. Frá því hefur
Clinton átt mjög undir högg að
sækja í viðskiptum sínum við þing-
heim, sem er í raun grundvöllur
bandarískra stjómmála. Á efna-
hagssviðinu má segja að forsetinn
hafi verið heppinn, sá uppgangur
sem var tekinn að mælast undir lok
stjórnartíðar forvera hans í emb-
ætti, George Bush, hefur komið
honum til góða, gefið honum aukið
svigrúm og jafnframt skapað for-
sendur fyrir aðgerðarleysi.
Hugsýnir og veruleiki
Oft hefur það gerst áður í banda-
rískri stjómmálasögu að afrekaskrá
forseta hefur reynst allt önnur þeg-
ar upp er staðið en ætla mátti í
upphafi. Nærtækt er að vísa til
Ronalds Reagans en í upphafi ferils
hans var ekkert sem gaf til kynna
að hann næði þeim sögulegu af-
vopnunarsáttmálum við Sovétríkin
sem síðar litu dagsins ljós. Hið sama
á við um Richard Nixon og að sumu
leyti einnig um George Bush, arf-
taka Reagans. Allir voru forsetar
þ'essir repúblíkanar.sem að öllu
jöfnu reka mun afdráttarlausari
utanríkis- og varnarmálastefnu en
flokksbræður Clintons, demókratar.
Því hefur verið haldið fram að þessi
harka, þetta afdráttarleysi, hafi
verið nauðsynleg forsenda þess að
ná samningum við Sovétmenn.
Demókratinn Lyndon B. Johnson
hafði álíka háleitar hugmyndir og
Clinton er hann bauð sig fram í
kosningunum 1964 en hann hafði
tekið við embættinu árið áður eftir
að John F. Kennedy hafði verið
myrtur. Johnson, sem var manna
fróðastur um starfshætti þingsins,
náði að knýja fram samþykki við
helstu umbótaáætlanir Kennedys
og kynnti nokkrar til viobótar sem
kenndar voru við „Þjóðfélagið stór-
brotna“ (Great Society). Líkt og
Clinton reyndi Johnson í upphafi
valdaferilsins að leiða utanríkismál
hjá sér eins og frekast var kostur.
Johnson hafði hins vegar hlotið
vandann í Víetnam í arf frá
Kennedy, sem hafði, eftir sérlega
erfiðan fund með Níkíta Khrústsjov
Sovétleiðtoga í Vínarborg, komist
að þeirri röngu niðurstöðu að af-
skipti Bandaríkjamanna þar gætu
ráðið úrslitum um forsetaferil hans.
Svo fór að lokum að Víetnam-stríð-
ið eyðilagði Johnson og kom í veg
fyrir að sæktist eftir endurkjöri
1968.
Ný ímynd
Of snemmt er að segja til um
hvort sigrar þeir sem Clinton hefur
unnið á svið[ BtanilkÍSffiáÍa hýust
honum með beinum hætti í kom-
andi kosningabaráttu. Almennt og
yfirleitt gildir það í Bandaríkjunum
að það eru innanlandsmál sem ráða
úrslitum í kosningum. Þá er stjórn-
arskráin þannig að forsetinn hefur
að ýmsu leyti meira svigrúm á sviði
utanríkismála og þarf ekki að glíma
við þingheim með sama hætti og
þegar hann beitir sér á heimavelli.
Sigrar Clintons munu hins vegar
hressa mjög upp á ímynd hans og
gera honum kleift að koma fram
sem raunverulegur leiðtogi á al-
þjóðamælikvarða. Þegar litið er til
þeirra ímyndarvandræða sem for-
setinn átti við að etja í upphafi fer-
ils síns hljóta það að teljast tölu-
verð umskipti. Það ráðaleysi sem
einkenndi Clinton, furðuleg for-
gangsröðun verkefna og nánast ein-
stæðir hæfileikar hSSI til Sð fiæ'kja
mál út í hið óendanlega kunna að
vera að baki.
Úrtöluraddir munu hljóma hátt
og friðargæsluverkefnið sem
Bandaríkjamenn hafa tekið að sér
að stjórna í Bosníu verður borið
saman við blóðugar herfarir til Víet-
nam, Líbanon og Sómalíu. Af ýms-
um sökum stenst sá samanburður
ekki fyllilega en því fylgir ávallt
áhætta fyrir forseta Bandaríkjanna
að senda hersveitir til starfa á er-
lendri grund. Líkur eru þó á að
forsetinn nái að tryggja yfirgnæf-
andi stuðning við þessa ákvörðun
sína í Bandaríkjunum og að honum
auðnist að koma fram á næstu
mánuðum sem ákveðinn leiðtogi
öflugasta ríkis veraldar.
F^?*~h/?ijrijrhFZjrh/rijriijr
'H
LONG HELGI
Fjöldi tilboða
10-50% afsláttur
Kuldaskór - barnaskór - kvenskór - herraskór
Opið laugard. kl. 10-18 - Sunnud. kl. 13-17.
Næg bílastæSi - Full búÖ af nýjum vörum - Næg bílastæöi
SKOVERSLUN
KÚPAVOGS
HAMRABORG 3 • SÍMI S54 1754
Timberland
eljungsbúðin l
Suðurlandsbraut 4 • Sími 560 3878
'á’.5®?- Ti .;•