Morgunblaðið - 06.12.1995, Síða 27

Morgunblaðið - 06.12.1995, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995 27 Hver er stefna BSRB í ESB-dómstóllinn heilbrigðisþj ónustu? AÐ UNDAN- FÖRNU hefur birst auglýsing í útvarpi og sjónvarpi frá BSRB þar sem segir: „Ríkisstjórnin vill krefja sjúklinga um innritunargjöld á sjúkrahús og greiðslu fyrir læknisverk. Við höfnum þessum áformum í fjárlaga- frumvarpinu. Þú átt nýj a og betri útgáfu skilið. Stöndum vörð um velferðina. BSRB“. í lokin má sjá fjárlagafrum- varpið árið 1996 á leið í papp- írstætara. í tilefni af birtingu þessarar auglýsingar hef ég sem félags- maður í BSRB áhuga á að vita hvort stjórn BSRB hafi sett fram stefnumótandi tillögur varðandi heilbrigðisþjónustu í landinu? Þar sem heilbrigðis- og tryggingamál eru fjárfrekur málaflokkur og taka til sín u.þ.b. 45% af útgjöld- um ríkisins (28% vegna heilbrigð- isþjónustu) má telja líkur á því að áframhald verði í niðurskurði á þessum málaflokki á næstu árum, í því skyni að minnka fjár- lagahallann. Á sama tíma má gera ráð fyrir að eftirspurn eftir heilbrigðisþjón- ustu fari vaxandi, m.a. vegna breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar, aukinnar heilsu- gæslu og endurhæfingar svo og vegna aukins framboðs og nýj- unga í læknavísindum. Telur BSRB að endurskipulagning og aukin hagræðing í sjúkrahús- rekstri sé nægjanleg til að mæta þessum aukna kostnaði? Ýms- ir hafa t.d. bent á þá valkosti að leggja megi niður eitthvað af núverandi heil- brigðisþjónustu eða minnka þjónustustig og gæði tiltekinnar þjónustu. Forgangsröðun á þjónustu við sjúklinga hefur verið ofarlega í umræðunni og því áhugavert að vita hvort BSRB hafi sett fram tillögur um stefnumótun í forgangsröðun. Erlendis má finna ýmis dæmi þess að forgangsröðun fari fram með beinum og óbeinum hætti. Telur BSRB óskynsamlegt að notendum heilbrigðisþjónustu sé gert að greiða einhvern hluta þeirrar þjónustu sem þeir njóta? I þessu sambandi má benda á möguleikann á því að settar séu skýrar reglur þar sem tryggt er að þeir sem minnst mega sín greiði ekki nema visst hámark á ári í lyfjakostnað og læknisþjón- ustu. Þjónustugjöld og innritunar- gjöld á sjúkrahús hafa mikið ver- ið til umræðu og því áhugavert að vita hvort stjórn BSRB telur að tekjutengdur nefskattur sé sanngjarnari en framangreind gjöld. Ljóst má vera að flatur niður- skurður á fjárlögum hefur ekki skilað þeim árangri sem til var ætlast á síðustu árum. Því er fróð- legt að vita hvort BSRB hafi talið Hefur BSRB sett fram stefnumótandi tillögur um heilbrigðisþjónustu? Pétur Orn Sigurðsson skrifar um auglýsinga- herferð greidda afBSRB. að haga mætti þessum niður- skurði á annan hátt og jafnvel nýta betur það fjármagn sem runnið hefur til heilbrigðismála undanfarin ár. í lokin hef ég sem félagsmaður áhuga á að vita hvort það sé stjórn BSRB sem hafi tekið ákvörðun um að peningum félagsins væri best varið í slíka auglýsingaher- ferð í stað þess að kynna stjórn- völdum og almenningi stefnumót- un félagsins í heilbrigðismálum með skýrari hætti. Ekki hef ég séð sambærilegar auglýsingar frá öðrum stéttarfélögum. I þessu sambandi leikur mér forvitni á að vita hver er kostnaður við undangengna herferð sem ef til vill hefði mátt nota til að styrkja félagsmenn á annan hátt, t.d. þann hóp félagsmanna BSRB sem hvað verst hefur orðið úti í efna- hagssamdrættinum á síðustu ái-um. Jafnframt er það von mín að BSRB komi stefnu sinni á framfæri í næstu auglýsingaher- ferð. Höfundur er félagsmaður í BSRB. Pétur Örn Sigurðsson Sparnaður í lífeyris- sjóðum hefur lækkað vexti ÞURÍÐUR Jóns- dóttir skrifar gi'ein um stjómendur og stöðu lífeyrissjóðanna í Morgunblaðið 2. des- ember sl. Þar fullyrðir hún að lífeyrissjóðirnir hafi samráð og sam- starf um verðlagningu lífeyrissparnaðarins. Ekkert er ijær sanni. Stjórnendur lífeyris- sjóðanna hafa ekkert samráð sín á milli um kaup á verðbréfum á markaði. Ekki frekar en stjórnendur verð- bréfafyrirtækja, banka eða tryggingafélaga. Aðdróttanir viðskiptaráðherra á ársfundi Sam- bands íslenskra sparisjóða breyta engu í þessu sambandi. Þvert á móti má leiða rök að því að sparnað- urinn í lífeyrissjóðunum hafi leitt til lægri vaxta á verðbréfamarkaði en ella hefði orðið. Þessu til staðfestingar má benda á nefnd sérfræðinga sem ríkis- stjórnin skipaði haustið 1993 til þess að fjalla um „vaxtamun á Iánsfjármarkaði“. Sú nefnd skilaði viðskiptaráðherra niðurstöðum sín- um í október 1993. Ekkert í því nefndaráliti gaf tilefni til að draga þær alröngu ályktanir um vaxta- myndun á verðbréfamarkaði sem heyrst hafa nú nýverið. Viðskiptaráðherra hefur nýverið falið starfshópi „að kanna hvort viðskiptahættir þeirra aðila sem koma við sögu á skuldabréfamark- aði, þ.e. útgefenda, fjárfesta, verð- bréfamiðlara og við- skiptavaka, séu eins og best verður á kosið. Skulu dregnar fram í dagsljósið þær hindr- anir sem kunna að vera í vegi eðlilegrar þróunar á markaðn- um, svo sem varðandi vexti, sýnileika við- skipta, auðseljanleika og áhættumat. Hópur- inn skal gera tillögu um úrbætur." Þannig mun vaxtamyndun á skuldabréfamarkaði enn verða t'il ítarlegrar athugunar og ég legg til að dómar um vaxtamyndunina verði ekki felldir fyrr en að starfs- hópurinn hefur skilað af sér til ráðherra. í nýútkominni greinargerð Más Guðmundssonar hagfræðings um stöðu íslenska lífeyrissjóðakerfins- ins kemur fram að fjárhagsstaða almennu lífeyrissjóðanna er mun betri en almennt hefur verið talið. Jafnframt kemur þar fram að ís- lenska lífeyriskerfið uppfyllir að ýmsu leyti forskrift Alþjóðabank- ans og vegur þar þyngst skylduað- ild að lífeyrissjóðum sem byggjast á sjóðsöfnun og samtryggingu. Lífeyrissjóðakerfið er í uppbygg- ingu og því eru réttindi ekki enn komin í hámark. Samkvæmt nú- gildandi reglum má ætla að sjóð- irnir greiði lífeyri þegar þeir ná fullum þroska í kringum árið 2040 sem samsvarar um 70% af heildar- launum. Leiða má rök að því, segirÞorgeir Eyjólfsson, að sparnað- ur í lífeyrissjóðum hafi lækkað vexti. í greinargerð Más kemur fram að rekstrarkostnaður lífeyrissjóð- anna hefur farið lækkandi á undanförnum árum bæði sem hlut- fall af ráðstöfunarfé og eignum. í Bandaríkjunum liggur rekstrar- kostnaður sem hlutfall af eignum á milli 0,2% til 0,7% eftir tegund lífeyrissjóða. I Chile þar sem lífeyr- issjóðir byggjast á skylduaðild, en eiga í samkeppni sín á milli um sjóðfélaga, var rekstrarkostnaður 2% af eignum 1992, samanborið við 0,34% 1993 hjá íslensku sjóð- unum. Ástæða þessa munar á kostnaði virðist m.a. liggja í því að chíleönsku sjóðirnir eyða miklu í auglýsingar og annan kostnað vegna samkeppninnar um sjóðfé- lagana. Af þessu má sjá að fullyrð- ing Þuríðar um að rekstrar- kostnaður íslensku lífeyrissjóðanna sé hár er rangur. Jafnframt má benda á þá miklu hagræðingu sem orðið hefur meðal lífeyrissjóðanna með fækkun þeirra vegna samein- ingar bæði fyrir norðan og hér á höfuðborgarsvæðinu. Höfundur er formaður Landssam- bands lifeyrissjóða. Þorgeir Eyjólfsson og kynjakvóti HINN 17. október sl. kvað dóm- stóll ESB upp úrskurð um kvóta- reglur sem leið til að eyða aðstöðu- mun kvenna og karla á vinnumark- aði. Margt hefur verið rætt og rit- að um niðurstöðu dómstólsins en því miður hefur hið eiginlega efni hans farið fyrir ofan garð og neðan í umfjölluninni. Af því tilefni vill stjórn Kvenréttindafélags íslands koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri í þeirri von að þær megi bregða Ijósi á staðreyndir málsins. stöðu þeirra á vinnumarkaði. Málið sem deilt var um snerist um tvo iandslagsarkitekta, karl og konu, sem sóttu um sömu stöðuna. Stjórn stofnunarinnar mælir með karlin- um en nefnd starfsmanna taldi konuna eiga rétt á stöðunni, þar sem báðir umsækjendur væru jafn hæfir og konan ætti að njóta for- gangs samkvæmt Bremen-lögun- um. Þar sem nokkur vafi þótti leika á því hvort lögin stæðust efni til- skipunarinnar var ESB-dómstóll- inn spurður álits. Aðdragandi Aðdragandinn er sá að vinnu- réttardómstóll í Þýskalandi hafði mál til umfjöllunar á árinu 1993 og skaut tilteknum spurningum ti! ESB-dómstólsins þar sem beðið var um túlkun á tilteknum greinum ESB-tilskipunar nr. 207 frá 1976 um meginregluna um jafnrétti kvenna og karla hvað varðar að- gang að atvinnu, starfsmenntun, stöðuhækkunum og viðunandi vinnuskilyrðum. Beðið var um svör við því hvort tiltekin löggjöf í þýsk- Úrskurður ESB-dóm- stólsins er enginn dauðadómur yfir kvóta- reglunni, segir Bryndís Hlöðversdóttir, sem hér skýrir sjónarmið Kvenrétt- indafélags íslands. um rétti (Bremen-lögin) stæðist efni tilskipunarinnar. Hinn um- deildi úrskurður ESB-dómstólsins er svar við þessari beiðni þýska vinnuréttardómstólsins. Bremen-lögin og tilskipun ESB Bremen-lögin fjalla um jafnrétti kvenna og karla í opinberri þjón- ustu. Þau gerðu ráð fyrir því að við ráðningu í opinberri þjónustu eigi konur, sem eru jafn hæfar og karlkyns umsækjandi, að njóta for- gangs í starfsgreinum þar sem þær eru í minnihluta. Sama á við um stöðuhækkanir og tilfærslur innan fyrirtækja, konum er tryggður for- gangur þar sem þær eru í minni- hluta. Það er litið svo á að konur séu í minnihluta í starfsgrein, ef þær ná því ekki að vera helmingur starfsfólks í þeim starfshópi er um ræðir. ESB-dómstólnum var ætlað að svara því hvort Bremen-lögin færu út fyrir heimildir umræddrar til- skipunar ESB sem heimilar að- gerðir í þágu kvenna til að bæta Hverju svarar dómstóll ESB? I forsendum dómsins er bent á að umrædd tilskipun ESB leggi á það áherslu að stjórnvöld í aðildar- ríkjum skuli leita allra leiða til að eyða misrétti sem til staðar er gagnvart konum. Því sé heimilt að beita aðgerðum í tengslum við ráðningar í störf og að veita konum forgang í því skyni að auka sam- keppnishæfni þeirra á vinnumark- aði og takast á við atvinnulífið á sömu forsendum og karlar. Niðurstaða ESB-dómstólsins er sú að regla, sem veiti konum alger- an og skilyrðislausan forgang til ráðningar eða stöðuhækkunar þar sem þær eru í minnihluta (þ.e. í skilningi Bremen-laganna), gangi út yfir þau mörk að teljast aðgerð sem heimilt sé að beita til að ná fram jafnri stöðu karla og kvenna á vinnumarkaði. Því eru Bremen- lögin talin ganga út fyrir þá heim- ild sem veitt er til aðgerða í um- ræddri tilskipun ESB. Afleiðingar? Dómstóllinn segir einungis að reglan í Bremen-Iögunum gangi of langt, en dómurinn felur á eng- an hátt í sér almennan áfellisdóm yfir því að beitt sé jákvæðum að- gerðum í þágu þess að bæta stöðu kvenna á vinnumarkaði, þar sem þess er þörf. Dómurinn tekur ekki á því hversu langt megi ganga, aðeins að gengið sé of langt í þessu tiltekna tilfelli og þar virðist mest- ur þungi á því að forgangur kvenna skv. Bremen-lögunum skuli vera alger og skilyrðislaus, í þeim tilvik- um sem konur eru ekki helmingur starfsmanna. Dómurinn tekur ekki á því hvort það myndi nægja að sveigja regluna þannig til að pró- sentuhlutfallið væri lægra (talað væri um að konur þyrftu að vera 40%), eða að reglan ætti við um bæði kynin. Þessu svarar dómstóll- inn ekki, en það er ljóst að hann er enginn almennur dauðadómur yfir kvótareglum sem aðgerðum í þágu kvenna á vinnuamrkaði, enda er hin umrædda tilskipun ESB mælistikan og hún gerir beinlínis ráð fyrir því að slíkar aðgerðir séu heimilar. Höfundur er formaður Kvenrétt- indafélags íslands. LeikhúsBælkerans Klapparstíg 38 • S. 561 31 3 a u: Öpið til kl. 01 á kvöldin og 03 um helgar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.