Morgunblaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1995 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Margslungið myntbandalag Vandamál í tengslum við hina sameiginlegu mynt Evrópu verða ofarlega á baugi á leið- togafundi Evrópusambandsins, segir Stein- grímur Sigurgeirsson. Verða leiðtogamir að fínna lausn á flóknarí vandamálum en því hvað afkvæmið eigi að heita. OPINBERLEGA eiga áform Evrópusambandsins um efnahagslegan og peninga- legan samruna aðildarríkjanna (EMU) ekki að vera aðalatriði leið- togafundar Evrópusambandsins, sem hefst í Madrid í dag. Skilyrði og tímasetningar vegna EMU voru ákveðin á ríkjaráðstefnunni í Ma- astricht í desember 1991 og ítrekað- ar yfirlýsingar hafa verið gefnar út um að frá þeim ákvörðunum verði ekki hvikað. Samt sem áður stefnir í að EMU verði erfiðasta viðfangsefni leiðtogafundarins enda er það talið forsenda fyrir árangri á ríkjaráðstefnunni er á að hefjast á næsta ári að línurnar varðandi EMU séu skýrar. í Maastricht var ákveðið að myntbandalagið yrði að veruleika árið 1997 en ekki síðar en árið 1999. Mál hafa nú þróast þannig að miðað er við síðari tímasetning- una. Einnig voru sett skilyrði um að þau ríki er hygðu á EMU aðild yrðu að uppfylla nokkur skilyrði og eru þau helstu: • Fjáriagahalli má ekki fara yfir 3% af vergri landsframleiðslu • Heildarskuldir hins opinbera mega ekki vera meiri en 60% af vergri landsframleiðslu. En mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því Maastricht-sáttmál- inn var samþykktur. Danir höfnuðu sáttmá- lanum í þjóðaratkvæða- greiðslu en samþykktu hann í annarri eftir að hafa fengið m.a. undan- þágu frá EMU-þátttöku. Aðildar- ríkjunum hefur fjölgað úr tólf í fimmtán og stefnt er að því að þau verði á þriðja tug í byijun næstu aldar. Gengissamstarf Evrópu (ERM) sprakk í loft upp eftir mikið írafár á gjaldeyrismörkuðum í sept- ember 1992 og júlí 1993, en hin samræmda gengisskráning átti ein- mitt að varða leiðina að sameigin- legum gjaldmiðli. Síðast en ekki síst virðist vera takmarkaður áhugi á hinni sameig- inlegu mynt meðal þjóða Evrópu. Mikill meirihluti íjóðveija er and- vígur hugmyndinni og hefur það orðið til að þýskir ráðamenn hafa gefið út yfirlýsingar um að jafnvel verði að herða skilyrðin fyrir þátt- töku enn frekar. Skilyrði valda vandræðum Þau eru hins vegar það ströng nú þegar að það er farið að valda erfiðleikum í einstaka ríkjum. Verk- föll undanfarinna vikna í Frakk- landi eru skýrasta birtingarform þessa. Ætli Frakkar að vera með í EMU verður að skera niður opinber útgjöld til muna. Án Frakka verða EMU-áformin líka varla að veru- leika. Það er því ekki út í hött að haida því fram að framtíð EMU ráðist á götum Parísar. Breska tímaritið Economist segir í forystugrein í nýjasta hefti sínu að Frakkland hafi síðustu tvær vik- ur minnt á bananalýðveldi þar sem einangruð ríkisstjórn berst við að fylgja skilyrðum Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins þrátt fyrir óvild almenn- ings. Tímaritið bendir einnig á að þó svo að franska stjómin vinni sigur gegn verkfallsmönnum þýði það ekki að auðveldara verði að gera EMU að veruleika heldur einmitt þvert á móti að flestar ríkisstjómir Evrópusambandsins eigi eftir að sannfæra kjós- endur sína um nauðsyn þess að framfylgja skil- yrðum Maastricht. Það má segja að efna- hagsstjóm Evrópu sé í eins konar spennitreyju þar sem svigrúmið til athafna sé verulega takmarkað. Ríkisstjórnimar verða að skera nið- ur fjárlagahallann og lækka skuldir sínar. Þær eiga hins vegar óhægt með að hækka skatta, þar sem slíkt myndi eyðileggja samkeppnisstöðu ríkjanna, og þær geta ekki notað gengisfellingar líkt og áður til að milda áhrifin. Þegar við bætist efna- hagssamdráttur verður staðan erfið og félagslegur þrýstingur byggist „Ekki útilokað að fresta EMU“ Hverjir uppfylla skilyrðin? Miðað er við hlutfal! af vergri landsframleiðslu Skilyrði Maastricht: Halli má ekki vera yfir 3%, skuldir 60% Heildar lánsfjárþörf hins opinbera Heildarskuldir hins opinbera 1994 1995 1996* 1997* 1994 1995 1996* 1997* Austumki -4,4 -5,5 -5,0 -4,6 65,2 68,0 69,9 71,5 Belgía -5,3 -4,5 -3,1 -3,5 ffirfj fflJS 135,0 134,4 132,3 130,0 Bretland -6,6 -5,1 -3,7 -2,8 50,1 52,5 53,3 53,2 Danmörk -3,8 -2,0 -1,3 -0,5 75,6 73,6 72,7 70,5 Finnland -5,8 -5,4 -1,5 0,0 /!| 59,8 63,2 64,6 64,5 Frakkland -6,0 -5,0 -3,9 -2,9 0 48,4 51,5 53,4 54,2 Þýskaland -2,6 -2,9 -2,8 -2,4 50,2 588 114,4 59,5 59,3 Grikkland -11,4 -9,3 -8,3 -7,3 113,0 114,0 113,1 Holland -3,2 -3,1 -2,7 -2,2 ií ['• 78,0 78,4 78,2 77,8 írland -2,1 -2,7 -2,0 -1,3 v 91,1 85,9 81,3 76,9 ítalfa -9,0 -7,4 -6,0 -5,2 125,4 124,9 123,9 122,3 Luxemburg +2,2 +0,4 +0,6 +0,7 5,9 6,3 6,7 6,8 Portugal -5,8 -5,4 -4,7 -4,1 69,4 70,5 71,0 70,9 Spánn -6,6 -5,9 -4,7 -3,6 SmÉ, 63,0 64,8 65,8 65,4 Svíþjóð -10,4 -7,0 -4,5 -3,2 Ip|P 79,7 81,4 80,8 79,8 ESB-meðalt. -5,5 -4,7 -3,8 -3,1 68,1 71,0 71,6 71,3 ísland -3,5 -3,3 -2,6 - 52,6 55,3 54,4 - * að gefinni óbreyttri efnahagsstefnu Heimiid: Economist, Þjóðhagsstofnun upp vegna aukins atvinnuleysis og kjaraskerðinga í óarðbærum grein- um. Áformin um EMU eru ekki orsök þess að taka verður erfiðar og óvin- sælar ákvarðanir — þær hefði orðið að taka hvort eð er. í raun hefur EMU þýtt að Evrópuríki hafa neyðst til að horfast í augu við uppsafnaðan velferðar- og kerfís- vanda síðustu áratuga og takast á við hann af raunsæi fyrr en ella. Slíkar aðgerðir eru hins vegar mjög sársaukafullar og skila ekki árangri fyrr en eftir mörg ár. Ætla ekki að hvika Leiðtogar Evrópu virðast samt eftir sem áður staðráðnir í að reyna að standa af sér þennan storm. Hverfi þeir frá EMU-skilyrðunum myndu mörg ríki eflaust missa rík- isfjármál sín úr böndunum á ný. Jafnvel þó að framkvæmd EMU verði hugsanlega frestað á síðara stigi er talið nauðsynlegt að hafa svipuna á lofti. Margir stjórnmála- menn, ekki síst Helmut Kohl Þýska- landskanslari, hafa lagt mikið undir með áformunum um myntbandalag og að auki er talið að EMU muni minnka kostnað evrópskra fyrir- tækja um 30 milljarða dollara ár- lega eða sem svarar 1.950 milljörð- um íslenskra króna. Á móti kemur að Evrópuríkin væru að setja svigrúmi sínu til ákvarðana í ríkisfjármálum mjög strangar skorður til frambúðar. Þýski seðlabankinn hefur jafnvel krafist þess að fjárlagahalli aðildar- ríkja EMU megi ekki vera yfir 1% af landsframleiðslu. Ríkin væru því að skuldbinda sig til að hafa fjárlög sín hallalaus. Margir óttast að þetta muni leiða til meiri samruna en æskilegt sé. Sameiginleg mynt kalli á sameiginlega peningastefnu, sem kalli á sameiginlega efnahagsstefnu sem neyði menn loks til að stilla saman strengi sína á langflestum sviðum. Á leiðtogafundinum í Madrid munu leiðtogarnir eflaust ítreka stuðning sinn við EMU-áformin og taka ákvarðanir um nokkur fram- kvæmdaatriði. O Ljóst er að ekki munu öll ríki upfylla skilyrðin fyrir 1999 og því verður að finna ásættanlega Iausn fyrir þau ríki sem eru inni og þau sem eru úti varðandi fjölmörg at- riði. Talið er að Evrópsku peninga- málastofnuninni verði falið að gera úttekt á þessum vanda og skila skýrslu um málið fyrir árslok 1996. # Sterk rök hníga að því að útgáfa ríkisskuldabréfa verði í nýju mynt- inni strax frá ársbyijun 1999. Ein helstu rökin eru þau að ríkin sem aðild eiga að EMU treysti sér ekki til að nota nýju myntina sé ekki líklegt að aðrir fái trú á henni. Frakkar vilja gefa út skuldabréf strax frá fyrsta degi í nýju mynt- inni, Þjóðveijar vilja halda réttinum til að gefa út í eigin mynt og önnur ríki vilja einhvers konar mál- amiðlun milli þessara tveggja sjón- armiða. e Nafn hins sameiginlega gjaldmið- ils hefur valdið nokkrum deilum en búast má við að í Madrid verði end- anlega gengið frá því máli. Að öllum líkindum verður „Evró“ fyrir valinu. Frakkar eru hrifnir af ECU en ekki Þjóðveijar þar sem „Ein Ecu“ hljóm- ar eins og „eine Kuh“ eða kýr á þýsku og þar með ekki til þess fall- ið að vekja hrifningu meðal hinna tortryggnu Þjóðveija. Frankar eru taldir of germanskir og flórínur hafa einnig verið nefndar. • _Loks verður að ákveða hvenær á að taka ákvörðun um hveijir fái að vera með. Stuðst verður við hag- tölur ársins 1997 en spurningin er hvort nota eigi hagspár í árslok 1997 eða haldbærar tölur þegar fer að líða á árið 1998. Frakkar vilja að búið verði að taka ákvörðun fyr- ir þingkosningar þar í landi 'sem fram fara í mars 1998 en Þjóðveij- ar vilja bíða, enda kosið síðar þar í landi. Er þýskum stjórnvöldum mikið í mun að sýna fram á að ekki verði slakað á kröfunum. Eins og stendur eru það einungis Þýskaland og Lúxemborg sem standast skilyrði Maastricht. Yves Thibault de Silguy, sem fer með peningamál i framkvæmdastjórn ESB, telur allt benda til að Finn- land, Frakkland, írland og Holland muni einnig uppfylla þau í tæka tíð auk Bretlands og Danmerkur en tvö síðastnefndu ríkin hafa ekki sýnt áhuga á þátttöku þrátt fyrir að efnahagsstefnan minni sterklega á „EMU- peningastefnu" ná- grannanna. Þá er hugs- anlegt að Austurríki, Spánn, Portúgal og Svíþjóð gem það sömuleiðis en þá yrðu stjórnir ríkj- anna að grípa til róttækari aðgerða en nú er fyrirsjáanlegt. Belgía er líka oftast nefnd enda talið erfitt að útiloka þetta stofnríki Evrópu- sambandsins. Vandinn er hins veg- ar sá að hlutfall skulda verður lík- lega 130% af landsframleiðslu árið 1997 og það þarf því að túlka ákvæði Maastricht um að nægilegt sé að ríki stefni í áttina að skilyrð- unum ansi rúmt. „Eftir að sannfæra Evrópubúa" oy háttfítf/vitetnjn/uMj i* jft. L A. i tyo/itleysH f/\'/'/tt///tt. í hádeginu um helgina. Verb abeins 2.100 kr. illMgfl'wMI Kanada Heimsútvarpið lagt niður Ottawa. Reuter. KANADÍSKA ríkisútvarpið CBC hefur skýrt 125 starfsmönnum heimsþjónustu Radio Canada frá því ÁRID 1994 er komið út Pantanasími 431 4111 og fax 431 4666. að hún verði lögð niður 31.. mars í sparnaðarskyni. Heimsþjónusta Radio Canada hef- ur verið rekin í 50 ár. Kanada verð- ur eina ríkið af sjö helstu iðnríkjum heims sem ekki veitir slíka þjónustu um stuttbylgju. Heimsþjónustan var rekin með árlegu framlagi frá kanadíska ríkinu þar til í febrúar í ár þegar CBC var gert að standa straum af kostnaðin- um. Kanadíska þingið hefur enn- fremur ákveðið að skerða fjárfram- lögin til CBC, sem neyddist þá til að leggja heimsþjónustuna njður. Heimsþjónustan útvarpar nú á átta tungumálum til Bandaríkjanna og Rómönsku Ameríku, Karíbahafs- landa, Afríku, Evrópu, Asíu, Rúss- lands og fyrrverandi lýðvelda Sovét- ríkjanna, samtals í a.m.k. 232 klukkustundir á viku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.