Morgunblaðið - 13.12.1995, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fulltrúaráðsfundur
Landssambands gegn áfengisböli
Sífellt fleiri leita
lækninga vegna
áfengissýki
Morgunblaðið/Sverrir
Jólin
koma
Nú líður að jólum og
menn skreyta fyrir
þessa miklu kirkjulegu
hátíð. Þessari hátíð og
sérstaklega undirbúng-
ingi hennar hefur oft
fylgt talsverð áfengis-
neyzla. Samt sem áður
eru flestir sammála því
að jólunum eigi ekki að
fylgja drykkja og því
er aldrei nægilega
brýnt fyrir fólki að
ganga nú hægt um
gleðinnar dyr.
Frekari aðgerðir
gegn ósoneyðingu
LANDSSAMBANDIÐ gegn áfeng-
isbölinu hélt fulltrúaráðsfund
þriðjudaginn 28. nóvember 1995. í
Landssambandinu eru 30 aðilar,
félagasamtök og stofnanir.
Lögreglumennimir Ómar Smári
Ármannsson og Kristján Ingi Krist-
jánsson komu á fundinn og gerðu
fundarmönnum grein fyrir stöðu
áfengis- og annarra fíknimála. Að
framsöguræðum loknum svöraðu
þeir spumingum frá fundarmönnum.
Meðfylgjandi ályktun var borin upp
á fundinum og samþykkt samhljóða.
11 og 12 ára börn í meðferð
„Fulltrúaráðsfundur Landssam-
bandsins gegn áfengisbölinu hald-
inn þriðjudagi'nn 28. nóvember
1995 vekur athygli á eftirfarandi
staðreyndum:
1. Fjöldi þeirra sem missa tök á
áfengisneyslu fer sífellt vaxandi og
æ fleiri verða að leita sér lækninga
við áfengissýki. Áfengisneysla er
meðal stærstu heilbrigðisvanda-
mála íslensku þjóðarinnar í dag.
2. Aldur þeirra sem neyta áfeng-
is fer lækkandi. Þess era dæmi að
11 og 12 ára böm hafa þurft í
meðferð vegna áfengisneyslu sinn-
ar.
3. Landabragg og landasala til
bama og unglinga era orðin ábata-
samur en ólöglegur atvinnuvegur á
íslandi. Áhættan fyrir þá sem þessa
iðju stunda er sáralítil og nánast
engin miðað við þann gróða sem
af henni má hafa.
4. Salan á áfengum bjór hefur
aukist og ekki sjáanleg nein breyt-
ing á því. Sala á sterku áfengi hef-
ur minnkað í Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins, en jafnframt virðist
landasala hafa vaxið óðfluga. Allt
bendir til þess að neyslan á sterku
áfengi hafí einnig aukist og fari
vaxandi. .
Fulltrúaráðsfundurinn skorar á
fólkið í landinu að gefa sér tíma til
að hugsa um stöðu áfengismála á
Islandi með þessar staðreyndir í
huga og velta því fyrir sér hvað
helst sé til ráða í þessum efnum.
Áfengiskaupaaldur verði ekki
lækkaður
Fulltrúaráðsfundur Landssam-
bandsins gegn áfengisbölinu skorar
á háttvirta alþingismenn að fella
það .framvarp, sem nú liggur fyrir
Alþingi, um að lækka áfengis-
kaupaaldur í 18 ár og minnir á þá
staðreynd frá Bandaríkjunum, þeg-
ar áfengiskaupaaldurinn í nær 30
sambandsríkjum hafí verið lækkað-
ur í 18 ár, þá fjölgaði þar banaslys-
um og alvarlegum slysum á fólki
18 til 20 ára uggvænlega.
Þar að auki gerðist hið sama hjá
16 og 17 ára unglingum, vegna
þess að reynslan þar varð sú sama
og annars staðar:
Þegar áfengiskaupaaldurinn er
lækkaður færist aldur þeirra sem
neyta áfengis enn neðar. Það er
ekkert sem bendir til þess að hið
sama gerðist ekki hér.
Þá hvetur fulltrúaráðsfundurinn
Alþingi, í samvinnu og samráði við
áfengisvamaráð, til þess að setja
fram markmið í áfengismálum þjóð-
arinnar og benda á leiðir til að ná
þeim markmiðum. í framhaldi af
því væri sett fram verkáætlun, t.d.
til fjögurra ára, ásamt mati á því
hvað verkefnið kostar.
Síðan yrði Alþingi að tryggja
nauðsynlegt fé til að vinna verkið
og jafnframt og ekki síður fjármuni
til að kosta mat á því sem gert er
og hveiju það skilar."
SAMKOMULAG náðist um aðgerðir
til að styrkja enn frekar alþjóðlegar
samþykktir um verndun ósónlagsins
á fundi í Vín í Austurríki sem lauk
7. desember. Þar var minnst 10 ára
afmæli Vínarsáttmálans um vernd
ósonlagsins hinn 4. desember og
jafnframt var haldinn 7. fundur að-
ildarríkja sk. Montreal-bókunar við
Vínar-sáttmálann en með henni
samþykktu þjóðir heims að draga
úr notkun ýmissa ósoneyðandi efna,
sem notuð era m.a. í úðabrúsa og
sem kæliefni í ísskápum.
í upphafi beindist baráttan gegn
ósoneyðandi efnum einkum gegn
klórflúorkolefnum (CFC) og halón-
um en á fundinum í Vín náðist m.a.
samstaða á milli iðnríkja og þróunar-
ríkja að takmarka enn frekar notkun
eftir erfiðar samningaviðræður.
Margir töldu nauðsynlegt að ganga
lengra í takmörkunum á ósoneyð-
andi efnum og ýmis ríkis þ.á m. ís-
land, samþykktu yfirlýsingu um vilja
til að ganga lengra fram í takmörk-
Ósonlagið hefur
aldrei mælst
þynnra og gatið
yfir suðurskaut-
inu aldrei stærra
unum á metýlbrómíði og HCFC, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Þær lagfæringar sem gerðar vora
á Montreal-bókuninni hafa ekki áhrif
á notkun þessara efna hér á landi
þar sem ísland hefur þegar bundið
strangari ákvæði í reglugerðir en
bókunin krefst. Notkun CFC og hal-
óna hér á landi hefur þegar verið
bönnuð að undanskilinni notkun á
endurannum efnum og efnum sem
þegar era bundin í kæli- eða slökkvi-
kerfí. Notkun metýlbrómíðs hefur
einnig verið bönnuð en notkun HCFC
er bundin sömu takmörkunum og í
ESB sem era strangari en Mon-
treal-bókunin.
Umhverfisstofnun Sameinuðu
þjóðanna (UNEP) heiðraði fjölda
einstaklinga og samtaka í tilefni
10 ára afmælis Vínar-samnings-
ins þ.á m. handhafa Nóbelsverð-
launanna í efnafræði í ár sem
hlutu þau vegna uppgötvunar
sinnar á ósoneyðandi eiginleikum
efna á borð við CFC. Þrátt fyrir
ágætan árangur við að draga úr
notkun slíkra efna hefur ósonlag-
ið aldrei mælst þynnra og
ósongatið yfír suðurskautinu aldr-
ei verið stærra og langlífara en
nú í ár. Búast má við að þessi
öfugþróun haldi áfram í einhvem
tíma áður en alþjóðlegar aðgerðir
fara að skila árangri, vegna þeirra
efna sem þegar hafa borist út í
andrúmsloftið.
Fulltrúi íslands á fundinum í
Vín var Sigurbjörg Gísladóttir,
forstöðumaður hjá Hollustuvemd
ríkisins.
ttAOAUGLYSINGAR
Sfldarverksmiðjuhúsin
á Skagaströnd eru til sölu!
Um er að ræða eftirfarandi eignarhluta:
Ketilhúshluti:
Ketilhús (140fm)
Túrbínuhús, (3 hæðir), grunnflötur (150 fm)
Verkstæði (150fm)
Verksmiðjuhluti:
Verksmiðjuhús 1. hæð (456 fm)
Verksmiðjuhús 2. hæð (456 fm)
Verksmiðjuhús 3. hæð (201 fm)
Stigahús áverksmiðju (158fm)
Kvarnahús (78fm)
Beinahús (150fm)
Síldarþró (1.159fm)
Höfðahreppur óskar eftir tilboðum í eignirn-
ar, annað hvort í heild eða einstaka hluta
þeirfa.
Tilboðin verða opnuð, að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska, á skrifstofu
Höfðahrepps föstudaginn 15. janúar 1996
kl. 14.00. Askilinn er réttur til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
Nánari upplýisingar véitir sveitarstjóri.
Hreppsnefnd Höfðahrepps.
Deiliskipulag hafnar-
svæðisins f Þorlákshöf n
Samkvæmt ákvæðum í gr. 4.4.1 í skipulags-
reglugerð nr. 318/1985, með síðari breyting-
um, er hér með lýst eftir athugasemdum við
tillögu að deiliskipulagi hafnarsvæðisins í
Þorlákshöfn.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Ölfus-
hrepps og hjá Skipulagi ríkisins, Laugavegi
166, Reykjavík, frá og með 14. desember
1995 til 19. janúar 1996, á skrifstofutíma.
Athugasemdum skal skila fyrir 25. janúar 1996
á skrifstofu Ölfushrepps, Selvogsbraut 2, 815
Þorlákshöfn, og skulu þær vera skriflegar.
Sveitarstjóri Ölfushrepps.
Skipulagsstjóri ríkisins.
Garðbæingar!
Sjálfstaeðisfélag Garðabæjar heldur léttan rabbfund í Lyngésl 12
fimmtudaginn 14. desember kl. 20.30.
Boðið verður upp á léttar veitingar í tilefni jólaundirbúnings.
Stjórnin.
.T—1,1
smm:
Hörgshlíð 12
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Miðvikud. 13. des. ki. 20.30
Myndakvöld í Mörkinni 6
Eldstöðin Leiðólfsfell
og umhverfi
Myndasýning og fróðlegur fyrir-
lestur Jóns Jónssonar, jarðfræð-
ings. Hér gefst tækifæri til að
kynnast áhugaverðu landsvæði
og störfum þessa merka fræði-
manns.
( tilefni 85 ára afmælis Jóns,
þann 3. október sl„ var gefið út
afmælisrit (safn greina um nátt-
úrufræöi) honum til heiðurs.
Nefnist ritið Eyjar í Eldhafi og
verður það til sölu á mynda-
kvöldinu á tilboðsverði.
Hin skemmtilega og, fróölega
árbók Ferðafélágsins 1995 „Á
Hekluslóðum" veröur einnlg til
sýnis og sölu. Tilvaldar jólagjafir.
Aðgangseyrír 500 kr. (kaffi og
meðlæti innifalið). Fjölmennið,
félagar sem aðrir. Myndakvöldið
verður i nýja salnum í Mörkinni
6 og hefst kl. 20.30.
Ferðafélag fslands.
ingar
I.O.O.F. 7 = 17712138V2 = Jv.
I.O.O.F. 9 = 17712138'/2=JV.
□ HELGAFELL 5995121319 VI
2 FRL.
□ GLITNIR 5995121319 I 1
FRL. ATKV.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Lofgjörð, bæn og biblfulestur
í kvöld kl. 20.00.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÉSAMBAND ÍSLENZKRA
____t KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kvöld kl. 20.30 í
Kristniboðssalnum. Minnst verð-
ur 75 ára afmælis Kristniboðsfé-
lags karla. Kjartan Jónsson sýnir
myndir. Happdrætti. Helga
Magnúsdóttir syngur einsöng.
Hugleiðing: Benedikt Arnkels-
son. Kaffi selt eftir samkomuna.
Allir velkomnir.