Morgunblaðið - 06.12.1995, Síða 33

Morgunblaðið - 06.12.1995, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995 33 AÐSENDAR GREINAR Karlstýrðar konur Krisljana Milla Thorsteinsson EFTIR síðustu kosningar, þegar Sjálfstæðisflokkurinn myndaði nýja ríkis- stjórn og ekki þótti fært að setja konu í ráðherraembætti á vegum flokksins, þó að hann hefði helming ráðherrastóla til ráð- stöfunar, fóru margar konur í flokknum að hugsa ráð sitt og ýms- um fannst lítið fara fyrir jafnréttinu í flokknum við skipan í ríkisstjórn og úthlutun á hinum ýmsu virð- ingarembættum. Kröf- ur fóru að koma fram um aukið jafnræði milli kynjanna og konur hvattar til að láta meira að sér kveða í stjómmálabaráttunni. Fyrir kosningarnar varð allnokk- ur vakning meðal kvenna í flokkn- um m.a. með tilstuðlan hreyfingar sem kallar sig Sjálfstæðar konur. Þær virðast fullkomlega sáttar við embættaveitingar flokksins og segja, að þær eigi ekki að fara eft- ir kynferði. Ennfremur segja þær, að konur séu orðnar þreyttar á að líta á sjálfar sig sem undirokaðan minnihlutahóp í þjóðfélaginu. „Grundvallarsjónarmiðið hlýtur að vera, að ef við konur ætlum að vera með í pólitík á einhveijum öðrum forsendum en karlar og eig- um að njóta sérréttinda umfram karla vegna þess eins að við erum konur þá séum við að stinga okkur sjálfar í bakið með því að viður- kenna að við getum ekki náð ár- angri á eigin forsendum,“ er haft eftir Elsu B. Valsdóttur, talsmanni Sjálfstæðra kvenna. Það er vitað mál, að konur hafa lægri laun heldur en karlar, þó að þær séu með sambæriieg störf. Eig- um við þá að álíta, að konurnar með lægri launin sé verri en karl- arnir? Eru þær vanhæfari? Svari þeir sem til þekkja, en þetta er það sem Sjálfstæðar konur gefa í skyn. Auðvitað er það rétt, að konur þurfa að komast áfram í stjórnmál- um á eigin verðleikum eins og á öðrum vettvangi. En Sjálfstæðar konur virðast líta fram hjá stað- reyndum málsins. Þær láta sem það misrétti sem hefur viðgengist árum saman í launamálum kvenna sé þeim óviðkomandi. Þetta launamis- rétti sýnir að konur sitja alls ekki vð sama borð og karlmenn í at- vinnulífinu þrátt fyrir að þær séu í mörgum tilfellum jafn hæfar og jafnvel hæfari en þeir og því skyldu þær þá gera það á stjórnmálasvið- inu? Oft er vitnað til þess að konum gangi yfirleitt illa í prófkjörum og þess vegna sé ekki von til að þeim gangi vel í stjórnmálum. Það er þó vitað mál, að þeir, sem gengur vel í prófkjörum, eru ekki endilega hæfastir. Margir hafa á bak við sig alls konar félög og klíkur sem sjá til þess að þeirra menn kjósi „rétt“. Konur hafa sjaldnast slík félög eða klíkur að bakhjarli. Ennfremur er það lenska og flestum kunnugt, að ætlast er til af sjálfstæðismönnum að þeir kjósi aðeins eina konu á hvern lista. Það er talinn hæfilegur skammtur svona rétt til að punta upp á selskapið. Það er kannski ekki spurt um hæfiieika, heldur hvort hún sé frambærileg, lagleg og karlstýrð. Enginn samanburður er gerður á hæfileikum karlanna og kvennanna, heldur þess aðeins gætt, að kjósa ekki of margar kon- ur og láta þær ekki komast ofar- lega. Eiginmenn segja við konur sínar: Við skulum setja Jón efstan, síðan Gunnar og Pál, þar næst lát- um við hann Sigga og loks látum við Guðríði fljóta með, hún er svo sæt og ekki of frek. Eiginkonurnar samþykkja þetta í mörgum tilfellum þar sem þær nenna ekki að standa í þrasi og eru að mestu karlstýrðar. Sannleikurinn í uppáhaldsrökum karla fyrir því, hve illa kon- um gengur í prófkjör- um sem eru að konur séu konum verstar, gæti legið í því, að margar konur eru karlstýrðar og móta ekki sínar eigin skoðanir vegna þess að það er ekki ætlast tii þess af þeim eða talið æskilegt. Það er mikið talað um, að konur eigi ekki að njóta neinna for- réttinda eða jákvæðrar mismununar. Það er Jafnræði milli kynja í Sjálfstæðisflokknum er umfjöllunarefni Krist- jönu Millu Thorsteins- son í þessari grein. auðvitað alveg rétt en dæmin sanna bara annað, því miður. Karlar njóta stundum jákvæðrar mismununar en konur verða oft fyrir neikvæðri mismunun. Þessu til sönnunar er fyrst að nefna launamismuninn. Hann er staðreynd sem enginn get- ur hrakið. Allir vita, að minna tillit er tekið til þeirra sem lægri hafa launin, þó að þeir séu í góðri stöðu. Þess vegna liggur í hlutarins eðli að meira tillit er tekið til karla en kvenna, þó að ómeðvitað sé í mörg- um tilfellum. Þar með hafa konur ekki sömu framavonir og karlar á flestum sviðum þjóðfélagsins. Það er eðlilegt að valið sé í trún- aðarstöður, á framboðslista og ann- að eftir reynslu og þekkingu, en konur fá aldrei þessa nauðsynlegu reynslu því að þær fá ekki að taka þátt í ýmsum nefndar- og stjórnun- arstörfum. Þar sitja karlarnir og finnst það sjálfsagt. Ef flett er dag- blaði og skoðaðar myndir og lesin nöfn þeirra, sem eru í ýmsum nefndum og stjórnum félaga, er meirihlutinn alltaf karlar, nema sérstök kvennamál eða líknarmál séu á ferðinni. Konur fá- heldur ekki þá umbun fyrir störf sín, sem karlar fá. Það er ánægjulegt að lesa áskor- anir til kvenna í Sjálfstæðisflokkn- um um að taka meiri þátt í flokks- starfinu. Vonandi taka konur þeim áskorunum vel og taka meiri þátt í nefndarstörfum og öðru slíku. En þá þarf líka að fylgja meiri viður- kenning á störfum þeirra en hefur verið hingað til og þær fái sömu umbun og karlar. Konur þurfa að standa saman og vera samstiga í að sýna van- þóknun sína á því hversu áhrifalitl- ar þær eru í flokknum. Þær þurfa að gera eitthvað sem hefur áhrif, t.d. kjósa aðeins einn karl á hvern lista í næsta prófkjöri eða jafnvel kjósa einhvem annan flokk en Sjálf- stæðisflokkinn. Konur fengu kjör- gengi og kosningarétt eftir mikla 'baráttu. Það þarf að nota þennan rétt svo að markmiðið náist: „Jafn- ræði milli kynja í Sjálfstæðisflokkn- um.“ Höfundur er viðskiptafræðingur. Samstarfsnefnd um starfsnám í NÝJU frumvarpi til laga um framhalds- skóla er markvisst stefnt að því að eyða áhrifum kennara á skólastarf. Ekki er gert ráð fyrir því að þeir gegni nokkru hlutverkj innan skólanefnda. I frumvarpinu er enn- fremur grafið undan áhrifum kennarafundar og ailt vald fært til skólameistara. Á meðan menn tala sig heita fyrir hug- myndinni um að dreifa valdi, framkvæma þeir hið gagnstæða. „Stríð er friður" heitir það í ágætu riti. Athyglisvert er að í frum- varpinu er reynt að taka á vanda starfsnáms, en íslendingar hafa býsna lengi vanrækt þennan þátt í menntun þjóðarinnar. Of mikil áhersla hefur verið lögð á hefðbund- Ólafur G. Kristjánsson ið stúdentsnám, en minni á hvers kyns .starfsnám sem nýttist bæði samfélaginu og einstaklingum betur. Nú virðist skilningur fara vaxandi á því að þörf er á átaki til þess að efla starfsmenntun í landinu. Eins og ég benti á í grein minni hér í blað- inu 5. nóvember sl. er einn meginvandi iðnn- áms sá að þar vantar stefnumörkun. Þar tel ég einnig að 18 manna samstarfsnefnd um starfsnám geti unnið þarft verk. I ráði er að í nefndinni sitji 12 fulitrúar atvinnu- lífs, 1 kennari, 1 skólameistari og hinir komi frá ráðuneytinu. Þessa samsetningu tel ég endurspegla það viðhorf þeirra er frumvarpið sömdu að þurrka verði út öll áhrif kennara- Aðilar í samstarfsnefnd þurfa að koma fram í nafni komandi framtíð- ar, segir Olafur Grétar Krisljánsson, en ekki eigin hagsmuna. stéttarinnar á menntun í landinu. Það er brýnt að samstarf takist milli atvinnulífs, verkalýðshreyfingar og skóla um framkvæmd starfsnáms. En nefndin sem að ofan getur virð- ist eiga að gegna einhvers konar hagsmunahlutverki. Hún endur- speglar ekki þörfina á að miðla ein- hveiju frá skólunum. Ef vel ætti að vera þyrftu kennarar að eiga jafn- marga fulltrúa í nefndinni og aðrir. Fulltrúar atvinnulífs geta sagt okkur hvað æskilegt sé að nemendur læri, kennarar geta upplýst um hvað raun- hæft er að kenna og hvernig haga megi náminu. Óbærilegt er að hugsa til þess ef enn eitt tækifærið til að setja iðnmenntun í landinu á rétt spor fari í súginn vegna þess að menn eru í eilífri hagsmunagæslu. Fari svo að nefndin haldi fyrr- greindri samsetningu er hætt við að rödd kennara heyrist ekki og hrein- lega verið valtað yfir þá í allri stefnu- mörkun. Þeir sem framfylgja eiga lögunum verða ekki hafðir með í ráðum og samhengið milli stefnumörkunar og framkvæmdar rofnar. Þá er starfs- námið aftur komið á þann stað sem það er: Vandi þess er óleystur, at- vinnurekendur benda á skólana og skólarnir tilbaka eða á ráðuneytið og enginn vettvangur er til að ræða málin á uppbyggilegan hátt. Mikil- vægt er að menn hafi í huga að einu hagsmunimir sem eiga forgang hér eru hagsmunir nemenda. Það eru umfram allt þeir sem eiga heimtingu á góðri og nothæfri menntun. Námið verður að vera skipulagt þannig að þeir hafi yfirsýn yfir námsferlið og geti lokið því á tilskildum tíma. Þeir aðilar er tilnefndir verða í samstarfs- nefnd um starfsnám þurfa að koma saman í nafni komandi kynslóða en ekki sem fulltrúar eigin hagsmuna. Ég tel brýnt að kennurum verði fjölgað í fyrirhugaðri nefnd, að þeir verði ekki færri en 5, að námsmenn fái þar einnig fulltrúa og að nefnd- inni verði stýrt af námsskrár- eða kennslufræðingum ráðuneytisins. Höfundur kennir íslensku, SAM og málmiðnir við Fjölbrautaskóia Suðurnesja. WHI-hl Við seljum amerískar gæðadýnur frá Kingsdown og mikið úrval af fallegurri rúmum. Það sem gerir Kingsdown dýnurnar frábrugðnar öðrum sambærilegum dýnum er að í neðri dýnunni er samskonar gormastell og í þeirri efri. Þetta gefur stóraukna fjöðrun og tryggir að dýnurnar laga sig betur að líkamanum. Hryggsúlan verður bein í svefni og betri djúpsvefn næst. Trégrindin í neðri dýnunni er sérlega styrkt á álagsflötum. Gormastellin í báðum dýnunum eru tvíhert sem eykur lífslengd gormanna mikið og hæfni þeirra til að fara aftur í rétta stöðu. AkINGSDOWN Heilsusamlegar og þægilegar dýnur ágóðuverðil Suðurlandsbraut 22 Sími: 553 6011 og 553 7100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.