Morgunblaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Varaformaður fjárlaganefndar Alþingis Talsmenn sjúkrahúsa mega ekki villa sýn VARAFORMAÐUR fjárlaganefndar sagði á Alþingi í gær að þingmenn- yrðu að gæta þess að láta ekki tals- menn sjúkrahúsanna villa sér sýn í umfjöllun um fjárlög, heldur horfa á markmiðin í heild. Fjárhagsvandi sjúkrastofnana er mikill víða um land og sagði Jón Kristjánsson formaður fjárlaga- nefndar á Alþingi í gær, að ákvarð- anir um útgjaldaramma sjúkrahúsa og annarra heilbrigðisstofnana yrðu að bíða 3. umræðu um frumvarpið því að þau erindi sem borist hefðu til fjárlaganefndar væru um veruleg- an útgjaldaauka og óhjákvæmilegt væri að fara nánar í saumana á þeim. í álitsgerð minnihluta fjárlaga- nefndar Alþingis um fjárlagafrum- varpið kemur fram að hallatölur frá fyrri árum nemi a.m.k. 700 milljón- um og 2-2,5 milljarða vanti á það sem stjórnendur meta að þurfi til að veita nauðsynlega þjónustu. Sturla Böðvarsson þingmaður Sjáifstæðisflokks og varaforrhaður ; fjárlaganefndar sagði að morg spjót hefðu staðið á fjárlaganefndinni vegna stofnana ríkisins sem vantaði rekstarfé. Við slíkar aðstæður kæmi upp krafa um sterkari forgangsröð- un með þeim formerkjun að auka eigi útgjöld til heiibrigðismála á kostnað annarra þátta svo sem vega- og hafnargerðar. En slíkt yki slysa- hættu sem heilbrigðiskerfið yrði að takast á við. „Af þessu má sjá að viðfangsefnið er ekki auðvelt og við þingmenn verð- um að hafa þjóðfélagið allt í huga þegar við fjöllum um framlög af fjár- lögum en ekki einblína á einn þátt þess og okkur ber að varast að láta þá harðsnúnu, vel upplýstu og skipu- lögðu talsmenn sjúkrahúsanna, villa okkur sýn, né heldur heldur gera lít- ið úr þeim vanda sem daglega er . staðið frammi fyrir á sjúkrahúsunum um allt land þar sem bent er á mikla fjárþörf,“ sagði Sturla. Ekki hærri skatta Össur Skarphéðinsson þingmaður Alþýðuflokksins spurði Sturlu hvort hann væri sammála þeirri skoðun heilbrigðisráðherra, að frekar ætti að hækka skatta en skerða frekar þjónustu heilbrigðiskerfisins. Sturla svaraði að engin færi væru til að hækka skatta. Náðst hefði tiltekin sátt á vinnumarkaði og ekki væru tilefni til að bijóta þá sátt með skatta- hækkunum. Morgunblaðið/Ásdís Jól í Görðum f BYGGÐASAFNI Akraness, Görðum en það er elsta stein- hús landsins, hefur verið sett upp sýning á munum frá því um aldamót er tengjast jólun- um og hafa börn úr grunnskól- anum verið tíðir gestir í safn- inu að undanförnu. Hér er Giljagaur að bjóða I. bekking- um úr Brekkulækjarskóla pip- arkökur úr kramarhúsi sem geymdar eru i trogi. Talinn ganga með byssu SÉRSVEIT og fíkniefnadeild lög- reglunnar í Reykjavík handtóku í gær mann sem grunaður var um að ganga með skammbyssu. í fór- um mannsins fundust skothylki og lítilræði af fíkniefnum en ekki byss- an. Maðurinn hefur komið við sögu fíkniefnamála. Að sögn lögreglu höfðu borist vísbendingar um að hann gengi með byssu á sér og hefði haft í hótunum að beita henni. Við handtöku var maðurinn ekki með byssu á sér en fímm skothylki fundust í fórum hans og einnig lítil- ræði af fíkniefnum. Maðurinn var í haldi lögreglu í gærkvöldi. Breytingar á fjöleignarhúsalögum Hægt að þinglýsa afsali þótt skipta- EIGENDUR og húsfélpg fjök eignarhúsa geta nú þinglýst af- sali um eignir þótt ekki liggi fyrir eignarskiptayfirlýsing, því í gær voru samþykkt lög um breytingar á lögum um fjöleign- arhús, þar sem gildistöku fyrir- mæla þar að lútandi er frestað til 1. janúar 1997. „í þessum lögum felast miklar réttarbætur og vandræði sem upp hafa kom- ið í viðskiptum með eignir í fjö- leignarhúsum allt þetta ár ættu nú að Ieysast,“ segir Sigurður Helgi Guðjónsson, hæstaréttar- lögmaður. Hann er höfundur fjö- leignarhúsalaganna og þessara breytingalaga. „í tæp 19 ár hefur verið laga- skylda að gera eignaskiptayfir- lýsingu, en þinglýsingaryfirvöld á ýmsum stöðum á landinu, meðal annars í Reykjavík, fram- fylgdu því boði ekki. Eigna- skiptayfírlýsingar hafa grund- vallarþýðingu og gildi fyrir skiptingu fjöleignarhúsa í sér- eignir og sameign og einnig fyr- ir réttindi og skyldur eigenda. Einfaldara ætti að vera nú en áður að gera skiptayfirlýsingar, þar sem ekki er lengur nauðsyn- legt að allir eigendur fjöleignar- húss skrifi undir hana nema í undantekningartilvikum.“ Sigurður segir brýnt að bæði eigendur og stjórnvöld nýti þennan eins árs aðlögunartíma vel. „Frumvarpið leysir vandann tímabundið, en menn þurfa að gæta þess að sofna ekki á verð- inum. Hefja þarf kynningu og fræðslu á þessu sviði þegar í stað, svo framkvæmd laganna verði auðveld eftir árið.“ í hinum nýsamþykktu lögum kemur fram að frá 1. júní næst- komandi þurfi menn að hafa sérstakt leyfí félagsmálaráð- herra til að gera eignaskipta- samninga. „Gerð þeirra er vandasöm og nauðsynlegt er að hafa góða þekkingu á löggjöf sem um sl'kar eignir gildir,“ . segir Sigurður Helgi. „Með jþessu móti er stuðlað að vönduð- um og samræmdum vinnubrögð- um, sem eiga jafnframt að skila sér til eigenda í lægra endur- gjaldi fyrir verkið.“ Bílskúrar Eigendur í fjöleignarhúsi eiga forgangsrétt á að kaupa bílskúr sem er á lóð hússins og í eigu utanaðkomandi. „Sú meginregla, að óheimilt sé að ráðstafa bílskúrum til utanaðkomandi, var lögfest í fjöleignarhúsalögunum. í gildistíð fjölbýlishúsalaga frá 1976 voru bílskúrar og ráðstöfun þeirra tíð deiluefni, enda var ekki fjallað sérstaklega um þá í lögum. Verulegt los komst á bílskúra við fjölbýlishús og gengu þeir kaupum og sölum milli utanaðkomandi. í mörgum tilvikum hafa bílskúrar komist aftur í eigu eigenda fjö- leignarhússins, en stundum hefur erfið staða komið upp. Ef bílskúrseigandi hefur viljað selja bílskúr sinn en enginn í fjöl- eignarhúsinu viljað kaupa hann, hafa honum verið flestar bjargir bannaðar, þar sem honum hefur verið óheimilt að selja hann öðrum en íbúum hússins. Með því móti hefur verið hægt að verðfella bílskúra óeðlilega. Með nýju lögunum er komið í veg fyrir óeðlilega og ósanngjarna aðstöðu bílskúrseigenda." Óvenju mikil sjávarhæð í stórstreymi að morgni aðfangadags Viðvaranir eru gefnar út vegna hættu á sjávarflóðum SJÁVARHÆÐ verður óvenju mikil dagana 23.-25. desember og nær flóðhæð sjávar hámarki við stór- streymi að morgni aðfangadags. Þessu gæti fylgt mikil flóðahætta við strendur sunnan- og suðvestan- lands en það ræðst af loftþrýstingi og vindum á sama tíma. Verði djúp lægð yfír í nánd við sunnanvert landið og saman fer mikill vind- hraði og vindur stendur beint á land er talin mikil hætta á sjávarflóðum á þessu svæði. Að sögn Haraldar Eiríkssonar, veðurfræðings á Veðurstofu ís- lands, er enn of snemmt að spá fyrir um lægðabrautir eða veður- horfur á þorláksmessu og aðfanga- dag en fyrstu vísbendingar gætu Iegið fyrir næstkomandi mánudag eða þriðjudag. Almannavamir ríkisins hafa látið almannavarnanefndir á sunnan- og suðvestanverðu landinu vita um óvenju mikla sjávarhæð við stór- streymi þessa daga og bent mönn- um á að fylgjast vel með veðri sam- hliða stórstreymi svo unnt verði að gera ráðstafanir í tíma til að forða manntjóni eða slysum og skemmd- um á mannvirkjum, ef veðurað- Almannavarnir Akraness ræða flóðavarnir o g fjöldahjálp Við lægri loftþrýsting eykst flóð- hæðin um það bil um einn sentimet- er við hvert eitt millibar sem loft- þrýstingur lækkar. stæður verða með versta móti þessa sömu daga, skv. upplýsingum Haf- þórs Jónssonar, aðalfulltrúa hjá al- mannavörnum. mannvirki sem teljast á skilgreind- um hættusvæðum. Flóðhæð gæti orðið 5,1 metri í Reykjavík Hæsta sjávarstaða ársins Sjómælingar íslands hafa sent hafnaryfirvöldum og skipafélögum á stöðum, sem þekktir eru fyrir flóðahættu, bréf þar sem vakin er sérstök athygli á mikilli sjávarhæð í stórstreymi frá október og fram í maí á næsta ári. Aimannavarnir Akraness hafa haldið fund þar sem rætt var um aðgerðir vegna mikillar sjávarhæð- ar og um hugsanlega fjöldahjálp ef rýma þarf hús vegna flóðahættu. Óskað hefur verið eftir við Vita- og hafnamálaskrifstofu að lagt verði mat á hvaða úrbætur er hægt að gera til að minnka líkur á skaða af völdum sjávarflóða. Samþykkt var að senda út aðvörun til þeirra sem eiga á hættu að verða fyrir tjóni ef allt fer á versta veg. Útbú- in hafa verið kort og listar yfir Innbyrðis afstaða tungls og sól- ar, veldur með vissu árabili að stór- straumsflóð verða óvenjulega há. í vetur verða áhrif innbyrðis afstöðu himintunglanna á sjávarföll hér við land með mesta móti og nær sjávar- hæð hámarki 22. janúar og 20. febr- úar en þá er spáð 4,6 metra flóðhæð í Reykjavík, sem er mesti munur flóðs og fjöru í Reykjavík sem orð- ið getur miðað við venjuleg veður- skilyrði. Meðalstórstraumsflóð í Reykja- vík er 4 metrar en spáð er 4,5 metra flóðhæð við árdegisháflóð laust fyrir kl. 8 að morgni aðfanga- dags og er það ein mesta flóðhæð sem dæmi eru um í Reykjavík. Út- reikningar á sjávarhæð eru miðaðir við að meðalloftþrýstingur við yfir- borð sjávar sé um 1.013 millibör. k i k 5 i Áætlað flóð í Reykjavík þann 24. desember nær hámarki kl 7.50 og ef loftþrýstingur yrði á sama tíma 950 mb., bættust um 60 sentimetr- ar við áætlaða flóðhæð, þannig að hún gæti þá orðið um 5,1 m, skv. upplýsingum Sjómælinga. „Þetta er hæsta sjávarstaða árs- ins,“ segir Hafþór Jónsson, „en framhaldið ræðst af því hvar við verðum í lægðabrautunum og hver loftþrýstingurinn verður,“ segir hann. Hafþór segir að ef allt færi á versta veg, þannig að óvenju djúp lægð yrði í næstu nálægð miðað við hástöðu sjávar, þá myndi skap- ast óvenjumikil flóðahætta um suð- vestanvert landið. „Við vonum að við búum við svipað ástand og núna ríkir með óvenju háan loftþrýsting," segir hann. „Það verður ekki ráðið í þetta fyrr en í næstu viku þegar veðurspár birtast," segir hann enn- fremur. L 9 >
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.