Morgunblaðið - 03.12.1995, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristinn
FEÐGININ Jakobína Signrðardóttir og Sigurður E. Marinósson í Sælgætisgerðinni Mónu.
SYSTKININ SEXI
SÆLGÆTINU
SÆLGÆTISGERÐIN Móna
er fjölskyldufyrirtæki í
orðsins fyllstu merkingu.
Ekki er það einungis í
eigu Sigurðar E. Marinóssonar,
Ágústu Kristínar Sigurjónsdóttur
og barna þeirra sex heldur vinna
• þau öll við fyrirtækið. Segja má
að börnin hafi verið að tínast inn
á undanförnum árum í fullt starf,
en Ágústa hefur frá upphafi starf-
að með manni sínum í rekstrinum.
Gunnar hóf fyrstur störf hjá
Mónu árið 1981 eftir lok vélfræði-
náms, en Emilía, Hjalti og Sigur-
jón voru fastráðin 1992 þegar
systkinin keyptu sinn hlut í fyrir-
tækinu. Þau síðustu tvö hófu störf
nú í haust, Jakobína 1. október
og Ágúst 1. desember. Reyndar
lét Emilía af störfum 1. október
vegna veikinda, en hún er illa
haldin af gigtarsjúkdómi.
Táknrænt upphaf
„Upphaf fyrirtækisins er tákn-
rænt fyrir það hvernig menn fóru
að því í gamla daga að ná sér í
aukavinnu til að framfleyta fjöl-
skyldunni,“ sagði Sigurður þegar
Morgunblaðið hitti hann og
Jakobínu á skrifstofu Mónu nú í
vikunni.
Á þeim tíma var Sigurður loft-
skeytamaður í Gufunesi, kvæntur
og fjögurra barna faðir. Hann og
vinur hans, Sigurður Oskarsson,
verslunarmaður höfðu verið að
íhuga hvernig þeir gætu unnið sér
inn aukapening þegar þeir sáu
auglýst þrotabú sælgætisgerðar-
innar Nönnu árið 1959. „Við
keyptum sælgætisgerðina, þar
sem hún var í kjallaraherbergi á
Tunguvegi og þar með byrjaði
ævintýrið,“ segir Sigurður.
BRÆÐURNIR Gunnar (t.v.) og Sigurjón Sigurðssynir.
VIÐSKIPri AIVINNULÍF
Á SUNNUDEGI
► SIGURÐUR E. Marinósson, annar stofnanda Sæl-
gætisgerðarinnar Mónu, fæddist 1929 í Vestmannaeyj-
um. Hann lauk prófi frá Loftskeytaskólanum 1948
og starfaði sem loftskeytamaður í Gufunesi til ársins
1961 en stofnaði Mónu 1959. Eiginkona hans er Ág-
ústa K. Sigurjónsdóttir og hefur hún starfað við rekst-
urinn frá upphafi. Árið 1992 urðu börn þeirra meðeig-
endur og starfa þau öli hjá fyrirtækinu. Má segja að
kynslóðaskipti séu að verða í yfirstjórninni með því
að tvö af börnunum eru að hefja þar störf. Eru þau
að ljúka námi í viðskipta- og rekstrarfræði við Endur-
menntunarstofnun Háskóla íslands. Jakobína fæddist
árið 1954, Gunnar árið 1957, Emilíaárið 1958, Ágúst
1960, Hjalti 1965 og Sigurjón 1972.
Sælgætisgerðin eingöngu
aukavinna fyrstu tvö árin
Fyrstu tvö árin fór starfsemin
hægt af stað, enda unnu þeir fé-
lagar þar aðeins í aukavinnu. 1961
sneru þeir sér alfarið að sælgætis-
gerðinni og réðu húsmæður úr
nágrenninu í vinnu. I byijun var
megnið af framleiðslunni hand-
unnið en smám saman jókst véla-
kostur fyrirtækisins. Tímamót
urðu í rekstrinum þegar ráðist var
í byggingu nýs verksmiðjuhús-
næðis við Stakkahraun í Hafnar-
firði árið 1963. Var það tekið í
notkun um áramótin 1965-66. Sig-
urður Óskarsson hafði selt sinn
hlut í fyrirtækinu nokkru áður, eða
1961, og hafa tveir eigendur kom-
ið að því síðan. Starfsmenn Mónu
hafa undanfarin ár verið í kringum
20 nema í páskatörninni.
„Ég þóttist aldeilis hafa himin
höndum tekið þegar pabbi keypti
sælgætisgerðina,“ segir Jakobína
þegar hún rifjar upp fyrstu komu
sína að fyrirtækinu. „Ég man þeg-
ar ég smeygði mér inn í þessa
súkkulaðiparadís og stakk upp í
mig bita. Þá fann ég að þrifið var
hraustlega í öxlina á mér. Það var
greinilegt að ég átti ekki að venj-
ast því að geta farið þarna inn og
hámað í mig sælgæti,“ heldur hún
áfram hlæjandi. Nú hefur hún hins
vegar sterkari stöðu innan fyrir-
tækisins og stingur upp í sig sæl-
gætismola, sem reyndar er í skál
á borðinu.
Áherslan á markaðsmál
Hlutverk Jakobínu verður fyrst
um sinn að sinna markaðsmálum
og þá bæði innanlands sem utan.
Móna hefur haft nokkra sérstöðu
innanlands með bökunarvörur eins
og tertuhjúp, súkkulaðispæni og
slíkt, en á. undanförnum árum
hafa samkeppnisaðilar verið „að
klípa af þeirri köku,“ eins og Jak-
obína orðar það. Hún segir því
að leggja verði meiri áherslu á
markaðsetningu og vöruþróun á
næstunni, jafnt innanlands sem
utan.
Móna stofnaði árið 1994 dóttur-
fyrirtæki í Svíþjóð undir nafninu
„Móna & Marinosson“ og verður
töluverð vinna verði lögð í sænska
markaðinn á næstunni. „Eftir
reynslu þessa fyrsta árs munum
við fara ofan í kjölinn og kanna
hvernig best verður að útflutn-
ingnum staðið,“ segir Jakobína og
vekur máls á því að athyglisvert
sé að heyra hvaða ímynd ísland
hafi í augum Svía. „Þeir telja Is-
land vera hreint, heilbrigt og bjóða
upp á mikil gæði.“
Þá hafa Færeyingar sóst eftir
viðskiptum við Mónu og fór fyrsta
sendingin utan fyrir þremur vik-
um. „Sá útflutningur er á algjöru
tilraunastigi. Færeyski markaður-
inn er svo lítill að það er ekki
hægt að nota sömu aðferðir við
að markaðssetja vöruna þar og í
Svíþjóð.“
Ávaxtahlaup vinsælt
Þegar þau eru spurð hvaða vör-
ur séu vinsælastar hér á landi
segja þau það árstíðabundið hvað
seljist best, en nefna bökunarvörur
fyrir jólin, páskaegg á vorin og
smávörur allt árið.
Þau benda á að sælgætismark-
aðurinn hafi breyst töluvert á
undanförnum árum með tilkomu
„blands í poka“. Nú sé krafan í
auknum mæli framleiðsla á smá-
vöru af ýmsu tagi. „Við tókum þá
stefnu að fara meira inn á þennan
hlaup-markað því þar hefur skort
íslenska framleiðslu. Megnið af
hlaupinu var innflutt og ég er það
stoltur íslendingur að ég tel að
við verðum að leggja okkar af
mörkum ef við ætlum að búa hér
á landi. Okkur hefur tekist býsna
vel upp,“ segir Sigurður.
Erlendur sérfræðingur var
fenginn til að koma framleiðslunni
á rekspöl og við hlið hans vann
Siguijón, yngsti sonurinn. Hann
kom til starfa vorið sem eigna-
breytingin átti sér stað, en þá var
hann að ljúka stúdentsprófi. „Sig-
uijón er eiginlega heilinn á bak
við þróun hlaupsins, sem hefur
verið vaxtarbroddur í fyrirtækinu
síðustu ár. Hann fékk dýrmæta
starfsreynslu hjá sérfræðingnum,“
segir Jakobína.
Samnýttir kraftar
Þess má geta að systkinin koma
hvert með sína reynslu inn í fyrir-
tækið sem nýtist vel þegar saman
kemur. Jakobína er sjúkraþjálfari
og er að ljúka námi í viðskipta-
og rekstrarfræði frá Endurmennt-
unarstofnun Háskóla íslands. „Ég
hef alltaf haft gaman af öllu því
sem snýr að viðskiptum enda alist
upp í viðskiptaumhverfi. Ég ákvað
að fara út í þetta nám hvert svo
sem framhaldið yrði. Það var síðan
í súmar að ég tók þá ákvörðun í
samráði við pabba og systkini mín
að hefja störf hjá Mónu sem hægri
hönd framkvæmdastjóra,“ segir
hún.
Ágúst er efnaverkfræðingur og
hóf nám í viðskipta- og rekstrar-
fræði samtímis Jakobínu. „Ef
námið hefði ekki komið til er ekki
víst að við hefðum farið að vinna
hjá Mónu,“ segir Jakobína sposk
á svip.
Ágúst mun hafa yfirumsjón með
gæðamálum, sem Jakobína telur
eitt það mikilvægasta í nútíma-
rekstri fyrirtækja. Þar nýtist
menntun hans til hins ýtrasta.
Gunnar er vélfræðingur og hef-
ur yfirumsjón með öllu því er við-
kemur vélakosti fyrirtækisins.
Emilía vann fyrst við sölustörf og
síðan á skrifstofu og Hjalti er
prentsmiður og nýtist reynsla hans
vel í öllu því, sem viðkemur um-
búðum og samskiptum við auglýs-
ingastofur og prentsmiðjur, en
hans aðalstarf er sölumennska.