Morgunblaðið - 06.12.1995, Side 34

Morgunblaðið - 06.12.1995, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ 4- NORÐURLAIMDAMEISTARAMÓT í DAIMS11995 10 íslensk pör meðal keppenda DANS Pyynikki íþróita- húsió í Tampcrc NORÐURLANDAMEIST- ARAMÓTÁHUGAMANNA í DANSI Norðurlandameistaramót áhuga- manna í dansi fór fram í Pyynikki íþróttahúsinu í Tampere í Finnlandi, síðastliðinn laugardag, 2. desember. Dágóður hópur íslenskra dansara, alls 10 pör, tók þátt í þessari keppni, sem er talin ein af sterkustu dans- keppnum í Evrópu í dag. Hópurinn stóð sig með sóma þótt Island hlyti enga meistara að þessu sinni. KEPPENDUR og fylgdarfólk lagði af stað frá íslandi á föstu- dagsmorgun og var flogið til Hels- inki, með viðkomu á Fornebu flug- vellinum í Ósló og Arlanda flug- velli í Stokkhólmi, þar sem hópur- inn áði í smástund. En sú áning gafst eingöngu vegna þess að flug- vélin sem flytja átti hópinn til Finnlands var flogin burt þegar íslendingarnir mættu á staðinn. A flugvellinum í Helsinki beið rúta eftir hópnum og ók honum til Tampere, en sú ferð tekur einung- is um 2 klukkutíma. Keppnin sjálf var á laugardegin- um og hófst klukkan 15. Fyrst var dansað í undanúrslitum og stóðu íslensku pörin sig frábærlega vel og buðu af sér mikinn þokka á dansgólfinu. Hóparnir voru hver öðrum sterkari og það var hrein unun að horfa á þann fallega dans sem keppendur sýndu. Eftir und- anúrslitin var gefið stutt hlé, en strax eftir hlé hófst innmars með öllum keppendum. Ég verð nú að segja eins og er að mér finnst það skrýtin ráðstöfun, svo ekki sé meira sagt, að keppendur marseri - inná gólfið í miðri keppni! Það hefði verið mun eðlilegra að gera þetta í upphafi keppninnar, því þá standa jú allir keppendur jafnir! Þau yngstu hófu leikinn Úrslitin sjálf hófust svo klukkan 17.15 og var það yngsti hópurinn sem hóf leikinn. I Norðurlanda- meistarakeppninni er það saman- lagður árangur í báðum keppnis- greinum sem látinn er ráða úrslit- um og er það okkur íslendingum frekar óhagstætt þar sem við verð- um að teljast sterkari í suður- amerísku dönsunum. í yngsta ald- urshópnum áttum við 2 pör af 6 . í úrslitum. Þessi hópur dansaði einungis 4 dansa; 2 standard-dansa og 2 suð- ur-ameríská dansa og leyfi ég mér að fullyrða að mjög lítill munur var á fyrstu 4 sætunum, annar en keppnisreynsla. Krakkarnir okkar stóðu sig með afbrigðum vel og sýndu það svo ekki verður um villst að þau eru á heimsmæli- kvarða, þau vantar einungis keppnisreynslu á erlendum vett- vangi. Að þessu sinni voru það Danir sem fóru með sigur af hólmi, > einnig voru það Danir sem höfn- uðu í 2. sæti. En í 3. sæti voru Árni Traustason og Helga Þóra Björgvinsdóttir og í 4. sæti Stur- laugur Garðarsson og Aðalheiður Sigfúsdóttir. Bæði pörin voru að fá nokkur fyrstu sæti frá dómur- um og það er stórkostlegur árang- ur. í flokki 12-13 ára áttum við einnig 2 pör af 6 í úrslitum. í 3. sæti urðu Hafsteinn Jónasson og Laufey Karítas Einarsdóttir. Þau dönsuðu sérlega vel á laugardag, sérstaklega í suður-amerísku dönsunum, enda kom það á daginn að þau höfðu lent í öðru sæti í þeim, en í samanlögðu þá höfnuðu þau í þriðja sæti, einungis 2 stigum á eftir næsta pari, en það voru enn sem fyrr Danir sem sigruðu í þessum flokki. Þau Hafsteinn og Laufey eru sérlega glæsilegt par og þau dansa ávallt mjög yfirveg- aðan og ákaflega fallegan dans og árangurinn lætur ekki á sér standa eins og af framangreindu sést. Þau Eðvard Þór Gíslason og Ásta Lára Halldórsdóttir höfnuðu í 5. sæti, þau dönsuðu einnig mjög vel og þá sér í lagi í suður-amer- ísku dönsunum. Þetta er efnilegt par og eiga þau mikla framtíð fyrir sér og hafa þau úr miklum og góðum efnivið að spila. Aðeins eitt par í úrslit Þá var komið að flokki 14-15 ára. Það verða að teljast mikil vonbrigði og í raun óskiljanlegt fyrir okkur Islendinga að eiga ein- ungis eitt par í úrslitum í þessum flokki. Brynjar Örn Þorleifsson og Sesselja Sigurðardóttir komust ekki í 6 para úrslit af einhveijum óskiljanlegum ástæðum, þau voru með næstflesta krossa inn í suður- amerísku dönsunum, en aðeins 9 í standard-dönsunum. Brynjar og Sesselja eru frábærir dansarar sem eiga hvergi annars staðar heima en í úrslitum, eins og árang- ur þeirra í alþjóðlegum danskeppn- um að undanförnu sýnir, svo ekki verður um villst. íslenska parið, sem dansaði í úrslitum, voru þau Sigursteinn Stefánsson og Elísa- bet Sif Haraldsdóttir. Þau dönsuðu sérlega vel í úrslitunum og í suður- amerísku dönsunum gerðu þau sér lítið fyrir og sigruðu en í saman- lögðu höfnuðu þau í 3. sæti. í standard-dönsunum höfnuðu þau í 5.-6. sæti og finnst mér það frekar dularfullt, því þau éru ein- faldlega ekki 6. sætis par! Og enn voru það Danir sem sigruðu. í flokki 16-18 ára áttum við eitt par í undanúrslitum, þau Þor- vald S. Gunnarsson og Jóhönnu Ellu Jónsdóttur, en þau komust ekki í úrslit, sem þau áttu svo sannarlega skilið, því þau dönsuðu mjög vel á laugardag, en þau fengu of fáa krossa í standard- dönsunum. Við áttum einnig eitt par i und- anúrslitum í flokki áhugamanna 18 ára og eldri; það voru Victor B. Victorsson og Sædís Magnús- dóttir, mjög efnilegt og gott par, sem sýndi góðan dans. I elstu flokkunum kemur það einna best í Ijós hve aðstöðumunurinn milli okkar og hinna Norðurlandanna er mikill. Við erum með efnilega dansara í þessum flokkum, en þeir fá ekki tækifæri til að sanna sig, til þess þurfa þeir að komast miklu oftar í sterka alþjóðlega danskeppni, en það er ýmsum erf- iðleikum bundið þar sem við búum ansi nálægt hjara veraldar. Eitt aðalvandamálið í þessum efnum er fjárskortur afreksmanna okkar í þessari íþrótt. Við áttum svo 2 pör í undanúr- slitum í flokki seniora og annað þeirra, þau Jón Stefnir Hilmarsson Morgunblaðið/Jóhann Gunnar SIGURSTEINN og Elísabet gerðu það gott í suður-amerísku dönsunum í Tampere. ALLT á fullu, rétt fyrir keppni, ÞETTA er fólkið sem vinnur hörðum höndum bak við tjöldin og gerir þetta allt mögulegt,. og Berglind Freymóðsdóttir, kom- ust áfram í úrslit. Það er sérlega ánægjulegt, því seniorar kepptu einungis í standard-dönsum, en Jón Stefnir og Berglind eru miklu sterkari í suður-amerísku dönsun- um og er aldrei að vita hvað gerst hefði, ef þeir hefðu verið með, en þau dönsuðu vel og áttu þetta skilið. Það var tvöfaldur finnskur sigur í þessu flokki, en Jón Stefnir og Berglind enduðu í 6. sæti. Danir sigurvegarar Því verður ekki neitað að Danir eru ótvíræðir sigurvegarar í þess- ari keppni, sem og undanfarin ár, en auk þess sem áður hefur verið talið, sigruðu þeir í bæði í stand- ard-dönsunum og suður-amerísku dönsunum í áhugamannaflokki 18 ára og eldri. Einnig sigraði danskt par í þessum flokki í samanlögðum stigum, en þetta er eini flokkurinn sem keppir í þessum greinum að- skildum og svo einnig í saman- lögðu. Það voru Sten Lund og Mie Bach sem sigruðu í suður-amer- ísku dönsunum, Jens Henriksen og Merete Sögaard sigruðu í standard-dönsunum og Rene Christianssen og Camilla Eg- strand sigruðu í samanlögðum stigum. Danir unnu öll gullverð- launin nema tvenn; í flokki 16-18 ára, þar sem par frá Noregi sigr- aði, og í flokki seniora, þar sem finnskt par fór með sigur af hólmi. Skipulagi ábótavant Það verður ekki annað sagt en að skipulagi hafí í mörgu verið ábótavant í Tampere á meðan á mótinu stóð, meira að segja ein- földum hlut eins og innmarsinum var klúðrað á einhvern óskiljanleg- an hátt. Eins leystist kvöldverðars- amkvæmið upp undir leiðinlegum skemmtiatriðum á finnsku, sem auðvitað enginn skildi, t.d. stóðu nokkrir ungir piltar upp á rönd í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.